Fréttablaðið - 08.02.2008, Síða 73
FÖSTUDAGUR 8. febrúar 2008 41
Danstónlistarmaðurinn DMX
Krew spilar á tvennum tónleikum
hérlendis dagana 15. og 16.
febrúar í tilefni af tíu ára afmæli
Hr. Örlygs. Fyrri tónleikarnir
verða á Organ og hinir síðari
verða á Sjallanum á Akureyri.
DMX, sem er á mála hjá
útgáfufyrirtæki Aphex Twin,
Rephlex, kom hingað fyrst fyrir
um tíu árum og spilaði þá á
eftirminnilegu klúbbakvöldi á
skemmtistaðnum Café Thomsen.
Á tónleikunum sem eru fram
undan spila með honum Terror-
disco og 90´s-drottningin Ki Ki
Ow. Forsala miða er hafin á midi.
is þar sem miðaverð er 1.000
krónur.
DMX Krew
með tónleika
DMX KREW DMX spilar á tvennum tón-
leikum hérlendis í næstu viku.
Eurobandið leggur land undir fót
um helgina og heldur til Akureyr-
ar, þar sem það býður til barna-
balls í Vélsmiðjunni. „Við
hvetjum allar Silvíur Nætur og
Eika Hauks á Akureyri til að
mæta. Krakkarnir eru rosalega
vel með á nótunum þegar kemur
að Eurovision og syngja hástöfum
með,“ segir Friðrik Ómar, sem er
framvörður sveitarinnar ásamt
Regínu Ósk.
Eurobandið hefur vakið athygli
út fyrir landsteinana fyrir að
spila eingöngu Eurovisionlög, og
eru nokkur böll í Skandinavíu á
dagskrá sveitarinnar fyrir árið.
Aðgangur á barnaballið er
ókeypis, en síðar um kvöldið mun
Eurobandið leika fyrir dansi
fullorðna fólksins fram á nótt.
Barnvænt
Euroband
BJÓÐA BÖRNUM Í DANS Eurobandið
spilar á Akureyri um helgina og heldur
sérstakt barnaball.
Rúmum fjórum árum eftir dauða
gamanleikarans Johns Ritter hafa
ættingjar hans ákveðið að höfða
mál gegn læknunum sem með-
höndluðu hann. Telja ættingjarnir
að Ritter hefði lifað ef læknarnir
tveir hefðu komið auga á hjarta-
galla hans í stað þess að telja að
hann hefði fengið hjartaáfall.
Samkvæmt málshöfðuninni
juku viðbrögð læknanna líkurnar
á að Ritter myndi deyja í stað þess
að draga úr þeim. Lögfræðingar
læknanna segja að hjartagalli sem
Ritter hafði líki eftir hjartaáfalli
og því hafi þeir ekki gert neitt
rangt.
Ekkja Ritters og fjögur börn
hans hafa þegar fengið um 900
milljónir í skaðabætur vegna
dauða leikarans, þar á meðal frá
sjúkrahúsinu þar sem hann lá.
Ættingjar höfða mál