Fréttablaðið - 08.02.2008, Qupperneq 66
34 8. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Steinþór Helgi Arnsteinsson
Fyrstu mánuðir ársins fara oft í að kynna
til sögunnar þá nýliða sem þykja líkleg-
astir til afreka á nýju ári. Hljómsveitir af
Brooklyn-senunni eru áberandi í ár. Trausti
Júlíusson skoðaði nokkrar þeirra og staldr-
aði sérstaklega við hljómsveitina Vampire
Weekend.
Brooklyn hefur verið töluvert í tónlistarumræðunni
síðustu ár. DFA-útgáfan hefur þar aðsetur og sveitir
eins og TV on the Radio, Black Dice, Yeah Yeah Yeahs
og LCD Soundsystem hafa haldið uppi merkjum
umdæmisins. Nú er hins vegar komin fram ný og
öflug Brooklyn sena sem einkennist af tilrauna-
mennsku og kraumandi sköpunargleði. Þátttakendur
þessarar nýju bylgju eiga það sameiginlegt að hafna
rokkklúbba-senunni á Manhattan sem þeir segja vera
dauðhreinsaða og fasta í úreltum klisjum. Margir
tónleikar eru haldnir á óhefðbundnum tónleikastöð-
um, t.d. listgalleríum, matsölustöðum eða verksmiðju-
sölum.
Skólafélagar úr Kólumbíuháskóla
Meðal þeirra sveita sem mest er talað um þessa
dagana eru sýruhausarnir í Yeasayer, soft-rokk
rafpoppsnillingarnir í MGMT, Dirty Projectors sem
er stórvirki Dave Longstreth, Íslands- og Airwaves-
vinirnir í Grizzly Bear, gítarhávaðasveitin A Place to
Bury Strangers og svo menntamanna poppsveitin
Vampire Weekend sem er nýbúin að senda frá sér sína
fyrstu plötu samnefnda sveitinni.
Vampire Weekend er fjögurra manna sveit, skipuð
Ezra Koenig söngvara og gítarleikara, Rostam
Batmanglij hljómborðsleikara, Chris Baio bassaleik-
ara og Chris Tomson trommuleikara. Sveitin var
stofnuð árið 2006 þegar þeir voru allir við nám í
Columbia-háskóla, en þó að sveitin hafi ekki verið
stofnuð í Brooklyn þá er hún gjarnan talin til Brook-
lyn-senunnar. Ezra er frá Bed-Stuy hverfinu í
Brooklyn og var um tíma herbergisfélagi fyrrnefnds
Daves Longstreth úr Dirty Projectors og Vampire
Weekend hefur líka mikið spilað í Brooklyn.
Tær gítarhljómur afríkupoppsins
Vampire Weekend vakti fyrst athygli á nokkrum
tónlistarbloggsíðum, þ.á.m. Stereogum. Hún hafði
sjálf gefið út einhverjar upptökur frá Columbia-
tímanum en gerði nú í haust samning við XL-
plötufyrirtækið sem er eitt af framsæknustu og
flottustu plötufyrirtækjunum í dag eins og ég þreytist
seint á að endurtaka og hefur á sínum snærum
listamenn eins og White Stripes, M.I.A., Basement
Jaxx, Dizzee Rascal, Devandra Banhart og Radiohead.
Fyrsta plata Vampire Weekend kom út hjá XL í
síðustu viku og hefur fengið frábæra dóma. Tónlistin
er indípopp með áhrifum víða að, m.a. frá afrískri
tónlist. Þetta er samt ekkert afró-beat (önnur
Brooklyn-sveit sér um þá deild – Íslandsvinirnir í
Antibalas – heldur eru áhrifin frá afrísku poppi, t.d.
suðurafrísku soukous-poppi, Kongó-rúmbu og
afríkuskotna poppinu hans Pauls Simon. Fyrsta lagið
með Vampire Weekend sem vakti athygli var Cape
Cod Kwassa Kwassa en byrjunin á því hljómar ekki
ólíkt Egyptian Reggae með Jonathan Richman. Það
sem Ezra segist m.a. sækja í afríska poppið er hreini
og tæri gítarhljómurinn.
Arkitektúr og greinarmerkjasetning
David Byrne, fyrrum forsprakki Talking Heads, er
mikill aðdáandi Vampire Weekend. Það sem Byrne og
Ezra Koenig eiga m.a. sameiginlegt eru skemmtilegir
textar. Fyrsta smáskífulag Vampire Weekend heitir
Mansard Roof sem er fagheiti úr byggingalistasög-
unni yfir ákveðna gerð af húsþaki. Lagið Oxford
Comma fjallar um greinarmerkjasetningu og víða má
heyra skemmtilegar hendingar og tilvísanir sem sýna
að meðlimir sveitarinnar eru ekkert feimnir við að
láta hlustendur vita að þeir hafi gengið í skóla.
Vampire Weekend er að mínu mati frábær plata.
Ótrúlega fersk og skemmtileg og harðneitar að
yfirgefa spilarann...
Tónlistarmaðurinn KK er að undir-
búa tónleika sem hann vonast til að
halda í Íslensku óperunni í maí.
Verða þeir teknir upp og gefnir út á
DVD-mynddiski síðar á árinu.
„Þetta er eitthvað sem mig hefur
langað til að gera rosalega lengi,
halda svona yfirlitstónleika og
setja á DVD. Ég fann hjá mér ein-
hverja knýjandi þörf til að gera
þetta,“ segir Kristján Kristjáns-
son, KK. „Það verður ekkert til
sparað en samt á ekkert að fara í
eitthvað óþarfa dót eins og Sinfón-
íuhljómsveitina,“ segir hann og
hlær. „Mig langar að fá fólk að utan
sem var með mér þegar ég gerði
Lucky One-plötuna og taka eitt
„rythm and blues-session“ með
hornum og svo „hillbillie-session“
með alvöru banjóleikara. Mig lang-
ar að gera þetta að skemmtilegu
kvöldi.“
KK segist hafa valið Íslensku
óperuna, eða Gamla bíó, vegna
þess hversu vel hún hentaði fyrir
myndræna þáttinn. „Þetta er glæsi-
leg höll og skemmtileg,“ segir KK,
sem hafði ekki áhuga á stórum
tónleikum í Laugardalshöll. „Mér
finnst hún of stór. Við myndum
frekar halda fleiri tónleika í Gamla
bíói.“ KK er einnig að undirbúa
nýja sólóplötu sem kemur líklega
út um svipað leyti og tónleikarnir
verða haldnir. - fb
Yfirlitstónleikar á DVD-disk
KK Tónlistarmaðurinn KK er að undirbúa
tónleika sem hann ætlar að gefa út á
DVD-mynddiski.
Raftónleikar hafa verið fastur liður á
Myrkum músíkdögum, tónlistarhátíð
Tónskáldafélags Íslands, um langt
árabil. Raunar eru frumkvöðlarn-
ir að Myrkum músíkdögum, þeir
Atli Heimir Sveinsson og Þor-
kell Sigurbjörnsson, líka braut-
ryðjendur í raftónlist, ásamt
Magnúsi Blöndal Jóhannssyni.
Raftónlist hefur á síðari árum
teygt sig yfir í þann geira dæg-
urtónlistar sem sinnir mest til-
raunum. Því hefur hópurinn sem
sækir hina árlegu raftónlistartón-
leika hinna menntuðu tón-
skálda alltaf verið ærið
bland aður og stuð á mannskapnum.
Í þetta sinn verða raftónleikarnir í Saln-
um í Kópavogi og hefjast kl. 22 í
kvöld. Sem fyrr er dagskráin
rafræn; víðóma og fjölóma
(surround) verk sem og
gagnvirk tónlist. Meðal
verka sem flutt verða í
kvöld eru fjögur ný stutt
verk eftir Ríkharð H.
Friðriksson, tónlistar-
gjörningurinn Hanaegg
eftir Þuríði Jónsdóttur og
Ólöfu Nordal, óður til
íslenskrar náttúru eftir
Rúnar og Þórhall
Magnússyni undir nafninu
„SameSameButDifferent“
og ný tónlist eftir Kjartan
Ólafsson. - pbb
Raftónlist í kvöld
TÓNLIST Kjartan Ólafsson á ný
verk á árlegum raftónlistartónleik-
um Myrkra músíkdaga.
Kraumandi sköpunar-
gleði Brooklyn-senunnar
VAMPIRE WEEKEND Ein heitasta sveitin í dag spilar indí með
áhrifum frá afrísku soukous-poppi
A Place To Bury Strangers
Antibalas
Black Dice
Dirty Projectors
Dragons of Synth
Effibriest
Grizzly Bear
LCD Soundsystem
MGMT
The Muggabears
Vampire Weekend
TV on the Radio
Yeasayer
SPENNANDI FRÁ BROOKLYN
Í Bandaríkjunum, aðalheimavelli indí-tónlistargeirans, hefur gætt
áhrifa úr öllum áttum og öllum heimsálfum. Þrátt fyrir stærð sína
hefur hins vegar minnst farið fyrir Asíu af einhverjum sökum (en þá
er Japan undanskilið). Undanfarið hafa hins vegar þrjár hljómsveitir
látið á sér kræla sem allar eiga rætur sínar að rekja til Austur-Asíu en
sá heimshluti hefur ekki verið sérstaklega hávær né umfangsmikill í
indí-heiminum.
Sú elsta af þessum þremur hljómsveitum heitir Dengue Fever.
Sveitin hefur gefið út plötur frá árinu 2003 en sú nýjasta, Venus on
Earth, kom út fyrir stuttu. Dengue Fever blandar saman kambódísku
poppi og vestrænu indíi og tekst nokkuð vel til. Öll lögin eru sungin á
kambódísku og til þess að auka áhrifin er blandað saman nokkrum
forvitnilegum hljóðfærum. Fyrir áhugasama má finna á MySpace-síðu
sveitarinnar (myspace.com/denguefevermusic) nokkra áhugaverða
tengla á heimasíður sem fjalla um einkar spennandi menjar kambód-
ísks popps. Jafnframt er nýlega komin út heimildamyndin Sleepwalk-
ing Through the Mekong um ferð Dengue Fever um Mekong-svæðið.
Hinar tvær hljómsveitirnar eru reyndar ekki alveg eins austur-
asískar hvað tónlistina varðar og Dengue Fever þótt þær séu vissulega
frá þessu svæði. Sú fyrri er Misha, dúett vinanna Ashley Yao og John
Chao. Yao og Chao ólust upp saman á Formósu en hittust aftur,
fimmtán árum seinna í New York, og byrjuðu að stinga saman nefjum
og semja tónlist. Nýlega kom út skífan Teardrop Sweetheart og má þar
finna margt verulega vænt.
Önnur sveit, Thao with The Get Down Stay Down, hefur hina
þroskuðu en ungu Thao Nguyen í forsvari. Nguyen kemur frá Víetnam
þó svo að tónlist hennar beri þess vart vott. Nýja plata hennar og The
Get Down Stay Down, We Brave Bee Stings and All, kom út á dögunum
á vegum Kill Rock Stars og hefur fengið fína dóma. Því er vonandi að
þeir dómar og fyrrnefndar plötur með ofannefndum sveitum verði til
þess að vegsemd Austur-Asíu verði jafnvel enn meiri innan indí-
geirans.
Austur-Asíu indí
> Plata vikunnar
Daft Punk - Alive 2007
★★★★
„Það er greinilegt að þeir Thomas
Bangalter og Guy-Manuel de
Homem-Christo hafa lagt mikið í
tónleikaferðina sína á síðasta ári.
Alive 2007 er til vitnis um það. Flott
og öðruvísi tónleikaplata.“ TJ
> Í SPILARANUM
My Summer as a Salvation Soldier - Activism
Jack Johnson - Sleep Through the Static
Lightspeed Champion - Falling of the Lavender
Bridge
Adele - 19
JACK JOHNSON ÞÓRIR GEORG JÓNSSON
Fyrirlestrar - ókeypis aðgangur
Safnið er opið frá kl. 19:00 til kl. 01:00.
20.00 Heilsufarslegir ávinningar kynlífs.
Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, hjúkrunar- og kynfræðingur.
21.00 Um Rauðarárholt – þorp í landi Reykjavíkur.
Ómar Ragnarsson, fréttamaður:
22.00 Táknmál líkamans.
Arna Björk Gunnarsdóttir, leiðbeinandi hjá JCI.
23.00 Íslenskur raðmorðingi og útsendarar Evrópu-
bandalagsins.
Ólafur Ásgeirsson, þjóðskjalavörður og sagnfræðingur.
24.00 BlazRoca – Erpur slammar og rappar.
Önnur fjölbreytt dagskrá, m.a. kvikmynd um Breiðavík
frá 1963 og sýning um Laugaveg 4 og 6.
Borgarskjalasafn Reykjavíkur
Tryggvagötu 15, 3. hæð
Auglýsingasími
– Mest lesið