Fréttablaðið - 22.12.2007, Side 18
18 22. desember 2007 LAUGARDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 556
6.275 +0,94% Velta: 10.018 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 9,76 +0,00% ... Bakkavör
57,40 +1,06% ... Eimskipafélagið 35,35 -1,12% ... Exista 19,10 +7,00%
... FL Group 14,75 +0,34% ... Glitnir 21,85 +0,23% ... Icelandair 26,45
+2,92% ... Kaupþing 868,00 +0,58% ... Landsbankinn 35,60 +0,28%
... Straumur-Burðarás 15,30 +1,66% ... Össur 97,30 -0,71% ... Teymi
5,84 +6,18%
MESTA HÆKKUN
ATLANTIC PETROL. 7,64%
EXISTA 7,00%
TEYMI 6,18%
MESTA LÆKKUN
FLAGA 5,50%
ATLANTIC AIRWAYS 2,56%
ICELANDIC GROUP 1,52%
Eignarhlutur Icebank í Spari-
sjóðnum í Keflavík nemur um það
bil 1,9 prósentum en ekki 8,3 pró-
sentum líkt og lesa má úr lista sem
birtist yfir stærstu eigendur í við-
auka við stofnfjárútboðslýsingu
SpKef sem lauk 14. desember.
Samkvæmt upplýsingum frá
Icebank þá skiptist stofnfjáreign-
in sem skráð er á bankann þannig
að 84,3 milljónir króna eru vegna
eigin viðskipta hans, en 285 millj-
ónir eru vörn bankans vegna
afleiðusamninga viðskiptavina.
Heildarhluturinn nemur að nafn-
virði 369,2 milljónum króna, eða
8,42 prósentum af heildarstofnfé
spariSjóðsins.
Eign Icebank í SpKef er upphaf-
lega frá því í haust, en síðan hefur
bankinn tekið þátt í tveimur stofn-
fjáraukningum í samræmi við
eignarhlut sinn.
Finnur Svein-
björnsson,
bankastjóri Ice-
bank, segir að
þar á bæ hafi
menn velt fyrir
sér að fara
sömu leið og
stóru bankarnir
og stofna sér-
stakt félag til að
halda utan um
eignarhluta sem mynda vörn á
móti afleiðusamningum. Hingað
til segir hann mat manna hafa
verið að umsvif bankans væru
ekki slík að til þess kynni að koma.
„En ef til vill sýnir þetta SpKef-
mál að heppilegt kunni að vera að
stíga skrefið fyrr en við ætluð-
um,“ segir hann. - óká
FINNUR
SVEINBJÖRNSSON
Hugleiða félag um eignir
móti afleiðusamningum
„Væntanlega erum við að sjá áhrif
af fjármálakreppunni koma fram í
raunhagkerfinu á næsta ári,“ sagði
Ásgeir Jónsson, forstöðumaður
greiningardeildar Kaupþings, í
hádegisviðtali Markaðarins á Stöð
2 í gær.
Ásgeir sagði að raunveruleg
fjármálakreppa væri nú vestan
hafs. Hinn almenni borgari hér
hefði ekkert fundið fyrir henni.
Hér væri svo til ekkert atvinnu-
leysi og fólk hafi verið tiltölulega
bjartsýnt. „En mér finnst mjög
líklegt að það muni breytast mjög
snögglega á næsta ári og við sjáum
þessi efnahagslegu áhrif undir-
málskrísunnar koma fram.“
„Það verður miklu erfiðara að
fá lán fyrir framkvæmdum og svo
framvegis,“ sagði Ásgeir og bætti
því við að hann væri ekki svart-
sýnn. „Uppsveiflur og niður-
sveiflur fylgjast að. Það væri
barnaskapur að halda að íslenska
hagkerfið geti haldið áfram á
þessu stími sem það hefur verið
á.“
Hann bendir á að fasteigna-
markaðurinn sé viðkvæmur
fyrir háum vöxtum og vísar
til undirmálskrísunnar.
„Aðilar sem eru í útlánum
til fasteignakaupa á Íslandi
munu stíga varlega til
jarðar á næsta ári.“
Það hafi verið mark-
mið Seðlabankans með
gríðarlega háum stýri-
vöxtum að ná þessari
stöðu. Það hafi tekið
hann þrjú til fjögur
ár.
„Aðalmálið er að
markaðurinn frjósi ekki,“ sagði
Ásgeir og sagði að það skipti ekki
öllu máli þótt verðið lækkaði lítil-
lega.
Fasteignamarkaðurinn eigi þó
líklega eftir að jafna sig um leið
og hægt verði að lækka vexti.
Ásgeir segir að næsta ár
verði ár aðlögunar í hagkerf-
inu. Fólki hætti til að vera of
bjartsýnt í uppsveiflu og of
svartsýnt í niðursveiflu.
Fólk hefði getað búist
við þessu og „nú
verður að standa fast í
ístöðunum, en ég held
samt að 2008 verði
ekki slæmt ár“. - ikh
Segir að styttist í kreppuna
ÁSGEIR JÓNSSON
„Þessi samningur mun án efa gera
bæði Vífilfelli og Dominos kleift
að vaxa og dafna og halda áfram
að vera í fararbroddi á sínu sviði á
Íslandi næstu ár,“ sagði Árni Stef-
ánsson, forstjóri Vífilfells, við
undirritun samstarfssamnings
fyrirtækjanna til næstu þriggja
ára.
Samningurinn felur meðal ann-
ars í sér að vörum Vífilfells er
dreift með vörum Dominos, sam-
eiginlegar auglýsingar og fleira.
Verðmæti samningsins er ekki
gefið upp.
Vífilfell og Dominos eru með
mikla markaðshlutdeild hvort á
sínum markaði hérlendis. Á heild-
armarkaði fyrir gos og vatn hefur
Vífilfell ríflega 60 prósenta mark-
aðshlutdeild. Dominos er ein
stærsta keðjan á íslenska skyndi-
bitamarkaðnum. Dominos rekur
fjórtán staði hér á landi. - ikh
Dominos og kók enn saman
Matsfyrirtækið Fitch Rat-
ings staðfesti í fyrradag
lánshæfiseinkunn Straums-
Burðaráss fjárfestingar-
banka. Langtímahorfur
Straums eru sagðar stöð-
ugar.
Alþjóðlega greiningar- og mats-
fyrirtækið Fitch Ratings hefur
staðfest lánshæfiseinkunn
Straums-Burðaráss fjárfesting-
arbanka hf. Langtímaeinkunn
bankans er „BBB-“, skammtíma-
einkunn „F3“, óháð einkunn „C/
D“ og stuðningseinkunn „3“.
Langtímahorfur í rekstri bank-
ans eru sagðar stöðugar.
Fitch segir að einkunn Straums
endurspegli fjárhagslegan styrk
bankans, öran vöxt tiltölulega
stöðugra tekna, aukna landfræði-
lega dreifingu bæði eignasafns
og tekna og þá staðreynd að
áhættustýring og upplýsingagjöf
hafi verið efld til muna að undan-
förnu.
Einkunnin er einnig sögð mark-
ast af því að tiltölulega lítil
reynsla sé komin á starfsemi
Straums í núverandi mynd, hluta-
bréfaeign bankans sé enn mikil,
einstakir liðir vegi þungt í efna-
hagsreikningnum og óvissa sé
um hvernig gangi að samþætta
einingar á ólíkum mörkuðum.
Fitch tekur fram að samsetning
rekstrareininga og áhættu hafi
batnað en bætir við að það eigi
eftir að koma fram í sterkari
efnahagsreikningi og rekstraraf-
komu. Haldi bankinn áfram að
bæta sig að þessu leyti renni það
stoðum undir að einkunn hans
verði hækkuð. Að sinni segir
matsfyrirtækið hins vegar að
fylgst verði með áhrifum hinna
erfiðu aðstæðna á markaði á
bankann.
Loks er því lýst yfir að lausa-
fjárstaða Straums sé góð og að
fjárhagslegur styrkur bankans
veiti honum umtalsverðan
sveigjan leika til að vaxa, líkt og
sé yfirlýst stefna bankans.
Áður hafði Fitch fjallað um
lánshæfi hinna bankanna þriggja,
Kaupþings, Landsbankans og
Glitnis.
Fyrr í þessum mánuði staðfesti
Fitch lánshæfiseinkunnir Kaup-
þings banka. Langtímaeinkunn
er „A“, skammtímaeinkunn „F1“,
óháð einkunn „B/C“, stuðnings-
einkunn „2“ og stuðnings-
einkunnargólf „BBB“. Matsfyrir-
tækið breytti hins vegar horfum
fyrir langtímaeinkunn bankans
úr stöðugum í neikvæðar.
Í umsögn fyrirtækisins sagði
að endurskoðun á horfum fyrir
langtímaeinkunn Kaupþings
kæmi í kjölfar lækkunar á lang-
tíma lánshæfiseinkunn NIBC og í
ljósi þess að Fitch teldi að mögu-
legar afkomusveiflur vegna eðlis
starfsemi NIBC yrðu erfiðari
viðureignar. „NIBC mun verða
stór hluti af Kaupþings samstæð-
unni og þar af leiðandi auka
tekjusveiflur og hækka aftur
hlutfall heildsölufjármögnunar
hjá samstæðunni, þótt áhersla á
að auka innlán gæti dregið úr
áhættunni,“ segir í umfjöllun
Fitch.
Mat Fitch Ratings á lánshæfi
Landsbankans er frá því í nóvem-
ber, en enn hefur ekki komið nýtt
mat á Glitni.
Í síðasta mánuði staðfesti Fitch
óbreytta lánshæfiseinkunn
Landsbankans. Langtímaskuld-
bindingar eru „A“, skammtíma-
einkunn „F1“, stuðningur „2“ og
fjárhagslegur styrkur „B/C“.
Horfur lánshæfismatsins voru
sagðar stöður stöðugar, en ein-
kunnin var sögð endurspegla
leiðandi stöðu Landsbankans á
heimamarkaði, aukna fjölbreytni
í tekjum bankans, varkár
afskriftar framlög, góða eigin-
fjárstöðu og bættar fjármögnun-
arleiðir. Í matinu var einnig tekið
tillit til þess að hlutabréfastöður
bankans eru enn umtalsverðar og
hugsanlegt umrót á innanlands-
markaði og í annarri starfsemi
tengdri fjármálamörkuðum.
Nýjasta mat Fitch á Glitni er
hins vegar frá því í mars, en það
var gefið út í kjölfar kaupa
Glitnis á FIM. Þá var staðfest
óbreytt einkunn, „A“ í langtíma-
einkunn, skammtímaeinkunn
„F1“, óháð einkunn „B/C“ og
stuðningseinkunn „2“. Horfur
voru sagðar stöðugar. - bg/óká
STEFNAN KYNNT Willam Fall, forstjóri Straums Fjárfestingabanka kynnti stefnu bank-
ans fjárfestum og greinendum í haust, þegar hann hafði verði 90 daga í starfi. Fitch
Ratings hefur staðfest lánshæfi bankans og segir horfur stöðugar. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
Lánshæfi Straums staðfest
Gengi Existu og SPRON hækkaði tals-
vert í gær, á síðasta viðskiptadeginum í
Kauphöll Íslands fyrir jól.
Markaðsvirði bæði Existu og SPRON
dróst talsvert saman í vikunni. Það
fyrrnefnda féll um tæp fimmtán pró-
sent en SPRON um sextán. Greinendur
áttu enga skýringu á fallinu í vikunni
en litlar breytingar urðu á undirliggj-
andi eignum Existu á Norðurlöndunum.
Gengi SPRON helst nokkuð í hendur
við breytingar á Existu enda er spari-
sjóðurinn með sjö prósenta hlut í félag-
inu.
Gengi hlutabréfa hækkaði almennt í
Kauphöllinni í gær en Úrvalsvísitalan
hækkaði um 0,94 prósent. Þótt þetta sé
með besta móti upp á síðkastið er hækk-
unin talsvert undir meðaltalshækkun á
erlendum hlutabréfamörkuðum í gær.
Færeyska olíuleitarfélagið Atlantic
Petroleum var hins vegar sigurvegari
gærdagsins enda stökk gengi hluta-
bréfa félagsins upp um 7,65 prósent
undir lok viðskiptadagsins. Flaga féll
um 5,5 prósent á sama tíma.
Úrvalsvísitalan stendur í 6.275 stig-
um sem merkir að hún er á svipuðum
slóðum og í byrjun jólamánaðarins í
fyrra. - jab
Langþráð hækkun fyrir jólin
FRÁ AÐALFUNDI EXISTU Gengi hluta-
bréfa í Existu tók stökkið í gær eftir
talsvert fall í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI