Fréttablaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 65

Fréttablaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 65
FIMMTUDAGUR 20. desember 2007 53 Danielle Kvaran tók sér nokkur ár í að vinna verkið sem hér er til skoðunar, Erró í tímaröð, líf hans og list. Útkoman er nauðsyn- legt inngangsrit um þennan starfsama og mikilvæga myndlistarmann okkar, heims- manninn Guðmund Guðmundsson. Oft er haft á orði þegar ný sýning á verkum úr hans stóru gjöf til Reykvíkinga kemur upp í Hafnarhúsi að allt sé það eins, ekkert komi á óvart: offlæðið sem einkennir verk hans reynist flestum ofviða, áhorfandi á efitt með að greina skóginn fyrir trjánum. Sú athygli sem bókin hefur vakið á liðnum dögum snýst mest um þrykkin sem gefin verða um miðjan næsta mánuð þegar hann kemur hingað í stuttan stans til að árita þessa bók Daniellu. Bókin leiðir samt í ljós að Erró er gríðarlega mikilvægur listamaður, ekki aðeins í íslensku sögulegu ljósi, ekki í sögu myndlistar Evrópu á síðari hluta síðustu aldar, heldur verður að skoða hann í enn víðara samhengi, einkum með tilliti til asískrar listar. Hann hefur lagt undir sig heiminn og dregið hann af miklum krafti inn í þann heim sem lífsverk hans er. Daniella bætir um þann ritafjölda sem þegar er til um lífsverk Guðmundar: hún rekur ferilinn ár fyrir ár, þetta er atriðaskrá fyrir ævisögu og um leið er hægt að rekja þróun hans sem málara. Fyrir í hillunni eru stóru katalókarnir sem nú eru orðnir fjórir, sá síðasti rekur árin 1998 til 2006, sem eru nauðsyn þeim sem vilja átta sig á heildar- safni verka hans. Þá eru rit Aðalsteins Ingólfssonar, Erró - margfalt líf, (1991), Gunnars Kvaran, Rými/tími í verkum Erró (1989) og Marc Auge, Goðsagnamálarinn Erró (1994) auk aragrúa smærri bóka og sýningarskráa sem hann hefur átt hlut í eða staðið undir einn. Því á hverjum tíma eru verk hans á ferð. Engan ætti að undra að bókverk ýmiss konar um Erró séu mörg: hann er ekki einhamur maður í list sinni, afköstin eru slík og þegar betur er að gáð eru innan verkanna mörg hólf, ótrúlegur fjöldi efnissviða sem hann hefur gert að sínum þótt málverkið sé hans aðal. Bæði steinþrykkin, klippimyndirn- ar, verk unnin í smelti og mósaík-verkin eru kapítuli út af fyrir sig. En málverkið er hans aðalmiðill. Sá sem lítur yfir feril Guðmundar verður fljótt orðlaus. Verkin eru svo ótrúlega mörg og hann hefur komið svo víða við í umsköpun og flokkun myndflaumsins sem hann sorterar og setur niður í sínar flóknu myndir sem margar eru að auki þanin í fletinum þótt víða megi finna vasa þar sem yfirlætisfull viðfangsefni eru í fyrirrúmi, fáguð – nú eða klúr – eru aðalatriði. Þótt við eigum hér eitt stærsta safn verka hans á einum stað og í Hafnarhúsi séu að jafnaði uppi syrpur úr því er myndlist hans ekki víða aðgengileg á almannavettvangi á Íslandi. Enginn söfnuður hefur enn kallað hann til að skreyta kirkju hér eftir vinnu hans á Hólum og væri ekki úr vegi að honum yrði veitt slíkt tækifæri, því maðurinn er enn að þótt hann sé 75 ára gamall. Stóra verkið hans sem var við inngang á nýbyggingu Kringlunnar er komið niður (hvar er það?) og málverk hans sem í upphafi prýddi fordyri Borgarleikhússins var tekið niður fyrir mörgum árum. Þó er list hans einmitt fyrir fjöldaneyslu. Ekkert gallerí á Íslandi hefur verk hans á boðstólum að staðaldri, reki prent hans eða mósaíkverk á íslensk uppboð fara þau á lágu verði og menn rekur í rogastans ef málverk hans seljast á bærilegu verði í útlöndum eins og gerðist í síðustu viku. Þau eru raunar fáanleg suður eftir allri Evrópu á eftirmarkaði og þá verðlögð á nokkrar millur. Ef einhver vill kaupa. Erró er einhver mikilvægasti myndlistar- maður Íslendinga frá upphafi: hugmynda- fræðilegur grunnur hans er gagnrýni á vald í öllum þess myndum. Raunar fyndið að það kom í hlut Davíðs Oddssonar í borgarstjórn- artíð hans að veita gjöfinni viðtöku þegar til þess er litið að Davíð stóð að hinni einarðlegu afstöðu lýðveldisins með innrásarherjum hins vestræna heims sem varð Guðmundi síðar myndefni. Gaman væri að sjá þá syrpu á veggjum Hafnarhússins. Erró varð til þess að gefa poppinu stjórnmálalegt inntak, nokkuð sem banda- rískum og breskum poppurum var um megn. Nú skortir þann sem hér slær lykla þekkingu á þráðunum í þeim vef, fróðlegt er að bera saman þéttleikann í myndlist Fahlströms hins sænska og Guðmundar. Fahlström féll frá snemma, en báðum var offlæðið efni. Guðmundur hefur æ síðan haldið sig við hinn þétta vef myndvísana, hvert verk hans kallar á mikla umræðu, vekur ótal spurningar og þurfa menn þá að líta vítt eftir kveikjum og tengslum. Verk Errós eiga að vera í öllum skólum, þau eiga að skreyta sjúkrahús, almannastofn- anir og staði þar sem fólksstraumur fer um. Um gjöf hans á að reisa sérstakt safn. Listasafn Reykjavíkur á að fá sérstaka fjármuni til að sýna lífsstarfi hans verðskuld- aðan sóma, héðan á að stýra rannsóknum á ferli hans sem við höfum allt of lengi gefið útlendingum eftir. Rit Danielle Kvaran er þörf áminning um hversu slaklega við höfum staðið okkur í að sinna lífsverki hans. Páll Baldvin Baldvinsson Ferill Errós skráður MYNDLIST Erró í tímaröð – Líf hans og list Danielle Kvaran Þýðing: Sigurður Pálsson ★★★★★ Mikilvægt yfirlit um stærsta nafnið í íslenskri myndlist á vorum tímum MYNDLIST Opna úr hinni glæsilegu bók sem Listasafn Reykjavíkur og JPV hafa gefið út eftir Danielle Kvaran. 695,- ISIG kerti m/7 kveikum, ýmsir litir Ø26, H14 cm 1.590,- 150,- GLÄNSA sería (rafhlöðu) ýmsir litir L1,1 m 250,- 250,- GLÄNSA STJÄRNA sería (rafhlöðu) ýmsir litir L2,3 m 395,- 295,- ISIG skraut 48 hlutir, ýmsar tegundir 495,- 350,-/6 stk. ISIG gjafapappír 3x0,7 m ýmis mynstur 495,-/6 stk. 195,- ISIG ilmsprittkerti 42 stk. ýmsir litir 395,- 1.490,- GLÄNSA DIAMANT innisería 48 ljós L5 m ýmsir litir 2.490,- 50,- ISIG skraut 2 m ýmsir litir 95,- 95,- ISIG ilmkerti H9 cm ýmsir litir 195,- 150,-/20 stk. ISIG kerti H19 cm ýmsir litir 295,-/20 stk. 195,-/6 stk. ISIG skrautdropar 395,-/6 stk. 150,- ISIG gjafapappír 2x0,7 m ýmsir litir 295,- 95,- ISIG gjafapappír 5x0,7 m ýmsir litir 195,- 95,-/20 stk. ISIG kort 12x12 cm ýmis mynstur 250,-/20 stk. 95,- ISIG kubbakerti H12 cm ýmsir litir 150,- 395,- ISIG kertastjaki fyrir kubbakerti H12 cm 795,- 75,- ISIG gjafapappír 8 m 95,- 35,- ISIG gjafaborði 50 m 65,- 95,-/9 stk. ISIG skraut pakki ýmsir litir 150,-/9 stk. 95,-/6 stk. ISIG gjafapokar ýmsir litir 150,-/6 stk. 75,- ISIG jólaskraut 10 m 150,- 295,- ISIG skraut 48 hlutir, ýmsar tegundir 495,- Opið til 22:00 fram að jólum Þorláksmessa 12:00-18:00 www.IKEA.is Lækkað verð 150,- GLÄNSA sería 10 perur ýmsir litir L1,1 m 250,- © In te r I KE A Sy ste m s B .V . 2 00 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.