Fréttablaðið - 22.12.2007, Page 52
22. desember 2007 LAUGARDAGUR
Í Tívolíinu í Kaupmannahöfn
eru um sextíu sölubásar með
ýmiss konar jólavörur. Guðrún
Erlendsdóttir er þar með lítið
söluhús ásamt manni sínum
Braga Baldurssyni.
„Það hefur gengið rosalega vel hjá
okkur og viðskiptavinirnir eru af
öllum þjóðernum. Auðvitað mikið
af Íslendingum og svo allar
þjóðir,“ segir Guðrún en þau hjón-
in selja eigið handverk í húsinu.
„Maðurinn minn býr þetta til en
þetta er jólaskraut sagað úr kross-
viði sem hann pússar og málar og
svo skreyti ég það með slaufum og
þræði. Ég segi oft í gríni að ég sjái
um hjartaþræðingar af því þetta
eru svo mikið hjörtu,“ útskýrir
Guðrún og segir þetta ævintýri
hafa átt langan aðdraganda.
„Bragi byrjaði í júní að vinna
alfarið að þessu verkefni svo þetta
er búið að vera lengi í uppsiglingu,
við fórum í fyrra með sýnishornin
í bakpoka á fund og enduðum á að
gera samning.“
Guðrún og Bragi tóku við hús-
inu tómu frá Tívolíinu og þurftu
sjálf að leigja sér peningakassa og
innrétta húsið og nutu þau hjónin
aðstoðar sonar síns við uppsetn-
inguna en eru annars tvö um
rekstur inn. Opið er tólf tíma á dag
alla daga vikunnar og skiptast þau
á að standa vaktina í húsinu.
„Við tökum þessu eins og vertíð,
við erum bara tvö en það gengur
mjög vel. Tívolígarðurinn er upp-
ljómaður af jólaseríum og luktum
og alveg yndislegt haustveður.
Mikið er um fjölskyldufólk sem
kemur svo það virðist vera vin-
sælt að eyða deginum hérna,“
segir Guðrún sem er búin að
standa vaktina frá 8. nóvember en
þau verða með opið alveg til 30.
desember.
Hjónin verða í Kaupmannahöfn
um jólin en þau leigja fína íbúð á
Austurbrú að sögn Guðrúnar. „Við
höfum það virkilega gott hérna og
komum ekki heim fyrr en eftir
áramótin svo við höldum dönsk jól
í fyrsta sinn,“ segir hún og hefur
engar áhyggjur af jólamatnum.
„Ég er ekki búin að ákveða hvað
verður í jólamatinn enda er það
ekki aðalmálið, það er nóg annað
að hugsa um. Það er lítill tími til að
labba saman í bæinn en við fórum
einu sinni út að borða fyrst þegar
við komum, svo borðum við bara
aftur saman á aðfangadagskvöld,“
segir Guðrún að lokum.
Á heimasíðunni www.hjartans-
list.is má fræðast meira um hand-
verk þeirra hjóna.
heida@frettabladid.is
Íslenskt handverk í
höfuðborg Danaveldis
Hjónin hafa staðið vaktina frá miðjum nóvember og halda dönsk jól þetta árið. MYND/TEITUR JÓNASSON
Ullarjakkar
og kápur
Stærðir 34-46
Verð 9.990