Fréttablaðið - 06.01.2008, Blaðsíða 37
ATVINNA
SUNNUDAGUR 6. janúar 2008 21
Vegna aukinna verkefna óskar GSR Þjónusturáðgjöf eftir
„huldumönnum“ til að sinna þjónustukönnunum með heimsóknum
víða um land.
Starfið felst í stuttum heimsóknum til verslana til að athuga gæði þjónustunnar.
Um er að ræða létta, skemmtilega og vel borgaða aukavinnu fyrir fólk á
öllum aldri, enda ráða „huldumenn“ vinnutíma sínum og vinnuframlagi sjálfir.
Starfið krefst engrar sérþekkingar en viðkomandi þarf að búa yfir heiðarleika,
nákvæmni, samviskusemi, athyglisgáfu og sjálfstæði.
Starfið hentar námsmönnum sérlega vel, sem og öðrum sem hafa sveigjanlegan
tíma.
Ertu topp huldumaður?
GSR
ÞJÓNUSTURÁÐGJÖF
GSR þjónusturáðgjöf er eitt fremsta
þjónusturáðgjafarfyrirtæki landsins
og sérhæfir sig í að hjálpa
fyrirtækjum að bæta hag sinn,
sérstöðu og samkeppnishæfni með
framúrskarandi þjónustu.
Tekið er við umsóknum í tölvupósti; radgjof@gsr.is, til 14. janúar.
Nánari upplýsingar veitir Gylfi Skarphéðinsson hjá GSR Þjónusturáðgjöf,
í síma 554-6400 og einnig er hægt að senda fyrirspurnir á radgjof@gsr.is.
Okkur vantar “huldumenn”
á eftirtalin svæði:
Höfuðborgarsvæðið
Reykjanesbæ
Suðurland
Vestmannaeyjar
Akranes
Akureyri/Norðurland
... prýðir liðsheildina á Hilton Reykjavík Nordica
Eldmóður ...
Hilton Reykjavík Nordica er með
252 glæsileg herbergi, fjölbreytta
veitinga- og ráðstefnuaðstöðu
ásamt einum besta veitingastað
landsins, VOX.
Hilton Reykjavík Nordica er rekið
af Flugleiðahótelum hf sem er
hluti af Icelandair Group.
TÆKNIMAÐUR ÓSKAST
Verksvið
Hæfniskröfur
Vinnutími miðast við 08.00 til 17.00, 5 daga vikunnar ásamt bakvöktum.
Áhugasamir eru beðnir
um að senda umsóknir
til ráðstefnustjóra á
umsoknir@icehotels.is
fyrir 13. janúar.