Fréttablaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 20. desember 2007 13
FÓLK Sjötíu starfsmenn SPRON
vinna nú sem sjálfboðaliðar við
að útbúa körfur með mat og fleiru
sem síðan er úthlutað til þeirra
sem ekki sjá sér fært að kaupa
jólamat.
Verkefnið er unnið fyrir Rauða
kross Íslands, Mæðrastyrksnefnd
og Hjálparstarf kirkjunnar sem
hafa yfirumsjón með verkinu en
þessir aðilar úthluta sameiginlega
slíkum jólaglaðningum fyrir jólin.
Að sögn Jónu Pétursdóttur,
forstöðumanns almannatengsla
hjá SPRON, eru allir starfsmenn
SPRON í varaliði Rauða kross
Íslands sem þýðir að til þeirra er
leitað ef mannskap þarf í
verkefni sem þetta. - ovd
Starfsmenn SPRON hjálpa:
Sælla að gefa
en þiggja
JÓLAGLEÐIN ER AÐ GEFA ÖÐRUM
Matarkörfur útbúnar af sjálfboðaliðum.
FRÉTTABLAÐID/VÖLUNDUR
Sprengja í gengjastríði
Sprengjusveit frá lögreglunni í Malmö
í Suður-Svíþjóð gerði á sunnudag
óvirka sprengju sem hafði verið
komið fyrir við verslun í bænum And-
ersberg. Að sögn lögreglu eiga tvö
gengi af ólíkum kynþáttum í erjum í
Andersberg.
SVÍÞJÓÐ
Tveir látnir
Talið er að tveir hafi látist í bænum
Nokia í Finnlandi þegar frárennslis-
vatn blandaðist saman við krana-
vatnið nýlega. Helmingur bæjarbúa
veiktist í mengunarslysinu.
FINNLAND
GRÆNLAND Grænlenska land-
stjórnin sendi nýverið frá sér
fréttatilkynningu þess efnis að
engar uppsagnir myndu fylgja
endurskipulagi á stjórnsýslunni
sem gengur í gildi eftir áramót.
Þetta kom fram á vef grænlenska
dagblaðsins Sermitsiak. Stefnt er
að því að endurskipulagið hafi í
för með sér talsverða einföldun á
starfsháttum grænlensku
heimastjórnarinnar. Einföldun
stendur jafnframt til á fleiri
sviðum grænlenskrar stjórnsýslu
þar sem sveitarfélögum landsins
verður á komandi ári fækkað
talsvert með samruna og þannig
dregið úr rekstrarkostnaði. - vþ
Heimastjórnin á Grænlandi:
Endurskipulag
án uppsagna
SUÐUR-AFRÍKA, AP Andstæðar fylkingar stuðn-
ingsmanna Jacobs Zuma og Thabo Mbeki reyna
nú að bera vopn á klæðin og ná fram sáttum
eftir hatramma kosningabaráttu fyrir leiðtoga-
kjör í Afríska þjóðarráðinu, ANC.
Sigurvegarinn, Jacob Zuma, hefur lengi verið
einn umdeildasti stjórnmálamaður Suður-
Afríku. Hann er sagður siðspilltur og skorta
dómgreind, vera hálfgerður trúður jafnvel:
Hláturmildur og fyrirferðarmikill maður sem
gjarnan klæðir sig í hlébarðaskinn að hætti
Zúlúmanna, á nokkrar eiginkonur og hefur ekki
tölu á barnafjölda sínum.
Hann hefur verið ákærður fyrir nauðgun og
enn eru spillingarmál á hendur honum óútkljáð
fyrir dómstólum. Helsta siðgæðisrödd þjóðar-
innar, Desmond Tutu erkibiskup, hvatti
flokksfélaga sína á föstudaginn til þess að kjósa
ekki Zuma, mann sem „flest okkar myndu
skammast sín fyrir“.
Þrátt fyrir allt þetta nýtur hann mikilla
vinsælda, einkum meðal ungs fólks og í
dreifbýlinu. Hann þykir hlýrri persónuleiki en
Mbeki, og hefur lagt áherslu á að styðja við
bakið á fátæklingum.
Hinar miklu vinsældir hans skiluðu sér í því
að á flokksþingi ANC hlaut hann 2.329 atkvæði
en mótherjinn Mbeki aðeins 1.505. Zuma tekur
því við af Mbeki sem leiðtogi flokksins og þykir
þá nokkuð öruggur um að verða forseti Suður-
Afríku að loknum kosningum árið 2009. - gb
Mikil spenna enn í röðum andstæðra fylkinga í Suður-Afríku:
Reynt að bera klæði á vopnin
ÁNÆGÐUR MEÐ SIGURINN Sigurvegarar
leiðtogakjörsins, þeir Jacob Zuma og Kgalema
Motlanthe, sem verður varaformaður ANC.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP