Fréttablaðið - 22.12.2007, Síða 4
4 22. desember 2007 LAUGARDAGUR
SAMKEPPNI Ingimundi Sigurpáls-
syni er sætt á formannsstóli Sam-
tökum atvinnulífsins eins og mál
standa, þrátt fyrir að Eimskipa-
félag Íslands, sem þá laut hans
stjórn, hafi verið fundið sekt um
stórfelld brot á samkeppnislög-
um. Þetta er samhljóða mat þeirra
formanna aðildarfélaga Samtaka
atvinnulífsins sem Fréttablaðið
ræddi við í gær. Bíða þurfi endan-
legrar niðurstöðu í málinu.
Björgvin G. Sigurðsson við-
skiptaráðherra tekur í svipaðan
streng. „Það verður bara að bíða
og sjá hvernig málið þróast. Þá
kemur í ljós hver þáttur Ingi-
mundar var, hvort hann telur sér
sætt eða ekki og hvernig samtök-
in og hann meta þetta. Ég ætla
ekki sem ráðherra að fella ein-
hverja dóma um það núna,“ segir
hann.
Samkeppniseftirlitið lagði 310
milljóna króna sekt á Eimskipa-
félagið vegna alvarlegra brota
sem meðal annars miðuðu að því
að bola Samskipum af sjóflutn-
ingamarkaði. Ingimundur hefur
sjálfur sagst ósammála forsend-
unum fyrir niðurstöðunni og að
hann sjái því ekki ástæðu að svo
stöddu til að láta af formennsku
hjá Samtökum atvinnulífsins.
Eimskipafélagið áfrýjaði niður-
stöðu Samkeppniseftirlitsins til
áfrýjunarnefndar. Ekki liggur
fyrir hvenær endanleg niðurstaða
fæst í málið. - sh
Formenn aðildarfélaga Samtaka atvinnulífsins vilja formanninn ekki burt:
Ingimundi sætt á formannsstóli
GENGIÐ 21.12.2007
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
121,4348
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
63,64 63,94
126,32 126,94
91,4 91,92
12,248 12,32
11,386 11,454
9,683 9,739
0,5615 0,5647
99,39 99,99
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
LÖGREGLUMÁL Lögreglustjórinn á
höfuðborgarsvæðinu, Stefán
Eiríksson, hefur boðið ritstjóra
Lögreglublaðsins, Gísla Jökli
Gíslasyni, að taka þátt í hug-
myndastarfi um bætt starfs-
umhverfi lögreglumanna.
Margir lögreglumenn hafa á
undanförnum vikum og mánuðum
gagnrýnt ýmis atriði í stjórnun,
starfsfyrirkomulagi og aðbúnaði
harðlega. All-
margir viðmæl-
endur Frétta-
blaðsins úr
þeirra röðum
benda á alvar-
legan skort á
lærðum lög-
reglumönnum,
gríðarlegt vinnu-
álag, ófullnægj-
andi tækjakost
að hluta, skort á upplýsingaflæði
innan embættisins, of mikla yfir-
byggingu á embættinu og miðstýr-
ingu, sem valdi meðal annars því
að lögreglumenn séu pikkfastir á
sýnileikastöðum. Þeir vilja fá
fleiri tækifæri til að vinna frum-
kvæðisvinnu við að finna bestu
leiðirnar. Raddir þeirra sem eru
að jafnaði á vettvangi eigi að heyr-
ast við skipulagningu starfsins,
sem eigi ekki einungis að fara
fram við skrifborð á efri hæðum.
En „þetta bíti allt hvað í skottið
á öðru“ því í álagsvinnunni vilji
menn eyða sínum litla frítíma með
fjölskyldunni. Ef þeir hafni auka-
vöktum „komi það bara niður á
starfsfélögunum“.
Í nýju Lögreglublaði birtist
grein eftir ritstjórann sem varðar
mörg þau atriða sem viðmælend-
ur Fréttablaðsins hafa nefnt.
Lögreglustjóri segir stöðugt
unnið að málum sem snúi að bætt-
um starfsanda, betra skipulagi
starfs og aukinnar starfsánægju
lögreglumanna.
„En okkur ber að halda okkur
innan þess ramma á fjárlögum
sem okkur er markaður og við því
er ekkert að gera,“ segir lögreglu-
stjóri. „Því verðum við að stilla
upp okkar rekstri með eins mikilli
hagkvæmni og kostur er. Við
höfum metnað á því sviði eins og á
öllum öðrum sviðum.“
Lögreglustjóri segir að stór
hluti þess vanda sem glímt er við í
dag sé að menntaða lögreglumenn
vanti til starfa.
„Að vísu hefur verið fjölgað í
sérsveit og fíkniefnalögreglu, en
Lögregluskólinn hefur ekki náð að
framleiða nægilega hratt. Að auki
hafa menn farið úr lögreglunni í
betur launuð störf,“ segir lög-
reglustjóri en minnir jafnframt á
þrjátíu þúsund króna launauppbót
til lögreglumanna sem gildir út
samningstímann.
„Við erum að reyna að finna
leiðir til að minnka álag á lög-
reglumenn, en höldum jafnframt
fast við þá stefnu að auka öryggi
borgaranna með sýnileika lög-
reglu.“ jss@frettabladid.is
Boðar bætt starfs-
umhverfi lögreglu
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, Stefán Eiríksson, boðar að vinna verði
hafin til að bæta starfsumhverfi lögreglumanna. Óánægja hefur ríkt meðal
þeirra vegna ýmissa atriða varðandi starfsfyrirkomulag og stjórnun.
BÆTT STARFSUMHVERFI Þótt sterkar óánægjuraddir hafi verið uppi meðal lögreglu-
manna sem Fréttablaðið hefur rætt við hafa þeir jafnhliða lýst því hve vænt þeim
þyki um starf sitt, hve starfsandinn milli þeirra sé góður og hve gaman sé að vinna
verkefnin þegar vel takist til. MYNDIN ER ÚR SAFNI.
STEFÁN EIRÍKSSON
VINNUMARKAÐUR VM, félag
vélstjóra og málmtæknimanna,
hefur undirritað kjarasamning
við Landssamband smábátaeig-
enda, LS, ásamt Sjómannasam-
bandi Íslands og Farmanna- og
fiskimannasambandinu. Þetta er
fyrsti kjarasamningur félaganna
við smábátaeigendur. Hann er til
þriggja ára.
Magnús Magnússon, fram-
kvæmdastjóri VM, segir að
samningurinn kveði á um
lágmarkskjör, skýrt sé tekið fram
hvernig aflinn skuli gerður upp
og hver skiptaprósentan sé, tekið
sé á tryggingamálum og öðrum
réttindum. - ghs
Sjómenn semja við eigendur:
Fyrsti kjara-
samningurinn
DÓMSMÁL Karlmaður á fimmtugs-
aldri hefur verið dæmdur í
fjögurra mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir innflutning á
fíkniefnum. Hann var handtek-
inn á Leifsstöð við komuna frá
Amsterdam með um fimm og
hálft gramm af heróíni og 24
grömm af kókaíni í fórum sínum.
Maðurinn játaði brot sitt
greiðlega. Hann hlaut á árunum
1984 til 2000 fjórtán refsidóma,
einkum fyrir auðgunar- og
fjármunabrot. Í ljósi sakaferils-
ins og styrkleika heróínsins og
kókaínsins þótti rétt að skilorðs-
binda refsinguna.
- sh
Síbrotamaður á skilorð:
Flutti heróín frá
Amsterdam
INGIMUNDUR
SIGURPÁLSSON
Honum er sætt
í formanns-
stóli Samtaka
atvinnulífsins að
mati formanna
aðildarfélaga.
HORNAFJÖRÐUR Lögreglan á
Eskifirði gerði á fimmtudag
húsleit í fjárhúsum bónda í
Nesjum í Hornafirði. Er bóndinn
sakaður um sauðaþjófnað en
fimm bændur í sveitinni sökuðu
hann um að hafa breytt merkjum
og mörkum á lömbum áður en
hann sendi þau til slátrunar sem
sín eigin.
Bóndinn sem um ræðir er einn
fjárflesti bóndinn í sveitinni og
skilaði hann meðal annars
rúmlega 1.500 dilkum til slátrun-
ar haustið 2005 samkvæmt
ársriti Búnaðarsambands
Suðurlands. Málið er í rannsókn
lögreglu. - ovd
Sakaður um stuld á sauðfé:
Meintur sauða-
þjófur við Höfn
ÍSLENSKT SAUÐFÉ Þrjátíu lambshausar
voru sendir til rannsóknar hjá Rannsóknar-
stofnun landbúnaðarins að Keldum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
DÓMSMÁL Hæstiréttur braut
mannréttindi íslenskrar konu í
skaðabótamáli sem höfðað var á
hendur henni. Mannréttindadóm-
stóll Evrópu komst að þeirri
niðurstöðu í dómi sem féll á
dögunum. Ríkið skal greiða henni
sem nemur 225 þúsund krónum í
skaðabætur og 1,6 milljónir í
málskostnað.
Brotið fólst í því að konan fékk
ekki að koma með munnlega
greinargerð í málinu. - sþs
Mannréttindadómstóll Evrópu:
Hæstiréttur
braut á konu
RÚSSLAND, AP Vladimír Pútín
Rússlandsforseti, sem er með
svarta beltið í júdó, hefur gert
kennslumyndband með japanska
júdómeistaranum Yasuhiro
Yamashita.
Myndbandið kemur út á DVD-
diski eftir áramótin og mun
fylgja með júdókennslubók.
Þeir Pútín og Yamashita tóku
báðir þátt í júdónámskeiði í
Pétursborg fyrir tveimur árum.
Þá höfðu þeir nýverið hist í fyrsta
sinn í Japan. - gb
Pútín Rússlandsforseti:
Gefur út júdó-
kennsludisk
PÚTÍN OG YAMASHITA Kennslumynd-
band þeirra fylgir júdóbók.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP