Fréttablaðið - 22.12.2007, Page 1

Fréttablaðið - 22.12.2007, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 LAUGARDAGUR 22. desember 2007 — 348. tölublað — 7. árgangur VEÐRIÐ Í DAG Að halda rétt á hönskunum ÞAÐ ER STAÐHÆFING MARGRA AÐ VEGNA TILSAGNAR OG ÁHRIFA UNNAR ARNGRÍMSDÓTTUR LIFI FJÖLMARGAR ÍSLENSKAR KONUR BETRA LÍFI. hús&heimili Uppáhalds jóla- skrautið, innlit og frumlegar lausnir á heimilið. FYLGIR FRÉTTA- BLAÐINU Í DAG ● HÖNNUNFrumlegar lausnir ● INNLIT Darri gengur með ● HEIMILIÐUppáhalds jólaskrautið hús&heimiliLAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2007 LÖGREGLUHUNDURINN Neró við hlið lögreglumannanna Bylgju Baldursdóttur og Sveinbjörns Hilmarssonar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SAMGÖNGUR Fimmtán manns hafa látist í umferðinni það sem af er ári. Það eru rúmlega helmingi færri en í fyrra, þegar 31 lést í umferðinni. Leita þarf aftur til ársins 1997 til að finna jafn fá banaslys í umferðinni. Ágúst Mogen- sen, forstöðumaður Rannsóknarnefndar umferðarslysa, segir fagnaðarefni að sjá hversu vel hefur tekist að minnka hraðakstur á þjóðvegum landsins í ár. „Það er mjög gleðilegt að sjá tölur frá Vegagerðinni um meðalhraða á þjóðvegum í ár. Hann hefur lækkað umtalsvert á þessu ári,“ segir Ágúst. Vegagerðin mælir ökuhraða á tíu stöðum á hringveginum. Meðalhraðinn hefur lækkað úr 97 kílómetra hraða á klukkustund í fyrra í 94,1 í ár. „Fólki finnst þetta ekki mikið, en það skiptir mjög miklu máli. Til að færa meðalhraðann úr 97 í 94,1 þurfa mörg þúsund manns að hætta að keyra á 100 kílómetra hraða og fara að keyra á 90,“ segir Ágúst. „Rannsóknir hafa sýnt að eftir því sem meðalhraðinn er lægri fækkar banaslysum,“ bætir Ágúst við. „Þetta er breyting á meðalhraða sem allar þjóðir yrðu sáttar við. Við rekjum þetta til betri löggæslu og hærri sekta. Það er ekki spurning að það hefur skilað árangri.“ Algengasta tegund banaslysa undanfarin ár hefur verið útafakstur. Nokkuð hefur dregið úr banaslysum af þeim völdum og voru árekstrar ökutækja sem komu úr gagnstæð- um áttum helsta orsök slysanna í ár. Þrjú slysanna urðu hjá ökumönnum bifhjóla. steindor@frettabladid.is Ekki færri banaslys í um- ferðinni í heilan áratug Fimmtán manns hafa látist í umferðarslysum á árinu. Það eru rúmlega helmingi færri banaslys en síðasta ár. Aldrei hafa verið færri banaslys síðan 1997. Lægri meðalhraða á vegum má mögulega þakka fækkunina.Engar jólakveðjur Framkvæmdastjóri Domino‘s ábyrgist að jólakveðjur frá fyrir- tækinu muni ekki raska jólahaldi landsmanna í ár. FÓLK 94 Nánast ósyngjandi Sinfóníuhljómsveit Ís- lands og Schola cantor- um flytja verkið Edda I á nýútkomnum geisladiski. TÍMAMÓT 32 JÓL Móttöku á jólakveðjum sem lesnar verða upp á Rás 1 í Ríkisút- varpinu lauk á hádegi í gær og ljóst er að um metfjölda er að ræða. Lárus Guðmundsson, deildarstjóri hjá RÚV, áætlar að kveðjurnar séu um þrjú þúsund talsins og að það muni taka um þrettán klukkustund- ir að lesa þær. - sók / sjá síðu 80 Metár í jólakveðjum: Stöðugur lestur í þrettán tíma LÖGREGLUMÁL Það var lögregluhundurinn Neró sem hafði uppi á bareflum sem ungir piltar notuðu þegar þeir frömdu rán í Grímsbæ fyrr í vikunni. Lögreglumennirnir Bylgja Baldursdóttir og Sveinbjörn Hilmarsson voru stödd með Neró á öðrum stað í borginni þegar útkallið barst. Í tilkynningunni sagði að ránsmennirnir hefðu verið með barefli, golfkylfu og rör og annar með grímu en hinn með klút. Bylgja og Sveinbjörn héldu þegar á ránsstaðinn. „Þegar við komum þangað var búið að hand- taka meinta gerendur og ná því sem þeir höfðu stolið,“ skýrir Bylgja frá. „Lögreglumenn á staðnum höfðu fundið grímuna en hvorki klútinn né bareflin, þrátt fyrir leit, og voru búnir að afskrifa að þau fyndust.“ Neró var þegar látinn hefja leit. Hann fór rakleiðis að runna við Hulduland. Þar lágu bareflin og klúturinn. „Þarna var svarta myrkur, rigning og skyggni mjög lélegt, en hann var fljótur að leiða okkur á sporið,“ segir Bylgja. „Í upptöku eftirlitsvélar af atvikinu sást svo að piltarnir höfðu verið með sömu bareflin í höndunum og hundurinn fann, þannig að þar með var það staðfest,“ útskýrir Sveinbjörn. „Málið lá því ljóst fyrir.“ - jss Ferfættir laganna verðir gegna margvíslegum hlutverkum: Hundurinn fann ránsbareflinGirnilegar jólauppskriftir á www.jolamjolk.is Þrír yfir 100 mörkin í ár Guðjón Valur Sigurðsson er markahæsti landsliðsmaður- inn í ár. ÍÞRÓTTIR 90 46 Sunnan strengur við vestur- ströndina, annars hægari. Kólnar jafnt um allt land. Slyddu- eða snjóél víða, en þurrt um austanvert landið. VEÐUR 4      STJÓRNMÁL Menn úti í samfélaginu gera allt sem þeir geta til ógagns nýju ríkisstjórninni, segir Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir, vara formaður Sjálfstæðisflokksins. Hún vill ekki nafngreina þessa menn, en segir það „liggja nokkuð ljóst fyrir“ að atlagan haldi áfram út allt kjörtímabilið. Erfitt sé fyrir margan sjálf- stæðis manninn að kyngja sam- starfi við fornan fjanda flokksins, Ingibjörgu Sólrúnu. Þetta þykir Þorgerði miður, enda líður henni prýðilega vel í ríkisstjórnarsam- starfinu. - kóþ / sjá síður 34 og 36 Menntamálaráðherra: Atlagan mun halda áfram
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.