Fréttablaðið - 20.02.2008, Blaðsíða 8
20. febrúar 2008 MIÐVIKUDAGUR
RV Unique örtrefjaræstikerfið
- hagkvæmt, vistvænt og mannvænt
Nánari upplýsingar
veita sölumenn og ráðgjafar RV
Bodil Fur,
sölumaður hjá
RV Unique í Danmörku
UniFlex II H Fiber ræstivagn
RV
U
N
IQ
U
E
02
08
02
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Eyjarslóð 5 101 Reykjavík S: 511 2200 www.seglagerdin.is
400.000,- kr.AFSLÁTTURFullt verð kr. 2.250.000,-
Tilboð kr. 1.850.000,-
Aukahlutir: Grjótgrind, markísa,
sólarsella og sjónvarpsloftnet
STÓRLÆ
KKAÐ V
ERÐ Á
NOTUÐ
UM FER
ÐAVÖG
NUM
Árgerð: 2005
Travel King 510 TKM
20
08
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
L
B
I
41
22
3
0
2.
20
08
Fjármálakvöld Landsbankans
Landsbankinn kynnir „Fimmtudagskvöld eru fjármálakvöld“,
röð fjármálanámskeiða fyrir almenning. Á námskeiðunum
fjalla sérfræðingar bankans um þætti sem lúta að fjár-
málum heimilanna, fjárfestingartækifærum og skatta-
málum. Fjármálakvöldin hefjast kl. 20 og eru öllum opin án
endurgjalds. Í boði eru kaffi og veitingar.
Dagskrá fjármálakvölda
24. jan. Höfðabakki Fjármál heimilisins
7. feb. Akranesi Fjárfestingartækifærin
21. feb. Laugavegur 77 Skattamál
6. mars Mjódd Skattamál
27. mars Vesturbær Fjárfestingartækifærin
3. apr. Ísafjörður Fjármál heimilisins
10. apr. Fjarðargata, Hafnarfj. Fjárfestingartækifærin
Á morgun í Austurbæjarútibúi, Laugavegi 77
Sérfræðingur frá Landsbankanum fer yfir helstu atriði sem
hafa áhrif á skattgreiðslur einstaklinga og hagnýt ráð gefin
við framtalsgerð.
Skráning á fjármálakvöldin fer fram á landsbanki.is eða í
Ráðgjafa- og þjónustuveri í síma 410 4000.
Nánari upplýsingar á www.landsbanki.is.
ALÞINGI Ögmundur Jónasson, þing-
flokksformaður VG, sagði þingfor-
seta hafa beitt pólitískri duttlunga-
stjórnun þegar hann ákvað tilhögun
við kynningu ríkisstjórnarinnar á
aðgerðum vegna kjarasamninga á
Alþingi í gær.
Þingfundur hófst á að Geir H.
Haarde forsætisráðherra kynnti
yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
vegna nýgerðra kjarasamninga. Í
kjölfarið tóku formenn stjórnar-
andstöðuflokkanna til máls og síð-
ust á mælendaskrá var Ingibjörg
Sólrún Gísladóttur utanríkisráð-
herra.
Að dagskrárliðnum loknum gerði
Ögmundur athugasemdir við fyrir-
komulagið og sagði þingforseta,
Sturlu Böðvarsson, hafa tekið sér
það bessaleyfi að láta fulltrúa ríkis-
stjórnarinnar hafa fyrsta og síðasta
orð umræðunnar.
Sturla sagðist ekki taka sér
bessaleyfi heldur færi hann eftir
þingsköpum. Sagðist hann jafn-
framt hafa talið að uppröðunin væri
í þágu upplýstrar umræðu.
Ögmundur hélt fast við sinn keip,
sagði eflaust hægt að deila um hug-
tök; bessaleyfi og jafnvel pólitíska
duttlunga. Sagði hann fyrirkomu-
lagið hafa þjónað best pólitískum
hagsmunum ríkisstjórnarinnar
sem reyni að slá sig til riddara á
grundvelli kjarasamninganna.
Siv Friðleifsdóttir, þingflokks-
formaður Framsóknaflokks, kom
Sturlu til varnar, sagði Ögmund
ráðast á hann með óréttmætum
hætti og umræðuna utan eðlilegra
marka. - bþs
Þingmenn VG sökuðu þingforseta um að haga umræðu í þágu ríkisstjórnarinnar:
Siv varði Sturlu í atlögu Ögmundar
FRÁ ALÞINGI Líflegar umræður spunnust
um fundarstjórn forseta. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
MIÐ-AUSTURLÖND „Konur upplifa átök á annan hátt og
hafa öðruvísi sjónarhorn á þau heldur en hið
karllæga sem yfirleitt ræður ríkjum,“ segir Anat
Saragusti. Hún, ásamt Maha Abu-Dayyeh Shamas,
fjallar um framlag kvenna til friðarferlisins í Mið-
Austurlöndum á fundi á Grand Hótel Reykjavík í
dag klukkan 12.15 í boði utanríkisráðuneytisins.
Fundurinn er öllum opinn.
Saragusti, sjónvarpskona í Ísrael, og Shamas,
baráttukona fyrir auknum réttindum kvenna í
Palestínu, eru báðar áhrifakonur í Friðarráðinu sem
var stofnað árið 2005 af áhrifakonum í palestínsku
og ísraelsku þjóðlífi; þingmönnum, ráðherrum og
forystukonum frjálsra félagasamtaka. Auk þess eru
erlendar áhrifakonur heiðursfélagar, þeirra á meðal
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra.
Þróunarsjóður Sameinuðu þjóðanna í þágu kvenna
(UNIFEM) átti frumkvæði að stofnun ráðsins.
Vinna Friðarráðsins byggir að miklu leyti á
tilskipun 1325 sem Sameinuðu þjóðirnar samþykktu
árið 2000 þar sem stjórnvöld eru hvött til þess að
hafa konur með í ákvarðanatökuferlinu að sögn
Saragusti. Shaman segir umræðuna í dag yfirleitt
snúast um hernaðarlegt öryggi en það sem ráðið vilji
gera er að beina kastljósinu að mannlegu öryggi.
„Réttur til að vera frjáls, réttur til að hafa aðgang að
menntun, heilbrigðiskerfi og atvinnu, réttur til að
vera öruggur og búa í friði. Þetta eru þau grundvall-
armálefni sem skipta konur mestu máli.“
Aðspurðar hvort þær séu bjartsýnar á að friður
náist segist Saragusti ekki bjartsýn en hins vegar
komi ekki annað til greina en að berjast. Shaman
tekur í sama streng. „Við getum ekki gefist upp, það
jafngildir því að gefast upp á lífinu. Þetta er okkar
líf og því er það ekki valmöguleiki.“ sdg@frettabladid.is
Við getum ekki gef-
ist upp í baráttunni
Tvær áhrifakonur í Friðarráðinu, sem skipað er konum í Ísrael, Palestínu og
erlendum áhrifakonum, fjalla um framlag kvenna til friðarferlisins í Mið-
Austurlöndum í dag. Konur setja önnur atriði í forgang hvað varðar öryggi.
MAHA ABU-DAYYEH SHAMAS OG ANAT SARAGUSTI Segja
samvinnuna sem á sér stað í Friðarráðinu milli palestínskra og
ísraelskra kvenna einsdæmi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN