Fréttablaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 4
Bandaríska
fréttatímaritið Time hefur valið
Vladimír Pútín Rússlandsforseta
sem mann ársins 2007.
„Hann er nýi
keisarinn í
Rússlandi og
hann er
hættulegur að
því leyti sem
hann lætur sér
borgararéttindi
og málfrelsi í
léttu rúmi
liggja,“ segir
Richard Stengel, ritstjóri Time.
Áður hafa meðal annarra Adolf
Hitler, Mahatma Gandhi, flestir
leiðtogar Sovétríkjanna og flestir
Bandaríkjaforsetar undanfarna
hálfa öld verið menn ársins hjá
Time.
Pútín valinn
maður ársins
Ríkisstjórnin
hefur ákveðið að „setja fólk til
verka“ til að fara yfir kröfugerð
Alþýðusambands Íslands gagn-
vart ríkisstjórninni og verður við-
ræðum haldið áfram eftir hátíð-
arnar, að sögn Ingibjargar R.
Guðmundsdóttur, varaforseta
ASÍ.
Litlu munaði að kjaraviðræð-
urnar færu í loft upp í gær þar
sem forysta ASÍ taldi sig skynja
áhugaleysi hjá stjórnvöldum.
Krafa um sérstakan persónuaf-
slátt stóð í ríkisstjórninni.
Forysta ASÍ hitti Geir H. Haar-
de forsætisráðherra og Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráð-
herra á miðvikudagskvöldið til að
ræða kröfugerð samtakanna. For-
menn landssambandanna hittust
svo í gærmorgun og fóru yfir stöð-
una. Á þeim fundi kom í ljós að
formennirnir töldu ríkisstjórnina
áhugalausa um aðkomu að samn-
ingunum. Kristján Gunnarsson,
formaður Starfsgreinasambands-
ins, vill ekki gera mikið úr því en
segir að auðvitað geti kveikurinn
stundum verið stuttur hjá mönn-
um.
Eftir símtal varaforseta ASÍ og
forsætisráðherra síðdegis í gær
varð hins vegar ljóst að ríkis-
stjórnin vildi setja menn í útreikn-
inga á kröfum og ræða málið
betur. Þær viðræður hefjast eftir
hátíðarnar. Varaforseti ASÍ segir
að verkalýðsforystan hafi verið að
bíða eftir svari frá ríkisstjórninni
við áherslum ASÍ. „Við höfum
verið að gera bæði ríkisstjórn og
öðrum skýra grein fyrir því að
aðkoma ríkisstjórnarinnar með
þeim hætti sem við höfum verið
að leggja upp sé forsenda fyrir því
að við náum kjarasamningum,“
segir hún.
„Við vorum orðin töluvert
áhyggjufull og fólk var farið að
setja sig í þær stellingar að reyna
nýjar leiðir þegar við heyrðum frá
forsætisráðherra. Ríkisstjórnin er
tilbúin til að setja fólk til verka
með okkur strax eftir hátíðar við
að fara yfir þetta og reyna að finna
ásættanlegar lausnir. Við vorum
nánast komin að þeirri niðurstöðu
að það væri ekki vilji til að gera
neitt í málinu en förum nú von-
betri inn í jólin,“ segir Ingibjörg.
Starfsgreinasambandið hefur
afboðað samningafund sem átti að
vera í dag. Kristján segir að hin-
krað verði fram yfir jól og áramót
enda fáist ekki skýrt svar. Ekki sé
hægt að halda áfram viðræðum
fyrr en fréttir fáist af þeirri mikil-
vægu forsendu sem aðkoma ríkis-
stjórnarinnar sé.
Skattamálin stóðu
í ríkisstjórninni
Litlu munaði að kjaraviðræðurnar færu í loft upp í gær þegar forysta verkalýðs-
hreyfingarinnar taldi sig skynja áhugaleysi hjá ríkisstjórninni. Forsætisráðherra
ætlar að láta reikna út kostnað við kröfurnar. Viðræður halda áfram á nýju ári.
Utanríkisráðherra
Tyrklands skoraði í gær á
ríkisstjórnir Evrópusambands-
landanna að standa við gefin
fyrirheit um
að viðræður
þær sem
sambandið á
nú í við Tyrki
miðuðu að því
að þeir fengju
fulla aðild að
sambandinu.
Hvatti
tyrkneski
ráðherrann,
Ali Babacan, á
blaðamannafundi í Brussel
ráðamenn ESB-ríkjanna til að
láta Nicolas Sarkozy Frakk-
landsforseta ekki fá því fram-
gengt að ESB breyti samnings-
markmiðinu í að Tyrkir fái
viðaminni samning um náin
tengsl við sambandið í stað
fullrar aðildar. Sagði hann slíka
viðleitni „óábyrga“.
Stefnt verði að
fullri aðild
Dagskrárliðurinn Orð
kvöldsins, sem var á dagskrá
Rásar 1 þar til fyrir rúmum
þremur mánuðum, hefst á ný 7.
janúar á næsta ári. Þetta staðfest-
ir Páll Magnússon útvarpsstjóri.
Þátturinn var tekinn af dagskrá
vegna afkáralegar tímasetningar,
en hann var síðasti dagskrárliður
fyrir kvöldfréttir. Í honum var
farið með stutta kvöldbæn.
Eldri borgarar brugðust við
með því að funda með Páli og
óska eftir að þátturinn yrði aftur
settur á dagskrá. Ákveðið var að
verða við þeirri ósk, en færa
þáttinn eftir kvöldfréttirnar
klukkan tíu.
Orðin óma á ný
eftir áramótin
Umsátursástandið
sem skapaðist í Mosfellsdal á
mánudagsmorgun var ekki eins
alvarlegt og haldið var í fyrstu.
Lögreglan, ásamt sérsveitar-
mönnum og samningamönnum,
sat um húsið í um eina og hálfa
klukkustund en að því loknu
kom maðurinn út. Var hann þá
ekki vopnaður eins og talið var
en undir áhrifum vímuefna.
Málið er komið til rannsóknar
hjá ofbeldisbrotadeild lögregl-
unnar en maðurinn hefur ekki
verið ákærður. -
Ekki jafn alvar-
legt og talið var
Ekki var kannað sérstaklega í stjórn
Landsvirkjunar hvort lagaheimildir væru til staðar
fyrir stofnun Landsvirkjun Power og tilfærslu
verkefna inn í fyrirtækið. Páll Magnús-
son, stjórnarformaður Lands-
virkjunar, segist telja að Lands-
virkjun hafi fulla heimild til að
stofna félög og eiga í félögum.
„Það hafa engar efasemdir
komið fram um þetta, hvorki
þegar Landsvirkjun Invest var
stofnað, eða þegar nafninu var
breytt í Landsvirkjun Power og
framkvæmda- og verkfræðisvið
Landsvirkjunar voru færð
þangað inn,“ segir hann. „Ég tel
engan vafa á því að þetta sé
heimilt.“
Fram kom í Fréttablaðinu í gær að lagaheimildir
séu óljósar fyrir þeirri breytingu sem varð á
starfsemi Landsvirkjunar þegar Lands-
virkjun Power var stofnað og hluti
verkefna Landsvirkjunar færðist
þangað inn.
Landsvirkjun Power er
hlutafélag, og tekur til starfa
um áramótin. Eigið fé þess
verður átta milljarðar króna,
sem koma frá Landsvirkjun.
Þar af eru allt að fimm
milljarðar sem ætlaðir eru
sem hlutafé í HydroKraft
Invest, en Landsvirkjun
Power mun eiga það fyrir-
tæki til helminga við Lands-
bankann.
Könnuðu ekki lagaheimildir
Hvalir og höfrungar
eru meðal þeirra sjávardýra
sem eru á lista yfir kærendur í
lögbannsmáli gegn olíufyrirtæki
á Filippseyjum. Dýrin eru
skjólstæðingar tveggja
umhverfissinnaðra lögfræðinga
sem segjast vera ráðsmenn
hinna lægra settu dýrategunda.
Samkvæmt filippeyska
fréttavefnum Inquirer leggjast
lögfræðingarnir gegn áformum
fyrirtækisins Japex um olíubor-
anir í Tanonsundi, sem liggur á
milli eyjanna Negros og Cabu.
Þeir vilja að hæstiréttur
landsins tryggi öryggi þeirra
dýra sem halda til á svæðinu.
Hvalir lögsækja
olíufyrirtæki