Fréttablaðið - 06.01.2008, Blaðsíða 42
6. janúar 2008 SUNNUDAGUR26
ATVINNA
Upplýsingar um starfið og umsóknareyðublöð eru á skrifstofu ÍSTAKS,
Engjateigi 7, 105 Reykjavík og í síma 530 2700 milli 8:15 og 17:00.
Einnig er hægt er að senda inn umsókn á heimasíðu okkar www.istak.is.
ÍSTAK er leiðandi fyrirtæki á íslenskum
verktakamarkaði. Hjá fyrirtækinu starfa
um 650 manns, víðsvegar um landið
sem og erlendis.
ÍSTAK er alhliða verktakafyrirtæki sem
var stofnað árið 1970 og hefur annast
ýmis verkefni, svo sem virkjanir, stór-
iðjuver, hafnargerð, vega- og brúagerð
auk flugvalla. Ennfremur húsbyggingar
fyrir opinberar stofnanir, sveitarfélög,
fyrirtæki og einstaklinga.
BYGGINGARVERKFRÆÐINGAR
ÍSTAK óskar eftir að ráða verkfræðinga til starfa við hönnun og
áætlanagerð. Um er að ræða framtíðarstarf með fastri starfsaðstöðu
á aðalskrifstofu ÍSTAKS.
Meðal verkefna:
• Hönnunarstjórnun
• Burðarþolshönnun
• Samskipti við innlenda og erlenda birgja
• Gerð kostnaðaráætlana
• Verkefnastjórnun
Starfsreynsla er æskileg en ekki skilyrði.
Konur eru sérstaklega hvattar til að sækja um.
Framkvæmdagleði í fyrirrúmi
STARFSFÓLK ÓSKAST VIÐ PISA
RANNSÓKNINA VOR 2008
Námsmatsstofnun leitar að:
1. Starfsfólki í fullt starf í 2 mánuði,
frá 1. apríl til 31. maí, við alþjóðlegu
rannsóknina PISA (Programme for
International Student Assessment).
Starfið felst í fyrirlögn í skólum,
yfirferð úrlausna grunnskólanemenda
á verkefnum sem meta lesskilning og
tölvuinnslætti í gagnagrunn. Starfið
krefst öryggis í framkomu, góðrar
tölvukunnáttu og samstarfshæfileika.
2. Aðstoðarmanni í fullt starf í 5
mánuði, frá janúar til maí, sem getur
hafið störf strax.
Starfið felst m.a. í samskiptum við
skóla og umsjón með prófgögnum og
krefst fyrst og fremst samskiptahæfni,
skipulags og góðrar íslensku- og
enskukunnáttu.
Lágmarksmenntun er stúdentspróf
eða sambærilegt próf.
Umsóknarfrestur er til 14. janúar.
Hafið samband við Almar M.
Halldórsson eftir hádegi í síma
550-2400 eða með tölvupósti:
almar@namsmat.is.