Fréttablaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 42
[ ]
Fjölmargir Íslendingar dvelja á Kanaríeyjum
um jólin og enn fleiri um áramótin. Ein þeirra
sem ætlar að prófa hvorutveggja er Björk Þor-
geirsdóttir kennari, sem heldur á vit ævintýr-
anna ásamt stórfjölskyldunni.
„Ég hef aldrei komið til Kanarí en nú á að kýla á það.
Við erum fimmtán sem förum saman,“ segir Björk
og telur upp. „Það erum við systkinin þrjú með okkar
fjölskyldur, pabbi og mamma og svo kemur tengda-
mamma bróður míns frá Danmörku.“ Hún segir
yngsta ferðalanginn vera þriggja ára og föður hennar
elstan, 61 árs. En hvernig kom það til að þau tóku
þennan kúrs? „Tilefnið er það að ég varð fertug á
árinu, litli bróðir minn þrítugur og mamma verður
sextug 21. desember. Þannig að nú var árið til að
gera þetta.“
Björk segir hópinn hafa pantað ferðina á vor-
dögum. „Við verðum á ensku ströndinni í fjórum
aðliggjandi íbúðum, hver fjölskylda fyrir sig, þannig
að við þurfum ekkert alltaf að halda hópinn frekar
en við viljum. En okkur kemur ofsalega vel saman
þannig að við erum bara mjög spennt. Þetta verður
rosa stuð.“
Það leynir sér ekki að Björk hlakkar til ferðalags-
ins. En hvernig undirbýr fólk jólin þegar ferðalag á
fjarlægar slóðir er í aðsigi? „Við undirbúum okkur
nú ekki mikið,“ segir Björk og bætir við skellihlæj-
andi: „Fórum bara og keyptum okkur jólaföt sem hjá
okkur dömunum eru bikiní − og málið dautt! Einu
reglurnar eru þær að það er bannað innan hópsins að
taka með sér hangikjöt og Orabaunir. Við ætlum að
hafa þetta útlensk jól á erlendri grund. Það eina sem
er planað er að fara út að borða saman á afmælinu
hennar mömmu og elda svo saman á aðfangadags-
kvöld. En það verða ekki jólapakkar nema fyrir litlu
krakkana.“
Þegar myndatakan vegna viðtalsins berst í tal er
Björk spurð hvort hún geti ekki stillt sér upp við
töskurnar og verið að pakka bikiníinu niður. Hún
trompar það óhikað með því að bjóðast til að vera í
því á myndinni. Dregur svo í land. „Nei, ég er hrædd
um að ég yrði skilin eftir. Ætli mér yrði ekki sagt að
fara bara seinna!“
gun@frettabladid.is
Jólafötin í ár eru bikiní
Mæðgurnar Björk og Anna Dröfn hlakka til að dvelja á sólar-
strönd um jólin.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Dagatalakertin ættu nú að vera langt komin enda nálgast
jólin óðfluga. Nú er svo sannarlega tími kertaljósanna en gæta
ber fyllsta öryggis við meðhöndlun þeirra.
Erum í Dugguvogi 2. Sími 557-9510
Verðdæmi:
Leðursófasett áður 239,000 kr
Nú 119,900 kr
Hornsófar tau áður 198,000 kr
Nú 103,000 kr
Hornsófar leður áður 249,000 kr
Nú frá 159,000 kr
• Leðursófasett
• Hornsófasett
• Sófasett með innbyggðum skemli
• Borðstofuborð og stólar
• Sófaborð
• Eldhúsborð
• Rúmgafl ar
Húsgagna
Lagersala
Nýjar vö
rur
Opnunartími
Mán - Föstudagar 09 - 18
Laugardaga 11 - 16
Húsasmiðjan - Byko - Fjarðarkaup - Áfangar Keflavík - Vélaleiga Húsavíkur
Nesbakki Neskaupsstað - Litabúðin Ólafsvík - Skipavík Stykkishólmi
SR byggingavörur - Eyjatölvur - Miðstöðin Vestmannaeyjum - Pottar og
prik Akureyri - Núpur Ísafirði - Litaver - Verkfæralagerinn - Byggt og búið.
Heildsöludreifing: Ræstivörur ehf - sími 567 4142 - www.raestivorur.is
Hágæða gólfsápa í 20 ár
Auglýsingasími
– Mest lesið