Tíminn - 18.09.1981, Page 5
Föstudagur 18. september 1981
■ Þarna eru krakkarnir I 19. deild önnum kafin viö smi&ar. Smf&akennarinn,
Gunnsteinn Sigur&sson fylgist vel me& öllu sem fram fer.
■ Þau flykktust um Ijósmyndarann, alia langaöi til aö vera meO á mynd. Þessi glaö-
legi hópur var á ieiö heim eftir skóladag, þegar okkur bar a&.
Heimsókn í Digranesskólann:
„ENGIN AFORM
UM STÓRFELLD-
AR BREYTINGAR”
— segir Stella Guðmundsdóttir,
„Hér var mjög gó&ur skóla-
stjóri á undan mér, svo ég hef
engin áform um stórfelldar
breytingar á skólastarfinu i bráö.
En skólar eru náttúrlega alltaf i
mótun og nýr skólastjóri hefur að
sjálfsög&u nýjar hugmyndir i fór-
um sinum, „sagði Stella Guö-
mundsdóttir, sem nýlega tók viö
starfi skólastjóra Digranes-
skólans i Kópavogi.
„Mér er ofarlega i huga að
koma á meira samstarfi milli
skólastjórna, skóla og heimila.
Meb það fyrir augum að aðstand-
endur barnanna verði virkari i
hinu innra starfi skólanna.”
„Þegar ég var við nám i Dan-
mörku fyrir nokkrum árum,
komst ég að þvi, aö við stöndum
þarlendum langt að baki hvað
varðar tengsl milli heimila og
skóla. Hér er kennurum ekki
ætlaður nægur timi til að sinna
þessum þætti skólastarfsins og
svo eru lslendingar, margir, svo
önnum kafnir að þeir hafa ekki
tima til að starfa i foreldrafé-
lögum, sem eiga að vera vett-
vangur heimilanna til að koma
sinum hugmyndum á framíæri.
Það eru þó margar blikur á lofti i
þessum efnum. Til dæmis, voru
það nokkrir félagar úr foreldra-
félagi þessa skóla, sem komu upp
skemmtilegum leiktækjum hér á
skólalóðinni.”
„Einnig vil ég gera allt sem i
minu valdi stendur til að mæta
þörfum einstaklinganna. Börnin
eru misjöfn og þau verða aö fá
tima hjá kennurunum hvert um
sig.”
„Auðvitað þarf að hafa ein-
hvern kjarna sem allir verða vera
með i. En við þurfum aö ganga en
lengra en nú er gert i að sniða
skólanna sem mest að hverjum
og einum.”
„Svo þarf skóli að vera liflegur
og skemmtilegur, þannig að
börnin verði ánægð og liði vel.
Hér er úrvals kennaralið sem allt
leggur sig fram við að láta vel til
takast, „sagði Stella áður en hún
gekk á milli bekkja iskólanum til
að sýna blaðamanni og ljós
myndara hvernig starfið i grunn-
skóla fer fram.
„Frimfnúturnar eru
skemmtilegastar.”
„Ég vil vera mikiö lengur i
skólanum á hverjum degi. Þaö er
svo gaman i friminútunum, þá
getur maöur hlaupiö um allt og
farið I boltaleiki.”
„Mér finnst lika gaman I leik-
fimi, en bækurnar eru hundleiöin-
legar”, sagði Gunnar Sölvason,
sem nér er aö hefja sitt annað
skólaár.
,,Bara timaspurs-
mál, hvenær við komum
i Timanum.”
Þeir veröa ekki i vandræöum
meö aö stoppa i sokkana sina
þessir, þegar fram liöa stundir.
Ekki var að sjá aö þeim leiddist
prjónaskapurinn. Þaö lá ljómandi
vel á þeim og annar sagði „þaö er
bara timaspursmál, hvenær viö
komum i Timanum.”
Frábært i paris.”
„Það er frábært aö leika sér i
paris, sérstaklega þegar koma
svona kallar og taka af manni
myndir „sögöu Anna, Lilja og
Maria.
„Koma myndirnar i einhverju
blaöi?” Þegar þær fengu aö vita
að þær kæmu i Timanum voru
þær staðráönar i að láta foreldra
sina kaupa Timann.
,,Geri allt sem hinir
krakkarnir gera.”
Ilún Arndis Guðmundsdóttir
lætur það ekki aftra sér frá þvi aö
taka þátt i námi og leik.þó hún
þurfi að ganga við hækjur.
„Ég geri eiginlega allt sem
hinir krakkarnir gera. Aöan var
ég úti i friminútum, þó þaö hafi
verið rok úti. Ég geng alltaf ein i
skólann, mér finnst þaö ekkert
erfitt.”
,,Ég er að smiða
kryddhyllu.”
„Ég er aö smiða kryddhyllu”
sagði Aðalheiður Kristjánsdóttir,
nemandi i 6. bekk. „Við máttum
velja hvort við smiðuðum krydd-
hillu eða sleif. Ég valdi krydd-
hilluna af þvi hún er stærri.”
Texti: —Sjó
Myndir: Róbert
■ Anna, Lilja og Marla
I
Gunnar
■ Arndis
■ A&alhei&ur
■ Stella Guömundsdóttir,