Fréttablaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 74
62 20. desember 2007 FIMMTUDAGUR
Hin brjóstgóða Pamela Anderson
hefur sótt um skilnað við eigin-
mann sinn Rick Salom-
on eftir aðeins tveggja
mánaða hjónaband.
Ástæðan er ósætt-
anlegur ágreiningur.
Þrátt fyrir það voru
myndir teknar af
þeim í verslun-
arleiðangri á
sunnudag og
eftir það sagði
Anderson að þau
væru að reyna að
ná sáttum. Eins og
Salomon á Ander-
son tvö hjóna-
bönd að baki, við
rokkarana Tommy
Lee og Kid Rock.
Salomon var kvæntur Elizabeth
Daily og Shannen Doherty.
Hljómsveitin R.E.M. ætlar að gefa
út nýja plötu hinn 1. apríl á næsta
ári. „Mig langar að segja ykkur
leyndarmál. Við erum
búnir að taka upp
frábæra plötu. Hún er
frábrugð- in því
sem við
höfum
gert
áður,“
sagði
söngv-
arinn Michael Stipe á góðgerða-
uppboði í New York. Síðasta plata
R.E.M., Around the Sun, kom út
árið 2004.
Handtökuheimildin sem var gefin
út á leikarann Daniel Baldwin
hefur verið felld
niður. Baldwin
átti að mæta
fyrir rétt 7.
desember til að
ræða skilorð sitt
eftir að hafa
verið dæmd-
ur fyrir fíkni-
efnabrot
á síðasta
ári. Mætti
hann ekki
á svæðið
og var handtökuheimildin því gefin
út. Dómari í málinu ákvað að fella
heimildina niður eftir að Baldwin
tjáði honum að um misskilning
hefði verið að ræða. Hann hefði
einfaldlega ekki vitað að hann ætti
að mæta í réttarsalinn.
Leikkonunni Kate Hudson þykir
ennþá vænt um fyrrverandi
kærastann sinn Owen
Wilson. Gamanleikar-
inn reyndi að fremja
sjálfvíg í ágúst eftir
að hann frétti af
sambandi hennar
við leikarann Dax
Sheperd. „Owen er
yndisleg manneskja
og mér þykir ákaf-
lega vænt um hann.
Ég óska honum
alls hins besta. Ég
vona að hann verði
heilsuhraustur og
fái allt sem hann
óskar eftir í lífinu,“
sagði Hudson.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Söngkonan vinsæla Ragnheiður Gröndal
mun halda desembertónleika á skemmti-
staðnum Nasa við Austurvöll í kvöld.
„Þetta verða ekki jólatónleikar, þótt
reyndar slæðist nokkur jólalög með inni
á milli,“ segir Ragnheiður. „Ætlunin er að
gefa fólki frí frá jólalögunum sem dynja
á því allan vinnudaginn, og bjóða upp á
huggulegheit á aðventunni.”
Ragnheiði til halds og traust verða
fjögurra manna hljómsveit og strengja-
kvartett. „Ég ætla að flytja lög af gömlu
plötunum mínum, Vetrarljóð, Þjóðlög og
After the Rain. Þetta er í fyrsta skipti
sem ég flyt svo fjölbreytta tónlist á
einum tónleikum,“ segir Ragnheiður, en
hún mun einnig kynna lög af nýrri plötu
sem er í vinnslu og kemur líklega út í
vor.
Tónleikarnir byrja klukkan 21 og miða
má nálgast á midi.is. - eá
Ragnheiður á Nasa
RAGNHEIÐUR GRÖNDAL Heldur
tónleika á Nasa í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
Jason Bonham, sem
trommaði með Led Zeppelin
á endurkomutónleikum
sveitarinnar í London, segir
að tíminn muni leiða í ljós
hvort sveitin komi aftur
saman.
„Ég er ennþá nýi gaurinn í
hljómsveitinni og ég bara
veit það ekki,“ sagði
Bonham, en faðir hans John
trommaði upphaflega með
Zeppelin. „Ég hef ekkert
talað við Jimmy, Robert og
John Paul nema til að þakka
þeim fyrir bestu jólagjöf
sem hægt er að hugsa sér.
Þetta skipti mig miklu máli,“
sagði Bonham. „Ef þeir vilja hittast aftur myndi ég
glaður taka þátt í því en það er undir þeim komið.“
Hann segist hafa lagt hart að sér til að sanna að
hann hafi verið verðugur
þess að spila með Zeppelin.
„Ég hlustaði á fullt af
tónleikaupptökum. Maður
þarf að vinna fyrir svona
hlutum vegna þess að það
eru milljón trommarar
þarna úti sem væru tilbúnir
til að skera þig á háls og taka
við af þér.“
Fram undan hjá Bonham
eru tónleikar með hljóm-
sveit sinni Foreigner.
Orðrómur um tónleikaferð
Zeppelin gengur fjöllum
hærra. Bæði hefur verið
talað um tónleika í Madison
Square Garden í New York
og í Bretlandi. Söngvarinn Robert Plant er þegar
lagður af stað í tónleikaferð, með söngkonunni Alison
Krauss. - fb
Þakkaði fyrir frábæra jólagjöf
ZEPPELIN Jason Bonham og félagar í Led Zeppelin fóru á
kostum á endurkomutónleikunum í London 10. desember.
Silvia cappuccinovélin frá Rancilio er goðsögn
meðal kaffiunnenda. Nú er þessi frábæra vél
komin í nýrri gerð sem notar líka grisjur
( POD )auk malaðs kaffis. Lagar espresso og
cappuccino eins og á bestu kaffibörum.
Fæst einnig hjá Kafffélaginu á Skólavörðustíg
10 og Pottum og Prikum á Akureyri
Waring blandarinn er hin
upprunalega mulningsvél frá
Ameríku. Tveggja hraða
mótorinn er kannski öflugri en
eldhúsið þarf, en hann fer líka
létt með erfiðustu verk. Bara
massíft stál og gler! Auðveldur í
þrifum, bara að setja könnuna í
uppþvottavélina. Fæst líka hjá
Kaffifélaginu og í Pottum og
Prikum, Akureyri
Þetta er Capricci espressovélin. Þetta er snjalla kaffivélin sem
gerir öllum kleift að laga espresso og cappuccino á einfaldan hátt.
Þú lagar espresso með því að setja kaffihylki í vélina og ýtir svo á
einn takka og þá lagar vélin kaffið undireins. Kaffivélin skilar
korginum í korggeymslu sem auðvelt er að tæma. Ekkert vesen
og engin sóðaskapur.
Hugmyndarík og falleg hönnun. Capricci vélin er einföld og
þægileg í notkun Síðast en ekki síst þá lagar Capricci frábært
kaffi eða te á innan við 30 sekúndum. Cappuccino, espresso, latte
eða te Pronto
Verð á Capricci vél er kr. 16.900. Capricci er tilvalin í eldhúsið,
sumarbústaðinn, á vinnustaðinn, á hótelherbergið, eiginlega hvar
sem er svo fremi sem vatn og rafmagn sé við höndina. Fæst
einnig hjá Kaffifélaginu á Skólavörðustíg og á
www.espressokaffi.is
Góðir hlutir í KAFFIBOÐI!
Einnig kvarnir í úrvali
Opið á Þorláksmessu