Fréttablaðið - 22.12.2007, Side 8

Fréttablaðið - 22.12.2007, Side 8
8 22. desember 2007 LAUGARDAGUR Þrjátíu þúsund fyrir jól Allir starfsmenn Seltjarnarnesbæjar fá þrjátíu þúsund króna eingreiðslu sem verður lögð inn á reikning þeirra fyrir jól samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar. Upphæðin miðast við fullt starf. SELTJARNARNES Skemmdir á kirkjugarðinum Skemmdir voru unnar á jólaskreyt- ingum á leiðum í kirkjugarðinum í Ólafsfirði. Voru meðal annars krossar á leiðum brotnir og ljós skemmd. ÓLAFSFJÖRÐUR 1. Hvað heitir nýskipaður héraðsdómari á Norðurlandi eystra og Austurlandi? 2. Hvern heiðra Kirgistanar með því að nefna fjall í höfuðið á honum? 3. Hver skoraði langflest mörk á árinu fyrir kvennalandslið Íslands í handbolta? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 94 Óspektir í Keflavík Maður gisti fangageymslur lögregl- unnar á Suðurnesjum eftir óspektir í miðbæ Keflavíkur aðfaranótt föstudags. Samkvæmt varðstjóra var maðurinn meðal annars með ólæti gagnvart lögreglu og má hann búast við sekt fyrir óspektir og ölvun á almannafæri. Var manninum sleppt þegar hann hafði sofið úr sér áfengis- vímuna. LÖGREGLUFRÉTTIR FÉLAGSMÁL Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra gaf styrktar- sjóðnum Faðmi 400 þúsund krónur á föstudag. Upphæðin er andvirði hefðbundinna jólakorta með kveðjum ráðherra og starfsfólks, sem Össur hefur ákveðið að senda ekki út í ár. Faðmur er styrktarsjóður samtakanna Heilaheill, sem vinna að velferðar- og hagsmunamálum þeirra sem hafa orðið fyrir skaða af völdum heilablóðfalls. Faðmur styrkir foreldra sem hafa fengið heilablóðfall eða heilaslag og eru með börn á framfæri. - sgj Iðnaðarráðherra: Gefur Faðmi jólakortapening ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON GENF, AP Jólasveinninn mun fá meira en sex milljón bréf í póstin- um í ár að því er stofnun á vegum Sameinuðu þjóðanna, sem tengir póstþjónustur víða um heim, greindi frá í gær. Að auki fara milljón bréf til jólasveinsins gegnum bandarísku póstþjónust- una árlega. Starfsmenn póstþjónusta í tuttugu löndum hið minnsta safna saman og svara bréfum sem stíluð eru á Norðurpólinn sem annars yrðu merkt sem „ekki hægt að afhenda“ eða „heimilisfang óþekkt“. Flest bréf stíluð á jólasveininn berast til Finnlands erlendis frá eða 150 löndum. Mestur heildar- fjöldi bréfa er í Frakklandi og bár- ust 1,22 milljónir bréfa til jóla- sveinsins þar í landi í fyrra. Næst kom Kanada með 1,06 milljónir, Bretland og Finnland með 750.000 hvort, Þýskaland með 500.000, Portúgal með 255.000 og Spánn með 232.000. Bandaríska póstþjónustan hefur lengst svarað börnum sem skrifa jólasveininum eða frá árinu 1912. Yfir 120.000 bréf berast að utan til Norðurpólsins í fámennt sam- félagið í Alaska þar sem 1.600 manns búa og vinna sjálfboðaliðar við það að svara bréfunum. Í sumum löndum býðst börnum að senda jólasveininum tölvupóst og fá svar en langflest kjósa þau enn að senda honum handskrifað bréf. - sdg Aðstoðarmenn jólasveinsins sitja víða sveittir við að svara póstinum hans: Sjö milljón bréf til jólasveinsins í ár JÓLASVEINN Í FRAKKLANDI Starfsmenn frönsku póstþjónustunnar aðstoða jólasveininn við að svara pósti. NORDICPHOTOS/AFP DÓMSMÁL Þrennt var sýknað af skaðabótakröfu í Héraðsdómi Reykjavíkur á föstudag fyrir að hafa tekið hundinn Akkiles ófrjálsri hendi og týnt honum. Akkiles var hundur af Leonberger- tegund, keyptur á 250 þúsund krónur, en ekkert hefur spurst til hans síðan í maí í fyrra. Kaupandi hundsins hafði beðið seljandann um að geyma hann fyrir sig, en sá seldi hann pari frá Stykkishólmi. Parið hafði sam- þykkt að skila hundinum en hann týndist á leiðinni heim. Héraðs- dómur taldi ekki sannað að seljandinn hefði tekið hundinn og selt með ólögmætum hætti. - sgj Þrjú sýknuð í hundsmáli: Akkiles hvarf en seljandi sýkn FANGELSISMÁL Fangelsi landsins voru svo til fullnýtt á árinu sem nú er að líða. Þegar nýtingin er svo mikil er erfiðara að mæta óvænt- um uppákomum og að koma að viðhaldi á byggingunum. Þetta kemur fram í frétt á vef Fangelsis- málastofnunar. Nýting afplánunarplássa á Litla- Hrauni og í Kópavogsfangelsinu hefur verið á bilinu 95 til 100 pró- sent á árinu. Sambærileg nýting á Kvíabryggju var tæp 99 prósent í byrjun október. Nýtingin var nokkuð lægri í Hegningarhúsinu, eða rúm 93 pró- sent. Nýtingin var 86 prósent í fangelsinu á Akureyri fyrstu mán- uði ársins, en því var lokað vegna endurbyggingar í maí. - bj Mikið álag á íslensk fangelsi: Fangelsin nær fullnýtt á árinu KVÍABRYGGJA Nýting afplánunarplássa á Kvíabryggju var um 99 prósent á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR VINNUMÁL Nýir vetrarjakkar lög- reglumanna verða að líkindum styttir. „Lagt verður fyrir næsta fund fatanefndar ríkislögreglustjóra að bjóða upp á að stytta jakkana og að næstu sendingar komi í styttri útgáfu,“ segir Jónas Ingi Péturs- son, framkvæmdastjóri rekstrar hjá embætti ríkislögreglustjóra. Jónas segir það hafa verið vegna óska frá lögreglumönnum sjálfum sem ákveðið var að síkka jakkann frá dönsku fyrirmyndinni og sam- ræma síddina við eldri jakka lög- reglunnar. „Menn eru oft úti við og vilja hafa jakkann niður fyrir mitti svo ekki blási upp undir,“ segir hann. Vetrarjakkarnir eru fóðraðir og saumaðir úr eldtefjandi efni. Hver jakki kostar 36 þúsund krónur. Eins og sagt var frá í Fréttablað- inu er mikil óánægja með jakkann meðal lögreglumanna, sem reyna að komast í minni númer svo jakk- inn virðist styttri og klæðilegri. Jónas segir hluta af vandamálinu vera að tekin hafi verið röng mál af lögreglumönnum, afgreiðslur hafi verið rangar auk þess sem staðlað snið passi ekki fyrir alla. „Við höfum óskað eftir ábending- um um það hvað megi betur fara og fengið ýmsar sem við erum að skoða,“ segir hann. Í nýjasta Lögreglublaðinu er rætt við fjóra lögreglumenn um nýjar vinnuflíkur. Segjast þeir mjög ánægðir með margt. Vetrar- jakkinn fær hins vegar slæma útreið: „Örugglega góður fyrir lög- reglumenn úti á landi. Það eru ekki öll föt hönnuð fyrir 101 Reykja- vík,“ sagði Ingólfur Már Ingólfs- son um jakkann. „Ég fékk minnsta númerið en það er alltof stórt. Hann verður kannski fínn þegar ég fæ jakka sem passar,“ bætti Helga Margrét Gunnarsdóttir við. Jónas tekur undir að mjög margt gott megi segja um nýju flíkurnar en að það sé líka margt sem þurfi að bæta: „Einmitt þess vegna höfum við verið að kalla eftir athugasemdum til að geta brugð- ist við.“ gar@frettabladid.is Lögreglan styttir jakka Fatanefnd ríkislögreglustjóra mun á næsta fundi sínum ræða tillögu um að stytta umdeilda vetrar- frakka sem lögreglumenn segja óklæðilega síða. TÍSKA „Flestir lögreglum enn hafa skipt út jökkum sínum fyrir stærðir mör gum númerum minni til að jakkinn – eða kápan – sé að einhverju leyti klæð ilegur,“ segir G. Jökull Gíslason , ritstjóri Lögreglublaðs ins. Jökull fjallar um nýju e inkennisbúninga lögreg l- unnar í grein í Lögreglu blaðinu. Þar segir hann Dani hafa eytt hundruðum m illjóna króna í hönnun n ýrra lögreglubúninga sem Ís lendingar hafi síðan haf t að fyrirmynd fyrir nýja bú ninga. Íslenska lögregla n hafi valið tiltekinn dans kan einkennisjakka en ákveðið að síkka hann – úr hófi að mati margra : „Hafa menn jafnvel val ið að fórna innra fóðri til að passa í minni núm er sem klæða þá betur,“ lýsir Jökull ritst jóri ástandinu í blaði sínu. Hann segir breytin gar þó í aðsigi. „Nýjustu fréttir eru að í næstu framleiðslu eigi að að stytta jakkann , en ekki að taka upp hið danska verðlaunasn ið heldur gera enn eina útgáfu sem yrði mi llistig danska jakkans og síðu kápunn ar,“ skrifar Jökull. Snið nýja einkennisbún ingsins er að sögn Jökuls ekki eina sérísle nska breytingin sem valdið hefur lögreglum önnum vandræðum. Í Danmörku séu búninga rnir gráleitir en hér séu þeir svartir. „Er það ein skýringin á þeim töfum sem hafa orðið á afhendingu en þ að segja mér fróðir men n að svart efni sé erfiðara í framleiðslu,“ segir Jökull, sem kveður svo langan drátt hafa orðið á afhendingu að ekki séu „einu sinni allar flíkurn ar komnar þrátt fyrir að á r sé liðið frá ráðgerðum afhendingartíma“. - gar Ósáttir lögreglumenn troða sér í litla jakka Heimagerðar breytinga r á danskri verðlaunah önnun falla illa að sme kk ís- lenskra lögreglumanna , sem troða sér í lítil nú mer svo jakkar þeirra l íti ekki út eins og kápur. Gísli segir hæp af þessu tagi standist l ög. „Það er aðarlega kosti 595 FRÉTTABLAÐIÐ Í gær grei ndi Fréttablað- ið frá ósáttum lögreglum önnum sem ganga í of litlum jökkum svo þeir virðist styttri. Ég fékk minnsta númerið en það er allt of stórt. HELGA MARGRÉT GUNNARSDÓTTIR Það eru ekki öll föt hönn- uð fyrir 101 Reykjavík. INGÓLFUR MÁR INGÓLFSSON522 44 00 • www.hertz.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /H E R 4 03 00 1 2/ 07 Nú fá allir sem leigja Toyota Aygo, Toyota Prius Twin eða Toyota Prius vetnisbíl frítt í stöðumæla miðborgarinnar.* Leggðu frítt í miðbænum *Hámark 90 mín í senn í hefðbundum stæðum bílastæðasjóðs SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580 ÍS L E N S K A /S IA .I S /U T I 39 98 6 11 /0 7 Leki göngustafir fyrir þá sem gera kröfur Verð frá 3.990 parið VEISTU SVARIÐ?
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.