Fréttablaðið - 30.03.2008, Side 4

Fréttablaðið - 30.03.2008, Side 4
4 30. mars 2008 SUNNUDAGUR EFNAHAGSMÁL Ákvörðun Geirs H. Haarde forsætis- ráðherra, um að leita álits hjá óháðum erlendum fræðimanni á framkvæmd og fyrirkomulagi á peningastefnu Seðlabankans, fær góðan hljómgrunn hjá þeim stjórnarandstæðingum og aðilum vinnu- markaðarins sem Fréttablaðið talaði við. „Við höfum sett fram tillögur og kynnt þingmál um að auka gjaldeyrisforða Seðlabankans og styrkja stöðu hans, þannig að þetta er í takt við þær hugmyndir sem við höfum boðað,“ segir Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna. „Hinsvegar einkennir það viðbrögð ríkisstjórnarinnar hversu seint hún rankar við sér og hversu svifasein hún er. Hún bregst við eftir á en virðist vera ófær um að taka frumkvæði í nokkrum efnum.“ Aðrir fögnuðu ákvörðuninni en vildu þó að gengið yrði lengra og krónunni lagt. „Á meðan við erum með þennan gjaldmiðil þarf gjaldeyrisforði Seðlabankans að vera miklu, miklu öflugri til þess að geta tekið áföllum og jafnvel árásum,“ segir Jón Magnússon, þingmaður Frjálslynda flokksins. „Að leyfa sér þann vitlausa lúxus að vera með þennan gjaldmiðil kallar á gríðarlegan kostnað.“ Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðar- sambandsins, tók í sama streng. „Ég fagna því að þetta verði tekið til skoðunar. Hinsvegar mætti við þetta tækifæri rifja upp orð núverandi Seðla- bankastjóra sem hann viðhafði þegar verið var að glíma við efnahagserfiðleika á árunum 1987 til 1993 en þá vildi hann stefna að aðild að Evrópu- bandalaginu en síðan hefur hann villst af leið. Og nú er svo komið að við erum komin með það stór fyrirtæki hér og ef eitthvað fer úrskeiðis þar getur þessi litla mynt sveiflast um 30 prósent með skelfilegum afleiðingum fyrir önnur fyrirtæki og heimilin í landinu svo það er enn mikilvægara að fara að huga að annarri mynt.“ Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fagnaði því að hlutverk Seðlabankans skyldi tekið til umræðu. „Það eru heilmikil tíðindi að nú má fara að tala um þessi mál en hingað til hefur allt er varðar hlutverk Seðlabankans verið feimnis- mál,“ segir hann. „Ég hef þó leyft mér að benda á það að þetta tæki Seðlabankans, að beita hækkun stýrivaxta, virkar ekki í opnu hagkerfi,“ bætir Vilhjámur við. jse@frettabladid.is/steindor@frettabladid.is Hinsvegar einkennir það viðbrögð ríkis- stjórnarinnar hversu seint hún rankar við sér og hversu svifasein hún er. ÖGMUNDUR JÓNASSON ÞINGMAÐUR VINSTRI GRÆNNA VIÐSKIPTI Stjórn SPRON segist ekki hafa „getað gert annað“ en ályktað að birting upplýsinga um sölu stjórnarmanna á stofnfjár- bréfum, skömmu áður en félagið var skráð á markað, hafi verið óheimil. Þetta kemur fram í til- kynningu sem stjórn SPRON sendi frá sér á föstudag vegna fréttar í Fréttablaðinu á fimmtu- daginn þar sem greint var frá því mati Fjármálaeftirlitsins að stjórnar mönnum hefði verið heimilt að gera grein fyrir sölu stjórnarmanna á stofnfjárbréf- unum. Það fer þvert gegn því sem stjórnin sagði í fréttatil- kynningu 7. febrúar. Jafnframt segir í tilkynningunni að stjórn SPRON hafi starfað eftir reglum frá árinu 2004 um viðskipti með stofnfjárbréf sem Fjármála- eftirlitið fór yfir. Auk þess er það ítrekað að stjórn SPRON hafi alltaf viljað birta upplýsingar um inn- herjaviðskipti með formlegum hætti, en hafi hagað málum eins og hún gerði vegna fyrrnefndra reglna. Gunnar Þór Gíslason, Ásgeir Baldurs og Hildur Petersen seldu stofnfjárbréf á sumarmánuðum í fyrra, eftir að stjórnin ákvað að skrá félagið á markað, fyrir um 196 milljónir króna að nafnvirði, tveggja til þriggja milljarða að raunvirði. Samtök fjárfesta hafa gagnrýnt stjórn SPRON harkalega fyrir að greina ekki frá sölu bréfanna. - mh Stjórn SPRON ítrekar fyrri afstöðu vegna sölu stjórnarmanna á stofnfjárbréfum: Töldu sig ekki mega segja frá SPRON Stjórn SPRON segir stjórnar- menn hafa selt bréfin, án þess að greina frá því, í góðri trú. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA STJÓRNSÝSLA Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi hefur óskað eftir lausn frá embætti frá 1. júlí í sumar. Þá hefur Sigurður verið ríkisendur- skoðandi í rétt sextán ár, eða allt frá árinu 1992. Áður var Sigurður vararíkisendur- skoðandi frá 1987. Í tilkynningu frá forseta Alþingis segir að samkvæmt lögum um Ríkisendur- skoðun muni forsætisnefnd Alþingis ráða nýjan ríkisendur- skoðanda til sex ára. - gar Embætti ríkisendurskoðanda: Sigurður hættir eftir sextán ár SIGURÐUR ÞÓRÐARSON LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Selfossi hafði afskipti af ökumanni fólksbifreiðar klukkan hálf fimm í gærmorgun sem ók austur Suðurlandsveg í Flóa á 194 kílómetra hraða. Þegar lögreglumenn stöðvuðu manninn tóku þeir eftir því á háttalagi hans og lykt að hann hafði neytt áfengis. Hann var fluttur á lögreglustöð og undirgekkst blásturspróf. Niðurstaða þess var að hann var yfir áfengismörkum. Ökumaðurinn var sviptur ökuleyfi til bráðabirgða, en á yfir höfði sér frekari refsingu. - sgj Ökumaður á Suðurlandi: Ók fullur á ofsahraða BAGDAD, AP Ráðherra í ríkisstjórn Íraks hvatti sérsveitir lögregl- unnar til að sýna „hugrekki og styrk“ í átökunum við hersveitir sjía í Basra og að tekið yrði á „vandamálum“ síðar. Án þess að hann hafi skilgreint „vandamálin“ frekar þykir ljóst að íraskar varnarsveitir standa lamaðar frammi fyrir hernaðar- legum styrk sjía. Hermenn neita að taka frekari þátt í átökum án verndar og mikið er um að hermenn hafi strokið frá átaka- svæðunum. -rat Átök í Basra í Írak: Liðhlaup í íraska hernum LÖGREGLUMÁL „Ef það er rétt að Jóhann R. Benediktsson sé að hætta, þá er það mikill missir,“ segir Stefán Eiríksson lögreglu- stjóri höfuðborg- arsvæðisins. „Við höfum átt í fullkomnu samstarfi á öllum sviðum frá því að þessi tvö stóru lögregluembætti tóku til starfa í janúar 2007.“ Stefán segir að samstarf þeirra Jóhanns nái raunar lengra aftur í tímann. „Við unnum einnig mjög vel saman þegar ég starfaði í dómsmálaráðuneytinu og hann var sýslumaður á Keflavíkurflug- velli, þá undir stjórn annars ráðuneytis. En snertifletirnir voru margir. Ég hef átt ánægju- legt, árangursríkt og gott samstarf við hann á liðnum árum og á eftir að sakna hans mikið ef af verður að hann láti af starfi.“ - jss Brotthvarf lögreglustjóra: Mikill missir STEFÁN EIRÍKSSON VEÐURSPÁ Kaupmannahöfn Billund Ósló Stokkhólmur Gautaborg London París Frankfurt Friedrichshafen Berlín Alicante Mallorca Basel Eindhoven Las Palmas New York Orlando San Francisco HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 7° 11° 5° 9° 9° 14° 13° 15° 18° 14° 22° 18° 19° 13° 22° 8° 26° 14° 3 Á MORGUN 8-18 m/s, hvassast við Breiðafjörð, hægastur sunnan til ÞRIÐJUDAGUR 5-18 m/s, lang- hvassast við SA-ströndina -1 0 0 1 2 4 3 2 1 0 -5 13 13 8 13 8 16 7 10 9 13 13 1 1 1 3 0 0 1 1 2 DAGURINN Í DAG Þennan sunnu- dagsmorgun er mjög hvasst við suðausturströnd- ina eða hvassviðri, og stormur sunnan Vatnajökuls. Ann- ars staðar verður strekkingur eða allhvasst. Það lægir smám saman með suðaustanverðu landinu en bætir hins vegar í vindinn á Vestfjörðum og norðvestan til. Sigurður Þ. Ragnarsson Veður- fræðingur 17 ára ökufantur tekinn Lögregla stöðvaði 17 ára ökumann á Suðurlandsvegi við Landvegamót á 171 eins kílómetra hraða um tvö leytið aðfararnótt laugardags. Piltur- inn var sviptur ökuleyfi á staðnum og á yfir höfði sér háa sekt. Hann hafði haft ökuréttindi í eina og hálfa viku. LÖGREGLUFRÉTTIR Fagna úttekt á hlut- verki Seðlabankans Ákvörðun forsætisráðherra um úttekt á stefnu Seðlabankans er fagnað af stjórnarandstæðingum og aðilum vinnumarkaðarins. Framkvæmdastjóri SA segist fagna því að hlutverk Seðlabankans sé ekki lengur feimnismál. GEIR H. HAARDE Á ÁRSFUNDI SEÐLABANKANS Ákvörðun um að gera skoðun á peningastefnu Seðlabankans sem forsætis- ráðherra kynnti á ársfundi bankans í fyrradag er fagnað af stjórnarandstæðingum og aðilum vinnumarkaðarins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BANASLYS Karlmaður á fimmtugs- aldri lést í vélsleðaslysi á Fjarðarheiði í grennd við Egilsstaði á sjötta tímanum í gær. Maðurinn fór á vélsleða fram af snjóhengju á Fjarðarheiði og endaði niður í gili. Nánar er ekki vitað um tildrög slyssins. Þegar læknir kom á staðinn var maðurinn þegar látinn. Fleiri snjósleðamenn voru með í för en maðurinn var einn á sleðanum. - sgj Banaslys á Fjarðarheiði: Karlmaður lést í vélsleðaslysi GENGIÐ 28.03.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 157,7845 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 77,64 78,02 154,86 155,62 122,63 123,31 16,441 16,537 15,28 15,37 13,082 13,158 0,7754 0,78 127,55 128,31 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.