Fréttablaðið - 28.02.2008, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 28.02.2008, Blaðsíða 28
28 28. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR UMRÆÐAN Borgarmál Þegar stefnir hraðbyri í að meirihluti Ólafs F. Magnússonar og Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar hafi setið í 50 daga er ekki úr vegi að rifja upp fyrir hvaða verk- um hundrað daga meiri- hluti Tjarnarkvartettsins stóð. Hann var grundvallaður á félagshyggju, umhverfisvernd, framsýni og virðingu fyrir faglegum vinnubrögðum. Mannauður gegn manneklu – fyrsta verkið Ekki var liðinn sólarhringur þegar kynntar voru aðgerðir til að koma til móts við starfs- fólk Reykjavíkurborgar á stofnunum og skól- um sem glímt höfðu við manneklu. Mikilvægi slíkra aðgerða hafði þá verið rætt í heilt ár án aðgerða. Ákveðið var að verja 800 milljónum á fjárhagsáætlun 2007 og 2008 til að hækka laun leikskóla- og grunnskólastarfsmanna, starfsfólks hjúkrunarheimila og sambæri- legra hópa. Þannig var skapaður nýr og betri jarðvegur í aðdraganda kjarasamninga. Undið ofan af orkumálum Settur var upp þverpólitískur stýrihópur til að takast á við þær ógöngur sem málefni orkuútrásarinnar og REI voru komin í. Í kjöl- farið var samruna REI og GGE hafnað og ákveðið að óháð stjórnsýsluúttekt á OR og REI færi fram af hálfu innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar. Hún mun liggja fyrir innan fárra vikna. Jafnframt var ákveðið að REI skyldi halda áfram í útrás, fyrirtækið yrði 100% í eigu OR en í samstarfi við einka- aðila í tengslum við einstök verkefni. Félagslegar áherslur Félagshyggja og félagslegar áherslur voru rauði þráðurinn í fjárhagsáætlun sem sam- þykkt var í desember. Þar var ekki aðeins að finna málefnaskrá meirihlutans heldur einnig fjármuni til að fylgja þeim eftir í framkvæmd. Í menntamálum voru framlög til sérkennslu bæði í leikskólum og grunnskólum stóraukin, þannig að óhætt er að tala um vatnaskil í því hvernig tekið er á vanda barna með félagsleg- ar og tilfinningalegar raskanir. Auk þess náði þessi aðgerð út í öll hverfi og skóla með aukn- um stuðningi við starf sérfræðinga á þjón- ustumiðstöðvum borgarinnar. Tíföldun til forvarnarmála Hundrað milljóna króna forvarnarsjóður var stofnaður, sem mun veita styrki – á grunni umsókna tvisvar á ári – til forvarnarverk- efna frjálsra félagasamtaka og annarra sem vinna að mikilvægum forvarnarverkefnum í borgarsamfélaginu. Þetta er nánast tíföldun á fjármagni til slíkra verkefna. Átak í húsnæðismálum Félagslegar áherslur Tjarnarkvartettsins komu líka fram í því hvernig ákveðið var að taka á sívaxandi húsnæðisvanda efnalítilla borgarbúa. Um 270 milljónir voru settar í ýmsar nauðsynlegar aðgerðir sem þarf að grípa til svo að fólk hafi einfaldlega þak yfir höfuðið, þ.e.a.s. til bráðra úrræða. Þá gekk meirihlutinn frá úthlutun á lóðum til bygg- inga 600 íbúða til stúdenta og 220 íbúða fyrir eldri borgara, sem nýr meirihluti gerði að sínu fyrsta verkefni að fresta. Unnið var ötullega að frekari tillögum í húsnæðismál- um í samvinnu við félagsmálaráðuneytið og flutningi málaflokka aldraðra og fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Stofnun mannréttindaskrifstofu Mannréttindaskrifstofa var stofnuð, og til þess voru lagðar 85 milljónir á þessu ári. Metnaðarfullur samningur við Alþjóðahús var á lokastigi. Hann bíður því miður enn undirritunar. Í honum er m.a. kveðið á um nýja þjónustumiðstöð fyrir innflytjendur í Breiðholti og stóraukna kynningu á málefn- um innflytjenda og á þjónustu við nýja Reyk- víkinga almennt. Tekið til hendi í Kvos Eitt af fyrstu verkum meirihlutans var að kaupa brunarústirnar að Austurstræti 22 og skipa hóp fagaðila til þess að móta tillögur að heildarútliti Lækjartorgs. Með þessari aðgerð, þar sem rústirnar voru keyptar á markaðsvirði (ekki yfirverði!) fékk borgin í hendur gríðarlega mikilvægt framkvæmda- og skipulagsvald í hjarta borgarinnar. Vinna við endurskipulagningu annarra lykilstaða í Kvos var einnig hafin. Sett var af stað athug- un á því hvort Geirsgatan eigi að vera í stokk við svæði Tónlistar- og ráðstefnuhússins. Til- laga um róttæka andlitslyftingu Ingólfstorgs lá fyrir þar sem gert var ráð fyrir að torgið yrði rammað inn með gömlum húsum. Auk þess var ákveðið að Ziemsen-húsið, sem nú er verið að gera upp, yrði flutt á Grófartorg. Skref á sviði húsverndar Hið sögufræga Gröndals-hús, ákvað meiri- hlutinn að skyldi gera upp og flytja inn í Grjótaþorp. Þessi tillaga var sett í grenndar- kynningu. Húsið Norðurpóll, sem áður stóð á Laugavegi 125 og var um aldamótin 1900 nyrsti áfangastaður Reykvíkinga á göngu- ferðum yfir Hlemm, og fyrsta kaffihús bæj- arins, skyldi búinn varanlegur staður að nýju sem nyrsti áfangastaður Reykvíkinga á gönguferðum, upp við Esjurætur í nýrri þjón- ustumiðstöð. Hinn forni Vaktarabær í Grjóta- þorpinu var keyptur (á markaðsvirði). Hann verður nú gerður upp og færður í uppruna- legt horf á sínum stað. Laugavegur framtíðarinnar Á Barónsreit náðust samningar við þróunar- félagið Samson um uppbyggingu mikilvægs verslunarkjarna fyrir Laugaveg þar sem taka á mið af götumynd og sögulegri byggð svæðisins. Þetta mál hafði rekið um stjórn- kerfið í meira en ár. Jafnframt var samþykkt að Listaháskólinn skyldi byggja höfuðstöðv- ar sínar á svokölluðum Vegasreit við Lauga- veg. Með makaskiptasamningum tryggði Reykjavíkurborg að stúdentaíbúðir skyldu rísa við Lindargötu. Uppbygging og mannlíf við Laugaveg á eftir að njóta góðs af öllu þrennu. Tekið af skarið um Sundagöng Í kjölfar umræðu um mikilvægi Sundabraut- ar tók meirihlutinn af skarið með að hún skyldi liggja í göngum frá Gufunesi að Laug- arnesi. Tjarnarkvartettinn lagði áherslu á að hefja undirbúning Öskjuhlíðarganga og hafði boðað að umhverfismat á Miklubraut í stokk á móts við Miklatún færi af stað. Þá var ákveðið að setja fram metnaðarfulla áætlun um hvernig draga mætti úr útblæstri gróður- húsalofttegunda á höfuðborgarsvæðinu. Liður í þessu var að hefja greiningu á kostum léttlestarkerfis og annarra vistvænna leiða í almenningssamgöngum. Vatnsmýri – 102 Reykjavík Brýnasta skipulagsmál höfuðborgarinnar var einnig fóstrað af mikilli natni – skipulag framtíðarbyggðar í Vatnsmýrinni. Dómnefnd lauk störfum í alþjóðlegri hugmyndasam- keppni um skipulag byggðarinnar, ákveðið var að efna til veglegrar sýningar á niður- stöðum hennar, gefa út bók af þessu tilefni og setja á fót stýrihóp um heildarskipulag svæð- isins. Allt þetta hefur raunar gengið eftir þrátt fyrir meirihlutaskiptin. Stóraukin hverfaáhersla Tjarnarkvartettinn ákvað að stórefla hverfa- ráð borgarinnar með það að markmiði að gera þau að lifandi vettvangi íbúanna til þess að hafa áhrif á umhverfi sitt. Átaksverkefni, byggt á hugmyndum um aukna þátttöku íbú- anna var hafið og bar yfirskriftina „1, 2 og Reykjavík“. Þá var sérstakt Breiðholtsverk- efni í undirbúningi. Ákveðið var að fram- kvæmdafé til fegrunar umhverfis, uppbygg- ingu útivistarsvæða og endurgerðar skólalóðar yrði stóraukið. Sundlaug í Fossvogi og framtíð Kolaportsins Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru um verk hundraðdaga-meirihlutans. Gera mætti fjölmörgu betri skil s.s. samþykktum um að gera Reykjavík að kvikmyndaborg, endur- gerð á Tjarnarbíói, þriggja ára samningum við 25 íþróttafélög í Reykjavík, fækkun í yfir- stjórn ráðhússins, ákvörðun um að fella niður aðgangseyri í öll söfn borgarinnar, hefja und- irbúning sundlaugar í Fossvogi, vinnu við net- væðingu þjónustunnar, uppbyggingu þráð- lauss nets á höfuðborgarsvæðinu, stækkun Fjölskyldu- og húsdýragarðsins og fleira og fleira. Á síðasta degi meirihlutans tókst svo að tryggja framtíð Kolaportsins til næstu tíu ára. Kannski má segja að flest hafi verið gert, nema hlaupa til og kaupa tvö hús á Laugavegi á tæpar 600 milljónir króna! Tjarnarkvartett- inn sannaði á stuttum tíma að festa, framsýni, hugmyndaauðgi og vinnugleði er góð blanda við stjórn Reykjavíkurborgar. Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík og fyrrverandi borgarstjóri. Hverju var komið í verk á hundrað dögum? DAGUR B. EGGERTSSON Sloggi tilboð Sloggi maxi þrjár í pakka á aðeins 1.699 kr. ÚRVAL ÍSAFIRÐI ÚRVAL SIGLUFIRÐI ÚRVAL BORGARNESI ÚRVAL BLÖNDUÓSI STRAX, FÁSKRUÐSFIRÐI KAUPFÉLAG V-HÚNV. HVAMMST. KAUPFÉLAG SKAGF. SAUÐÁRKR. KAUPFÉLAG STEINGRÍMSFJ. HÓLMAV. KAUPFÉLAG STEINGRÍMSFJ. DRANGSN. LÆKURINN NESKAUPSTAÐ EFNALAUG DÓRU, HÖFN HEIMAHORNIÐ, STYKKISHÓLMI LYFJA, PATRÓ PALOMA, GRINDAVIK FATABÚÐIN ÍSAFIRÐI VERSLUNIN RANGÁ, SKIPAS. 56 H-SEL LAUGARVATNI ÞÍN VERSLUN, SELJABRAUT RVK. PLÚS MARKAÐURINN, HÁTÚNI 106 GAMLA BÚÐIN, HVOLSVELLI DALAKJÖR, BÚÐARDAL KASSINN, ÓLAFSVÍK RAFLOST, DJÚPAVOGI BJARNI EIRÍKS, BOLUNGARVÍK EINAR ÓLAFSS., AKRANESI KRÓNAN REYÐARFIRÐI KRÓNAN BÍLDSHÖFÐA KRÓNAN SELFOSSI KRÓNAN JAFNASELI KRÓNAN HVALEYRARBRAUT KRÓNAN LÁGHOLTSVEGI KRÓNAN SKEIFUNNI KRÓNAN MOSÓ KRÓNAN VESTMANNAEYJUM KJARVAL KLAUSTRI KJARVAL VÍK KJARVAL HVOLSVELLI KJARVAL HELLU 11-11 HÖFN Útsölustaðir: HAGKAUP SMÁRALIND HAGKAUP SKEIFUNNI HAGKAUP KRINGLUNNI HAGKAUP SPÖNGINNI HAGKAUP GARÐABÆ HAGKAUP EIÐISTORGI HAGKAUP AKUREYRI NETTÓ AKUREYRI NETTÓ MJÓDD NETTÓ AKRANESI NÓATÚN SELFOSSI FJARÐARKAUP HAFNAFIRÐI ÚRVAL KEFLAVÍK ÚRVAL HAFNARFIRÐI ÚRVAL EGILSSTÖÐUM ÚRVAL HRÍSALUNDI ÚRVAL HÚSAVÍK ÚRVAL DALVIK ÚRVAL ÓLAFSFIRÐI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.