Fréttablaðið - 22.12.2007, Side 104

Fréttablaðið - 22.12.2007, Side 104
72 22. desember 2007 LAUGARDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Þið getið þetta, strákar! Sýnið nú hvað í ykkur býr! Brilló... Hættu nú! Og lítið kraftaverk! Allt sem þarf er ákveðni, ákveðni, ÁKVEÐNI! Þú veist að þú lítur fáran- lega út í þessum buxum, er það ekki? Ég hef verið að geyma þessa þar til á rigningardegi. Loksins... Roop ROOP Hún byrjaði! Ég var níu ára þegar ég stal í fyrsta og síð- asta skipti. Um leið og upp komst um voðaverkið vissi ég að það myndi fylgja mér alla ævi og yrði notað sem sönnun þess að mér væri ekki ætlað að vera sigur vegari í lífinu. Umrætt atvik átti sér stað skömmu fyrir jól seint á síðustu öld. Ég deildi herbergi með bróður mínum sem er þremur árum yngri en ég og varð þess valdandi að ég fékk ekki vott af athygli frá þriggja ára aldri og fram á fullorðinsár. Það kom aðallega til af því að hann var mun illviðráðanlegri og háværari en ég, sem bæði leit út og hagaði mér eins og postulínsdúkka (samkvæmt minni útgáfu sögunnar). Við syst- kinin lögðumst til svefns eitt kvöldið eftir að hafa verið á jólatrésskemmt- un um daginn. Bæði uppgefin. Hann eftir að hafa verið óþekkur, ég eftir að hafa orðið vitni að því. Ég var þó ekki þreyttari en svo að ég vaknaði um miðja nótt til að athuga hvað jólasveinninn hefði fært mér. Skórnir okkar voru hlið við hlið í glugganum og ég fálmaði eftir þeim í myrkrinu. Skíman af jólaljósunum varpaði daufri birtu á skóinn minn og barnsleg gleðin hlýjaði mér um hjartarætur þegar ég sá þar stóran súkkulaðijólasvein. Gleðin hvarf þó eins og dögg fyrir sólu þegar ég leit á skóinn við hliðina. Þar blasti við nákvæmlega eins jólasveinn og risa- stórt súkkulaðiegg í ofanálag! Hvernig gat þetta verið? Biturðin var um það bil að kremja hjarta mitt. Ég teygði mig ofan í skóinn og tók súkkulaðieggið upp úr. Þyngdin kom mér á óvart. Þetta var greini- lega gegnheill súkkulaðihnullungur. „Þú átt skilið að fá svona egg, ekki hann!“ sagði púkinn á öxlinni. Ég sannfærðist, tróð egginu vandlega ofan í minn skó og lagðist sátt til svefns að nýju. Ég vaknaði upp við vondan draum. Súkkulaðiklístraður litli bróðirinn sat á rúmstokknum með skrattaglott eyrna á milli: „Þú fékkst kartöflu!“ Já, gegnheila súkkulaði eggið var kartafla og brotið var játað á staðnum – með tárum og votti af hysteríu. STUÐ MILLI STRÍÐA Margur er misjafn jólasveinninn SIGRÚN ÓSK KRISTJÁNSDÓTTIR ER STEINHÆTT AÐ STELA Til allrar óham- ingju fyrir Ísak var Salvör ekki í stuði... Vatnagörðum 14 – 104 Reykjavík Sími 563 6000 – www.litrof.is – fyrsta bókin í nýrri ritröð um íslenskar laxveiðiár Laxá í Kjós, ásamt Bugðu, hefur af þekktum stangaveiðimönnum verið kölluð „Háskóli“ stangaveiðimanna vegna fjölbreytileika síns. Þetta er óskabók veiðimanna, hvort sem þeir eru þaulreyndir eða að feta sín fyrstu spor í veiðikúnstinni og fæst bæði á ensku og íslensku. Höfundurinn, Guðmundur Guðjónsson, lýsir veiðistöðum af þekkingu og kryddar lýsingar sínar sögnum af skemmtilegum mönnum sem hafa notið þeirrar ánægju að spreyta sig í þessum ám í gegnum tíðina. Gullfallegar myndir Einars Fals Ingólfssonar gæða bókina enn frekara lífi. Fæst bæðiá ensku ogíslensku Bókin fæst í öllum helstu bóka- og veiðivöruverslunum auk þess er hægt að panta hana á vefnum www.votnogveidi.is
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.