Fréttablaðið - 22.12.2007, Page 36
36 22. desember 2007 LAUGARDAGUR
endalaust að hugsa um að maður þurfi að
standa sig bara til að það verði auðveldara
fyrir fleiri konur að koma inn á eftir og segja
„heyrðu, stjórnmál eru opin öllum!“
-Kemur nokkuð annað til greina en að þú
verðir fyrsta konan til að stýra Sjálfstæðis-
flokknum?
„Auðvitað eru ekki allir sammála um það!
En það er alveg ljóst að sá sem býður sig
fram sem varaformaður er að segja að ef
eitthvað gerist sé hann reiðubúinn að taka
við forystunni. En mér finnst óraunhæft að
hugsa um þetta því Geir á eftir að vera hér í
mörg ár í viðbót, eða ég ætla rétt að vona
það! Mig skiptir miklu máli að honum gangi
vel, því á meðan gengur flokknum vel. Það
sést nú af sögu Sjálfstæðisflokksins að þegar
gustar um formann og ekki er sæmileg sátt
um hann innan flokks sem utan, þá fer flokk-
urinn niður.“
-En það hefur sjaldan verið jafn áberandi
ágreiningur, með sprungna borgarstjórn...
„Áberandi og ekki. Það er enginn ágrein-
ingur þótt menn skiptist á skoðunum. Um
borgarstjórnina vil ég segja að það er hægt
að nálgast það mál á tvo afar ólíka vegu. Ég
hafði ekkert á móti REI á sínum tíma en
hvernig menn ætluðu að djöfla þessu í gegn á
ósiðlegan hátt með Björn Inga í broddi fylk-
ingar, einkarétt á nafni Orkuveitunnar og
þessa kaupréttarsamninga, án þess að það
væri búið að pæla þetta neitt út! Mönnum
ofbauð bara þessi subbugangur.“
-Og nú er talað um að ekki sé stemming
fyrir að einkavæða Landsvirkjun...
„Og það er alveg rétt. Það er ekki stemm-
ing fyrir því. Eitt meginhlutverk Sjálfstæðis-
flokksins er að fá fólkið með í það að einka-
væða á skynsamlegum grunni. Það verður að
vera sátt um svona mikilsháttar breytingar
meðal þjóðarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn
þarf að leiða umræðuna um hvernig á að
gera þetta. Við kunnum þetta, hinir flokkarn-
ir ekki.“
-En var flokkurinn stjórntækur í borginni?
Hvað hefðir þú gert í sporum Björns Inga
þegar samstarfsflokkurinn var „til í allt, án
Villa“ við aðra flokka?
„Ég held að þetta sé bara besta spuna-
mennska sem hefur lengi sést, hvernig Björn
Ingi hefur náð að snúa fólki á þá skoðun að
Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki verið trausts-
ins verður. Hvað var það sem skildi menn að
í lokin? Það var að sjálfstæðismenn vildu
losa sig út á hálfu ári en Björn Ingi árið 2009.
Ef menn eru heiðarlegir þá tala þeir sig út úr
svona. Við gerðum annað eins í ríkisstjórn
með Framsóknarflokknum.
Það var eitthvað meira sem bjó að baki.
Kannski panikkaði Björn Ingi bara, ég veit
það ekki.
Ég hef bara aldrei kynnst svona vinnu-
brögðum og ég skil þau ekki. Hann hefur alla
hæfileika til að standa sig vel í pólitíkinni en
ég hef bara aldrei upplifað annað eins. Menn
gerðu mistök og eru búnir að viðurkenna
það. Ég held persónulega að helstu mistökin
hafi verið að ræða hlutina ekki betur. En
þetta var mjög sérstakt.
Það er Samfylkingin sem ber núna ábyrgð
á Birni Inga. Vesgú, verði henni að góðu.“
Menntamál eru prinsippmál
-Í vetur hefur af og til verið rætt um meint
hrun klassískrar menntunar. Að áherslan á
nytsemd og gæðastaðla skapi verksmiðjur en
ekki menntastofnanir. Til verði hópar af sér-
fræðingum sem tali hver sitt fagmál, en hafi
engan sameiginlegan snertiflöt.
„Já, þetta eru sígildar pælingar og mennta-
stofnanir geta aldrei litið framhjá samfélag-
inu sem ól þær. Háskóli Íslands var nú á
sínum tíma gagnrýndur fyrir að vera ekki í
nógum tengslum við atvinnulífið. En þetta
eru alls ekki andstæður. Það er vel hægt að
gera hvort tveggja; bjóða upp á sígilt aka-
demískt nám og hagnýtara nám.
Í ljósi breyttra þjóðfélagsaðstæðna er til
dæmis deginum ljósara að við þurfum að
undirstrika mikilvægi lesturs og íslensku-
kunnáttu. Í þessum alþjóðlega heimi hefur
gildi íslenskunnar aldrei verið meira.“
-En var ekki nýlega verið að stytta íslensku-
nám kennaranema úr tólf stundum á viku í
tvær?
„Ja, Kennaraháskólinn mótar sitt náms-
framboð sjálfur og þeir juku í raun valið, en
minnkuðu ekki íslenskukennsluna sem slíka.
Þeir færa hana til í kerfinu og bjóða upp á
hana á öðrum stöðum. Það var varað við þess-
um breytingum líka með stærðfræðina í
framhaldsskólum. En þar höfum við séð að
krakkarnir velja sér sjálf stærðfræðina.“
-Þú óttast þá ekki að þetta komi niður á
íslenskukunnáttunni?
„Ég ætla ekki að segja að ég óttist það ekki.
Ég held bara að Kennaraháskólinn verði að
átta sig á því að hann getur ekki veitt neinn
afslátt á því að kenna íslensku. En ég ætla
ekki að skipta mér af því og fara þannig gegn
grunnhugmyndum um sjálfstæði háskólanna
og akademískt frelsi.“
-Þú ert alveg sannfærð um að samkeppni
milli skóla eigi rétt á sér?
„Já. Pólitískt séð var þetta grundvallarmál
á sínum tíma. Við sögðum að við ætluðum
ekki að skipta okkur af því hvort nemendur
fara í einkaskóla eða opinbera skóla. Fjár-
magnið á að fylgja nemanda. Það var engin
tilviljun að allt í einu urðu til fleiri háskólar.
Engin tilviljun að Bifröst sá sóknarfæri og
engin tilviljun að HR kom. Þetta leiddi af sér
að það varð auðveldara að fjölga háskólun-
um. Á grunnskólastiginu er þetta í höndum
sveitarfélaganna en eftir mikla pólitíska
umræðu breytti ég lögunum þannig að for-
eldrar fá ákveðna fjárhæð að lágmarki, kjósi
þau að senda börnin sín í einkaskóla.“
-En í samkeppni hlýtur einhver að tapa.
Bestu nemendurnir fara í bestu skólana?
„Ég held að það skipti miklu máli að það
verði hér samkeppni um nemendur, án þess
þó að það raski jöfnum tækifærum til náms á
öllum skólastigum. Við eigum að gera þetta
hóflega en það skiptir máli að það sé sam-
keppni á þessu sviði og ekki síst á sviði kenn-
aramenntunar. Við þurfum fjölbreytilega
kennara með mismunandi bakgrunn. Laun
grunnskólakennara eru því miður ekki nægi-
lega aðlaðandi.“
-En launin eru nú hærri í einkaskólum?
„Þar er náttúrulega meira svigrúm. Jafn-
launastefna Kennarasambandsins og sveit-
arfélaganna gengur ekki upp. En ég bind
vonir við að aukið samráð þeirra á milli verði
til að losa um ákveðn-
ar hömlur svo kennar-
ar geti fengið kjara-
bætur.“
-Þú vilt árangurs-
tengja kennaralaun?
„Ég held að menn
verði bara að leita
allra leið til að hækka
laun kennara því þau
eru óviðunandi. Kenn-
arastarfið er eitt það
virðingarverðasta í
samfélaginu. Laun
kennara í Finnlandi
eru reyndar ekkert
mikið hærri en það er
allt annað viðhorf
gagnvart kennurum.
Það er litið upp til
þeirra og gríðarleg
ásókn í kennaramennt-
un. Því tel ég að þurfi
að huga að ímynd
kennara. Þeir eiga
ekki að þurfa að rétt-
læta tilveru sína.“
Það getur vel verið að ég tali gegn mörgum
í mínum flokki sem vara mig við því að tala
um að laun kennara eigi að hækka því þá fari
allt samfélagið á hausinn. En ég neita að taka
þátt í svona! Það er þjóðfélagsleg nauðsyn að
við höfum stolta og ánægða kennara. Það
smitast inn á heimilin okkar og gerir þjóðina
samkeppnishæfari til allrar framtíðar.“
ÞORGERÐUR KATRÍN Ráðherra þurfti að breyta orðalagi um kristilegt siðgæði í grunnskólalögum nýverið. Hún segir framsóknarmenn hafa gert meira til að skaða
samband skóla og kristni en aðrir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þorgerður lýsti skoðun sinni á auglýsingavæðingu Áramóta-
skaupsins í Fréttablaðinu í gær og kvað hana afar óheppilega. Að
auki þykir henni nýlegt Klaufamál RÚV ekki til fyrirmyndar, en þá
neitaði RÚV að greiða tónlistarmönnum fyrir að spila í útvarpið.
Þorgerður er á því að tónlistarmenn eigi einfaldlega að fá greitt
fyrir sína vinnu sem aðrir. Því máli hefur síðan lokið með því að
útvarpsstjóri greiddi helming þess sem
hljómsveitin Klaufar fór fram á.
-Ríkisfyrirtækið RÚV er enn í sam-
keppnisrekstri við einkafyrirtæki,
þrátt fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn
hafi stýrt menntamálaráðuneytinu í
mörg ár. Hvers vegna?
„Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf sagt
að við ættum að hafa ríkisútvarp. Á
Íslandi hafa verið auglýsingar í Ríkis-
útvarpinu frá upphafi. Ef við ætlum að
taka það af auglýsingamarkaði verður
að vera pólitískur vilji til að finna aðra
tekjuöflun, svo það sinni sama menn-
ingarhlutverki. Hvort sem það er með
hækkun afnotagjalda eða á framlagi ríkisins.
Eina svar Ríkisútvarpsins við gagnrýni er að það sinni betur
menningarhlutverkinu. Ef Ríkisútvarpið sinnir ekki menningar-
hlutverki sínu og það verður ekki sátt um það, þá getum við
alveg eins lagt það niður. Þá geta bara aðrir sinnt því.
Það er til fyrirmyndar hvað Stöð 2 hefur verið að gera á sviði inn-
lendrar framleiðslu, ég get nefnt Næturvaktina, Pressuna, sem er
að koma, Stelpurnar og Strákana á sínum tíma. Þetta er auðvitað
meira en lofsvert.
Á sínum tíma veltum við þessu fyrir okkur hvernig mætti
takmarka sókn Ríkisútvarps á auglýsingamarkaði. Það var ekki
samstaða innan ríkisstjórnarinnar um það.“
-Þú vilt takmarka sóknina?
„Ja, ég held að það sé alveg ljóst að Ríkisútvarpið verður að fara
varlega. Þetta er stór aðili á markaði og það verður að hugsa um
hlutverk sitt og átta sig á sérstöðu sinni, sem er að miðla menn-
ingu og skemmta fólkinu.“
Finnst þér útvarpsstjóri fara varlega þegar hann kallar starfs-
menn annarra fjölmiðla flaðrandi rakka, sem eigi að hætta að
væla?
„Nei, mér finnst ekki viðeigandi að tala svona.“
-Tilefni til áminningar?
„Nei, þetta er bara hans skoðun. Einstaklingar geta haft sínar
skoðanir og þetta er skoðun sem margir hafa um blaðamenn
annarra fjölmiðla. En ég er ekki sátt við þessi ummæli. Hann
stýrir Ríkistútvarpinu og svona ummæli eru ekki beint til að
skapa frið um þá stofnun. Það er þýðingarmikið að þeir sem eru
í forsvari fyrir Ríkisútvarpið tali þannig að þeir séu ekki alltaf að
sveifla sverði.“
-Finnst þér ekki skaða trúverðugleika fréttastofu sjónvarps
að útvarpsstjóri lesi fréttir? Væri ekki skrítið ef Ari Edwald
læsi allt í einu fréttir á Stöð 2?
„Ari er nú huggulegur maður með falleg blá augu sem örugglega
myndi sóma sér vel! En Páll er bara að lesa fréttir, hann er ekki
að skrifa þær. Hann er frábær fréttalesari og ekki hægt að draga
dul á það. Heiftin út í hann er ástæðulaus og tengist kannski
fortíð hans á öðrum fjölmiðlum. Menn verða bara að una því að
hann er í forsvari fyrir Ríkisútvarpið.“
-Launakjör hans hafa hlotið athygli. Hækka laun almennra
starfsmanna RÚV um 50 prósent líka?
„Ég mun ekki skipta mér af því, enda er það stjórnar Ríkisútvarps-
ins. Það var alltaf ljóst að launaumhverfið myndi breytast með
hlutafélagavæðingunni. En starfsmannafélag Ríkisútvarpsins vildi
að laun [almennra starfsmanna] héldu út árið 2009 og það varð
úr.
Ég vil hafa gott og menningarlegt Ríkisútvarp sem miðlar
góðum fréttum. Þetta verða forsvarsmenn Ríkisútvarpsins að
gera í sæmilegri sátt við þjóðina. En gagnrýni á Ríkisútvarpið
mun aldrei hætta af hálfu þeirra sem eru í samkeppni við þá.
Þess vegna verðum við að gæta okkar. Á Ríkisútvarpið til dæmis
endalaust að bjóða í útsendingar á kappakstri?
Nýi samningurinn við Ríkisútvarpið er lykilstýritæki. Í honum
er sjónvarpinu gert að auka við menningarefni og innlenda
dagskrárgerð. Þá hljóta þeir að hafa minna fjármagn fyrir fótbolta
og formúlu.“
-Í janúar sagðirðu að sókn RÚV á kostunarmarkaði yrði tak-
mörkuð. Svo kemur samningurinn við Björgólf um að hann
greiði helming á móti RÚV í innlendri dagskrárgerð.
„Já, kostun var takmörkuð í samningi ríkisins við Ríkisútvarpið.
Samningurinn við Björgólf er hins vegar allt annars eðlis og fjallar
ekki um kostun. Það fjármagn kemur ekki inn í Ríkisútvarpið,
ólíkt kostun. Þetta er stuðningur við sjálfstæða farmleiðendur. Ég
hefði nú viljað að framleiðendurnir væru beinir aðilar að þessum
samningnum og ég hefði einnig séð fyrir mér að peningarnir
færu í sjóð. En ég stjórna því ekki sem Björgólfur gerir.
Aðalatriðið er að þetta styrkir innlenda framleiðslu og það
höfum við verið að gera lengi. Innlend sjónvarpsframleiðsla fékk
til dæmis 15 milljónir á ári þegar ég byrjaði en stefnir nú í 125
milljónir.“
➜ HLJÓTA AÐ HAFA MINNA FÉ Í FORMÚLU OG FÓTBOLTA
Hann stýrir
Ríkistútvarp-
inu og svona
ummæli eru
ekki beint til
að skapa frið
um þá stofn-
un.
PÁLL MAGNÚSSON
ÚTVARPSSTJÓRI