Fréttablaðið - 22.12.2007, Page 24
22. desember 2007 LAUGARDAGUR
Í
nýútkomnu ársriti Lögreglufélags Reykja-
víkur, Lögreglublaðinu, fjallar annar
ritstjóra blaðsins, Gísli Jökull Gíslason, um
þann vanda sem steðjar að lögreglustarfinu
um þessar mundir. Í grein sinni „Það er bara
ekki í góðu lagi“ segir hann meðal annars: „Á þessu
ári hef ég séð eftir
mörgum mjög hæfum
og góðum lögreglu-
mönnum hætta og mig
tekur það sárt. Ekki
aðeins eykst vinnu-
álagið á okkur sem
eftir eru sem því
nemur, heldur
skaddast ein sterkasta
taugin sem heldur
mér í þessu starfi.“
Hugsjónamaður er
orð sem allir viðmæl-
endur Fréttablaðsins
nota til að lýsa Jökli.
Áður en hann hóf
störf hjá lögreglunni
vann hann með
heimilislausum
drengjum og þar áður
sem sjálfboðaliði hjá
Rauða krossinum.
„Svona er hann bara.
Annaðhvort er fólk
með það í sér að vilja
hjálpa og aðstoða eða
ekki. Jökull er með
hugsjónina. Hann vill
hjálpa fólki en hann
er hins vegar ekki
aumingjagóður.“
Jökull hefur einnig
verið mikið í félags-
starfi í gegnum tíðina.
Hann var lengi
formaður ungliða-
starfs Rauða krossins
og á þessu ári tók
hann við sem annar af
tveimur ritstjórum
Lögreglublaðsins.
Jökli er afar annt
um lögreglustarfið og
vill vekja athygli á því
sem hann telur hægt
að bæta. Á forsíðu
Lögreglublaðsins var
mynd af brotinni
lögreglustjörnu og
vildi Jökull með því
benda á þá staðreynd
að brestir eru í
lögreglunni. „Hann
hefur lagt mikið í það
undanfarna daga og
vikur að setja sig inn í
málefni lögregl-
unnar,“ sagði einn
viðmælenda, sem
bætti því við að
greinin í Lögreglu-
blaðinu hefði ekki
komið á óvart.
Jökull er afskaplega
vel liðinn innan
lögreglunnar að sögn
viðmælenda. Hann
þykir góður vinnu-
félagi og er oft leitað
til hans með ýmis mál.
„Hann er hafsjór af
fróðleik. Það er gott
að leita til hans og
oftar en ekki fá góð
svör. Toppmaður í alla
staði.“
Það hefur alltaf
verið á áætlun hjá
Jökli að eiga stóra
fjölskyldu og vill hann
hafa reglu og fjöl-
skyldulíf í kringum
sig. Jökull á tvær
dætur og sækja börn
sérstaklega í nærveru
hans að sögn eins
viðmælanda. „Það eru mörg börn sem leitast við að
koma í heimsókn sérstaklega til að hitta hann.
Hann er alltaf til í að fíflast með þeim og fara í
tröllaleik.“ Í tröllaleik leikur Jökull tröllið sem
eltir skríkjandi börnin.
Þegar Jökull fluttist heim frá Bretlandi tíu ára
gamall var hann tvítyngdur. Fimm árin á undan
hafði hann alltaf talað ensku við skólafélaga og
vini meðan foreldrar hans töluðu íslensku við
hann. Það hafði þó þær
afleiðingar að þegar
hann fluttist aftur
heim var íslenskan
hans á öðru plani en
hjá öðrum tíu ára
börnum. Fann hann
sérstaklega fyrir því
hve hann skorti inn í
orðaforða tíu ára
krakka. Þurfti hann
meðal annars að láta
kenna sér að blóta.
Jökull á mikið af
áhugamálum og eru
hefðbundnar íþróttir
þar ekki í forgrunni.
„Hann er algjör
antisportisti. Hjá
mörgum er fótboltinn
aðaláhugamálið en
hann er með mörg
önnur í staðinn.“ Af
helstu áhugamálum
Jökuls má nefna
skotfimi, sjósund,
borðspil og her-
kænsku. Hefur hann
unnið til verðlauna í
skotfimikeppni hjá
lögreglunni og er
meðlimur í sjósunds-
félagi lögreglunnar.
Stærsta áhugamálið
snýr þó að borðspilum
og herkænsku. „Segja
má að Jökull sé
hernaðarsérfræðingur
án þess að hafa
nokkurn tímann
komið nálægt hernaði
heldur hefur hann
bara lesið sér til.“ Í
dag spilar hann spil
um seinni heimsstyrj-
öldina með litlum
fígúrum og á hann
risastórt safn af
bókum og DVD-
diskum um þetta
tímabil. Jökull hefur
alla tíð verið mikið
fyrir spil af þessu tagi
og hefur einnig séð
um að halda spilamót.
Hann spilar til að
skemmta sér og þykir
taka sigrum jafnt sem
ósigrum með einstöku
jafnaðargeði. Jökull
er afar vel liðinn af
spilafélögum og þegar
hann tilkynnti að hann
hygðist hætta
spilamennsku í
borðspilinu War-
hammer 40.000 var
gífurleg eftirsjá að
honum að sögn eins
viðmælanda. Jökull
spilaði Warhammer
um nokkurra ára
skeið og tók meðal
annars þátt í heims-
meistaramóti War-
hammer-spilara.
Af heimilisstörfum
á eldamennskan helst
upp á pallborðið hjá
Jökli, sem sér um alla
eldamennsku á
heimilinu. Hann er
opinn fyrir alls konar
matargerðarlist og
einbeitir sér að því að
gera hvern rétt eins
góðan og hægt er. Eru
þeir oft í flóknara lagi. „Hann myndi til dæmis
aldrei elda kjötbollur í brúnni sósu, það væri of
einfalt.“
MAÐUR VIKUNNAR
Barngóður antisportisti
GÍSLI JÖKULL GÍSLASON
ÆVIÁGRIP
Gísli Jökull Gíslason fæddist 20. október árið 1970 í Reykja-
vík. Hann ólst upp í Reykjavík og á Seltjarnarnesi auk þess
sem hann dvaldist í Bretlandi frá fimm til tíu ára aldurs
meðan foreldrar hans voru þar í námi. Jökull bjó í foreldra-
húsum þar til hann varð tvítugur, að einu ári undanskildu
þegar hann á menntaskólaárunum fór sem skiptinemi til
Kanada.
Tvítugur að aldri dvaldi hann í níu mánuði í Gambíu í
Afríku þar sem hann vann sem sjálfboðaliði Rauða krossins.
Á tímabilinu 1997 til 1999 vann hann sem umsjónarmaður
á sambýli fyrir heimilislausa drengi þar sem hann bjó og rak
heimilið. Árið 1999 hóf hann störf sem afleysingamaður hjá
lögreglunni og árið eftir fór hann í lögregluskólann. Hefur
hann starfað hjá lögreglunni síðan.
Jökull er kvæntur Pálínu Gísladóttur byggingaverkfræðingi
og saman eiga þau tvær dætur; Laufeyju sem er fimm ára og
Kristínu sem er eins árs.
Foreldrar Jökuls eru Kristín Hafsteinsdóttir lífeindafræð-
ingur og Gísli Már Gíslason, prófessor í líffræði við Háskóla
Íslands.
VANN SÉR TIL FRÆGÐAR
Kleif Hvannadalshnjúk í fyrra í fyrsta skipti. Förin var hálft
ár í undirbúningi og segja kunnugir Jökul hafa fyllst mikilli
sigurtilfinningu við að komast á toppinn.
HVAÐ SEGIR HANN?
„Þau skörð sem hafa myndast með mannfækkun er ekki
hægt að fylla auðveldlega því með þeim tapast reynsla. Í
mínu mati þá er tvennt sem gerir lögreglumann að góðum
lögreglumanni öðru fremur, það er hvernig hann er að upp-
lagi og sú reynsla sem hann hefur.“
– í Lögreglublaðinu, ársriti Lögreglufélags Reykjavíkur,
desember 2007.
HVAÐ SEGJA AÐRIR?
„Hann er bara eins og jökullinn. Stór og stóískur.“ Pálína
Gísladóttir, eiginkona Jökuls.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki