Fréttablaðið - 22.12.2007, Blaðsíða 12
12 22. desember 2007 LAUGARDAGUR
UNNUR JÖKULSDÓTTIR
STAÐARHALDARI Í ELLIÐAVATNSBÆNUM
Jólastemningin er í hámarki í Heiðmörk
enda halda þar til jólasveinar, ferfætl-
ingar, börn, listamenn og huldufólkið er
ekki langt undan.
FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
JÓLASTEMNING Í HEIÐMÖRK Það er reisn yfir Elliðavatnsbænum, fæðingarstað Einars
Benediktssonar. MYND/ÁRNI TRYGGVASON
BÚIN AÐ FINNA RÉTTA JÓLATRÉÐ Jóhann Eyfjörð dregur jólatréð sem hann hefur höggvið og nýtur aðstoðar Matthíasar, Andra og
Guðrúnar Ýrar.
JÓLAGLEÐI Á HLAÐINU Sveinki er ósmeykur að láta til sín taka en stundum týnist hann og þá verða börn frá Náttúruskólanum að
hafa uppi á honum.
Jólamarkaðurinn í Heið-
mörk hefur verið opinn alla
laugardaga og sunnudaga
frá 24. nóvember síðast-
liðinn. Unnur Jökulsdóttir
staðarhaldari var í essinu
sínu þegar blaðamaður tók
tal af henni í vikunni enda
var fallegt í Heiðmörkinni
á heiðskírum degi og góðir
gestir búnir að setja svip
sinn á starfsemina í Elliða-
vatnsbæ og nágrenni. Hún
var að undirbúa helgina
í Heiðmörk þar sem nóg
verður um að vera.
„Þetta er sannkallaður griðastaður
fyrir borgarbúa sem eru búnir að
fá nóg af stressinu,“ segir Unnur.
„Hingað getur fólk komið og
keypt muni eftir íslenska hönn-
uði, handverks- og listiðnaðar-
fólk. Að sjálfsögðu er fólkinu
boðið upp á heitt kakó og rithöf-
undar lesa úr verkum sínum. Til
dæmis var hún Kristín Helga
Gunnarsdóttir að lesa úr bók sinni
fyrir börnin um síðustu helgi og
höfðu þau verulega gaman af. Og
um þessa helgi er síðan von á
Reyni Jónassyni sem mun galdra
nokkra slagara fram úr harmon-
ikkunni sinni.“
Elliðavatnsbær er ekkert kot
en þar eru nú bækistöðvar Skóg-
ræktarfélags Reykjavíkur sem
hefur veg og vanda af jólamark-
aðinum. Þetta steinhús lét Bene-
dikt Sveinsson alþingismaður
reisa og þar fæddist sonur hans
og þjóðskáld okkar, Einar Bene-
diktsson, árið 1864.
Svo er nóg um að vera
umhverfis bæinn. „Hingað getur
fólk komið og keypt jólatré af
ýmsum gerðum á hlaðinu hjá
okkur en svo komum við líka til
móts við þá sem vilja höggva sitt
tré sjálfir og þá fá þeir verkfæri
hjá skógarmönnunum okkar og
ganga svo bara vasklega til verks.
Reyndar mega menn eiga von á
því að Sveinki láti á sér bera
meðan á ósköpunum stendur.“
Upplestur fer einnig fram utan-
dyra en þá er slegið upp varðeldi
sem hægt er að orna sér við. „Svo
er Náttúruskólinn með ýmis
uppátæki fyrir börnin. Til dæmis
er farið í ratleik þar sem leitað er
að jólasveinum,“ segir Unnur.
Náttúruskólinn er fyrir alla
grunnskólanemendur á höfuð-
borgarsvæðinu en þar er lögð
áhersla á að kenna krökkunum á
kynstur náttúrunnar.
Eins og bókhneigðir vita gaf
Unnur út bók um huldufólk fyrir
þessi jól og því er ekki úr vegi að
spyrja hana hvort slíku fólki sé
fyrir að fara í Heiðmörkinni. „Að
sjálfsögðu er nóg af huldufólki
hérna og ekki er hróflað við neinu
nema með góðfúslegu leyfi frá
því,“ segir hún og brosir.
jse@frettabladid.is
Jólafjör í húsi skáldsins