Fréttablaðið - 30.03.2008, Qupperneq 2
2 30. mars 2008 SUNNUDAGUR
noatun.is
LÉTTIR ÞÉR LÍFIÐ
Frábært verð!
47% afsláttur
998kr.kg.
Lambakótilettur
TILBOÐ!
UMHVERFISMÁL „Þetta er ekkert
annað en meiri háttar umhverfis-
slys,“ segir Óttarr Hrafnkelsson,
forstöðumaður Ylstrandarinnar í
Nauthólsvík, um olíumengað grunn-
vatn sem veitt hefur verið ofan í
fjöru frá framkvæmdasvæði
Háskólans í Reykjavík.
Óttarr segir að þegar hafi verið
fluttir um tuttugu þúsund rúmmetr-
ar af olíumenguðum jarðvegi frá
framkvæmdasvæðinu til úrvinnslu
upp á Hólmsheiði og á Álfsnesi. Það
skjóti því illilega skökku við að í
haust hafi Orkuveita Reykjavíkur
látið leggja sextíu sentímetra svert
rör til að flytja grunnvatn frá þessu
sama eitursvæði ofan í fjöruna
skammt vestan við Ylströndina.
Hann segir að í framtíðinni eigi að
leiða yfirborðsvatn af háskólalóð-
inni um rörið.
„Fólk hefur fundið mikla olíulykt
í vetur og stundum hefur verið
olíubrák á sjónum. Þetta er
óhæfa og ógeðslegt. Ég efast um
fólk muni yfirhöfuð láta sjá sig á
Ylströndinni í vor eftir að þetta
spyrst út en sannleikurinn verð-
ur að koma í ljós,“ segir Óttarr.
Að áliti Óttars er frágangur
rörsins óforsvaranlegur. „End-
inn á rörinu fer ekki einu sinni á
kaf á flóði. Engin rist er fyrir
opið og auðvelt fyrir börn að
skríða þar inn. Þetta er alveg
kjöraðstaða fyrir rottur. Ég veit
ekki um neinn sem langar að
baða sig með þeim,“ segir for-
stöðumaðurinn sem kveðst hafa
krafist þess fyrir um tveimur
vikum að hætt yrði að dæla
grunnvatninu um rörið.
„Þá var ákveðið að sulla þessu
í staðinn í holræsakerfi borginn-
ar. En auðvitað er þetta sama
mengunin þótt hún fari eitthvert
annað,“ segir Óttarr sem kveðst
hafa látið taka sýni og eigi von á
niðurstöðu úr þeim eftir helgi.
Árný Sigurðardóttir, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits-
ins í Reykjavík, segir starfsmann
sinn hafa farið á staðinn eftir að
ábending barst fyrir nokkrum
vikum.
„Hann fann dálitla olíulykt og sá
örlítinn flekk en taldi þetta vera
minni háttar. Hins vegar er stað-
setning þessa rörs sennilega
óheppileg með tilliti til Ylstrandar-
innar og ég reikna með að það mál
verði tekið fyrir á fundi heilbrigð-
isnefndar á miðvikudag,“ segir
Árný. Hún ítrekar að sýni sem tekin
hafi verið reglulega í Nauthólsvík
hafi að undanförnu ekki gefið neitt
misjafnt til kynna. „Við líðum ekki
mengun í Naut hólsvík frekar en
annars staðar.“ gar@frettabladid.is
Segir olíumengun á
Ylströndinni óhæfu
Forstöðumaður Ylstrandarinnar segir hneyksli að olíumenguðu grunnvatni frá
svæði HR í Öskjuhlíð sé veitt ofan í fjöru. Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftir-
litsins segir mengunina litla en að flytja mætti úttakið fjær Ylströndinni.
ÓTTARR HRAFNKELSSON „Ég efast um að fólk muni yfirhöfuð láta sjá sig á Ylströnd-
inni í vor eftir að þetta spyrst út en sannleikurinn verður að koma í ljós,“ segir for-
stöðumaður Ylstrandarinnar í Nauthólsvík um olíumengun þar rétt undan í fjörunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
NAUTHÓLSVÍK Örstutt er fá úttaki
frárennslisrörsins frá HR-svæðinu að
Ylströndinni. MYND/LOFTMYNDIR EHF.
EFNAHAGSMÁL Finnbjörn A Her-
mannsson, formaður Samiðnar –
sambands iðnfélaga, segir að nú sé
tímabært að hið opinbera hefji
framkvæmdir í auknum mæli þar
sem hendur einkaaðila séu bundnar
í þeim efnum vegna efnahags-
ástandsins.
„Við vitum af því að fyrirtæki
eru farin að draga saman seglin,“
segir hann. „Mér finnst því að hið
opinbera ætti að fara að koma inn
með sín verkefni þar sem einka-
aðilar hafa takmarkað fjármagn til
þess eins og sakir standa.“
Hann segir enn fremur að fjöldi
erlendra starfsmanna hafi hætt
störfum enda þýddi gengis fellingin
mikla kjaraskerðingu fyrir þá.
Um fimmtíu starfsmenn bygg-
ingafyrirtækisins Stafnáss hafa
leitað til sinna stéttarfélaga vegna
vangoldinna launa. Að sögn Finn-
bjarnar eru um 90 prósent þeirra
erlendir. Sigurður Bessason, for-
maður Eflingar, segir að nokkrir
þeirra hafi ekki fengið greitt síðan
í janúar. „Þetta er komið í hefð-
bundna vinnslu þar sem menn koma
með kröfurnar til lögmanna og þær
fara svo til frekari innheimtu,“
segir hann.
Í byrjun þessa mánaðar var 95
starfsmönnum sagt upp hjá Stafn-
ási og er það fjölmennasta hópupp-
sögn eins fyrirtækis í byggingar-
iðnaði í árafjöld.
Sigurður og Finnbjörn sögðust
ekki hafa heyrt af öðrum fjölmenn-
um uppsögnum enn sem komið er.
- jse
Formaður Samiðnar segir byggingariðnaðinn í kröggum:
Vill opinberar framkvæmdir
FRAMKVÆMDIR Efnahagsástandið hefur
gert einkaaðilum erfitt fyrir og því segir
Finnbjörn tímabært að hið opinbera
hefji auknar framkvæmdir.
LÖGREGLUMÁL Tveir menn voru
handteknir eftir að hafa rænt
verslun Kaskó í Breiðholti vopn-
aðir garðklippum laust fyrir
klukkan fimm í gær.
Annar maðurinn beið fyrir utan
verslunina á meðan hinn gekk inn
með 50 sentimetra langar garð-
klippur innanklæða. Hann tók þær
fram, ógnaði afgreiðslumönnum
og hafði með sér á brott um 60 til
70 þúsund krónur, að sögn Sigrúnar
Erlu Þorleifsdóttur, verslunar-
stjóra Kaskó í Breiðholti.
Afgreiðslumennirnir voru tveir,
báðir 17 ára drengir. „Þeir eru
bara furðu flottir og tóku ráninu
með ró,“ segir Sigrún, sem kom á
vettvang skömmu eftir ránið.
Nokkrir viðskiptavinir voru einn-
ig í versluninni.
Um hálftíma eftir ránið handtók
lögregla mennina tvo sem höfðu
flúið fótgangandi. Annar þeirra
passaði við lýsingu. Hálftíma síðar
fannst poki með peningunum. Lög-
regla telur málið leyst.
Nýverið rændi sprautunála-
ræninginn svokallaði þrjár versl-
anir í grenndinni. „Ég var einmitt
að hugsa hvenær röðin kæmi að
okkur,“ segir Sigrún verslunar-
stjóri. - sgj
Tveir menn vopnaðir garðklippum rændu verslun Kaskó í Breiðholtinu í gær:
Gómaðir eftir garðklippurán
KASKÓ Garðklippuránið kemur í kjölfar hrinu sprautunálarána. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
LONDON Þriðja daginn í röð hefur
flugi verið seinkað og aflýst frá
stöðvarbyggingu númer fimm á
Heathrow flugvelli í London.
Alls hefur tvöhundruð og átta
ferðum British Airways verið
aflýst síðan á fimmtudag eins og
fram kemur á fréttavef breska
ríkisútvarpsins. Rúmlega
fimmtánþúsund ferðatöskur hafa
hrannast upp en flugfélagið
reyndi að takmarka farangur
farþega við handfarangur.
Ástæður tafanna eru sagðar
bilanir í tæknibúnaði við innritun
farangurs í nýju flugstöðvar-
byggingunni. -rat
Heathrow flugvöllur:
Tvöhundruð
ferðum aflýst
LANGAR BIÐRAÐIR Tvöhundruð og átta
ferðum með British Airways hefur verið
aflýst síðan á fimmtudag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NÝJA DELÍ, AP Dalai Lama gagnrýn-
ir yfirgang kínverskra stjórn-
valda í Tíbet. Hann segist óttast
að fólksflutningar Kínverja til
Tíbets ógni menningu svæðisins.
„Fjöldi kínverja í Tíbet eykst með
hverjum mánuði, þarna fer fram
menningarlegt þjóðarmorð,“
segir Dalai Lama.
Gagnrýni hans kom fram þegar
erlendir sendiherrar sem gist
höfðu í Tíbet voru á förum, en
með heimsókn þeirra vildu
kínversk stjórnvöld sýna að þau
hefðu enn fulla stjórn á svæðinu.
-rat
Dalai Lama:
Menningu
Tíbeta ógnað
UMHVERFISMÁL Al Gore, Nóbels-
verðlaunahafi og fyrrverandi
varaforseti Bandaríkjanna, flytur
fyrirlestur á
opnum fundi
um umhverfis-
mál í Háskóla-
bíó þriðjudag-
inn 8. apríl
klukkan átta.
Kristín
Ingólfsdóttir,
rektor Háskóla
Íslands, stýrir
fundinum.
Gore verður
á Íslandi dagana 7. til 8. apríl í
boði forseta Íslands, en Glitnir og
Háskóli Íslands standa að
fyrirlestrinum.
Vegna takmarkaðs sætafjölda
þurfa þeir sem vilja sitja fundinn
að skrá sig á www.glitnir.is eða í
síma 440-4000. - sgj
Nóbelshafi á Íslandi:
Al Gore talar á
opnum fundi
AL GORE
LÖGREGLUMÁL Fjögur fíkniefnamál
komu til kasta lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu á föstudag
og aðfaranótt laugardags.
Á föstudag voru rúmlega
þrítugur karlmaður og yngri kona
handtekin í Háaleitishverfi, en á
dvalarstað þeirra fundust um 70
grömm af því sem lögregla taldi
vera amfetamín. Fólkið var tekið
til yfirheyrslu.
Hin málin þrjú eru að mestu
upplýst, en í þeim öllum fundust
meint fíkniefni á þeim sem
stöðvaðir voru. Lögregla telur að
um hafi verið að ræða bæði
amfetamín og maríjúana, en í
litlum mæli. - sgj
Fjögur fíkniefnamál í borginni:
Amfetamín í
Háaleitishverfi
SVEITARSTJÓRNIR Minnhlutinn í
bæjarráði Hveragerðis segir að
vegna andstöðu
Brunamálstofnun-
ar virðist meiri-
hlutanum ekki
takast að fá
heimild fyrir
uppblásnu
íþróttahúsi.
„Liggur því
beinast við að
áætla að þessi
bráðbrigðalausn
sjálfstæðimanna við uppbyggingu
uppblásina íþróttamannavirkja í
Hveragerði sé fokin á haf út,“
segir í bókun minnihlutans.
Meirihlutinn segir yfirlýsingar
minnihlutans ekki tímabærar.
Eftir sé að fullreyna hvort leyfi
fáist fyrir uppblásnu húsi. - gar
Minnhluti um íþróttahöll:
Uppblásið hús
fokið á haf út
HERDÍS
ÞÓRÐARDÓTTIR
Friðbjörn, á ekki Hannes skilið
ókeypis hádegisverð?
„Hádegisverðurinn er aldrei ókeypis
en að þessu sinni splæsa vinirnir.“
Friðbjörn Orri Ketilsson hefur birt aug-
lýsingu þar sem hann hvetur fólk til að
styrkja Hannes Hólmstein Gissurarson
þar sem auðmaður reyni að brjóta hann
niður fjárhagslega. Hannes skrifaði á
sínum tíma bókina Hádegisverðurinn er
aldrei ókeypis.
Framkvæmd-
arsvæði HR
Frárennslisop Nauthólsvík
Ylströnd
X
SPURNING DAGSINS