Fréttablaðið - 22.12.2007, Síða 6

Fréttablaðið - 22.12.2007, Síða 6
6 22. desember 2007 LAUGARDAGUR STJÓRNSÝSLA „Ég vona að ég sé metinn eftir því hver ég er, en ekki hverra manna ég er,“ segir Þor- steinn Davíðsson, nýskipaður hér- aðsdómari. Þorsteinn er sonur Davíðs Oddssonar seðlabanka- stjóra. Nefnd sem metur hæfi umsækj- enda taldi þrjá umsækjendur mun hæfari en Þorstein. Árni Mathie- sen, skipaður dómsmálaráðherra, valdi Þorstein, meðal annars með þeim rökstuðningi að hann hefði starfað sem aðstoðarmaður Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra. Pétur Kr. Hafstein, formaður nefndarinnar, segir þetta óvenju- legt. „Það er venjulegt að ráðherra sé að minnsta kosti í námunda við niðurstöðu nefndarinnar,“ segir Pétur. „Við rökstyðjum það mjög ítarlega hvers vegna við teljum þessa þrjá hæfasta.“ Pétur segir nefndina munu koma saman á næstunni og íhuga hvort eigi að bregðast við. Aðeins tvenn viðbrögð séu í stöðinni. „Nefndin getur ekkert annað gert en að halda áfram störfum eða leggja niður störf,“ segir Pétur. Guðmundur Kristjánsson, einn þeirra þriggja umsækjenda sem nefndin mat hæfasta, segist hafa talið víst að valið stæði milli þeirra þriggja. Hann mun biðja ráðherra um rökstuðning á ákvörðuninni. „Ef að líkum lætur verður hann svipaður og sá sem ráðherra hefur gefið í fjölmiðlum, sem er alveg fráleitur,“ segir Guðmundur. „Í sjálfu sér er alveg rétt að það kom á óvart hver fékk starfið,“ segir Halldór Björnsson, annar þeirra þriggja. „Þessi ákvörðun hefur verið tekin og henni verður ekki breytt.“ Pétur Dam Leifsson, sá þriðji, segist hugsi yfir málinu. „Það vekur furðu að ráðherra skuli ekki hafa litið til umsagnar nefndarinnar.“ Sigurður Líndal lagaprófessor segir að réttast hefði verið að fara eftir ráðgjöf nefndarinnar. „Þarna voru þrír taldir hæfastir svo að ráðherra hefur val,“ segir Sigurður. „Þeir sem eru minna hæfir geta aflað sér reynslu síðar.“ steindor@frettabladid.is Nefndin mun ræða að leggja niður störf Nefnd sem metur hæfi umsækjenda um embætti héraðsdómara mun hittast og ræða hvort hún vilji starfa áfram eftir að Þorsteinn Davíðsson var skipaður. Einn umsækjendanna ætlar að óska eftir rökstuðningi ráðherra fyrir valinu. Ragnheiður Jónsdóttir, einn umsækjenda um stöðu héraðs- dómara, segir dómsmálaráðuneytið brjóta stjórnsýslulög með því að veita henni ekki tækifæri til að andmæla mati nefndarinnar sem mat hæfi umsækjenda. Bréf með umsögn nefndarinnar barst Ragn- heiði tveimur dögum eftir að frestur til að andmæla rann út. Bréfið var fyrst sent til Húsavíkur, þar sem Ragnheiður er skráð til heimilis, en hún dvaldi í Reykjavík og var bréfið áframsent þangað. Ragnheiður segir að þrátt fyrir að bréfið hafi verið póstlagt fimm dögum áður en fresturinn rann út séu fimm dagar, þar af tveir helgardagar, allt of skammur frestur, sérstaklega í jólakortaösinni. Ragnheiður var metin hæf sam- kvæmt nefndinni, eins og Þorsteinn Davíðsson, sem var ráðinn. Þrír aðrir umsækjendur voru metnir tveimur flokkum hæfari. Ragnheiður vildi andmæla þessu mati og íhugar nú að kæra málið til Umboðsmanns Alþingis. FÉKK EKKI FÆRI Á AÐ ANDMÆLA RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR PÉTUR KR. HAFSTEINÞORSTEINN DAVÍÐSSON SJÁVARÚTVEGUR Dala-Rafn VE 508 kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum í fyrsta skipti í gær. Skipið er smíðað í Póllandi og er fimmta skip útgerðar í eigu hjónanna Þórðar Rafns Sigurðssonar og Ingu Eymundsdóttur. Þórður Rafn er skipstjóri á Dala-Rafni, en auk hans sigldu skipinu frá Póllandi sonur hans Eyþór og sonarsonur Ingi Rafn. Þrír ættliðir voru því við stjórnvöl skipsins á heimleiðinni. Þeir lögðu af stað á laugardag- inn og fengu gott veður á leiðinni. Það er ávallt hátíðarbragur yfir því þegar nýtt skip kemur til heimahafnar í fyrsta skipti, og það átti sannarlega við í gær. Eftir að prestar Landakirkju höfðu blessað skipið og áhöfn þess, var bæjarbúum boðið að skoða hið glæsilega fley. Þórður skipstjóri tilkynnti við það tilefni að eftir fimmtíu ára sjómennsku væri nóg komið og hann hefði ákveðið að fela syni sínum Eyþóri skipsstjórnina. Dala-Rafn er sjötta skipið sem bætist við flota Vestmannaeyinga á árinu. - shá Togskipið Dala-Rafn VE 508 kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum í gær: Þrír ættliðir sigldu skipinu til hafnar ÞRÍR ÆTTLIÐIR Eyþór, sonur hans Ingi Rafn og Þórður Rafn útgerðarmaður. DALA-RAFN VE 508 Skipið er allt hið glæsilegasta og var fagnað þegar það kom til hafnar í Eyjum. MYND/ÓSKAR STJÓRNSÝSLA Björn Bjarnason dómsmálaráðherra lýsti sig van- hæfan við skipan héraðsdómara vegna meðmæla sem hann hafði veitt Þorsteini Davíðssyni, umsækjandanum sem fékk stöð- una, þegar Þorsteinn sótti um starf hjá lögreglustjóra höfuð- borgarsvæðisins í haust. Björn vék ekki þegar Þorsteinn sótti um stöðu héraðsdómara í Reykjavík í fyrra. Á þeim tíma starfaði Þorsteinn sem pólitískur aðstoðarmaður Björns. Björn segir að þá hafi hann ekki verið búinn að gefa Þorsteini meðmæli. „Ef tekin hefur verið afstaða eins og ég gerði með með- mælum, leiðir það til vanhæfis,“ segir Björn. Sigurður Líndal lagaprófessor segir rétt hjá Birni að lýsa sig vanhæfan. „Allur er varinn góður,“ segir Sigurður. „Mér hefði fundist réttara af honum að víkja sæti í fyrra skiptið líka, þar sem hann var aðstoðarmaður ráð- herrans. En það er ekki skylda.“ Í 3. grein stjórnsýslulaga segir að ef fyrir séu ástæður til að draga óhlutdrægni í efa, sé starfs- maður vanhæfur til meðferðar máls. Geir H. Haarde forsætisráð- herra neitaði að tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. - sgj Dómsmálaráðherra vék sæti vegna meðmæla sem hann hafði veitt Þorsteini: Vanhæfur vegna meðmæla SIGURÐUR LÍNDALBJÖRN BJARNASON STJÓRNSÝSLA „Ég vona að menn láti af þessum pólitísku afskipt- um af ráðningu dómara,“ segir Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, um ráðningu Þorsteins Davíðssonar sem héraðs- dómara. „Þetta hefur ekki verið svona þegar héraðsdómur er annars vegar,“ segir Atli. „Þar er sérstök matsnefnd sem starfar faglega.Því er engin skýring á að ganga framhjá þremur hæfari umsækjendum.“ Atli segir allt of mikið um pólitískar ráðningar. „Sjálfstæðis- flokkurinn stýrir þessu, hann fer með dómsmálaráðuneytið,“ segir Atli. „Ég held ekki að þetta sé rætt í ríkisstjórn. Þetta er alfarið Sjálfstæðisflokkurinn.“ - sgj Atli Gíslason, þingmaður VG: Sjálfstæðismenn ráða pólitískt ATLI GÍSLASON DÓMSMÁL 28 ára karlmaður var á föstudag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í níu mánaða fangelsi fyrir að stela fimm nærbuxum og einum bol úr Hagkaupum í Kringlunni og rjúfa þar með skilorð. Var átta mánaða skilorðsbundnum dómi hans því breytt í níu mánaða fangelsisvist. Maðurinn á langan sakaferil að baki. Árið 2001 hlaut hann dóm fyrir kynferðisbrot og húsbrot, árið 2003 fyrir nytjastuld og ölvunarakstur, 2005 fyrir fíkniefnabrot og 2006 fyrir ölvunarakstur, svo fátt eitt sé nefnt. Í ljósi ítrekaðra skilorðs- rofa þarf hann nú að sitja inni. - sgj Fékk níu mánaða dóm: Stal nærbuxum og rauf skilorð FLOTKVÍIN Kvínni hefur verið búinn staður í nýju höfninni. SKIPULAGSMÁL Hafnarstjórnin í Hafnarfirði vill að flotkví Orms og Víglundar við Háabakka verði komin á nýjan stað fyrir 100 ára afmæli bæjarins í júní á næsta ári. „Kvíin er ekki til fegurðarauka og samrýmist ekki starfseminni sem er í kring um hana. Það hafa orðið miklar tafir á að kvíin hafi verið flutt og menn eru orðnir óþolinmóðir. Menn vilja skilyrðis- laust að hún verði farin fyrir hundrað ára afmæli bæjarins í byrjun júni,“ segir Eyjólfur Sæmundsson, formaður hafnar- stjórnar. Upphaflega átti kvíin að vera til bráðabirgða við Háa- bakka fyrir ellefu árum. - gar Tiltekt í Hafnarfirði: Flytji flotvkí fyrir afmæli Tveggja bíla í árekstur Umferðaróhapp var á Snæfellsnesvegi á föstudag. Samkvæmt upplýsingum varðstjóra varð slysið með þeim hætti að tveir bílar rákust saman. Engin slys urðu á fólki en málið er í rannsókn. LÖGREGLUFRÉTTIR Með minnihluta í gönguferð Fulltrúi meirihlutans í bæjarstjórn Voga á Vatnsleyströnd segir það vera vísbendingu um allt sé í góðu lagi í sveitarfélagi að eina breytingarillaga minnihlutans við þriggja ára áætlun sé að flýta framkvæmdum við ljósa- staura. Bauð hann oddvita minnihlut- ans í gönguferð um leið og lýsingin kemur. Boðið var þegið. VOGAR Ertu sátt(ur) við ráðningu Þorsteins Davíðssonar sem héraðsdómara? Já 30% Nei 70% SPURNING DAGSINS Í DAG: Telur þú þörf á íslenskri öryggis- þjónustu? Segðu skoðun þína á visir.is KJÖRKASSINN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.