Fréttablaðið - 22.12.2007, Page 123

Fréttablaðið - 22.12.2007, Page 123
LAUGARDAGUR 22. desember 2007 91 NFL Hinn magnaði leikstjórnandi Dallas Cowboys, Tony Romo, er einnig mikill kvennamaður og hann hefur verið að slá sér upp með frægum söngkon- um síðustu mánuði. Hann var ekki fyrr búinn að skila Idol-stjörn- unni Carrie Underwood en hann tók saman við Jessicu Simpson. Jessica mætti á völlinn um síðustu helgi til þess að sjá kær- astann spila og það hafði ekki góð áhrif því Dallas tapaði fyrir Philadelphia, 10-6, og Romo átti sinn léleg- asta leik á ferlinum. Stuðningsmenn Cowboys kenna Simpson um slaka frammi- stöðu Romo en hún mætti á völlinn í sérhönnuðum bleikum Dallas-bún- ingi. Stuðningsmenn- irnir vilja ekki sjá hana aftur í stúkunni og undir það tekur stjörnu útherji liðsins, Terrell Owens. „Eins og staðan er í dag er Jessica Simpson ekki í neinu uppáhaldi hjá stuðningsmönnunum frekar en í klef- anum,“ sagði Terrell Owens en þess má geta að slakasti leikur Romo fyrir þennan leik var þegar Underwood mætti í fyrsta og eina skiptið til að horfa á hann spila og var það líka leikur gegn Philadelphia. „Miðað við það sem á undan er gengið með Carrie Underwood er ekki skrítið að stuðnings- mennirnir telji að Jessica sé að trufla hann í að einbeita sér að því sem skiptir máli,“ sagði Owens enn fremur. - hbg Jessica Simpson mætti til að horfa á kærastann, Tony Romo, spila og hann átti sinn versta leik á ferlinum: Stuðningsmenn Dallas Cowboys vilja ekki sjá Jessicu Simpson aftur á vellinum KVENNABÓSI Tony Romo, leikstjórnandi Dallas Cowboys, hefur verið að slá sér upp með þessum tveim glæsilegu söngkonum síðustu mánuði. GETTY IMAGES OG AP BORÐTENNIS Stjórn Borðtennis- sambands Íslands hefur valið Guðmund E. Stephensen og Magneu Ólafs íþróttafólk ársins í borðtennis. Guðmundur, sem leikur með sænska liðinu Eslöv, er með vinningshlutfall þar í kringum 90%, varð Íslandsmeistari í meistaraflokki fjórtánda árið í röð og varð einnig Íslandsmeist- ari í tvenndarkeppni. Guðmundur vann gullverðlaun í einliðaleik á Smáþjóðaleikunum í Mónakó. Magnea þykir mjög efnileg og varð Grand prix meistari Íslands, Íslandsmeistari í tvíliðaleik og þrefaldur Íslandsmeistari í unglingaflokkum á árinu. - óþ Borðtennissamband Íslands: Guðmundur og Magnea valin GOTT ÁR Guðmundur og Magnea voru bæði mjög sigursæl á árinu og voru því vel að tilnefningum sínum komin. FÓTBOLTI Peter Crouch, framherji Liverpool, er afar ósáttur með rauða spjaldið sem hann fékk á dögunum í leik gegn Chelsea í enska deildarbikarnum og gagnrýnir Jon Obi Mikel og aðra erlenda leikmenn fyrir að vera með óþarfa leikræn tilþrif á vellinum. „Erlendir leikmenn hafa komið með margt gott inn í enska boltann, en leikaraskapurinn sem þeim er tamt að vera með er nokkuð sem maður vill ekki sjá. Ég fór ekki í Obi Mikel en hann kastaði sér niður eins og hann hefði verið skotinn og ég fékk rautt spjald. Ef ég hefði farið eins gegn Frank Lampard eða John Terry leyfi ég mér að stórefast um að þeir hefðu brugðist eins við. Hefði Jamie Carragher gert eitthvað þessu líkt? Það held ég ekki,“ sagði Crouch pirraður. - óþ Peter Crouch, Liverpool: Leikaraskapur- inn er óþolandi PIRRAÐUR Crouch segir erlenda leik- menn bera ábyrgð á þeim leikaraskap sem viðgangist í ensku deildinni. NORDIC PHOTOS/GETTY SKÍÐI Dagný Linda Kristjánsdóttir frá Akureyri og Björgvin Björgvinsson frá Dalvík eru skíðafólk ársins. Dagný Linda tók þátt í heims- meistaramótinu á árinu þar sem hún lenti í 26. sæti í bruni og risasvigi, enn fremur náði hún tvisvar á topp 20 í Evrópubikarn- um í bruni og svigi. Dagný Linda vann þrefalt á Íslandsmeistara- mótinu. Björgvin var þrettán sinnum á verðlaunapalli á alþjóðlegum mótum erlendis á árinu og varð meðal annars í sjöunda sæti á fyrsta Evrópubikarmótinu í ár. Björgvin vann þrefalt á Íslands- meistaramótinu. - óþ Skíðasamband Íslands: Dagný Linda og Björgvin best KÖRFUBOLTI Allen Iverson hefur spilað vel með Denver það sem af er tímabilinu og er meðal efstu manna í deildinni í stigum (3. sæti með 26,3) og stoðsendingum 10. sæti með 7,5). Denver er efst í Norðvestur-riðlinum með 60 prósenta sigurhlutfall en það er aðra sögu að segja af gamla liðinu hans. „Ef ég væri enn í Philadelphia væri liðið ekki í svona slæmum málum. Miðað við styrkleika austursins ætti liðið möguleika á að gera eitt- hvað. Það er bara hundleiðinlegt að horfa á leiki þess í dag og það sést líka á áhorfendunum því það er engin stemning á pöllunum,“ segir Iver- son í viðtali við Rocky Mountain-fréttastofuna. Iverson fór í skiptum frá Philadelphia til Denver 19. desember í fyrra. Í staðinn fékk 76ers, liðið sem hann spilaði með fyrstu tíu ár ferils síns, Andre Miller, Joe Smith og valrétt. „Ég veit að Sixers fékk ekki nóg fyrir mig,“ sagði Iverson, sem er efstur hjá Denver í stigum, stoðsending- um, stolnum boltum. mínútum og töpuðum boltum. „Stuðningsmenn Philadelphia vita að félagið fékk ekki nóg fyrir mig en forráðamenn liðsins vildu bara losna við mig,“ bætti Iverson við en hann hefur alltaf haldið því fram að hans stefna hafi verið að klára ferilinn sem leikmaður Sixers. - óój Allen Iverson tjáir sig um gamla liðið sitt í NBA, Philadelphia 76ers, en hann er ekki par hrifinn af því: Það er leiðinlegt að horfa á Sixers í dag GAGNRÝNINN Allen Iverson líst ekkert á stöðuna á sínu gamla liði. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Gríðarleg spenna var í loftinu þegar dregið var um hvaða lið mætast í sextán liða úrslitum Meistaradeild- ar Evrópu. Arsenal dróst gegn núverandi Meistaradeildarmeist- urunum í AC Milan og Liverpool heldur einnig til Mílanóborgar og mætir Ítalíumeisturum Inter. Englandsmeistarar Manchest- er United etja kappi við Frakklandsmeistara Lyon og Chelsea mætir Olympiakos. Arsenal mætir AC Milan í fyrsta skipti í Meistara- deild Evrópu og Arsene Wenger, stjóri liðsins, er bjartsýnn á að hans unga og efnilega lið nái að láta til sín taka. Ekki slæmur dráttur „Þetta verða áhugaverðir leikir og ég er viss um að við getum kom- ist áfram ef við spilum okkar besta leik. Ég er líka sannfærður um að allir verða upp á sitt besta í svona stór- leik, þannig að þetta er í raun alls ekki slæmur dráttur fyrir okkur,“ sagði Wenger og kvað lið sitt enn hungrað í árangur eftir tapið gegn Barcelona fyrir tveimur árum. „Við höfum verk að vinna og ef við ætlum að vinna keppnina þurfum að fara í gegnum bestu liðin,“ sagði Wenger en Arsenal á fyrri leik sinn á heimavelli. Liverpool á ekki síður erfitt verkefni fyrir höndum þegar liðið mætir Ítalíumeisturum Inter en Rafa Benitez er þó fullur sjálfstrausts. „Við áttum von á erfiðum mótherja og við fengum erfiðan mótherja. Inter hefur yfir frábærum leikmannahópi að ráða og góðri reynslu í Evrópu en við höfum mikla trú á sjálfum okkur og okkar reynslu í þessarri keppni. Ég held að Inter hafi miklar áhyggjur af því að mæta okkur og það getur allt gerst þegar liðin mætast,“ sagði Benitez en Liver- pool á fyrri leik sinn á heima- velli. Manchester United mætir Lyon, sem náði að tryggja sér farseðil- inn í sextán liða úrslit á loka- keppnisdegi riðlakeppninnar með góðum sigri gegn Rangers, en Sir Alex Ferguson, stjóri United, hefur miklar mætur á franska liðinu. „Lyon hefur unnið frönsku deildina í sex ár í röð sem er ótrúlegur árangur og þetta verða því erfiðir leikir. Maður á reyndar aldrei von á léttum leikjum þegar svona langt er liðið á keppnina, en við stefn- um augljóslega á að komast lengra í keppninni og ætlum okkur ekkert nema sigur,“ sagði Ferguson ákveðinn en lið hans á seinni leik sinn á heimavelli. Auðvelt hjá Chelsea Chelsea fékk eflaust að flestra mati auðveldasta verkefnið af ensku liðunum þegar það mætir Olympia- kos og á seinni leik sinn á heimavelli. Öllum er jafn- framt ljóst að mikil pressa er á Avram Grant, stjóra liðsins, að ná betri árangri í Meistaradeild Evrópu en forveri hans í starfi, José Mourinho, náði með liðið. Eiður Smári og félagar í Barcelona mæta Gordon Strachan og læri- sveinum hans í Celt- ic og stórliðin Real Madrid og Roma mætast. omar@frettabladid.is Arsenal og Liverpool fara til Mílanó Dregið var í sextán liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í gær og margir stórleikir eru í boði. Ensku liðin Arsenal og Liverpool takast á við ítölsku stórliðin AC og Inter frá Mílanó og Manchester United mætir Lyon. Chelsea etur kappi við Olympiakos og Eiður Smári og félagar í Barcelona mæta skoska liðinu Celtic. Á LEIÐ TIL ENGLANDS EFTIR ÁRAMÓT Svíinn Zlatan Ibrahimovic (til vinstri) og Brasilíumaðurinn Kaka verða örugglega í stórum hlutverkum þegar Mílanóliðin mæta Liverpool og Arsenal í sextán liða úrslitum Meistaradeildar- innar í febrúar. NORDICPHOTOS/GETTY MEISTARADEILD EVRÓPU Fyrri leikirnir fara fram 19.-20. febrú- ar 2008 en þeir seinni 4.-5. mars: Arsenal-AC Milan Liverpool-Inter Milan Lyon-Manchester United Olympiakos-Chelsea Celtic-Barcelona Roma-Real Madrid Fenerbahce-Sevilla Schalke-Porto
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.