Fréttablaðið - 22.12.2007, Page 112
22. desember 2007 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
„Mér finnst ég hafa
misst sveindóminn á svo
marga vegu þann dag.“
BEN AFFLECK UM DAGINN SEM
HANN FÓR Í RISTILHREINSUN.
„Hluti af mér
hefur alltaf lang-
að að prófa, en
ég held það
sé svo sárt
að sjúga eitt-
hvað svona
upp í nefið.“
HALLE BERRY UM
LEYNDA KÓKAÍN-
DRAUMA SÍNA.
„Hann er vel
mótaður og hefur
þjónað mér vel.
Ég vil miklu frekar
hafa flottan rass en
stór brjóst.“
EVA LONGORIA UM AFTUR-
ENDANN Á SÉR.
„Við önnum nánast ekki
eftirspurn og það er ljóst að
gamla metið verður slegið,“
segir Lárus Guðmundsson,
deildarstjóri hjá Ríkisútvarp-
inu, um móttöku á jólakveðjum
til landsmanna sem lauk á
hádegi í gær. „Þetta er
gríðarlega vinsælt og sprengir
allt utan af sér. Fólk elskar
jólakveðjur – það er bara
ekkert öðruvísi.“
Áætlað er að kveðjurnar séu
um 3.000 talsins og að það
muni taka þuli Ríkisútvarpsins
um þrettán klukkustundir að
lesa þær upp fyrir landann. Gamla metið er frá
síðasta ári en þá tók 12 klukkustundir að lesa
kveðjurnar. „Við hófum að taka á móti kveðjum hinn
14. desember og vorum með 2-3 stúlkur í að taka á
móti þeim.“ Síminn stoppaði ekki þótt það væri líka
hægt að senda kveðjurnar inn
á netinu.
„Upptökur hefjast í dag en
flestar kveðjurnar eru lesnar í
beinni. Þessir þulir okkar eru
hörkutól og láta ekkert stoppa
sig,“ segir Lárus þegar hann er
inntur eftir því hvort þulirnir
verði látnir vinna yfirvinnu
fram á aðfangadag. Spilun á
kveðjunum hefst kl. 13 á
Þorláksmessu.
Lárus segist ekki undrast
þessar miklu vinsældir. „Þetta
er einfaldlega í tísku og
mönnum finnst þetta flott.
Jólakortin eru á undanhaldi en kveðjurnar standa
alltaf fyrir sínu. Það hafa auk þess margir mikla
ánægju af því að hlusta á þær og fyrir mörgum er
þetta hreinlega ómissandi hluti af jólunum.“
- sók
Metár í jólakveðjum á RÚV
Íslendingar virðast reiðu-
búnir að kasta hefðunum
fyrir borð og bjóða upp á
tilraunakenndan jólamat.
Að blanda saman malti og
appelsíni er einnig á undan-
haldi og kýs þjóðin frekar
tilbúið jólaöl í áldósum.
Friðrik Ármann Guðmundsson í
Melabúðinni segir að fók kaupi í
síauknum mæli tilbúið jólaöl
þótt hann vilji ekki ganga svo
langt að telja kúnstina við að
blanda jólaöl upp á gamla mát-
ann vera í útrýmingahættu eins
og prjónaskap. „Þetta er náttúr-
lega bara þægilegra og fólk virð-
ist velja það fram yfir hitt,“
segir Friðrik. „Salan segir okkur
þetta bara svart á hvítu.“
Sveinn Sigurbergsson hjá
Fjarðarkaupum tók að einhverju
leyti undir þessi orð Friðriks en
taldi þó að fólk héldi í hefðina á
aðfangadagskvöld. Þá væri boðið
upp á handgert jólabland, með
tveimur appelsín á móti einni
malt, en síðan væri tilbúna jóla-
ölið notað næstu daga á eftir.
En það er fleira en bara hið
sígilda jólaöl sem er smátt og
smátt á undanhaldi. Því
Íslendingar eru óhræddir
við að brydda upp á til-
raunkenndum nýjungum
þegar aðfangadagskvöldinu
er lokið með öllum sínum
lögum og reglum. „Fólk
kynnist einhverju
nýju á jólahlaðborð-
unum og vill prófa
það heima hjá
sér. Dádýr og
krónhjörtur
hafa þannig
verið að selj-
ast vel hjá
okkur þótt
kokkar
heimilisins forðist í lengstu lög
að gera tilraunir á aðfangadags-
kvöld sjálft. Jóladagur og annar
í jólum virðast henta betur fyrir
slíkt og svo náttúrlega áramót-
in,“ segir Sveinn.
Friðrik segir þetta tilraunaæði
í kringum jólin
einnig vera
sína reynslu.
Og að þetta
hafi einfald-
lega verið þró-
unin undan-
farin ár.
„Margir eru
reiðubúnir að
prófa eitthvað
nýtt á jóladag
og annan í
jólum,“ segir
Friðrik og
skýtur því
síðan inn í að
alltaf komi
einn eða tveir
og spyrji um
rjúpur. „Þeir
vonast þá
sjálfsagt eftir
einhverju
slysaskoti eða
að rjúpurnar
detti bara
niður dauðar á
grasfletinum.“
freyrgigja@fretta-
bladid.is
Tilbúið jólaöl vinnur á
HANDGERT JÓLAÖL Á UNDANHALDI Friðrik Ármann segir Íslendinga ekki lengur
blanda sitt eigið jólaöl, þeir kaupi það einfaldlega tilbúið í áldósum.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
TILRAUNA-
KENNDUR
JÓLAMATUR
Sveinn Sigurbergs-
son telur að þjóðin
sé óhræddari við að
brydda upp á nýjung-
um yfir jólahaldið.
HÖRKUTÓL Gerður G. Bjarklind verður líkt og
endranær meðal þeirra fjögurra sem lesa upp
jólakveðjur í Ríkisútvarpinu.