Fréttablaðið - 22.12.2007, Qupperneq 58
„Flest það sem viðkemur jólunum
er í uppáhaldi hjá mér en ef ég
ætti að nefna eitthvað eitt er það
jólatréð í herberginu hjá Alexand-
er Sæ syni mínum sem ég held
mest upp á. Hann er ellefu ára og
er á þeim spennandi aldri að vera
mitt á milli þess að vera barn og
fullorðinn,“ segir Elínrós Líndal.
Hún segir að Alexander hafi ekki
verið hár í loftinu þegar hann bað
um sitt eigið jólatré sem hann ætl-
aði að stilla upp í miðju herbergi
og dansa svo í kringum.
„Fyrir nokkrum árum var ekki
svo auðvelt að nálgast lítil jólatré
en ég safnaði litlum kúlum sem
ég ætlaði hengja á tréð þegar ég
fyndi það. Nú á aðventunni kom
svo Herdís Þorvalds dóttir vin-
kona okkar með svart tré fær-
andi hendi en það fann hún í
Iðu.“ Elínrós finnst sérstaklega
skemmtilegt hvað tréð endur-
speglar aldur og áhugamál Alex-
anders vel. „Það yljar honum um
hjartarætur snemma á morgn-
ana þegar hann vaknar í skólann
og ég vona að það verði til þess
að hann haldi í jólabarnið í sjálf-
um sér eins lengi og hægt er,“
segir Elínrós ástúðleg. Hún segir
yngri bræður Alexanders reglu-
lega leggja leið sína inn í herberg-
ið til að skoða herlegheitin og bíða
spenntir eftir því að fá svona töff
tré. „Þeirra tré er voðalega krútt-
legt, blátt og loðið,“ segir hún.
„Herdís á sjálf tvær dætur
og er með bleikt jólatré inni í
herbergi þeirrar yngri skreytt
fallegum Disney-prinsessum. Sú
eldri, sem er mikið fyrir ballett,
er með hvítt jólatré í herberginu
með glitrandi dansandi dömum á.
Það er ómetanlegt þegar nánustu
vinir smita mann af svona góðum
hugmyndum,“ segir Elínrós. - ve
„Eftirlætisjólaskrautið mitt er
upplýst kirkja sem vinkona mín
Kristjana Stefánsdóttir söngkona
færði mér á aðventunni í fyrra,“
segir rithöfundurinn og tónlistar-
maðurinn Aðalsteinn Ásberg Sig-
urðsson, sem nýlega gaf út ljóða-
bókina Hjartaborg. Kirkjan er
smíðuð úr tré og handmáluð og er
fyrirmyndin að henni dómkirkjan
í Reykjavík.
„Kristjana kom fyrir tilviljun
höndum yfir þennan fallega grip
sem Theódór Theódórsson smíð-
aði fyrir nokkrum árum en Theó-
dór var meðal annars ágætur
djasspíanisti og smíðaði eftir því
sem ég best veit margar og mis-
munandi jólakirkjur. Kirkjan á
sér heiðurssess í stofuglugganum
og þannig get bæði ég og þeir sem
ganga framhjá notið hennar,“ út-
skýrir Aðalsteinn, sem býr á
Skólavörðustígnum þar sem jóla-
stemningin ríkir sem aldrei fyrr.
„Dómkirkjan er hérna í hverf-
inu og því fannst mér sérstaklega
gaman að eignast einmitt þessa
kirkju,“ segir Aðalsteinn.
Hann segist skreyta hæfilega
mikið á jólum og hafa gaman af
tilbreytingunni. „Ég hef líka allt-
af haft gaman af svolítið öðruvísi
hlutum,“ segir Aðalsteinn. - ve
Dómkirkjan í stofu stendur
● Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson leyfir vegfarendum á Skólavörðustígnum að njóta upp-
lýstrar kirkju með sér.
Kirkjuna fékk Aðalsteinn að gjöf frá
söngkonunni Kristjönu Stefáns-
dóttur en fyrirmyndin að henni er
Dómkirkjan í Reykjavík.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Töff, svart strákatré
● Elínrós Líndal er mikið jólabarn. Hún leggur sig fram um að ýta undir jólaandann hjá
stálpuðum syni sínum.
Jólatréð fengu Elínrós og sonur hennar að gjöf frá Herdísi Þorvaldsdóttur.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
● FÍNLEGT UM JÓLIN Black+blum hönnunar-
fyrirtækið í Bretlandi á heiðurinn af þessum fallega og
fínlega kertastjaka. Stjakarnir, sem heita candelabra,
eru til í ýmsum stærðum og gerðum. Lögun stjakans er
fengin frá hinni svokölluðu Fibonacci-sveigju sem finnst
víða í náttúrunni. www.black-blum.com
Kryddin frá Pottagöldrum eru ómissandi í matreiðsluna
Ilmur af jólum
22. DESEMBER 2007 LAUGARDAGUR