Fréttablaðið - 22.12.2007, Side 126
94 22. desember 2007 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
„Já, þetta er orðinn stór partur af
jólahaldi hjá mér. Þetta eru sem
sagt þriðju jólin í röð sem ég missi
vinnuna,“ segir útvarpsmaðurinn
snjalli Andri Freyr Viðarsson.
Hann hefur undanfarna mánuði
rekið útvarpsþáttinn Capone ásamt
Búa Bendtsen á Reykjavík FM
101,5. Að sögn Andra stendur til að
loka stöðinni um áramót. Og þá
blasir atvinnuleysið við enn og
aftur.
„Já, eins og staðan er í dag.
Nema einhver yndislegur fjár-
festir þarna úti stökkvi til. Og ég
auglýsi hér með eftir honum. Ann-
ars verðum við bara slakir í janúar
og bíðum eftir atvinnutilboðum,“
segir Andri.
Fyrir ári sat Andri bak við hljóð-
nemann á útvarpsstöðinni X-FM.
Og fékk þá sömu jólagjöfina. „Já, á
gamlársdag. Þá var öllum sagt
upp. Og þar áður sama sagan en þá
var ég á X 97,7. Þá var verið að
loka stöðinni,“ segir Andri og telur
fráleitt að hann hafi verið rekinn
vegna þess að hann sé svo lélegur
starfskraftur. „Neineineinei, ég
veit allt um það hversu mikill
meistari ljósvakans ég er. En þetta
fer allt einhvern veginn í þrot.
Eins og það borgi sig ekki að halda
úti útvarpsstöð eða að þeir sem
eru að reka þetta séu ekki með bis-
nesshliðina alveg á hreinu.“
Andri Freyr segir óljóst hvað
verði en á næsta ári stóð til að
fagna tíu ára starfsafmæli í
útvarpi. „Já, þá hefði ég náð tíu
árum „in the biz“. Annars var
pabbi að hringja. Og lofa mér stöðu
við álverið. Segir það eina vitið,“
segir Andri Freyr sem einmitt er
að austan. Frá Reyðarfirði meira
að segja þar sem menn sjá fram á
trygga atvinnu við að hræra í
álkerjum. En aðdáendur Andra
velkjast ekki í vafa um að mikill
missir yrði fyrir íslenskt útvarp ef
hann hyrfi af öldum ljósvakans.
Andri segir sjálfur að kannski sé
réttast að snúa sér að öðru. „Það
þýðir ekki að búa við þetta um
hver jól. En svo ber á það að líta að
ég kann ekkert annað.“ - jbg
Andri Freyr rekinn þriðju jólin í röð
Sif Davíðsdóttir förðunarfræðing-
ur á afmæli í dag, hinn 22. desem-
ber. Svo ótrúlega vill til að dóttir
hennar, Alexandra Ýr, á líka
afmæli dag og verður 19 ára en Sif
fæddi hana á 17 ára afmælisdegi
sínum. Sögunni lýkur þó ekki þar
því hinn 22. desember í fyrra átti
Sif aðra dóttur, Lísu. Hún hefur
því átt tvær dætur á afmælisdegi
sínum. Líkurnar á því eru einn á
móti 48,6 milljónum.
„Það er reyndar fleira merkilegt
við þennan dag,“ segir Sif í samtali
við Fréttablaðið. „Móðurafi minn
drukknaði á sjó 22. desember árið
1966 en dagurinn var jafnframt
brúðkaupsafmælisdagur foreldra
hans. Fimm árum síðar fæddist ég.
Þessi dagur hefur því verið mjög
örlagaríkur í fjölskyldunni.“ Sif á
þrjár dætur en sú þriðja, Telma
Rut, er 14 ára og fædd hinn 30.
júní. Hvorug hinna átti að koma í
heiminn 22. desember. Alexandra
átti að fæðast hinn 16. og Lísa ekki
fyrr en 6. janúar. Ekki nóg með það
heldur voru afmælisbörnin þrjú
nákvæmlega jafnþung og jafnstór
við fæðingu, 14 merkur og 52 senti-
metrar.
„Mig dreymdi afa rétt áður en
ég átti eldri stelpuna. Þegar ég
sagði mömmu frá því þóttist hún
viss um að ég myndi eiga á dánar-
degi hans. Það reyndist rétt hjá
henni enda hafði hana dreymt afa
rétt áður en hún átti mig. Þá hélt
hún reyndar að hann væri að biðja
um nafn og að hún myndi eiga
strák. Hins vegar var hún alltaf
viss um að ég kæmi í heiminn
þennan dag. Í fyrra var ég gjör-
samlega grunlaus heima í róleg-
heitum á afmælisdaginn. Pabbi
hringdi um kvöldmatarleytið til að
óska mér til hamingju með daginn
og spurði hvort það væri eitthvað
að gerast. Ég hélt nú ekki. Um leið
og ég skellti á hann var eins og ein-
hver hefði ýtt á takka. Ég fékk
miklar hríðir og við vorum komin
upp á sjúkrahús um níuleytið. Lísa
var fædd kl. 23.23. Hún hefur
ætlað sér að koma þennan dag,“
segir Sif og hlær. „Ég fór í eftir-
skoðun hjá Gesti Pálssyni barna-
lækni. Hann fór að hlæja þegar
hann heyrði söguna, sagðist hafa
haldið að hann ætti metið með því
að eiga tvær dætur sama daginn
en viðurkenndi að ég hefði gert
enn betur með því að eiga sjálf
afmæli í ofanálag.“
Sif vílar það ekki fyrir sér að slá
upp þrefaldri afmælisveislu
tveimur dögum fyrir jól. „Ég hef
yfirleitt haldið upp á afmælin fyrr
í desember en þannig vill til að ég
og systur mínar tvær urðum allar
ófrískar á síðasta ári og áttum
börnin með stuttu millibili. Það er
því búið að vera mikið um afmælis-
veislur og það vildi þannig til að
þetta er laugardagur. Við ætlum að
vera hér með kaffiboð fyrir fjöru-
tíu manns enda eigum við hjónin
bæði stórar fjölskyldur.“
sigrunosk@frettabladid.is
SIF DAVÍÐSDÓTTIR: HEFUR ÁTT TVÆR DÆTUR Á AFMÆLISDAGINN SINN
Þrefalt afmæli rétt fyrir jól
AFMÆLISBÖRNIN Mæðgurnar Sif Davíðsdóttir, Alexandra Ýr og Lísa eiga allar afmæli
í dag. Líkurnar á því eru einn á móti tæplega fimmtíu milljónum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Við erum búin að koma í veg fyrir þetta í
ár, það verða engin smáskilaboð frá
Dominos á aðfangadag og væntanlega
verður þetta ekki endurtekið í bráð,“ segir
Ásdís Höskuldsdóttir, framkvæmdastjóri
Domino‘s á Íslandi.
Fá SMS-skilaboð hafa vakið jafn sterk
viðbrögð og jólakveðja pizzafyrirtækisins
um síðustu jól og hreinlega logaði allt á
netinu vegna þeirra. Kveðjan „Gleðileg jól
og farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin
á liðnu ári. Starfsfólk Domino‘s,“ barst
fjölmörgum landsmönnum þegar fólk var
að standa upp frá jólaborðinu og gerði sig
reiðubúið að taka utan af jólagjöfunum.
Þung orð voru látin falla í garð Domino‘s
og varð þáverandi framkvæmdastjóri
fyrirtækisins, Baldur Baldursson, meðal
annars að biðjast afsökunar á skilaboðun-
um.
En einhverjir tóku þó upp hanskann fyrir
pizzugerðarmennina og Guðmundur
Steingrímsson, núverandi aðstoðarmaður
borgarstjóra, skrifaði meðal annars á
bloggið sitt: „Þessi jólakveðja reyndist ekki
vera það tundurskeyti inn í jólahaldið mitt,
eins og ég heyrði í fréttum að hún hafi
orðið í jólahald annarra. Ég brosti bara út í
annað og eyddi skilaboðunum.“ Jóhannes
Gunnarsson, formaður Neytendasamtak-
anna, sagði hins vegar við þetta sama
tilefni að það væri ólíðandi að fyrirtæki
sendu út SMS á aðfangadag, jafnvel þótt
auglýsingin væri dulbúin sem jólakveðja.
Ásdís var á þeim tíma ekki fram-
kvæmdastjóri heldur viðskiptavinur en
fékk skilaboðin. „Ég minnist þess þó ekki
að hafa orðið jafn hvekkt og aðrir. En
vissulega varð allt brjálað,“ segir Ásdís.
- fgg
Engar jólakveðjur frá Domino‘s í ár
EKKERT SMS Domino‘s hefur ákveðið, að fenginni reynslu, að
senda viðskiptavinum sínum ekki jólakveðju í smáskilaboðum
þetta árið. Ásdís Höskuldsdóttir ábyrgist það. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ANDRI FREYR
Pabbi hans segir
eina vitið að fara
aftur austur og
vinna í álverinu.
LÁRÉTT
2. drápstæki 6. skammstöfun 8.
knæpa 9. nægilegt 11. hljóm 12.
frárennsli 14. blóm 16. drykkur 17.
á móti 18. tunna 20. til dæmis 21.
kvenflík.
LÓÐRÉTT
1. erfðavísa 3. klafi 4. hundraðshluti
5. lærdómur 7. hóf 10. æxlunarkorn
13. spíra 15. brýna 16. fjör 19. bor.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. vopn, 6. eh, 8. krá, 9. nóg,
11. óm, 12. afrás, 14. sóley, 16. te, 17.
and, 18. áma, 20. td, 21. pils.
LÓÐRÉTT: 1. gena, 3. ok, 4. prósent,
5. nám, 7. hófsemi, 10. gró, 13. ála,
15. ydda, 16. táp, 19. al.
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 8.
1 Þorsteinn Davíðsson.
2 Jólasveininn.
3 Rakel Dögg Bragadóttir.
Aðalsteinn
Eyjólfsson
Aldur: 30
Starf: Hand-
boltaþjálfari.
Rekur ferðaskrif-
stofuna Frjálsa
ferðafélagið.
Fjölskylda: Einhleypur.
Foreldrar: Eyjólfur Bragason og
Svanhvít Aðalsteinsdóttir.
Búseta: Ásbúð 92, Garðabæ.
Stjörnumerki: Tvíburi.
Aðalsteinn Eyjólfsson er þjálfari meistara-
flokks kvennaliðs Stjörnunnar og stendur
í stórræðum vegna ummæla sinna um
dómara eftir leik Stjörnunnar og Fram.
Sænska stórsöngkonan Carola
hélt tvenna jólatónleika í Grafar-
vogskirkju á fimmtudagskvöld. Fyrri
tónleikarnir áttu að hefjast kl. 20
en þeim seinkaði töluvert þar sem
fólki gekk erfiðlega að finna bíla-
stæði og ekki reyndust nægir stólar
fyrir alla. Gestir á seinni tónleikun-
um þurftu því að bíða lengi vel fyrir
utan salinn við lítinn fögnuð þeirra.
Það rauk þó fljótlega úr þeim flest-
um enda tónleikarnir að öðru leyti
vel heppnaðir. Meðal
gesta á tónleikun-
um voru sjón-
varpskonan
Ragnhildur
Steinunn
Jónsdóttir,
förðunarfræð-
ingurinn Elín
Reynisdóttir
og söng-
konurnar
Sigríður
Beinteins-
dóttir og
Regína
Ósk Ósk-
arsdóttir.
Jón Karl Ólafsson, fráfarandi
forstjóri Icelandair, er alþýðlegur
maður og vinsæll. Hans er sárt
saknað af starfsfólkinu. Marga
undraði þegar hann var látinn
fara því Jón Karl er ekki bara við
alþýðuskap heldur praktískur
maður einnig og sást
á föstudag versla í
jólamatinn í Bónus
Spönginni. Og telja
nú menn að hann
ætli að láta starfs-
lokasamninginn
endast vel og
lengi með
aðhaldi á
öllum víg-
stöðvum.
- sók/jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N