Fréttablaðið - 22.12.2007, Qupperneq 92
60 22. desember 2007 LAUGARDAGUR
NORÐVESTURLEIÐIN OPNAST
Siglingaleiðin meðfram heimsskautasvæðum Kanada milli Atlants-
hafs og Kyrrahafs opnaðist fyrir allri skipaumferð í fyrsta sinn á
sögulegum tíma í lok ágúst. Yfirleitt er leiðin þakin þykkri íshellu,
sem einungis öflugustu ísbrjótar komast gegnum, en sökum
hlýnunar andrúmsloftsins hefur ísinn smám saman bráðnað.
Kanada gerir tilkall til yfirráða á leiðinni en mörg lönd hafa áhuga
á að nýta sér hana en hún styttir stórlega siglingatímann milli
Evrópu og Asíu.
SYSTURSTJARNA FUNDIN
Fjölþjóðlegur hópur stjörnufræðinga
tilkynnti hinn 24. apríl að hann hefði
fundið plánetu utan sólkerfis okkar
sem uppfyllti öll skilyrði fyrir lífi.
Gliese 581 c, eins og stjarnan nefnist,
er 50 prósentum stærri en jörðin og
hefur fimm sinnum meiri massa. Í
stjörnufræðilegu samhengi þýðir
þetta að pláneturnar eru mjög
áþekkar. Hún er enn fremur í svipuðu
hitabelti og jörðin sem felur í sér að
þar gæti verið vatn að finna og
hugsanlega líka líf.
Sá hængur er þó á þessu öllu að það
er ekki hlaupið að því að skreppa
þangað. Gliese 581 c er nefnilega í
ríflega tuttugu ljósára fjarlægð frá
okkur og því ekki fyrirsjáanlegt að
við komumst þangað á næstunni til að
kanna málið betur.
RAUNVERULEG SÝNDARKAPPRÆÐA
Þátttakendur í kosningabaráttu bandaríska Demókrataflokksins
fyrir forsetakosningarnar á næsta ári tóku hinn 23. apríl þátt í
fyrstu kappræðunum á hreyfimyndavefnum YouTube. Almenningi
gafst þar kostur á að senda inn spurningar til frambjóðenda í formi
hreyfimynda og sem dæmi um athyglisverða myndbúta má nefna
mann með riffil sem spurði um réttindi til vopnaburðar, mann sem
söng spurningu um skatt og lék undir á gítar og teiknaðan snjókarl
sem spurði um hlýnun andrúmsloftsins.
Ýmsum fannst þetta uppátæki heldur lágkúrulegt fyrir virðulega
forsetaframbjóðendur og töldu það ekki samboðið virðingu þeirra
að þurfa að svara spurningum frá teiknuðum snjókarli.
SÍÐASTA VÍGI
KARLMENNSK-
UNNAR AÐ
FALLA
Breskir vísindamenn tilkynntu
í apríl að þeim hefði í fyrsta
sinn tekist að búa til óþroskað-
ar sæðisfrumur úr stofnfrum-
um úr beinmergi manns.
Vísindamennirnir telja
hugsanlegt að ófrjóir karl-
menn – og jafnvel konur – geti
einn góðan veðurdag notað
þessa tækni til að framleiða
eigið sæði.
Og sá tími er ef til vill ekki
langt undan því fræðimennirn-
ir halda að það taki ekki nema
þrjú til fimm ár að þróa tækni
til að vinna fullþroskaðar
sæðisfrumur úr beinmergs-
stofnfrumum.
WIMBLEDON JAFNAR LEIKINN
Hinn breski All England Club tilkynnti hinn 22. febrúar að í fyrsta
sinn í sögu Wimbledon-tennismótsins fengju karlar og konur
jafnháa upphæð að launum fyrir sigur. Verðlaunafé kvenna hafði
smám saman farið hækkandi; 1968 fékk sigurvegari í einliðaleik
kvenna, Billie Jean King 750 pund (um 94.000 kr.), en þá fékk Rod
Laver sigurvegari í einliðaleik karla 2.000 pund (um 250.000 kr.). Til
samanburðar fékk Amelie Mauresmo samsvarandi 72 milljónum
króna árið 2006 en
Rodger Federer 74
milljónir. Í ár hlutu
Federer og Venus
Williams hvort fyrir
sig um 86 milljónir
króna.
Wimbledon var
síðasta stórmótið í
tennis þar sem
verðlaunafé karla og
kvenna var lagt að
jöfnu. Forsvarsmenn
Opna bandaríska
meistaramótsins riðu
fyrstir á vaðið í
þessum efnum árið
1973.
FRAMHALD Á NÆSTU OPNU
KÍNVERJAR Í STJÖRNUSTRÍÐ
Hinn 12. janúar tókst
Kínverjum í fyrsta
sinn að gera árangurs-
ríka tilraun með
varnarvopn gegn
árás utan úr geimum.
Þetta var jafnframt
fyrsta tilraunin með
geimvarnavopn síðan
1985, þegar ríkis-
stjórn Reagans lauk
við Stjörnustríðsáætl-
un sína. Tilraunin
leiddi í ljós að
Kínverjar eru
tæknilega í stakk
búnir til að skjóta
niður bandaríska
njósnahnetti.
Það hefur aldrei áður gerst
Á hverju ári gerist eitthvað nýtt, eitthvað sem aldrei hefur verið gert áður. Árið 2007 er engin undantekning á því. Amy Karafin,
rithöfundur í New York, tók saman sumt af því helsta sem gerðist í allra fyrsta sinn á þessu ári.
STJÖRNUSTRÍÐ Kínverjar
æfðu sig í að verjast gegn
árás úr geimnum á árinu.
VENUS WILLIAMS Karlar
og konur fá nú jöfn sigur-
laun á Wimbledon.
KOSNINGAR Í EISTLANDI Flestir kusu með hefðbundnum aðferðum í alþingiskosn-
ingunum í Eistlandi á árinu. Kjósendum bauðst samt að kjósa í gegnum netið.
SÆÐISFRUMUR Fyrsta sæðisfruman
hefur verið búin til úr beinmerg.
RÖKRÆÐUR Á YOUTUBE Hillary Clinton, John Edwards og Barack Obama reyndu
að ná athygli kjósenda í forkosningum demókrata í Bandaríkjunum, með kapp-
ræðum á vefnum.
HEIMSKAUTALEIÐ OPNAST Hægt var að sigla í gegnum McClure-sundið í Kanada
í ágúst.
RAFRÆNAR KOSNINGAR
Kjósendur í Eistlandi urðu í febrúar fyrstu kjósendur heims til að
greiða atkvæði í þingkosningum gegnum internetið. Um 30 þúsund
manns – ríflega þrjú prósent kjósenda – greiddu atkvæði á netinu
dagana fyrir sjálfar kosningarnar. Einn þeirra var Andrus Ansip
forsætisráðherra, en flokkur hans, Endurbótaflokkurinn, vann
nauman sigur í kosningunum.
Eistlendingar gerðu fyrst tilraun með rafræna kosningu árið 2005
þegar tíu þúsund kjósendur greiddu atkvæði með rafrænum hætti í
sveitarstjórnarkosningum. Yfirvöld í Eistlandi segja rafræna
kosningakerfið þar fullkomlega öruggt.
GLIESE 581 C Í tuttugu ljósára fjarlægð
er að finna plánetu, líka jörðinni.
EGYPTAR
BANNA
UMSKURÐ
KVENNA
Egypska heilbrigðisráðuneyt-
ið boðaði hinn 28. júní bann
við umskurði stúlkubarna og
gerði þennan verknað
refsiverðan í fyrsta sinn. Um
helmingur allra kvenna sem
hafa mátt þola umskurð eru
frá Egyptalandi og Eþíópíu og
það er mat Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunarinnar að 97
prósent egypskra stúlkna og
kvenna á aldrinum 15 til 49
ára hafa verið umskornar að
einhverju leyti. Í Egyptalandi
er algengast að umskurður
felist í því að ytri kynfæri
kvenna eru skorin burt að
sumu eða öllu leyti. Hvorir
tveggja múslimir og kristnir
stunda þessar aðgerðir, þrátt
fyrir að þær eigi sér enga
stoð, hvorki í Kóraninum né
Biblíunni.
Bannið var sett á í kjölfar
þess að tólf ára stúlka lést
eftir umskurð á læknastofu í
norðurhluta Egyptalands.
Búist er við að erfiðlega
gangi að framfylgja banninu,
sérstaklega í hinum dreifðari
byggðum landsins.