Fréttablaðið - 08.02.2008, Side 30
Útgáfufélag 365 prentmiðlar
Ritstjóri Marta María Jónasdóttir
martamaria@365.is
Bergþóra Magnúsdóttir
bergthora@365.is
Forsíðumynd Anton
Útlitshönnun
Arnór Bogason og
Kristín Agnarsdóttir
Auglýsingar Guðný Gunnlaugsdóttir
gunnyg@365.is sími 512 5462
Föstudagur Skaftahlíð 24
105 Reykjavík, sími 512 5000
Helgin 8.-10. febrúar
FÖSTUDAGUR
V
ið keyptum Laugarásveg 21
á síðasta ári og fengum húsið
afhent 1. febrúar og erum
því ekki alveg búin að setja
niður fyrir okkur hvaða breyting-
ar við munum gera,“ upplýsir Ólöf
Nordal, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, en hún og eiginmaður
hennar, Tómas Sigurðsson forstjóri
Alcoa á Reyðarfirði, keyptu húsið
af ferðamálafrömuðnum Ingólfi
Guðbrandssyni. Húsið fór á sölu
hjá fasteignasölunni Eignamiðl-
un síðasta sumar en Ingólfur vildi
minnka við sig í fermetrafjölda
og er nú fluttur í íbúð á einni hæð.
Laugarásvegur 21 hefur lengi verið
talið eitt af fallegri húsum Laugar-
ássins en Valgerður Mattíasdóttir
fór í innlit til Ingólfs fyrir nokkr-
um misserum þar sem þjóðin fékk
tækifæri til að sjá einstakt heim-
ili hans. „Mín upplifun á heimsókn-
inni til Ingólfs í þetta sérstaka hús
var mjög skemmtileg vegna þess
að húsið endurspeglaði svo vel eig-
andann og var persónulegt,“ sagði
Vala Matt þegar hún var beðin um
að lýsa húsi Ingólfs. „Ég vona inni-
lega að þeir sem keyptu þetta sér-
stæða hús eyðileggi ekki of mikið
af upprunalegu innréttingunum
sem eru mjög skemmtilegar og
hafa staðist tímans tönn,“ bætir
Vala við. Húsið var byggt árið 1959
og hafa allar innréttingar hússins
fengið að halda sér frá upphafi.
Húsið er rúmir 300 fermetrar að
stærð, hátt til lofts og vítt til veggja
og því ætti ekki að væsa um fjöl-
skylduna í húsinu. Ólöf og Tómas
eiga saman fjögur börn en þau
eiga alveg eftir að koma sér fyrir
í húsinu. „Við ætlum okkur ekki að
gera neinar stórkostlega breyting-
ar á húsinu enda er húsið er mjög
sérstakt og við munum halda því
áfram í þeirri mynd,“ sagði Ólöf
alsæl með nýja húsið og staðsetn-
inguna en Ólöf sleit barnsskónum á
Laugarásveginum. „Ég ólst nánast
upp í næsta húsi við Laugarásveg
21 en ég bjó fyrir neðan húsið og
eyddi þar barnæskunni og því
er þetta hverfi í miklu uppáhaldi
hjá mér.“ Ólöf og Tómas eyða
þó flestum stundum sínum í húsi
sínu á Reyðarfirði þar sem þeirra
aðalheimili er. „Það skiptir okkur
miklu máli að eiga athvarf hér í
Reykjavík vegna starfs mín og við
höfum rekið tvö heimili á sitt hvor-
um staðnum í áraraðir. Þegar hús
Ingólfs fór á sölu ákváðum við hins
vegar að selja húsið okkar á Sel-
tjarnarnesi og kaupa þetta í stað-
inn enda er þetta draumastaðsetn-
ingin okkar,“ segir Ólöf að lokum.
bergthora@frettabladid.is
Ævintýravilla Ingólfs Guðbrandssonar er komin í hendurnar á Ólöfu Nordal og fjölskyldu
Ætla að breyta sem minnstu
þú kemst
ekki í gegnum
vikuna ...
...nema þú áttir þig á því að grænn
er hinn nýi svarti. Það er ekki nóg að
borða bara lífrænt og flokka ruslið, þú
verður að reyna að hemja neysluna. Ef
þú veist ekki hvernig þú átt að fara að
því fjárfestu þá í bókinni „Green is the
new black“ eftir Tamsin Blanchard en
hún fæst á amazon.com.
... nema þú
kaupir þér hveiti-
graspressu og
kassa af hveiti-
grasi. Svo verð-
ur þú að gefa
þér tíma til að
massa þetta
og koma jafn-
vægi á líf þitt í
skamm deginu.
... nema þú
uppgötvir hvað
klæðir þig best.
... nema þú náir
púlsinum upp
með þrekæfing-
um. Það brennir
enginn kaloríum
með því að
labba löturhægt
á brettinu í
World Class.
... nema þú
skráir þig á
Facebook.
Tímaeyðsla
hvað???
Vala MattÓlöf
Nordal
Ingólfur GuðbrandssonTómas
Sigurðsson
Glæsivillan að Laugarásvegi 21 hefur
nú skipt um eigendur. Húsið er mjög
sérstakt en fyrrum eigandi þess, Ingólfur
Guðbrandsson, lagði mikla alúð og natni
í að gera það eins sjarmerandi og hugs-
ast getur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
2 • FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008
MORGUNMATURINN: Fátt er notalegra en að setj-
ast á olíuhjúpaða bakka Tígris, dýfa þreyttum fótum
í grábrúnt vatnið og maula nýveiddan masgouf, grill-
aðan á staðnum.
SKYNDIBITINN: Þegar maður kemur heim eftir
erfiðan dag í eyðimörkinni er gott að grípa með sér
gómsætan dolma-vafning, með auka gúrku.
UPPÁHALDSVERSLUN: Leikfangaverslunin Uzi
does it á Abu Nuwas stræti hefur alltaf verið í miklu
uppáhaldi.
LÍKAMSRÆKTIN: Hópar fjörugra og uppátekta-
samra skæruliða sjá til þess að maður er stöðugt á
heilsusamlegum hlaupum milli staða.
RÓMÓ ÚT AÐ BORÐA: Það jafnast ekkert á við að sitja undir
stjörnubjörtum himni í hinum fornfræga dýragarði Bagdadbúa;
sötra alkóhólfrítt rauðvín, slafra
í sig blóðugu Tikka og fylgj-
ast með öpunum við leik
og störf – altsvo þeim fáu
sem ekki voru sprengdir í
loft upp eða voru étnir af
sársoltnum almúganum
eftir innrás Íslendinga
og bandamanna þeirra
hérna um árið.
BEST VIÐ BORGINA:
Heillandi suðupottur
mannlífs og menningar-
heima í stöðugri endur-
nýjun – sem er auk þess í
öruggri fjarlægð frá Íslandi.
FÖSTUDAGUR: Frumsýning Íslensku óperunnar á La traviata í leikstjórn Jamie
Hayes. Fullkomið upphaf að góðri helgi. • Þorrinn verður blótaður á Prikinu á
föstudagskvöldinu með tilheyrandi þorramat og stemningu en þetta er annað árið
í röð sem blótið er haldið þar. • Ljósmyndasýning á vegum Ljósmyndakeppni.is
verður opnuð í hesthúsinu í Viðey, á bak við Viðeyjarstofu, kl. 19.00. Sama kvöld
verður kveikt á friðarsúlunni í Viðey á milli klukkan 19-01 í tilefni af Vetrar hátíð. •
LAUGARDAGUR: Haldið verður þriggja klukkutíma námskeið í hláturjóga í Manni
lifandi en námskeiðið hefst klukkan 11.00.
„Það verður brjálað að gera hjá mér um helgina. Ég er að fara að útskrifast með BA-gráðu í
heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði frá Háskólanum á Bifröst á laugardag, þ.e.a.s. ef veður
leyfir! Ætli föstudagurinn fari ekki mestmegnis í að undirbúa veisluna. Svo er það spurning með
sunnudaginn. Ég læt það bara ráðast.“
HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ GERA UM HELGINA?
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, ritstjóri Skessuhorns.
borgin mín
BRAGI VALDIMAR SKÚLASON Baggalútur
BAGDAD