Fréttablaðið - 22.12.2007, Blaðsíða 10
10 22. desember 2007 LAUGARDAGUR
JÓLASVEINAR Á HLAUPUM Um
5.000 manns tóku þátt í jólasveina-
hlaupi sem fram fór í þýsku borginni
Hamborg 16. desember síðastliðinn.
Markmiðið var að slá met sem sett
var í bresku borginni Liverpool þar
sem 3.299 jólasveinar hlupu árið
2005 í svipuðu hlaupi. NORDICPHOTOS/AFP
PAKISTAN, AP Lögreglan í Pakistan
réðst inn í íslamskan kóranskóla í
bænum Sherpao og handtók þar
sjö námsmenn.
Fáeinum klukkustundum áður
hafði sjálfvígsárásarmaður
sprengt sprengju í mosku á
heimili fyrrverandi innanríkis-
ráðherra landsins. Þar fórust að
minnsta kosti fimmtíu manns.
Ráðherrann fyrrverandi, Aftab
Khan Sherpao, slapp þó ómeiddur,
en þetta er í annað skiptið á átta
mánuðum sem reynt er að ráða
hann af dögum. Hann átti stóran
þátt í aðgerðum stjórnarinnar
gegn talibönum og Al Kaída.
- gb
Sprengjuárás í Pakistan:
Fimmtíu fórust
í árás á mosku
DÓMSMÁL Fyrirtaka var í gær í máli Alcan gegn
olíufélögunum þremur, Olíufélagi Íslands, Keri og
Skeljungi. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins fer
Alcan fram á 186 milljónir króna í bætur fyrir skaða
sem það telur félagið hafa orðið fyrir vegna
ólögmæts verðsamráðs félaganna.
Mál Alcan gegn Olíufélögunum var þingfest í
september og var fyrirtakan í gær önnur tveggja
sem farið hafa fram. Í þetta sinn voru kvaddir til
matsmenn sem meta eiga skaðann sem Alcan varð
fyrir.
Málið snýst um útboð sem fram fór haustið 1997.
Olíufélögin þrjú sammæltust þá um að viðhalda því
fyrirkomulagi að Skeljungur sæti einn að viðskipt-
um við ÍSAL, dótturfélag Alcan, og héldi áfram að
greiða hinum félögunum hlutdeild í framlegð af
viðskiptum við ÍSAL. Fyrirkomulagið var við lýði
fram til ársins 2001.
Fjölmörg önnur fyrirtæki, stofnanir og einstakl-
ingar gætu átt skaðabótakröfu á hendur olíufélögun-
um. Í niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins í máli
olíufélaganna eru tilgreindir tugir brotaþola, auk
þess sem hver og einn viðskiptavinur félaganna á
tímabilinu frá 1994 til 2001 er sagður brotaþoli. - sh
Fyrirtaka í máli Alcan gegn olíufélögunum þremur fór fram í gær:
Alcan vill 186 milljónir fyrir samráð
OLÍA Fyrirtækin sammæltust um að leyfa Skeljungi að sitja
einum að viðskiptum við Alcan, gegn því að hin fengju greitt
fyrir.
JAPAN, AP Hnúfubakar við Suður-
skautið verða áfram óhultir fyrir
japönskum hvalveiðimönnum –
að minnsta kosti fyrst um sinn.
Japanska stjórnin skýrði frá
því í gær að hvalveiðiflotinn, sem
kominn er á suðurskautsslóðir í
hina árlegu veiðiför sína, muni
láta þessa fágætu hvalategund í
friði.
Japanar hafa þar með látið
undan harðri gagnrýni sem barst
hvaðanæva að eftir að hvalveiði-
flotanum var í síðasta mánuði
heimilað að veiða hnúfubaka í
fyrsta sinn í fjóra áratugi.
Hvalveiðiflotinn mun hins
vegar, eins og fyrr var áætlað,
stefna að því að veiða 935 hrefn-
ur og 50 langreyðar.
Japanskir hvalveiðimenn
sendu sex hvalveiðiskip til Suður-
skautsins fyrir mánuði og höfðu
ætlað sér að veiða fimmtíu hnúfu-
baka á vertíðinni í vetur. Þegar
upplýst var um það brugðust
umhverfisverndarsamtök
ókvæða við. Þau eru á móti öllum
hvalveiðum, en blöskraði sér-
staklega áformin um að veiða
hnúfubakinn.
„Hvalveiðimál verða oft svo
tilfinningaþrungin, en við vonum
að umræðan fari fram af fyllstu
rósemd á grundvelli vísindalegra
staðreynda,“ segir Nobutaka
Machimura, talsmaður japanskra
stjórnvalda, þegar hann skýrði
frá því að hætt hefði verið við
hnúfubaksveiðarnar.
Ákvörðunin kom á óvart því
Japanar hafa til þessa haldið fram
skýlausum rétti sínum til þess að
veiða hvali. Hvalveiðarnar eru
stundaðar á vegum opinberrar
rannsóknarstofnunar í samræmi
við reglur Alþjóðahvalveiðiráðs-
ins sem heimilar takmarkaðar
hvalveiðar í vísindaskyni.
Ákvörðun Japana var fagnað,
meðal annars af áströlsku stjórn-
inni sem hyggst fylgjast grannt
með hvalveiðum Japana í vetur
og gera allt sem hægt er til að
stöðva þær.
„Þótt þetta sé ánægjulegt skref
er Ástralíustjórn eindregið
þeirrar skoðunar að ekki sé hægt
að réttlæta neinar hvalveiðar
með trúverðugum hætti,“ segir
Stephen Smith, utanríkisráð-
herra Ástralíu.
Hvalveiðar á hnúfubak voru
bannaðar í Suður-Kyrrahafi
vegna útrýmingarhættu árið
1963. Þremur árum síðar voru
þær bannaðar um heim allan.
gudsteinn@frettabladid.is
Hnúfubakur
ekki veiddur
Hörð gagnrýni umhverfissinna hefur haft áhrif á
hvalveiðistefnu Japana. Þeir ætla að veiða hrefnur
og langreyðar, en láta hnúfubak í friði.
HNÚFUBAKUR Fyrir fjörutíu árum voru veiðar á hnúfubak bannaðar um heim allan
vegna útrýmingarhættu. Stofninn hefur eflst og er nú talið að þrjátíu til fjörutíu þús-
und dýr séu á sveimi í höfunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Stór og lítil heimilistæki, símtæki og ljós í miklu úrvali.
Gæðaryksugur frá Siemens.
Virkilega þrífandi hrífandi.
Þessi er nauðsynleg við jólabaksturinn.
Er ekki upplagt
að fá sér ný ljós
fyrir jólin?
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
39
98
6
11
/0
6
Dúnúlpur frá
The North Face
Verð frá
19.990 kr.
Úlpa á mynd 26.990 kr.