Fréttablaðið - 03.01.2008, Síða 13
FIMMTUDAGUR 3. janúar 2008 13
FRÉTTASKÝRING
AUÐUNN ARNÓRSSON
audunn@frettabladid.is
Hópur íranskra vísindamanna skýrði frá því í
vikunni að hrúturinn Royana hafi dafnað vel og
væri orðinn 15 mánaða gamall. Royana er
einræktaður og var borinn í lok september árið
2006.
„Royana er vel heppnað vísindaafrek,“ segir
Mohammad Hossein Nasr e Isfahani, yfirmaður
Rohan-rannsóknarstöðvarinnar í Isfahan. „Við
erum öll stolt af honum. Þessi sauður er
afraksturinn af margra ára stofnfrumu-
rannsóknum.“
Royana er önnur tilraun íranskra vísindamanna
til þess að einrækta dýr, en tveimur mánuðum á
undan honum kom í heiminn annað einræktað
lamb, sem dó þó innan fárra mínútna. Isfahani
segir að á rannsóknarstofunni hafi 30 tilraunir
verið gerðar með að einrækta dýr, en einungis
tvær þessara tilrauna hafi skilað tilætluðum
árangri.
Íran er fyrsta landið í Mið-Austurlöndum sem
náði þeim áfanga að einrækta dýr. Í september
síðastliðnum fylgdi Tyrkland í kjölfarið þegar
þar fæddist einnig einræktuð kind.
Á þessu ári verða tólf ár frá því vísindamönn-
um tókst fyrst að einrækta dýr. Kindin Dolly, sem
breskir vísindamenn bjuggu til árið 1996, tórði í
heil sex ár. - gb
Umdeild tækni nær aukinni útbreiðslu víða um heim:
Klónuð kind dafnar vel í Íran
HRÚTURINN ROYANA Íranskir vísindamenn eru stoltir af ein-
ræktaða hrútnum sem hefur lifað í 15 mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Pakistan
tíma. „Undirbúningur kosninganna
stöðvaðist algerlega í nokkra
daga,“ tjáði hann fréttamönnum.
Því yrðu þær haldnar 18. febrúar í
stað 8. janúar.
Talat Masood, óháður stjórn-
málaskýrandi, sagðist telja að
frestunin væri fyrst og fremst pól-
itík. „Vandamálin við framkvæmd
kosninganna takmarkast við fáein
umdæmi. Musharraf telur náttúr-
lega að verði þingmeirihluti kjör-
inn sem sé andsnúinn sér eigi hann
ekki mikla framtíð fyrir sér,“ hefur
AP eftir Masood.
Ahsan Ikbal, áðurnefndur tals-
maður flokks Sharifs, ítrekaði
kröfu sína um að Musharraf segði
af sér. „Við munum halda áfram að
reyna að fá alla flokka til að taka
höndum saman um að þvinga Mus-
harraf frá völdum og að koma á fót
hlutlausri bráðabirgðastjórn,“
sagði hann.
Talsmaður stjórnarflokksins,
Tarik Azim, vísaði því á bug að
frestun kæmi flokknum til góða.
Frá því Bhutto var myrt hefur
dunið gagnrýni á stjórnvöldum
fyrir að tryggja öryggi hennar ekki
betur. Ráðamenn í Islamabad halda
því fram að Baitulla Mehsud, leið-
togi uppreisnarhóps íslamista í
héraðinu Suður-Waziristan nærri
landamærunum að Afganistan,
hafi staðið á bak við morðið á
Bhutto. Mehsud hefur hins vegar
neitað því.
Sharif eygir tækifæri
Bhutto naut vinsælda meðal
margra ráðamanna á Vesturlönd-
um þar sem hún var bæði frjáls-
lyndur múslimi og reiðubúin að
tala tæpitungulaust gegn öfga-
öflum. En stjórnmálaskýrendur í
Pakistan hafa blendnari sýn á arf-
leifð hennar og benda á að í þau tvö
skipti sem hún fór fyrir ríkisstjórn-
inni á níunda og tíunda áratugnum
var hún sökuð um spillingu og
óskilvirka stjórnarhætti.
Þrátt fyrir fráfall hinnar vin-
sælu Bhutto er talið fullvíst að
flokkur hennar vinni afgerandi
sigur í þingkosningunum. En þar
sem forysta flokksins hefur nú
verið falin í hendur nítján ára
sonar hennar og ekkilsins Asif Ali
Zardari til bráðabirgða kann Nawaz
Sharif, sem eins og Bhutto var
tvisvar forsætisráðherra áður en
hann hraktist í útlegð fyrir átta
árum, að verða í lykilstöðu eftir
kosningarnar. Fyrir morðið hafði
Sharif unnið að því að stjórnarand-
stöðuflokkarnir mynduðu banda-
lag gegn Musharraf og hans
mönnum. Hann hefur haldið þeirri
vinnu áfram eftir fráfall hennar.
Sem stjórnmálamaður er Sharif
hins vegar mjög frábrugðinn
Bhutto. Hann er upprunalega skjól-
stæðingur einræðisherrans Zia ul
Haq, sem lét hengja föður Benazir
Bhutto, og hefur aldrei látið ströng
orð falla um íslamista. Stjórnartíð
hans 1990-1993 og 1997-1999 þótti
einkennast af popúlískum stjórnar-
háttum.
Hver er þinn
æðsti draumur?
Jack Canfield er stofnandi og stjórnarformaður Canfield
Training Group í Santa Barbara í Kaliforníu. Fyrirtækið þjálfar
athafnamenn, kennara, forstjóra fyrirtækja og fleiri til að ná
persónulegum og starfstengdum árangri á stuttum tíma.
Margir Íslendingar þekkja Jack Canfield úr kvikmyndinni
„The Secret“ og samnefndri bók sem hefur farið sigurför
um allan heim. Hann er einn af allra eftirsóttustu fyrirlesurum
heims.
Athugið að mörg stéttarfélög endurgreiða félagsmönnum
sínum námskeiðsgjaldið að hluta eða í heild.
Gerðu 2008 að tímamótaári í lífi þínu!
Komdu á námskeið Jack Canfields
í Háskólabíói þann 2. febrúar kl. 9.30-16.30
Jack Canfield kennir lögmál
sigurgöngunnar á dagsnámskeiði
í Háskólabíói laugardaginn 2. febrúar
Miðasala hefst 1. janúar
á www.newvision.is