Fréttablaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 86
74 20. desember 2007 FIMMTUDAGUR
„Nei, þetta er bara undirstrikun á
innihaldi bókarinnar,“ segir
Jóhann Páll Valdimarsson, útgef-
andi hjá JPV forlagi, aðspurður
hvort nýleg auglýsing frá honum
sé ekki hreinlega karlrembuleg.
Í vikunni birtist heilsíðuauglýs-
ing í Morgunblaðinu þar sem bók
Þórunnar Erlu-Valdimarsdóttur er
auglýst. Auglýsingin samanstend-
ur af lofsamlegum umsögnum
gagnrýnenda en svo til hliðar má
sjá nakinn kvenmann án þess að
ljóst sé í fljótu bragði hvernig það
tengist efni bókarinnar í augum
þeirra sem ekki hafa lesið.
„Þetta er erótísk mynd og fólk
hlýtur að draga þá ályktun. Eða
eins og segir í texta auglýsingar-
innar, enginn venjulegur krimmi,
og þá hlýtur hann væntanlega að
vera með erótísku ívafi,“ segir
Jóhann Páll og dregur hvergi af
sér þegar hann lýsir ágæti bókar-
innar: „Listilega skrifuð erótík.
Enginn skrifar betur um erótík en
Þórunn.“
En spurt er hvort auglýsingin
sé ekki dæmigerð hlutgerving
kvenlíkamans?
Sóley Tómasdóttir, borgarfull-
trúi og formaður mannréttinda-
nefndar, segir auglýsinguna til
marks um sláandi metnaðarleysi
og lítið og lélegt hugmyndaflug
auglýsingagerðarfólks. „Að fólk
skuli ekki vera frumlegra en svo.
Jafnvel þó þetta tengist efni bók-
arinnar, og þetta er svo sem ekk-
ert hræðileg mynd þannig, sé ég
ekki tenginguna. Þessi bók er
markaðssett sem glæpasaga. Ég
hef ekki vitað til þess að þær séu
markaðssettar með beru kven-
fólki jafnvel þótt það komi við
sögu í bókinni. Annars finnst mér
að hætta eigi að láta femínista
svara fyrir klámvæðinguna held-
ur fólkið sem er að hlutgera kon-
urnar. Auglýsingastofurnar,“ segir
Sóley.
Jóhann Páll dregur hins vegar
hvergi í land og aðspurður hvort
hann óttist ekki að femínistar
muni fetta fingur út í auglýsing-
una eða hvort hann jafnvel skáki í
því skjólinu að höfundur sé kona
segir hann:
„Satt best að segja get ég ekki
hagað lífi mínu, orðum mínum og
gjörðum eftir þeim rétttrúnaði
sem veður uppi í samfélaginu nú
um stundir. Þannig að ég leiði hug-
ann ekki að því. Mér verður sjálf-
sagt stungið inn í talibanasamfé-
lagið en það verður þá bara svo að
vera.“
„Ég skipti mér ekkert af auglýs-
ingum. Ég bara skrifa bókina,“
segir sjálfur höfundur bókarinnar
aðspurð hvað henni sýnist. Þórunn
neitar því ekki að auglýsingin fari
eilítið í taugarnar á sér. „Ekki síst
vegna þess að það sem ég er að
skrifa um, það finnst mér eðlilegt
en ekki blautlegt. Hlutgerving?
Ég vona að sagan sé fremur frels-
andi. Það eru sterkar konur í minni
bók sem stjórna atburðarásinni.
Alveg eins og í Njálu.“
jakob@frettabladid.is
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
LÁRÉTT 2. báru að 6. skóli 8.
heldur brott 9. vætla 11. tveir eins
12. strunsa 14. mjaka 16. í röð 17.
málmur 18. hætta 20. tveir eins 21.
útungun eggja.
LÓÐRÉTT 1. arabískur héraðshöfðingi
3. ógrynni 4. mælieining 5. sarg 7.
hænsn 10. regla 13. gerast 15. nabbi
16. nam burt 19. átt.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. komu, 6. ma, 8. fer, 9. íla,
11. gg, 12. rigsa, 14. fikra, 16. tu, 17.
eir, 18. ógn, 20. ðð, 21. klak.
LÓÐRÉTT: 1. emír, 3. of, 4. megarið,
5. urg, 7. alifugl, 10. agi, 13. ske, 15.
arða, 16. tók, 19. na.
„Maður fær sér espresso og
croissant með og ávaxtasafa.
Svona einu sinni í mánuði fer ég
líka á Gráa köttinn og fæ mér
trukk að amerískum sið. Ára-
mótaheitið hjá mér er að fara
yfir í heilbrigðari morgunmat.“
Halldór Bragason blúsari.
„Þarna verður 60 manna stórsveit hljóðfæraleik-
ara og öllu til tjaldað. Og Björgvin syngur. Þannig
að þetta verður glæsileg tónlistarveisla í Kastljós-
inu á föstudagskvöld – síðasta Kastjósinu fyrir
jól,“ segir Þórhallur Gunnarsson, ritstjóri Kast-
ljóss.
Þórhallur furðar sig jafnframt á mola sem
birtist í Fréttablaðinu í gær, hér á þessari síðu,
þess efnis að Bó sé ekki í náðinni hjá sér vegna
þess að hann hafi afþakkað boð um að koma fram í
Kastljósinu til að syngja. Ekkert er hæft í því eins
og mun sýna sig á föstudagskvöld. Eru hlutaðeig-
andi beðnir velvirðingar á því sem mishermt var
og ljóst að sú heimild sem stuðst var við er ekki
áreiðanleg.
„Auðvitað kem ég í Kastljósið og syng! Í
sjónvarp allra landsmanna,“ segir Björgvin
Halldórsson. Segir sig og Þórhall mestu máta og
hann á leiðinni með hersingu manns upp í Útvarps-
hús: Karlakórinn Fóstbræður, Gospelkór Reykja-
víkur, Reykjavík Sessions Orcestra strengjasveit
auk Þóris Baldurssonar og Einars Scheving. Í anda
jólanna verður tekið hátíðlegt lag sem heitir Við
vöggu í Betlehem.
„Ég hef ákveðið að gefa greiðsluna til hjálpar-
starfs ABC. Þetta er stór hópur sem kemur fram
en lítil upphæð. Þú gætir farið með hana út í búð
og værir búinn með hana um kaffileytið. Hrekkur
skammt í lífsgæðakapphlaupinu hér en drífur
langt í Afríku. Þar mun hún kosta skólagöngu,
kaup á bókum, fatnaði og fæði fyrir þrjú börn í
heilt ár. Við vildum bara að við gætum gefið meira
og kannski gerum við það. Bætum við þetta. Það er
aldrei að vita,“ segir Bó.
- jbg
Bó í tónlistarveislu Kastljóss
„Þetta er frábær
síða, þarna eru
góðar hljóðupptök-
ur, hægt er að stækka
myndirnar mjög mikið
og allt er notendavænt
fyrir blinda,“ segir Bergvin
Oddsson, formaður ung-
mennahreyfingar Blindra-
félagsins, um erótíska
heimasíðu sem hentar
blindum og sjónskertum
vel.
Bergvin segist hafa feng-
ið upplýsingar um síðuna frá
alþjóðafulltrúa blindra sem
staddur var í Hollandi en á
heimasíðu blindrasamtakanna
þar var vísað á heimasíðuna
soundsdirty.com. Bergvin segir
blinda og sjónskerta eiga erfitt
með að nota tölvumús. Þess í stað
noti þeir tab-takkann til að fara á
milli hlekkja. Þetta sé sérstaklega
auðvelt á SoundsDirty og þá sé
hægt að stækka myndir mikið og
njóta hljóðupptakna af kynlífi.
„Ég man bara ekki eftir að hafa
rekist á klámsíðu sem kemur jafn
vel til móts við þarfir sjónskertra,
en reyndar hef ég ekki lagt metn-
að minn í að leita slíkar síður
uppi,“ segir Bergvin og
skellir upp úr.
„Ég er bara virki-
lega ánægður með
hollenska kollega
mína. Margir
blindir hafa
gaman af klámi,
rétt eins og
annað fólk, og
því finnst mér
rétt að benda
öðrum á síð-
una,“ segir Berg-
vin. - kdk
Notendavæn klámsíða fyrir blinda
GLEÐST YFIR FRAMTAKINU Bergvin
segir marga blinda og sjónskerta hafa
gaman af klámi og rétt sé að benda á
jafn notendavæna síðu líkt og hollensku
blindrasamtökin geri. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
NOTENDAVÆNT Blindir og sjónskertir
eiga erfitt með að nota tölvumýs en
nota þess í stað tab-takkann. Á mörgum
síðum er það þó erfitt.
BÓ Hefur ákveðið að gefa greiðsluna til
barna í Afríku enda hrekkur féð skammt
í lífsgæðakapphlaupi innanlands.
JÓHANN PÁLL: VERÐUR SJÁLFSAGT STUNGIÐ Í TALIBANASAMFÉLAGIÐ
Umdeild erótík í auglýsingu
HIN UMDEILDA AUG-
LÝSING Klámvæðing
eða vísað til efnis
bókar? Höfundur
skiptir sér ekki af
auglýsingum heldur
„bara“ skrifar bókina.
SÓLEY TÓMASDÓTTIR
Sér ekki samhengið
markaðssetningar
glæpabókar og þess
að setja nakta konu í
auglýsingu um hana.
JÓHANN PÁLL
Ætlar ekki að
haga lífi sínu eftir
þeim rétttrúnaði
sem nú veður
uppi.
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 8.
1 Randver Þorláksson.
2 Júlía Tymosjenkó.
3 Margrét Lára Viðarsdóttir.
Eins og Fréttablaðið greindi frá á
mánudaginn var Gísli Örn Garðar-
son í Sjanghæ við tökur á auglýs-
ingu. Leitt var að því líkum
að Gísli væri jafnvel að
leggja sjálfu Eimskips-
félaginu lið en annað
hefur komið á daginn.
Fyrirtækið Atorka fékk
nefnilega Gísla
til liðs við sig og
nýja herferð sína.
Engum sögum fer
þó af því hvaða
hlutverki Gísli gegndi þótt vissulega
megi reikna með því að leikarinn
leggi til meira en bara röddina.
Fréttastofa Stöðvar 2 hefur verið á
fullu við að undirbúa fréttaannál
sinn en þetta verður í fyrsta skipti
sem Steingrímur Sævarr Ólafs-
son stjórnar honum í stóli frétta-
stjóra. Steingrímur og
hans fólk hyggjast taka
hressilega á málum og
fengu meðal annars
lánaða fjóra,
glæsilega Range
Rovera sem verða
í aðalhlutverki í
annál stöðvarinn-
ar. Ekki verður þó
kastljósinu beint að bílakaupum
landsmanna heldur einfaldlega
þeirri staðreynd að Ísland er best,
fallegast og ekki síst, langríkast.
Og það færist í aukana að nota
kristna trú í auglýsingum. Eins og
flestum ætti enn að vera í fersku
minni fór þjóðfélagið á hvolf þegar
Jón Gnarr og Síminn notuðu
svik Júdasar í auglýsingarskyni.
Flugfélagið Iceland Express birtir
á heimasíðu sinni nokkuð skondna
auglýsingu þar sem „fjárhús og
jata geti alveg passað við ákveðnar
aðstæður en flest viljum við rúm til
að sofa. Ekki lenda
því í því sama og
María og Jósef.“
Kristindómurinn
virðist því vera orðin
gullnáma fyrir
markaðsfólk og
þá ekki síst yfir
hátíðirnar. - fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Nr. 52 - 2007 Verð 659 kr. 20. - 26. desember
Hugleiðabrúðkaup!
Gerir jólin
skemmtilegri!
Ástin blómstrar
hjá Guðrúnu og Villa:
FLUTT
Helga Möller:
Krúttleg um
JÓLAKLIPPINGAR
JÓGVANS!
Kristján
Jóhannsson:
Frægar og
barnshafandi:
JÓLIN VEKJA HJÁ MÉR SORG! BESTU Stjörnurnar og jólin:JÓLAMINNINGARNAR!
FYRIRGEFUR BRITNEY SPEARS!
Í GLÆSIHÖLLINA!
Gleðileg
stjörnuj
ól!
GERIR JÓLIN
SKEMMTILEGRI!