Fréttablaðið - 22.12.2007, Side 106
74 22. desember 2007 LAUGARDAGUR
menning@frettabladid.is
Sönghópurinn Hljómeyki
hefur ekki verið þekktur
fyrir að ráðast á garðinn
þar sem hann er lægstur.
Föstudaginn 28. desember
flytur hópurinn eitt af
stórvirkjum kóratónlistar,
Náttsöngva Rakhmanínovs.
Verkið, sem stundum hefur
gengið undir nafninu Vesper, var
samið árið 1915 og er trúarlegs
eðlis. Sökum þessa var flutning-
ur verksins lengi bannaður í
Rússlandi og Sovétríkjunum, en
verkið lifði þó góðu lífi í öðrum
löndum og var reglulega flutt.
Náttsöngvarnir skiptast í 15
kafla, eru sungnir á rússnesku og
taka um klukkutíma í flutningi.
Hlutar úr verkinu hafa áður verið
fluttir hér á landi en Hljómeyki
er fyrstur íslenskra kóra til að
takast á við flutning þess í heild.
Magnús Ragnarsson, stjórn-
andi Hljómeykis, segir gamlan
draum sinn rætast við flutning
verksins. „Ég heyrði þetta verk í
fyrsta skipti árið 2001 þegar ég
bjó í Gautaborg. Ég heillaðist
algerlega af því og lét mig
dreyma um að taka þátt í flutn-
ingi þess. Það er skemmst frá því
að segja að ég söng í tveimur
kórum í Svíþjóð sem báðir fluttu
verkið, en mér tókst í báðum til-
fellum að missa af flutningi
verksins vegna eigin búferla-
flutninga. Það er mér því sönn
ánægja að fá að stjórna verkinu
nú.“
Náttsöngvarnir eru taldir eitt
besta tónverk rússnesku Rétt-
trúnaðarkirkjunnar og voru í
miklu uppáhaldi hjá Rakhmanín-
ov sjálfum sem bað um að einn
þátturinn, Lofsöngur Símeons,
yrði fluttur við jarðarför sína
sem var og gert.
Kórinn Hljómeyki hefur ekki
verið þekktur fyrir að fara troðn-
ar slóðir í kórstarfi sínu og hefur
meðal annars gert nokkuð af því
að frumflytja kórverk.
Því þarf vart að koma á óvart
að hópurinn takist á við svo metn-
aðarfullt verkefni sem Nátt-
söngvana. „Þetta verk er vissu-
lega afar krefjandi fyrir kórinn.
Til að mynda þurftum við að bæta
við okkur bassaröddum til þess
að syngja það. Í lok eins kaflans
þurfa bassarnir að syngja gang-
andi skala niður á við frá nótunni
stóra b niður á kontra b! Ég hef
hvorki áður heyrt né séð verk
sem lætur söngvara fara svona
langt niður, en við erum með tvo
bassa sem ráða vel við þetta. Í 10
köflum notast Rakhmanínov við
messutón úr Rétttrúnaðarkirkj-
unni. Hinir fimm kaflarnir eru
frumsamdir en samt undir mikl-
um áhrifum af messutóninum.
Verkið er fyrir fjórradda kór en
hverri rödd er oft skipt upp í
þrennt og á einum stað er kórn-
um skipt upp í ellefu raddir,“
segir Magnús.
Tónleikarnir fara fram föstu-
daginn 28. desember kl. 20 í
Kristskirkju. Miðaverð er 1.500
kr. og eru miðar til sölu í verslun-
inni 12 Tónum á Skólavörðustíg
15 og hjá kórfélögum. Jafnframt
verða miðar seldir við inngang
safnaðarheimilis Kristskirkju á
tónleikakvöldið. vigdis@frettabladid.is
Náttsöngvar Rakhman-
ínovs fluttir í heild
> Ekki missa af...
tækifæri til að fá þitt eintak af
bókinni Guðni – Af lífi og sál
áritað af höfundum verksins,
þeim Sigmundi Erni Rúnars-
syni og Guðna Ágústssyni.
Áritunin fer fram í verslun
Eymundsson í Austursstræti
18 og ber að benda á að þetta
verður eina skiptið sem þeir
árita bókina á höfuðborgar-
svæðinu.
SÖNGHÓPURINN HLJÓMEYKI Flytur Náttsöngva eftir Sergej Rakhmanínov.
Kl. 13
Terry Gunnell, dósent í þjóðfræði
við Háskóla Íslands, flytur
fyrirlestur um íslensku jólin í
Þjóðminjasafninu í dag kl. 13.
Fyrirlesturinn, sem fluttur er á
ensku, fjallar um trú og siði í
kringum íslensku jólin í aldanna
rás, frá heiðnum goðum til
gárunga og hrekkjóttra íslenskra
jólasveina.
Á þessum síðustu og verstu
tímum þurfa flestir á því að
halda, í það minnsta stundum,
að huga að heilsu sinni og
sálarástandi. Sýning þeirra
Olgu Bergmann og Valgerðar
Guðlaugsdóttur í Nýlista-
safninu hefur það einmitt að
markmiði að auka á líkamlega
og andlega vellíðan þeirra sem
sækja hana heim. Sýningin
nefnist Stofnun um almanna-
heill og má á henni finna
vangaveltur um hvernig best
megi þjóna almennum hagsmunum og heilsu.
Á sýningunni getur að líta margs kyns meðferðar-
úrræði fyrir þreytt og lífsleitt nútímafólk, til að
mynda vinadúkkur, seytlandi gosbrunna, lokkandi
rannsóknarstofu og ýmislegt fleira sem getur haft
góð áhrif á sálartetrið nú í svartasta skammdeg-
inu.
Þó fer hver að verða síðastur
að upplifa þessa upplífgandi
sýningu þar sem henni lýkur
á morgun. Af því tilefni munu
listakonurnar bjóða safngest-
um upp á leiðsögn í dag kl.
15. Þær Olga og Valgerður
munu leiða áhorfendur í gegn-
um þá heilnæmu undraveröld
sem þær hafa skapað í annars
hráu rými Nýlistasfnsins. Til
að skapa enn meiri vellíðan
verður boðið upp á jólaglögg,
enda fáar veitingar jafn vel til
þess fallnar að veita gleði og yl. Frítt er inn á safn-
ið og er sýningin öllum opin. Ekki dregur það svo
úr stemningunni að kl. 16.50 kemur sönghópur
Hjálpræðishersins og syngur nokkur jólalög fyrir
utan safnið. Opið er á safninu til kl. 21 í kvöld og
því ekki úr vegi að fella þessa menningarupplifun
inn í jólagjafainnkaupin. - vþ
Vellíðan á Nýlistasafninu
ÍSLENSKA ÓPERAN Óperan býður upp á
kakó og sönglist annað kvöld.
Íslenska óperan fagnar komu jólanna með því að bjóða gestum og
gangandi upp á söng, gleði og kakó á Þorláksmessukvöld.
Davíð Ólafsson, bassasöngvarinn hressi, verður kynnir kvöldsins
og stjórnar skemmtiatriðum og uppákomum ýmiss konar í anddyrinu
af miklum myndarskap. Þar fer fram eins konar „óperukarókí“ þar
sem söngvurum sem líta við gefst færi á að taka lagið og flytja ýmis
verk úr heimi óperutónbókmenntanna, ýmist við undirleik píanóleik-
arans Antoníu Hevesi eða heillar sinfóníuhljómsveitar, sem reyndar
fremur sinn gjörning á geisladiski. Uppákoma sem þessi er lofsverð,
ekki síst þar sem hún gefur almenningi kost á að sjá nýja og afslapp-
aðri hlið á heimi óperunnar.
Undanfarin ár hefur skapast viss hefð fyrir því að Íslenska óperan
haldi Þorláksmessu hátíðlega með þessum skemmtilega hætti. Við-
koma í Óperunni er þannig orðinn fastur liður í jólaundirbúningnum
hjá fjöldamörgum Íslendingum.
Til að auka á almenna gleði á
uppákomunni verðu barinn í and-
dyrinu opinn. Boðin verða til sölu
hin afskaplega vinsælu og eftir-
sóknarverðu gjafakort á sýninguna
La Traviata, sem sett verður upp í
Óperunni eftir áramótin. Jafnframt
býður Óperan gestum sínum upp á
heitt kakó til að ylja og kæta.
Dagskráin stendur frá 19 til 23 í
Íslensku óperunni annað kvöld og
því er tilvalið fyrir allt tónlistar-
áhugafólk að bregða sér í bæinn, fá
sér kakó og bjóða jólin velkomin
með tónlist og gleði. - vþ
Óperukarókí á
Þorláksmessu
VELLÍÐAN Frá sýningunni Stofnun um
almannaheill.
Fæst í Bónus
Kisu nammi
(harðfisktöflur)
Kisu bitafiskur
Íslensk framleiðsla
úr úrvals hráefni.
Góður kisi
á gott skilið