Fréttablaðið - 08.02.2008, Síða 4
4 8. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR
66,61 66,93
129,97 130,61
97,43 97,97
13,072 13,148
12,075 12,147
10,33 10,39
0,6261 0,6297
ÍSRAEL, AP Ísraelsk stjórnvöld
hyggjast setja upp vegg á
landamærunum við Egyptaland
eftir að tímabundið rof í landa-
mærum Egyptalands og Gaza
skapaði ótta við að herskáir
Palestínumenn ættu greiða leið
inn í Ísrael frá Egyptalandi.
Embættismenn greindu frá þessu
á miðvikudag en vildu ekki láta
nafns síns getið þar sem ákvörð-
unin var tekin á trúnaðarfundi.
Vegna fjalllendis mun landa-
mæraveggurinn ekki ná yfir öll
landamærin sem eru 230 kíló-
metra löng og verða skynjarar
settir upp þar sem veggurinn
hættir. - sdg
Ótti við komu árásarmanna:
Ísrael vill vegg
á landamærum
TYRKLAND, AP Tyrkneska þingið
samþykkti í gær stjórnarskrár-
breytingu um að bann við notkun
höfuðklúta í háskólum landsins
yrði afnumið. Stjórnarskrár-
breytingin tekur gildi ef þingið
samþykkir hana í annarri
atkvæðagreiðslu, sem fer fram á
laugardaginn.
Áform þingsins um afnám
bannsins eru afar umdeild í
Tyrklandi. Stjórnkerfi landsins
hefur áratugum saman byggst á
aðskilnaði trúar og stjórnmála, og
nýtur sú skipan víðtæks stuðn-
ings í landinu.
Ríkisstjórnin, sem hefur
yfirgnæfandi meirihluta á þingi,
telur hins vegar bannið skerða
trúfrelsi múslima. - gb
Tyrkneska þingið:
Höfuðklútar
verða leyfðir
ATKVÆÐI GREIDD Recep Tayyip Erdogan
forsætisráðherra setur atkvæðaseðil í
kjörkassa þingsins. NORDICPHOTOS/AFP
! #
$
%
&
& '
# (! %'
)
#
$
*+,
-.
/+,
-.
0+, -.
1+,
-.
2+, 30+,
34+,
34+, -.
*+, -.
/+,
-.
2+, -.
/+,
32+,
33+,
53+,
!
"##"$
%&'&
("
)
#
$"'
$
!!!
!* ! *#+
! #
,-
.
/##'
*
/##"$# !0
1'
#)$!
#
'
$!0
2-"!
,""
3"#
" 2-*
#
!
!!
,4
"5'
"$*
*6$
!#4#
47!
'
!0
872
3""
")*!"
)
*+
47"$
"#
$!
"$
#
!
.6*$
! 6$$!0
9:;< = ;
> =? !
"##"$ .$$+
"$#
)
!* ! *#0
!$!
'@
"$!*0
346327
346327
/!*##
0
* "" +
#46! *#
A
8
2
8
1
1
1
1
39
*
30
31
A '
A
A
A
A %
FÓLK Meirihluti bæjarstjórnar
Voga á Vatnsleysuströnd neitaði að
samþykkja tillögu minnihlutans um
að lýsa stuðningi við hjónin Ragnar
Óskarsson og Björgu Ólöfu
Bjarnadóttur vegna framgöngu
þeirra við erfiðar aðstæður. Þau
ráku af höndum sér handrukkara
sem voru að innheimta fíkniefna-
skuld sonar þeirra.
„Mesta og besta viðurkenning
sem þeim hjónum Ragnari og
Björgu getur hlotnast hlýtur að
vera sú aukna áhersla sem
meirihluti bæjarstjórnar leggur á
forvarnir í sveitarfélaginu í kjölfar
erfiðrar lífsreynslu þeirra,“ sagði
meirihlutinn. - gar
Afturreka handrukkarar:
Bærinn styður
ekki foreldrana
DÓMSMÁL „Niðurstaðan er von-
brigði en Hæstiréttur hefur talað,“
sagði Kristinn Hallgrímsson, lög-
maður Kers, áður Olíufélagsins,
eftir að Hæstiréttur hafði dæmt
Skeljung, Ker og Olís til þess að
greiða Reykjavíkurborg um 79
milljónir króna vegna samráðs
félaganna fyrir útboð á vegum
borgarinnar, nánar tiltekið Véla-
miðstöðvarinnar, og Strætós bs. á
sumar- og haustmánuðum 1996.
Um 73 milljónir eru vegna sam-
ráðs fyrir útboð á vegum borgar-
innar en tæplega sex milljónir
vegna samráðs á vegum Strætós
bs., áður Strætisvagna Reykjavík-
ur. Til viðbótar bætast vextir frá 4.
apríl 2002.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lög-
maður Reykjavíkurborgar, var
sáttur við niðurstöðuna. „Þetta er
ánægjuleg niðurstaða en eftir sem
áður er ljóst að sönnun er erfið í
málum sem þessum,“ sagði Vil-
hjálmur.
Upphaf málsins má rekja til rann-
sóknar samkeppnisyfirvalda sem
hófst með húsleit í höfuðstöðvum
félaganna 18. desember 2001. Rann-
sóknin leiddi til þess að félögin voru
dæmd til þess að greiða 1,5 millj-
arða króna í stjórnvaldssektir.
Á grundvelli gagna sem aflað var
við rannsóknina þótti forsvars-
mönnum Reykjavíkurborgar og
Strætós bs. ljóst að samráðið hefði
valdið skaða.
Óumdeilt var í málinu að olíu-
félögin höfðu með sér samráð og
greiddi Skeljungur, sem Reykjavík-
ur borg beindi viðskiptum sínum til
eftir útboðið, hinum félögunum hlut
af söluhagnaðinum. Í dómi Hæsta-
réttar kemur fram að Skeljungur,
Olís og Ker hafi „ekkert fært fram í
málinu, sem staðið gæti í vegi þeirri
ályktun að tilgangur þessa alls að
halda viðskiptum Reykjavíkurborg-
ar hjá Skeljungi gegn verði sem
ekki hefði staðist boð Kers og Olís
ef reglur samkeppnislaga hefðu
verið virtar í skiptum þeirra.“
Gísli Baldur Garðarsson, lögmað-
ur og stjórnarformaður Olís, sagði
þetta mál vera einstakt. „Þetta er á
margan hátt einstakt mál þar sem
brotin í þessu samráði var óumdeilt
og viðurkennt. Það sem er jákvætt í
þessu er að vextir eru færðir veru-
lega niður en það er óljóst hvort
þessi dómur hafi áhrif á önnur
mál.“
Bæturnar sem dæmdar voru
borginni byggðu á varakröfu
Reykjavíkurborgar en hún tók mið
af þeim fjárhæðum sem Skeljungur
skuldbatt sig til þess að greiða Olís
og Ker á tímabilinu 1996 til 2001.
Nokkur mál eru nú til meðferðar
í dómskerfinu vegna samráðs olíu-
félaganna. Þar á meðal eru bótamál
Alcan, Vestmannaeyjabæjar,
ís lenska ríkisins, útgerðarfélagsins
Dala-Rafns og Sigurðar Hreins-
sonar. magnush@frettabladid.is
Olíufélögin dæmd
til að greiða bætur
Hæstiréttur dæmdi í gær olíufélögin til þess að greiða Reykjavíkurborg og
Strætó bs. um 79 milljónir króna í bætur vegna samráðs félaganna fyrir útboð
árið 1996. Þetta er fyrsti hæstaréttardómurinn sem fellur vegna samráðsins.
LÖGMENN GANGA ÚT ÚR SALNUM Gísli Baldur Garðarsson, Vilhjálmur H. Vilhjálms-
son og Kristinn Hallgrímsson sjást hér ganga úr dómsal Hæstaréttar eftir að dómur
var kveðinn upp. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
VIÐSKIPTI Stjórn SPRON segir Fjár-
málaeftirlitið (FME) hafa bannað
að upplýsingar um sölu stjórnar-
manna í SPRON væru gerðar opin-
berar. Í yfirlýsingu sem stjórn
SPRON sendi frá sér í gær kemur
fram að FME hafi „ekki heimilað
birtingu viðskipta innherja í
SPRON“.
Hildur Petersen, stjórnarfor-
maður SPRON, seldi stofnfjárbréf
eftir stjórnarfund félagsins 17. júlí
fyrir um 7,2 milljónir að nafnvirði.
Hluti af þeim fór til dóttur hennar
eins og fram kom í Fréttablaðinu í
gær.
Ítrekað er í yfirlýsingunni að
stjórn SPRON hafi viljað gera upp-
lýsingarnar opinberar en ekki
getað það.
Fyrirtæki tengt Gunnari Þór
Gíslasyni, Sundagarðar hf., seldi
stofnfjárbréf fyrir um 188 milljón-
ir að nafnvirði og Ásgeir Baldurs
seldi stofnfjárhluti fyrir 271 þús-
und að nafnvirði. Gunnar Þór og
Ásgeir eru báðir stjórnarmenn í
SPRON.
Í yfirlýsingunni kemur fram að
stjórn SPRON hafi „vitaskuld fulla
trú á fyrirtækinu“ og sala stjórnar-
manna á stofnfjárbréfunum án
þess að það hafi verið gert opin-
bert hafi ekki tengst því að bréfin
hafi verið á yfirverði, miðað við
verðmat Capacent á fyrirtækinu
upp á 60 milljarða.
Stjórnin segist enn fremur und-
irstrika að „ástæður þess að stjórn-
armenn seldu hluta af stofnfjár-
eign sinni á þessu tímabili voru
fyrst og fremst persónulegar“. - mh
Stjórnarmenn í SPRON segja Fjármálaeftirlitið hafa bannað upplýsingagjöf:
Vildu upplýsa en gátu ekki
UPPGJÖR KYNNT Guðmundur Hauksson,
forstjóri SPRON, sést hér kynna uppgjör
félagsins.
SVEITARSTJÓRNIR Fulltrúi minni-
hlutans í byggðaráði Borgarbyggð-
ar segist hafa miklar áhyggjur af
væntanlegum fráveitufram-
kvæmdum Orkuveitu Reykjavíkur.
„Líkur eru á að Borgarnes verði
sundurgrafið næstu tvö sumur. Því
þarf að setja ströng ákvæði um
framkvæmdahraða og fram-
kvæmdatíma á einstökum stöðum
til að lágmark þau óþægindi sem af
þessum framkvæmdum stafa,“
segir í bókun byggðaráðsfull-
trúans.
Að sögn fulltrúa meirihlutans
mun framkvæmdasvið bæjarins
verða í nánu samstarfi við OR til að
draga úr óþægindum. - gar
Áhyggjur í Borgarnesi:
Sundurgrafinn
bær í spilunum
BORGARNES Framkvæmdir við fráveitu
standa fyrir dyrum.
TÆKNI Farsímanotkun eykur ekki
líkurnar á heilakrabbameini,
segja vísindamenn við kvenna-
háskólann í Tókýó í Japan.
Samkvæmt rannsókn sem var
nýlega birt í British Journal of
Cancer fundust engin tengsl á
milli reglulegrar farsímanotkun-
ar og aukinnar hættu á þremur
algengustu tegundum heila-
krabbameins. Þetta kemur fram á
fréttavef BBC. - sþs
Japanskir vísindamenn:
Farsímar skaða
ekki heilann
GENGIÐ 07.02.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
128,5455
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
105,26 105,88
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR