Fréttablaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR 20. desember 2007 31
Stofnuð verður Rannsóknar-
stofa um þroska, mál og læsi
barna og unglinga við Kennara-
háskóla Íslands. Samningur þess
efnis var undirritaður 13.
desember síðastliðinn.
Hrafnhildur Ragnarsdóttir,
prófessor við KHÍ, verður for-
stöðumaður rannsóknarstofunn-
ar. „Meginástæðan fyrir því að
við förum út í þetta er að það
vantar, þótt ótrúlegt megi virð-
ast, rannsóknir á málþróun
barna, lestrarþróun og almennt
þroska íslenskra barna,“ segir
Hrafnhildur.
„Með þessari þverfaglegu
samvinnu vonumst við til að
geta gert mikið átak í þessum
efnum,“ segir Hrafnhildur.
Jafnframt er stefnt að auknu
samstarfi við erlenda aðila um
rannsóknir og reynt verður að
ná yfirsýn yfir rannsóknir á
þessu sviði.
Aðrir sem sitja í stjórn eru
Ragnhildur Bjarnadóttir dósent,
Steinunn Gestsdóttir, Steinunn
Torfadóttir, Rannveig Jóhanns-
dóttir og Freyja Birgisdóttir,
lektorar við Kennaraháskóla
Íslands. Reykjavíkurborg mun
leggja fimm milljónir króna í
verkefnið á ári. - sgj
Rannsóknarstofa um þroska, mál og læsi barna og unglinga sett á fót:
Rannsóknir skortir á börnum
SAMNINGURINN UNDIRRITAÐUR Ólafur Proppé, rektor Kennaraháskóla Íslands,
og Hrafnhildur Ragnarsdóttir, forstöðumaður rannsóknarstofunnar, undirrituðu
samninginn.
kki
ri það
ar og hughrif sem þau geta ekki
komið orðum að.“
Pétur segist leggja mikla
áherslu á að börn upplifi tónlist í
samvinnu og fái nasasjón af sem
flestum stefnum, allt frá afrískri
tónlist, vinnusöngvum, blús, kán-
trí og rokki.
„Ég segi frá vinnusöngvum sem
sungnir voru til að sameina hóp
manna og beina orku þeirra og
athygli að einu átaki. Það er nefni-
lega svo mikil innibyggð orka í
ýmiss konar alþýðutónlist og
skáldskap,“ segir hann.
Pétur gefur tónmenntakennur-
um góð ráð við útsetningu á tón-
verkum í bekkjum en bendir á að
tónmenntakennarar þurfi því á
góðum og fjölbreyttum hljóð-
færakosti að halda og geta útsett
verkin þannig að hver nemandi
fái hlutverk við sitt hæfi. Geta
nemendanna sé mismunandi en
tónlistin skapi reglu og samhengi.
„Hún setur rammann utan um
samveruna og auðveldar hverjum
og einum að taka þátt.
Allir þurfa að hafa skilgreindu
hlutverki að gegna. Þá er gaman.
Nemendur finna að þeir eru hluti
af heild og að heildin er sterkari
en einstaklingurinn. Söngur og
samspil auka samkennd bekkjar-
ins.
Nýbúar geta til dæmis verið
virkir í samspili þótt þeir skilji
lítið í íslensku. Þar öðlast þeir við-
urkenningu og finna að þeir eru
fullgildir þátttakendur í því sem
fram fer. Stundum mismunar
tungumálið nemendum en tónlist-
in ekki,“ segir Pétur og bendir á
að iðkun tónlistar í kammersveit-
um kenni börnum bæði sjálfsaga
og samvinnu með þeim sem
standa næst manni sem séu mikil-
vægir eiginleikar. karen@frettabladid.is
Forstjóri Tryggingastofnunar, rektor
Háskóla Íslands og forseti lagadeildar
skólans skrifuðu
á þriðjudag undir
samning um kennslu
og rannsóknir í
almannatrygginga-
og félagsmála-
rétti. Sigríður Lillý
Baldursdóttir forstjóri
telur samninginn
gott tækifæri til að
skila mikilli þekkingu lögfræðinga
Tryggingastofnunar til lögfræðinga
framtíðarinnar með þá von í brjósti
að það leiði til faglegri og upplýstari
umfjöllunar um almannatryggingar
öllum til hagsbóta.
■ Tryggingastofnun
Styrkir lagakennslu
við Háskóla Ísland
Öll fyrirtæki geta tekið þátt í könnun VR, Fyrirtæki ársins. Stjórnendur þeirra geta svo
nýtt sér niðurstöðurnar og fengið skýra mynd af aðbúnaði og ánægju starfsfólksins.
Þessar upplýsingar koma sér vel í daglegum rekstri. Það er því allra hagur að sem flestir
segi hvað þeim finnst.
Hvetjum samstarfsfólk okkar til að taka þátt í könnuninni!
Athugið að skila þarf inn þátttökulistum í síðasta lagi 5. janúar 2008. Allar nánari
upplýsingar fást á heimasíðu VR, www.vr.is, eða með því að senda póst á vr@vr.is
Hver fær 2008
árgerðina?
Virðing
Réttlæti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS