Fréttablaðið - 20.12.2007, Síða 65
FIMMTUDAGUR 20. desember 2007 53
Danielle Kvaran tók sér nokkur ár í að vinna
verkið sem hér er til skoðunar, Erró í
tímaröð, líf hans og list. Útkoman er nauðsyn-
legt inngangsrit um þennan starfsama og
mikilvæga myndlistarmann okkar, heims-
manninn Guðmund Guðmundsson. Oft er haft
á orði þegar ný sýning á verkum úr hans
stóru gjöf til Reykvíkinga kemur upp í
Hafnarhúsi að allt sé það eins, ekkert komi á
óvart: offlæðið sem einkennir verk hans
reynist flestum ofviða, áhorfandi á efitt með
að greina skóginn fyrir trjánum. Sú athygli
sem bókin hefur vakið á liðnum dögum snýst
mest um þrykkin sem gefin verða um miðjan
næsta mánuð þegar hann kemur hingað í
stuttan stans til að árita þessa bók Daniellu.
Bókin leiðir samt í ljós að Erró er gríðarlega
mikilvægur listamaður, ekki aðeins í íslensku
sögulegu ljósi, ekki í sögu myndlistar Evrópu
á síðari hluta síðustu aldar, heldur verður að
skoða hann í enn víðara samhengi, einkum
með tilliti til asískrar listar. Hann hefur lagt
undir sig heiminn og dregið hann af miklum
krafti inn í þann heim sem lífsverk hans er.
Daniella bætir um þann ritafjölda sem
þegar er til um lífsverk Guðmundar: hún
rekur ferilinn ár fyrir ár, þetta er atriðaskrá
fyrir ævisögu og um leið er hægt að rekja
þróun hans sem málara. Fyrir í hillunni eru
stóru katalókarnir sem nú eru orðnir fjórir,
sá síðasti rekur árin 1998 til 2006, sem eru
nauðsyn þeim sem vilja átta sig á heildar-
safni verka hans. Þá eru rit Aðalsteins
Ingólfssonar, Erró - margfalt líf, (1991),
Gunnars Kvaran, Rými/tími í verkum Erró
(1989) og Marc Auge, Goðsagnamálarinn
Erró (1994) auk aragrúa smærri bóka og
sýningarskráa sem hann hefur átt hlut í eða
staðið undir einn. Því á hverjum tíma eru
verk hans á ferð.
Engan ætti að undra að bókverk ýmiss
konar um Erró séu mörg: hann er ekki
einhamur maður í list sinni, afköstin eru slík
og þegar betur er að gáð eru innan verkanna
mörg hólf, ótrúlegur fjöldi efnissviða sem
hann hefur gert að sínum þótt málverkið sé
hans aðal. Bæði steinþrykkin, klippimyndirn-
ar, verk unnin í smelti og mósaík-verkin eru
kapítuli út af fyrir sig. En málverkið er hans
aðalmiðill.
Sá sem lítur yfir feril Guðmundar verður
fljótt orðlaus. Verkin eru svo ótrúlega mörg
og hann hefur komið svo víða við í umsköpun
og flokkun myndflaumsins sem hann
sorterar og setur niður í sínar flóknu myndir
sem margar eru að auki þanin í fletinum þótt
víða megi finna vasa þar sem yfirlætisfull
viðfangsefni eru í fyrirrúmi, fáguð – nú eða
klúr – eru aðalatriði. Þótt við eigum hér eitt
stærsta safn verka hans á einum stað og í
Hafnarhúsi séu að jafnaði uppi syrpur úr því
er myndlist hans ekki víða aðgengileg á
almannavettvangi á Íslandi. Enginn söfnuður
hefur enn kallað hann til að skreyta kirkju
hér eftir vinnu hans á Hólum og væri ekki úr
vegi að honum yrði veitt slíkt tækifæri, því
maðurinn er enn að þótt hann sé 75 ára
gamall.
Stóra verkið hans sem var við inngang á
nýbyggingu Kringlunnar er komið niður
(hvar er það?) og málverk hans sem í upphafi
prýddi fordyri Borgarleikhússins var tekið
niður fyrir mörgum árum. Þó er list hans
einmitt fyrir fjöldaneyslu. Ekkert gallerí á
Íslandi hefur verk hans á boðstólum að
staðaldri, reki prent hans eða mósaíkverk á
íslensk uppboð fara þau á lágu verði og menn
rekur í rogastans ef málverk hans seljast á
bærilegu verði í útlöndum eins og gerðist í
síðustu viku. Þau eru raunar fáanleg suður
eftir allri Evrópu á eftirmarkaði og þá
verðlögð á nokkrar millur. Ef einhver vill
kaupa.
Erró er einhver mikilvægasti myndlistar-
maður Íslendinga frá upphafi: hugmynda-
fræðilegur grunnur hans er gagnrýni á vald í
öllum þess myndum. Raunar fyndið að það
kom í hlut Davíðs Oddssonar í borgarstjórn-
artíð hans að veita gjöfinni viðtöku þegar til
þess er litið að Davíð stóð að hinni einarðlegu
afstöðu lýðveldisins með innrásarherjum
hins vestræna heims sem varð Guðmundi
síðar myndefni. Gaman væri að sjá þá syrpu
á veggjum Hafnarhússins.
Erró varð til þess að gefa poppinu
stjórnmálalegt inntak, nokkuð sem banda-
rískum og breskum poppurum var um megn.
Nú skortir þann sem hér slær lykla þekkingu
á þráðunum í þeim vef, fróðlegt er að bera
saman þéttleikann í myndlist Fahlströms
hins sænska og Guðmundar. Fahlström féll
frá snemma, en báðum var offlæðið efni.
Guðmundur hefur æ síðan haldið sig við hinn
þétta vef myndvísana, hvert verk hans kallar
á mikla umræðu, vekur ótal spurningar og
þurfa menn þá að líta vítt eftir kveikjum og
tengslum.
Verk Errós eiga að vera í öllum skólum,
þau eiga að skreyta sjúkrahús, almannastofn-
anir og staði þar sem fólksstraumur fer um.
Um gjöf hans á að reisa sérstakt safn.
Listasafn Reykjavíkur á að fá sérstaka
fjármuni til að sýna lífsstarfi hans verðskuld-
aðan sóma, héðan á að stýra rannsóknum á
ferli hans sem við höfum allt of lengi gefið
útlendingum eftir.
Rit Danielle Kvaran er þörf áminning um
hversu slaklega við höfum staðið okkur í að
sinna lífsverki hans. Páll Baldvin Baldvinsson
Ferill Errós skráður
MYNDLIST
Erró í tímaröð – Líf hans og list
Danielle Kvaran
Þýðing: Sigurður Pálsson
★★★★★
Mikilvægt yfirlit um stærsta nafnið í íslenskri
myndlist á vorum tímum
MYNDLIST Opna úr hinni glæsilegu bók sem Listasafn Reykjavíkur og JPV hafa gefið út eftir Danielle Kvaran.
695,-
ISIG kerti m/7 kveikum, ýmsir
litir Ø26, H14 cm 1.590,-
150,-
GLÄNSA sería (rafhlöðu)
ýmsir litir L1,1 m 250,-
250,-
GLÄNSA STJÄRNA
sería (rafhlöðu) ýmsir
litir L2,3 m 395,-
295,-
ISIG skraut 48 hlutir,
ýmsar tegundir 495,-
350,-/6 stk.
ISIG gjafapappír 3x0,7 m
ýmis mynstur 495,-/6 stk.
195,-
ISIG ilmsprittkerti 42 stk.
ýmsir litir 395,-
1.490,-
GLÄNSA DIAMANT innisería
48 ljós L5 m ýmsir litir 2.490,-
50,-
ISIG skraut 2 m
ýmsir litir 95,-
95,-
ISIG ilmkerti H9 cm ýmsir litir 195,-
150,-/20 stk.
ISIG kerti H19 cm ýmsir
litir 295,-/20 stk.
195,-/6 stk.
ISIG skrautdropar
395,-/6 stk.
150,-
ISIG gjafapappír 2x0,7 m
ýmsir litir 295,-
95,-
ISIG gjafapappír 5x0,7 m
ýmsir litir 195,-
95,-/20 stk.
ISIG kort 12x12 cm ýmis
mynstur 250,-/20 stk.
95,-
ISIG kubbakerti H12 cm
ýmsir litir 150,-
395,-
ISIG kertastjaki fyrir
kubbakerti H12 cm 795,-
75,-
ISIG gjafapappír 8 m 95,-
35,-
ISIG gjafaborði 50 m 65,-
95,-/9 stk.
ISIG skraut pakki ýmsir
litir 150,-/9 stk.
95,-/6 stk.
ISIG gjafapokar ýmsir litir
150,-/6 stk.
75,-
ISIG jólaskraut
10 m 150,-
295,-
ISIG skraut 48 hlutir,
ýmsar tegundir 495,-
Opið til 22:00 fram að jólum Þorláksmessa 12:00-18:00 www.IKEA.is
Lækkað verð
150,-
GLÄNSA sería 10 perur
ýmsir litir L1,1 m 250,-
©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
m
s B
.V
. 2
00
7