Fréttablaðið - 08.02.2008, Page 58
26 8. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
MERKISATBURÐIR
1924 Nevada varð fyrsta ríki
Bandaríkjanna til að taka
mann af lífi með gasi.
1925 Halaveðrið. Tveir togarar
farast á Halamiðum, Leif-
ur heppni og Robert son.
Með þeim farast 68
menn. Einnig ferst vél-
bátur með sex mönnum.
Fimm manns verða úti.
1980 Ríkisstjórn Gunnars Thor-
oddsen tekur við völd-
um og situr í þrjú ár. Að
stjórninni stóðu Alþýðu-
bandalag, Framsóknar-
flokkur og Sjálfstæðis-
flokkur.
1998 Fyrsti íshokkíleikur kvenna
á Ólympíuleikum fer fram.
Finnland sigrar Svíþjóð
6-0.
2005 Ísrael og Palestína sam-
þykkja vopnahlé.
JAMES DEAN FÆDDIST
ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1931.
„Láttu þig dreyma eins og að þú
munir lifa að eilífu. Lifðu eins og
þú munir deyja á morgun.“
James Dean var bandarískur
kvikmyndaleikari og er hvað best
þekktur fyrir leik sinn í myndinni
Rebel Without a Cause, þar sem
hann leikur vandræðapiltinn Jim
Stark. Á stuttum ferli lék Dean á
móti leikurum á borð við Buddy
Holly, Bruce Lee og Marilyn Mon-
roe. Hann lést af slysförum árið
1955, 24 ára að aldri.
Þennan dag árið 1971
tók Nasdaq-kauphöllin
til starfa. Nasdaq, sem
er skammstöfun fyrir
National Association of
Securities Dealers Auto-
matic Quotation, er önnur
af tveimur af helstu
kauphöllum Bandaríkj-
anna. Ríflega fjögur þús-
und fyrirtæki eru skráð á
Nasdaq og þar fara fleiri
viðskipti fram en í nokkr-
um öðrum kauphöllum í
Bandaríkjunum.
Samkvæmt Vísinda-
vef Háskóla Íslands eru
reiknaðar út ýmsar hluta-
bréfavísitölur fyrir bréf
sem eru skráð á Nasdaq, til
dæmis svokölluð Nasdaq
Composite-vísitala sem
byggir á verði hlutabréfa
allra þeirra fyrirtækja sem
skráð eru í kauphöllinni.
Kauphallir eru í grunninn
frekar einföld fyrirbrigði eða
vettvangur þar sem kaup-
endur og seljendur verð-
bréfa eiga viðskipti. Nasdaq
varð fyrsta kauphöllin til að
taka upp rafræn viðskipti en
kauphöllin tók við af OTC-
kerfinu svokallaða (over-the-
counter) en þá hittist fólk
til að eiga viðskipti upp á
gamla mátann, það er augliti
til auglitis.
ÞETTA GERÐIST: 8. FEBRÚAR 1971
Nasdaq tekur til starfa
Ragnar Michelsen hefur verið einn
af máttarstólpum Breiðholts síðast-
liðna þrjá áratugi. Hann hefur rekið
Blómabúð Michelsen í Hólagarði í 27
ár og er vel þekktur meðal Breiðholts-
búa. „Fólkið lítur á mig sem mublu
hér í Hólunum. Það hefur leitað til
mín í gleði og sorg og þá jafnt ungir
sem aldnir,“ segir Ragnar en ungling-
arnir í hverfinu hafa löngum sótt til
hans og átt athvarf í búðinni. „Litlu
krakkarnir kalla mig stundum afa og
það er mjög vinalegt.“
Ragnar segir að sér hafi farnast
sérstaklega vel í Breiðholtinu. „Ég
hef fylgst með uppbyggingu hverfis-
ins og uppgangi og séð tvær kynslóð-
ir vaxa úr grasi,“ lýsir hann. Nú hefur
hann hins vegar ákveðið að selja búð-
ina sökum heilsubrests. Það eru tvær
Breiðholtsmeyjar sem munu taka við
en þær eru uppaldar í hverfinu og
þekkja viðskiptavini Ragnars vel.
„Ég veit að þær munu halda nafni
mínu á lofti,“ segir Ragnar en versl-
unin mun framvegis heita Englar og
rósir. „Ég mun líka vera þeim innan
handar og sjá um útfararskreytingar
en ég er sérlærður í því fagi og í ár
eru einmitt fimmtíu ár síðan ég gerði
mína fyrstu kistuskreytingu,“ rifjar
Ragnar upp. „Ég var þá fjórtán ára
og faðir minn, Paul V. Michelsen, var
að vinna á Bessastöðum hjá Sveini
Björnssyni forseta. Hann hringdi í
mig á föstudegi og spurði hvort ég
gæti klárað skreytingu úti í Kot-
strandarkirkju. Ég sagði að það væri
nú lítið mál og held ég að þetta hafi
bara verið reglulega falleg skreyt-
ing hjá mér.“ Ragnar segist getinn í
blóma, fæddur í blóma, hafa starfað
í blóma og að hann ætli sér að deyja
í blóma. Hann sleit barnsskónum í
Blómaskála Michelsen í Hveragerði,
sem faðir hans rak, og fylgdi föður
sínum ungur að árum í heimahús til
að skreyta kistur. „Ég var því vanur
að sjá lík þegar ég fór utan til Dan-
merkur að læra fjórtán ára gamall.
Ég lenti í Kaupmannahöfn um hádegi
og klukkan hálf tvö var ég kominn
upp í líkhús en húsbóndi minn og læri-
meistari sá á þeim tíma um 82 prósent
af útfararþjónustu Stór-Kaupmanna-
hafnarsvæðisins. Hann sagði best að
byrja á því versta og ætlaði líklega
að hræða mig en það tókst ekki því
ég var vanur að heiman,“ útskýrir
Ragnar. Hann hefur síðan sérhæft
sig í útfararskreytingum og auk þess
starfað sem líksnyrtir.
Ragnar segist þakklátur Breið-
hyltingum og öðrum viðskiptavinum
sínum alla velvild í sinn garð í gegn-
um árin og mun áfram vera viðriðinn
fagið þótt hann hafi nú sagt skilið við
reksturinn. vera@frettabladid.is
RAGNAR MICHELSEN: SELUR BLÓMABÚÐ SÍNA Í BREIÐHOLTI EFTIR 27 ÁR
Umkringdur blómum alla tíð
UMKRINGDUR BLÓMUM Ragnar hefur starfað sem blómaskreytingamaður í fimmtíu ár og eru
jafn mörg ár síðan hann gerði sína fyrstu kistuskreytingu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Lilja Jóelsdóttir
frá Siglufirði,
lést á sjúkrahúsinu á Akranesi 6. febrúar. Jarðarförin
auglýst síðar.
Marteinn Þór Kristjánsson Ásta Óla Halldórsdóttir
Jóel Kristjánsson Helga Sigurrós Bergsdóttir
Bryndís Hrönn Kristjánsdóttir Þórólfur Tómasson
Kristján Haraldur Kristjánsson Margrét Þorvaldsdóttir
Guðni Kristjánsson Kristbjörg Kemp
Jónína Hafdís Kristjánsdóttir Guðmundur Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
Sigrid Österby
Dunhaga 15, Reykjavík.
Atli Konráðsson Anne Berit Valnes
Sif Konráðsdóttir Ólafur Valsson
Huld Konráðsdóttir Sigurður Tómas Magnússon
Ari Konráðsson Þóra Guðmundsdóttir
Andri Konráðsson
og barnabörn.
85 ára afmæli
Í tilefni af 85 ára afmæli mínu tek ég á
móti gestum í Ekru þann 9. febrúar frá
kl. 15.00 - 19.00
Listmunir, kaffi og skemmtilegheit.
Allir velkomnir
Unnur
Kristjánsdóttir
frá Lambleiksstöðum
Ástkær eiginkona mín, systir okkar, móðir,
tengdamóðir, amma, langamma, langa-
langamma,
Anna Egilsdóttir
frá Ísafirði
lést þann 30. janúar sl. á Landspítalanum. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Fyrir hönd aðstandenda
Griffith James Scobie
Elskulegur faðir minn og bróðir okkar,
Kristinn Kristjánsson
Miklubraut 88,
er látinn.
Vilberg Kristinsson
Ása Kristjánsdóttir
Margrét Kristjánsdóttir
Ingibjörg Kristjánsdóttir
Símon Kristjánsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við
andlát og útför móður okkar, tengdamóð-
ur, ömmu og langömmu,
Guðrúnar Jónsdóttur
Dvalarheimilinu Hlíð, áður Ránargötu 27,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Hlíð fyrir góða
umönnun og vináttu við hina látnu.
María Elínborg Ingvadóttir
Herdís Ingvadóttir
Jón Grétar Ingvason Hjördís Arnardóttir
Bjarni Rafn Ingvason Rósa Þ. Þorsteinsdóttir
Áslaug Nanna Ingvadóttir
Ingvi Júlíus Ingvason Unnur Björnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn,
Benedikt Thorarensen
Þorlákshöfn
verður jarðsunginn frá Þorlákskirkju laugardaginn
9. febrúar kl. 14. Blóm afþökkuð en vinsamlegast látið
heldur líknarstofnanir og góð málefni njóta.
Guðbjörg Magnúsdóttir Thorarensen
Elskuleg móðir okkar, dóttir mín, systir
okkar og frænka,
Linda María Bellere
Granaskjóli 34, 107 Reykjavík,
lést á heimili sínu 2. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar.
Eva Dögg Hallgrímsdóttir
Jón Kristófer Fasth
Anna Norris
Jónas James Norris
Jo Ann Önnudóttir
Antony Lee Bellere
Gunnar Þór Norris Helena Norris
og frændsystkini.