Fréttablaðið - 22.12.2007, Síða 86
54 22. desember 2007 LAUGARDAGUR
Jólin - heiðin hátíð
Árið 46 fyrir krist ákvað
Júlíus Sesar rómarkeisari að
taka upp júlíaníska dagatalið í
Rómarveldi. Vetrarsólstöð-
urnar og nýtt ár hófst
þannig þann 25.
desember og lýsti
Sesar þann dag sem
„Dag hinnar
ósigruðu sólar”.
Kristnir breyttu
síðar nafni dagsins
í „Dag hins ósigraða
sonar”.
Í Rómarveldi, vöggu
kristinnar trúar, var ár
hvert haldin stórhátíð
á vetrarsólstöðum.
Hátíðin, Saturnalia, var
kennd við Satúrnus, guð landbún-
aðarins, og stóðu almenn hátíðar-
höld yfir frá 17. til 24. desember.
Þann 25. var síðan haldin mikil
veisla (Brumalia) sem var hápunkt-
ur hátíðarinnar. Rómverjar gerðu sér
glaðan dag með því að gefa gjafir,
syngja, hengja upp mistilteina og
með því að skreyta tré. Líberíus
biskup í Róm er talinn hafa ákveðið
fyrstur manna árið 354 að 25.
desember yrði gerður að opinber-
um fæðingardegi Jesús.
Páskar - Þegar ljósið
sigrar myrkrið
Páskarnir eru einnig forn hátíð
sem haldin er til dýrðar sól-
inni. Rétt eins og fæðingu
sólarinnar var fagnað á
vetrarsólstöðum 21.-23.
desember var sigri ljóss-
ins fagnað á vorjafndægr-
um 19.-21. mars. Á þessari
hátíð ljóssins (sólarinnar),
páskunum, fagna kristnir
menn sigri Jesú Krists
yfir dauðanum rétt
eins og heiðingjarnir
fögnuðu því að sólin
hafði loks sigrast
á myrkrinu. Ljósið
hefur sigrað þar sem
að frá og með
vorjafndægri er
dagur lengri en
nótt, birtan
algengari en
myrkrið.
JÓL OG PÁSKAR
Það eru menn sem halda því fram
að kristin trú hafi orðið svo
útbreidd sem raun ber vitni
vegna þess að hún yfirtók gömlu
hátíðarnar. Fæðing Krists er í
raun fæðing sólarinnar eða ljóss-
ins. Páskarnir eru líka eftirtektar-
verðir. Þeir eru alltaf fyrsti
sunnudagur eftir fyrsta fulla
tungl á vorjafndægrum, sem er
páskadagur. Það er líka stjarna
sem boðar fæðingu frelsarans.
Það er talað um þrjá vitringa en í
bresku Gideon-biblíunni eru þeir
enn kallaðir stjörnuspekingar
enda gátu þeir ekki verið
neitt annað. Tákn kristn-
innar er fiskurinn, atburð-
irnir gerðust á öld fisksins.
Ef farið er lengra aftur í
tímann þá voru stjörnu-
spekingar tímatalsfræð-
ingar. Stjörnuspekin er
fræði tímatalsins; hvernig
við skipuleggjum líf okkar.
Við hittumst eftir sólarhring, við
hittumst eftir mánuð, sem er auð-
vitað mánahringur. Dagarnir
heita svo sólardagur, mánudagur
og svo framvegis. Það er sama
hvert þú ferð, öll menn-
ingarsamfélög hafa
stjörnuspeki. Stjörnu-
fræði er ekkert annað
en samspil manns og
náttúru og stjörnu-
merkin eru ekkert
annað en árstíðirnar og
skipting þeirra.
Menn segjast ekki
trúa á stjörnuspeki en þá er ég í
besta falli varðveislumaður gam-
allar þekkingar, því saga mann-
kyns er samofin stjörnuspekinni
og tímatalsfræðinni.
Gunnlaugur Guðmundsson stjörnuspekingur
Samspil manns og náttúru
Biblían er full af þekktum tákn-
um. Þau hafa verið sótt víða að
og endurnýtt í kristninni, ef svo
má segja. Eins og allir vita eru
jólin byggð á gamalli sólhvarfa-
hátíð sem var heimfærð upp á
Krist. Þá er það sólin sem rís hjá
Rómverjum en verður að ljósi
sem kemur með Jesú.
Ég held að flestir fræðimenn
efist ekki um það að Jesús var til
sem einstaklingur, hvort sem
menn trúa á hann sem guðsson
eða ekki. Í fyrsta sinn sem kenn-
ingin var sett fram um að Jesús sé
Hórus var árið 1880 í tímariti sem
hét Lucifer, þá í merking-
unni ljósberinn. Það var
kona sem hét Helena Bla-
vatsky sem setti kenning-
una fram og um svipað leyti
stofnaði hún guðspekihreyf-
ingu. Þá túlkar hún skamm-
stöfunina IXÞUS, sem þýðir
Jesús Kristur, sonur guðs,
frelsari á grísku og einnig
fiskur, sem Hórus, sonur guðs
undir merkinu krossinn eða suður-
krossinum. Suðurkrossinn var
stjörnumerki yfir Egyptalandi.
Palestína eða Ísrael er mitt á
milli Egyptalands og Mesópót-
amíu og það voru stöð-
ugir menningarstraum-
ar þarna á milli.
Ísraelsmenn nota oft
orðræðu frá þessum
stóru menningarheim-
um til að túlka það sem
þeir vilja segja. Þegar
kristnir menn eru að
koma sér fyrir þá nýta
þeir þekkt hugtök til að lýsa sinni
trú, til dæmis um ljósið. Þó að
kristnir menn séu ekki að segja að
Jesús sé sólguð þá nota þeir sama
orð. Þetta er þekkt í öllum trúar-
brögðum.
Séra Þórhallur Heimisson, prestur í Hafnarfjarðarkirkju
Tákn endurnýtt í kristninni
mannanna. Margir áttu frelsar-
arnir það sameiginlegt að hafa
fæðst 25. desember, eða á vetrar-
sólstöðunum.
Upphaf eða fæðing sólguðanna
á vetrarsólstöðum skýrist af því
að lífgjafi jarðarinnar, sólin,
fæddist á þessum tíma í skiln-
ingi fornmanna. Í gær voru
vetrarsólstöður og þar með
stysti dagur ársins. Frá og
með deginum í dag fer sólin að
hækka á lofti
og dagarnir
verða lengri.
Sólin boðar
endurkomu
sína og fæðingu henn-
ar var fagnað þegar
ljósið hefur borið end-
anlegt sigurorð af
myrkrinu á vorjafn-
dægrum. Á páskum.
Gömul fræði
Kenningasmíð um að Jesú sé
aðeins goðsögn og sagan um
hann í guðspjöllunum uppdikt-
uð að miklu eða öllu leyti er
ekki ný af nálinni. Kenningin
mun fyrst hafa verið sett fram
á fræðilegan hátt af sagn- og
guðfræðingnum Bruno Bauer
á nítjándu öld en efasemdirnar
höfðu einnig komið fram
skömmu fyrir aldamótin 1800
frá franska fjölfræðingnum
Charles Francois Dupuis, sem
setti fram kenningu um tengsl
stjörnufræði og goðsagna
hvers konar. Kenningarnar náðu
nokkru flugi snemma á tuttugustu
öld sem varð til þess að fáeinir
guðfræðingar snérust til varnar.
Alla síðustu öld skutu upp kollin-
um fræðimenn með ýmsar útgáf-
ur þessarar kenningar og einnig á
síðustu árum. Sérfræðingar hafna
þó almennt öllum kenningum sem
efast um sögulegt gildi guðspjall-
anna og annarra heimilda. Þeir
fullyrða að nægilega margt hafi
verið dregið fram í sviðsljósið til
að sanna að þeir atburðir sem þau
lýsa hafi átt sér stað. Jesús frá
Nasaret hafi verið til frekar en að
um goðsögn sé að ræða.
Ritstuldur
Ritstuldurinn sem kristin trúar-
brögð byggja á kristallast í
egypska sólguðinum Hórusi, að
mati Zeitgeist-manna. Hann var jú
fæddur sama dag; af hreinni mey.
Stjarna í austri boðaði fæðingar-
dag hans, skírður um þrítugt, átti
tólf lærisveina. Hann var kross-
festur og reis upp á þriðja degi og
listinn heldur áfram. En þar lýkur
hvergi samanburðinum.
Þeir nefna söguna um Nóa og
syndaflóðið sem skýrt dæmi um
ritstuld. Söguna megi finna í mörg-
um útgáfum en einna skýrasta
dæmið sé Gilgamesharkviða, sem
er forn súmersk skáldsaga í ljóða-
formi, skrifuð um 2.600 árum fyrir
Krist. Kviðan segir frá Gilgamesh,
konungi í borginni Úrúk í
Mesópótamíu. Hann var sonur
viskugyðjunnar Nínsún, og var því
hálfur guð og hálfur maður. Kvið-
an hefur fundist á sjö stöðum,
meðal annars fjórtán leirtöflur á
súmersku, þar af ellefu sem fund-
ust við borgina Nippur í Mesópót-
amíu og ein við borgina Kish. Á
þær var rituð sagan Gilga-
mesh og land lifanda, sem
fjallar um samskipti Gilga-
meshar við Útnapíshtim, sem
sagt er að guðinn Ea hafi gefið
eilíft líf að launum fyrir að
bjarga tveim-
ur dýrum af
hverri tegund
undan miklu
flóði.
Eins er sagan
af Móse. Frásögnin um
fæðingu hans þar sem hann
var settur í bastkörfu og
fleytt niður fljótið, til að
forðast barnsmorð, á sér hlið-
stæðu í sögum af semítíska
konungnum, Sargoni I hinum
mikla, sem var uppi á 23. öld
fyrir Krist. Móses var líka
fjarri því að vera sá eini
sem færði mönnunum
guðs lög. Sagnir um að guð
færi spámönnum lög, stand-
andi á fjalli, er einnig að finna
víða. Á Indlandi var það Manou
og á Krít sagnakonungurinn
Mínos sem kleif fjallið Dicta
og Seifur færði honum laga-
bálk. Í Egyptalandi var það
Mises sem þáði steintöflur
sem á voru ritaðar lög guðs.
Reyndar ganga Zeitgeist-menn
svo langt að fullyrða að boðorðin
tíu séu stolið minni úr Bók hinna
dauðu; texta í bundnu máli til
sól guðanna Ra og Osiris. Skiljan-
lega kannski því boðorðin koma
þar fyrir, lítið eitt öðruvísi. Hug-
tökin skírn, eilíft líf, dómsdagur,
meyfæðing, frelsari, krossfesting,
sáttmálsörkin, umskurður, upp-
risa og mörg fleiri koma einnig
fyrir í egypskum trúartextum sem
eru þúsundum ára eldri en Biblíu-
textarnir.
Kristnin lögtekin
Kristni var lögtekin í Rómarveldi
af Kontantínusi keisara árið 325.
Samkvæmt kenningu þeirra sem
aðhyllast að kristnin sé aðeins
goðafræði tók þá við tími trúar-
bragðanna sem verkfæri þeirra
sem réðu. Stjórnmálamenn gerðu
trúna að valdatæki sem birtist í
misnotkun á borð við krossferðir
og rannsóknarréttinn. Trúin var
notuð til að gera náttúruna fjar-
læga og innleiða blinda hlýðni við
yfirvaldið. Hún gerir lítið úr
ábyrgð einstaklingsins með því að
guðleg forsjón stjórni öllu og
öllum. Trúin gerir þá sterka sem
vita að um blekkingu er að ræða
og geta notað hana til að stjórna og
misnota heilu samfélögin.
Heimildir:
http://zeitgeistmovie.com/
Sérstakar þakkir: Sigurður Hólm
Gunnarsson
svavar@frettabladid.is
Krisna, hinn mennski guð og
Kristur Hindúa, sonur guðsins
Vishnu og hinnar mennsku
Devaki, var talinn hafa fæðst á
vetrarsólstöðum um
1200-1000.
■ Þegar Krisna
fæddist sungu
englar honum til dýrðar
og stjarna birtist á himni.
■ Vitringar og fjárhirðar
heimsóttu guðssoninn og
færðu honum gjafir.
■ Konungurinn Kanasa,
sem óttaðist Krisna, lét
drepa öll sveinbörn sem
fæddust sama dag.
■ Fósturfaðir Krisna, sem
var trésmiður, fékk skila-
boð frá himnum þar sem
hann var varaður við reiði
Kanasa og hvattur til þess
að flýja með fjölskyldu
sína.
Krisna framkvæmdi
ýmis kraftaverk, barðist
við djöfla, fyrirgaf syndir
manna og hafði
ákveðinn siðferðis-
boðskap fram að
færa.
■ Til eru gömul
indversk listaverk,
bæði höggmyndir
og málverk, þar
sem Krisna er
sýndur kross-
festur.
■ Því var trúað
að Krisna hafi
dáið fyrir syndir
mannanna og að
hann hafi sigrað
dauðann og risið
upp til himna.
Krisna – kristur Hindúa
■ Trúin á Mítra hófst í
Persíu í kringum árið
2000 fyrir Krist.
■ Mítra var rétt eins
og Jesús sonur guðs og
jarðneskrar konu sem
einnig var hrein mey.
■ Sagan segir að
Mítra hafi fæðst á
25. desember ýmist í
gripahúsi eða í helli og
að fjárhirðar, sem urðu
vitni að fæðingunni,
hafi fært honum gjafir.
Mítra var kallaður
frelsari, lambið, ljós
heimsins, sól réttvís-
innar.
■ Hann á að hafa
framið fjölmörg krafta-
verk, þar á meðal
reisti hann mann upp
frá dauðum, læknaði
lamaða, gaf blindum
sýn og rak illa anda úr
mönnum.
Rétt eins og Jesú
borðaði Mítra síðustu
kvöldmáltíð sína
ásamt tólf lærisveinum
áður en hann steig upp til himna. Á síðustu kvöld-
máltíðinni neyttu þeir meðal annars sakramentis eða
brauðs sem var skreytt með krossi.
■ Eftir að Mítra dó var líkneski af honum búið til úr
steini og var það sett inn í grafhýsi en síðan aftur
fjarlægt þaðan
þar sem því var
trúað að Mítra
hefði sigrast á
dauðanum og
stigið upp til
himna.
■ Þeir sem
trúðu á Mítra
trúðu því
jafnframt að til
þess að kom-
ast til himna
eftir dauðann
þyrftu menn að
skírast.
■ Samkvæmt
trúnni mun
Mítra koma
aftur til jarðar
fyrir heims-
endi og dæma
mannkynið.
■ Í Róm var
Mítra útnefnd-
ur „verndari
rómverska
heimsveldis-
ins”, árið 307
fyrir krist.
■ Árið 325 tók Konstantínus þáverandi Rómarkeisari
þá ákvörðun að kristni skyldi taka við sem ríkistrú
Rómarveldis.
■ Rétt rúmum 30 árum síðar eða árið 358 hófu
kristnir að ofsækja þá sem trúðu á Mítra.
MÍTRA - GUÐ PERSA - 2000 FYRIR KRIST
Krossinn eða dýrahringurinn?
Um allan heim er
að finna kirkjur
sem skarta krossi
sem er glettilega
líkur tákninu fyrir
dýrahringinn.
Hafið þetta einnig
í huga þegar þið
skoðið gluggana á
Skálholtskirkju.
Öld fisksins
Gríska orðið IXÞUS þýðir fiskur en
jafnframt Jesús Kristur, sonur guðs,
frelsari. Forn samfélög kölluðu
hvert 2.150 ára tímabil öld. Frá
4300 fyrir Krist til 2150 var öld
nautsins. Við tók öld hrútsins frá
2150 til ársins 1. Þá tók við öld
fisksins sem enn er tákn fyrir Jesú.