Fréttablaðið - 22.12.2007, Blaðsíða 128
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Gerðar Kristnýjar
Í ár varð óvenjulítið fár í fjölmiðl-um vegna jólastressins eins og
oft hefur hent á aðventunni. Þess í
stað fjölluðu fjölmiðlar fagmann-
lega um jóladrykkju og jólaþung-
lyndi sem eyðilagt hafa hátíðina
fyrir mörgu barninu. Fyrir flesta er
aðventan samt sem betur fer alltaf
jafnnotaleg. Og það er engin ástæða
til að verja henni á köldum kirkju-
bekk og hugsa um píslir Krumma í
Mínus. Það má líka alveg skemmta
sér og sínum og hér koma hug-
myndir að tveimur góðum leikjum
sem ég mana ykkur að prófa.
KOMIÐ af stað umræðu í lesenda-
dálkum blaðanna með því að yrkja
jólasálm upp á nýtt. Uppástandið til
dæmis að í ykkar heimasveit, Efra-
Breiðholtinu eða Fossvoginum, hafi
Jólasveinar ganga um gólf alltaf
verið sungið svona: „Uppi á stól
stendur mín Anna/níu nóttum fyrir
jól/ kem ég til manna“. Svo væri
hægt að segja frá því að Anna þessi
hefði búið í Suður-Þingeyjarsýslu,
gift nafngreindum presti.
EINN daginn greip hana mikið
óyndi og litlu síðar sást til hennar
þar sem hún arkaði til fjalla. Fannst
hún ekki hvernig sem menn leituðu.
Það var ekki fyrr en einmitt 15.
desember að hún birtist aftur á
prestsetrinu, vel útitekin. Lét Anna
vel af sér þótt ekki hefði hún viljað
segja neitt um vistina á fjöllum.
Lítil stúlka spurði hana þá hvort
hún hefði nokkuð séð til jólasveina
og þannig kom nú tengingin við þá
bræður eins og sjá má í vísunni
góðu. Ætla má að svona frásögn
kæmi af stað skriðu heitfenginna
bréfa þar sem fólk lýsti því hvernig
það hafi lært vísuna góðu.
SVO er það leikurinn góði sem ég
hef sjálf prófað ár eftir ár. Veljið
ykkur vinsæla matvöruverslun þar
sem raðirnar liðast út frá öllum
kössum. Þegar loks er komið að
ykkur og afgreiðslumaðurinn hefur
nefnt verðið á hangikjötinu, baun-
unum, rauðkálinu og öllu því sem
ykkur vantar skuluð þið endurtaka
upphæðina í spyrjandi tón og bæta
síðan grafalvarleg við: ,,Viltu ekki
renna þessu aftur í gegn svo við
getum verið algjörlega viss?“ Fylg-
ist síðan með því hvernig slaknar á
andlitsvöðvum afgreiðslumannsins
og hvernig fólkið í röðinni skiptir
þunganum af öðrum fætinum yfir á
hinn, dregur hljóðlaust inn andann
en blæs duglega frá sér. Þá fyrst
skulið þið viðurkenna að þið hafið
bara verið að gantast. Að þessu
loknu geta jólin fyrst hafist. Gleði-
lega hátíð!
Uppi á stól
stendur mín
Anna
Í dag er laugardagurinn 22.
desember, 356. dagur ársins.
11.22 13.26 15.30
11.38 13.11 14.44
©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
m
s B
.V
.2
00
7
www.IKEA.is
Opið virka daga
Opið laugardaga
Opið sunnudaga
10.00 - 20.00
10.00 - 18.00
12.00 - 18.00
Veitingastaður opnaður klukkutíma fyrr en verslun
Frábær jólagjöf!
Við minnum á
rafrænu gjafakortin okkar.
Opið til 22 í kvöld
Þorláksmessa: 12-18
Aðfangadagur: Lokað
Hangikjöt
með kartöflum, uppstúf, rauðkáli
og grænum baunum
690,-
2.690,-
IKEA STOCKHOLM skál Ø42 cm ryðfrítt stálHEDDA BLOM sængurverasett 150x200/50x60 cm
Allir fá þá eitthvað...
Gjafakort
STRANNE gólflampi
H138 cm stál 4.990,-
KOMMERS kryddjurtaskeri
m/bakka ryðfrítt stál/beyki 795,-
ALLEBY baðsloppur
ýmsir litir 1.990,-
PJÄTTERYD myndir 3 stk.
56x56 cm brönugras 6.990,-
IKEA 365+ matarstell
18 stk. hvítt 4.990,-
HULDA púði
L60 cm rauður 895,-
KARLSTAD púði 67x30 cm
Bondarp marglitað 2.490,-
RITVA teppi
130x170 cm brúnt 895,-
FAVORIT steikarpanna
Ø28 cm 3.690,-
KAFFE te/kaffipressa
1 l ryðfrítt stál 995,-
TOFTBO handklæði 70x140 cm
rautt/appelsínugult 1.290,-/stk.
HÅLLARE kertastjaki f/9 kerti
27x27x3 cm málmur/brúnt 795,-
SVALKA glös 18 stk.
6 stk. rauðvínsglös 30 cl
6 stk. hvítvínsglös 25 cl
6 stk. glös 20 cl 995,-
ISIG kubbakerti
5 stk. ýmsir litir 295,-
KAVALKAD pottasett 3 stk.
1 l/1,5 l/2 l 995,-