Fréttablaðið - 30.03.2008, Side 6
6 30. mars 2008 SUNNUDAGUR
STJÓRNMÁL Í umræðum á Alþingi
haustið 1993 um skýrslu umboðs-
manns Alþingis fyrir árið 1992
tók Árni Mathiesen undir með
umboðsmanni í gagnrýni á skipan
í tollvarðarstöðu á Keflavíkur-
flugvelli.
Jón Baldvin Hannibalsson, sem
þá var utanríkisráðherra, hafði
skipað mann í starfið, sem
umsagnaraðili – lögreglustjórinn
á Keflavíkurflugvelli – hafði ekki
mælt með og raunar talið
vanhæfan.
Í skýrslunni gerði umboðsmaður
margháttaðar athugasemdir, ekki
síst vegna formgalla á málsmeð-
ferð og tafa sem urðu á svörum
utanríkisráðuneytisins við spurn-
ingum hans.
Árni var sammála umboðs-
manni og sagði málið svo alvar-
legt að „það verði ekki við unað“.
Nokkrum mánuðum áður höfðu
þrír þingmenn Alþýðuflokksins
verið skipaðir í veigamikil opin-
ber embætti. Jón Sigurðsson varð
seðlabankastjóri, Eiður Guðnason
sendiherra og Karl Steinar Guðna-
son forstjóri Tryggingastofnunar.
Árni spyrti þær skipanir og
ráðningu tollvarðarins saman og
sagði þær „kasta slíkum skugga á
embættisfærslur og embættisfer-
il hæstvirts utanríkisráðherra að
mér er nóg um“.
Gat Árni þess líka að ráðherr-
ann hefði unnið mörg góð verk
sem hann styddi og sagði: „þess
vegna þykir mér afar miður að
upp skuli koma svona mál hvað
eftir annað sem eru þess eðlis að
þær einu skýringar sem menn
hafa á þeim eru að viðkomandi
aðilar hafi sérstök flokksskírteini
upp á vasann.“
Árni skipaði Þorstein Davíðs-
son, fyrrverandi aðstoðarmann
dóms- og kirkjumálaráðherra, í
embætti héraðsdómara í
desember. Sú skipan hefur sætt
gagnrýni jafnt stjórnarandstæð-
inga sem stjórnarliða. Umboðs-
manni Alþingis, sem hefur málið
til skoðunar, bárust á dögunum
svör Árna við ellefu spurningum
er lúta að málsmeðferð skipunar-
innar.
Í upphafi svara sinna gat Árni
þess að af yfirbragði og orðavali
spurninganna virtist sem afstaða
umboðsmanns til úrlausnarefnis-
ins kunni að vera mótuð fyrir-
fram. Af þeim sökum mætti halda
því fram að svörin kæmu til með
að hafa takmarkaða þýðingu
þegar leyst verður úr málinu.
bjorn@frettabladid.is
Árni andæfði póli-
tískum ráðningum
Árni Mathiesen lýsti sig andsnúinn ráðningum á forsendum flokksskírteina í
umræðum á Alþingi 1993. Hann tók undir gagnrýni umboðsmanns Alþingis á
að þáverandi utanríkisráðherra hefði ekki staðið rétt að skipan í starf tollvarðar.
ÁRNI M. MATHIESEN Umboðsmaður
Alþingis skoðar nú skipan Árna í
embætti héraðsdómara. Árni efast um
að umboðsmaður sé hlutlaus og segir
að halda megi fram að skýringar sínar
hafi takmarkaða þýðingu við úrlausn
málsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
JÓN BALDVIN HANNIBALSSON
Umboðsmaður gerði athugasemdir við
vinnubrögð Jóns Baldvins þegar hann
skipaði mann í starf tollvarðar á Kefla-
víkurflugvelli. Árni Mathiesen tók undir
gagnrýnina í þingumræðum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ATVINNA Byr hefur gert starfs-
lokasamning við fjórtán konur á
miðjum aldri frá áramótum. Níu
þessara kvenna eru á sextugs-
aldri og hafa lengi starfað hjá
fyrirtækinu.
„Það er talað um að þessar
konur hafi fengið starfsloka-
saming en ég spyr nú bara hvað
er það annað en uppsögn,“ segir
Valgerður Marinósdóttir, sem í
fjörutíu ár starfaði hjá sparisjóð-
unum sem nú eru sameinaðir
undir heitinu Byr. Valgerður
sagði sjálf upp starfi sínu seinni
part árs í fyrra. „Ég var átján ára
þegar ég byrjaði hjá Sparisjóði
vélstjóra og líkaði vel,“ segir
Valgerður en bætir við að eftir
sameiningu sparisjóðana hafi
henni ekki liðið jafnvel og því
ákveðið að segja upp störfum.
„Þessar uppsagnir voru í raun
eins og aftaka fyrir margar af
þessum konum. Þetta kom líka
mjög í bakið á þeim því þegar
titringur var að myndast í banka-
geiranum sannfærðu yfirmenn-
irnir fólk um að það þyrfti engar
áhyggjur að hafa og réðu inn ungt
fólk í fyrirtækið þannig að allt
virtist í lagi. Svo gerist þetta og
mér þykir það sýna að þessir
ungu menn virðast ekki vilja hafa
svona kerlingar við störf sama
hvað við gerum,“ segir Valgerður
en tekur fram að hún hafi sjaldan
haft það betra og sé ánægð með
hafa hætt á réttum tíma. - kdk
Byr hefur frá áramótum gert starfslokasamninga við fjórtán konur á miðjum aldri:
Segir Byr ekki vilja kerlingar
BYR Frá áramótum hefur Byr gert
starfslokasamning við fjórtán konur á
miðjum aldri.
VIRKJANAMÁL „Við höfum ekki
skoðað þetta mál í smáatriðum en
munum eiga fund með Lands-
virkjun Power í næstu viku þar
sem farið verður yfir stöðu þeirra
virkjana,“ segir Þóroddur
Þóroddsson, umhverfismatssér-
fræðingur hjá Skipulagsstofnun,
um Urriðafossvirkjun. „Meira
höfum við ekki að segja um
málið.“
Fréttablaðið sagði frá því á
föstudag að Landsvirkjun vilji
taka efni úr námu sem liggur inni
á vatnsverndarsvæði til að reisa
Urriðafossvirkjun. Í matsskýrslu
er ekki gert ráð fyrir efnistöku
annars staðar en á virkjunarstað.
- sþs
Skipulagsstofnun:
Funda um Urriða-
fossvirkjun
KÓREA, AP Yfirvöld í Norður-
Kóreu skutu á föstudag á loft
hrinu skammdrægra eldflauga.
Sunnan við vopnahléslínuna var
álitið að þessi aðgerð væru liður í
reiðilegum viðbrögðum kommún-
istastjórnarinnar í Pjongjang við
harðari stefnu nýrrar ríkis-
stjórnar í Seúl gagnvart henni.
Eldflaugaskotin komu í beinu
framhaldi af því að N-Kóreu-
stjórn hafnaði afdráttarlaust
síðasta útspili Bandaríkjastjórnar
í viðræðunum um kjarnorku-
áætlun N-Kóreu. Vöruðu ráða-
menn í Pjongjang við því að
afstaða Bandaríkjamanna gæti
haft „alvarleg“ áhrif á framgang
áforma um að loka kjarnorku-
stöðvum N-Kóreu. - aa
Norður-Kóreustjórn ögrar:
Hrinu eldflauga
skotið á loft
ÖGRUN Suður-Kóreumaður les dagblað
með forsíðufrétt um eldflaugatilraunir
Norður-Kóreu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
UTANRÍKISMÁL Tvísköttunarsamn-
ingur hefur verið undirritaður á
milli Íslands og Mexíkós. Í
slíkum samningi skuldbinda
tvær eða fleiri þjóðir sig til að
víkja frá almennum skattaregl-
um í þeim tilangi að komast hjá
því að tekjur séu skattlagðar
tvisvar.
Auk ákvæða um afdráttarskatt
af arði, vöxtum og þóknunum var
samið sérsaklega um upplýsinga-
skipti á milli landanna varðandi
þá skatta sem samningurinn nær
til. Samkvæmt tilkynningu frá
fjármálaráðuneytinu verður
unnið að fullgildingu samnings-
ins á næstu mánuðum. - sþs
Samningur undirritaður:
Mexíkóskri tví-
sköttun útrýmt
SVEITARSTJÓRNIR „Töluvert hefur
borið á eiturlyfjanotkun ungra
íbúa þessa sveitarfélags og er
orðin brýn þörf á að takast á við
þetta vandamál með skipulegum
hætti,“ segir minnihlutinn í
bæjarráði Ölfuss sem vill að 3,7
milljónum króna verði aukalega
varið í forvarnarstarf á næstu
þremur árum.
Meirihlutinn sagði hins vegar
skorta útreikninga á því hvaða
áhrif þessi tillaga og aðrar
tillögur minnihlutans hefðu á
fjárhagsáætlun Ölfuss: „Telur
meirihlutinn því ábyrgðarlaust að
samþykkja breytingartillögur
minnihlutans.“ - gar
Ungmenni í Ölfusinu:
Nota talsvert
af eiturlyfjum
ÞORLÁKSHÖFN Minnhlutinn í bæjar-
stjórn fékk ekki aukið fé í forvarnir.
NEYTENDUR Fyrirtækið Mega
Brands hefur nú innkallað
segulleikföng
af ýmsum
gerðum sem
kallast
„Magtastik“
og „Magntix
Jr. Pre-School
Magnetic Toys“. Þessi leikföng
hafa verið seld beint til Íslands
auk þess sem þau hafa getað
borist til Íslands eftir öðrum
leiðum.
Fleiri tegundir hafa einnig verið
innkallaðar en þær hafa ekki verið
seldar hérlendis svo vitað sé. Þetta
kemur fram á vef Neytendastofu
sem hvetur foreldra og forráða-
menn til að fjarlægja þegar í stað
leikföng af þessari gerð og skila
til viðkomandi söluaðila. - áb
Innköllun leikfanga:
Litlir seglar
geta losnað af
MAGTASTIK
Alcoa sakað um mútur
Bandaríska dómsmálaráðuneytið
heimilaði á föstudag að málsókn
einkaaðila gegn Alcoa-álfyrirtækinu
bandaríska vegna gruns um að það
hefði borið mútur á embættismenn í
Persaflóaríkinu Barein verði tíma-
bundið stöðvuð til að eigin rannsókn
bandarískra yfirvalda á ásökununum
geti farið fram.
BANDARÍKIN
Rice til Miðausturlanda
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Cond-
oleezza Rice, er nú á leið til Jerúsalem
til að blása lífi í friðarviðræður Palest-
ínu og Ísraels sem eru í hnút.
SIMBABVE Forsetakosningar hófust
í Simbabve í gær og verða úrslit
gerð kunn á morgun. Langar bið-
raðir mynduðust strax snemma
morguns, að því er fram kom á
fréttavef breska ríkisútvarpsins í
gær, en sex milljónir manna hafa
kosningarétt í landinu.
Núverandi forseti, Robert
Mugabe, býður sig fram í sjötta
sinn. Aðrir í framboði eru Morgan
Tsvangirai, leiðtogi stjórnarand-
stöðunnar, og Simba Makoni, fyrr-
verandi fjármálaráðherra og áður
bandamaður Mugabe. Andstæð-
ingar Mugabe óttast kosninga-
svindl af hans hálfu en hann ber
þær ásakanir til baka. „Við beit-
um engum brögðum í kosning-
um.“
Mikillar óánægju gætti meðal
kjósenda í gær en mörgum var
vísað frá, ýmist vegna þess að nöfn
þeirra fundust ekki á skrá eða þeir
reyndu að kjósa í rangri deild. -rat
Gengið til kosninga í Simbabve:
Óttast kosningasvindl
Styður þú mótmæli vörubíl-
stjóra?
Já 85,7%
Nei 14,3 %
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Óttast þú glæpaöldu í Breið-
holtinu?
Segðu skoðun þína á visir.is
ROBERT MUGABE Sitjandi forseti býður
sig nú fram í sjötta sinn. Andstæðingar
hans óttast kosningasvindl. FRÉTTBLAÐIÐ/AP
VINNUMARKAÐUR Viðræðunefnd
Starfsgreinasambandsins, SGS,
kom nýlega saman í húsnæði ríkis-
sáttasemjara til að leggja línurnar í
viðræðum SGS við ríkið. Vilhjálm-
ur Birgisson, formaður Verkalýðs-
félags Akraness, segir að gerð
verði krafa um verulega hækkun á
launatöxtum ófaglærðs fólks hjá
ríkinu.
Vilhjálmur bendir á að verðbólga
mælist nú 8,7 prósent. Forsendurnar
séu því allt aðrar en var 17. febrúar
þegar samningur var undirritaður
á almennum markaði. „Gríðarleg
vonbrigði,“ segir Vilhjálmur um
þróunina í efnahagsmálum þjóðar-
innar og telur ekki ólíklegt að verð-
bólgan eigi eftir að fara í tveggja
stafa tölu.
Kjarasamningar á almennum
vinnumarkaði miða við fimm pró-
senta verðbólgu við endurskoðun
samninga eftir eitt ár. - ghs
Viðræðunefnd Starfsgreinasambandsins:
Vill verulega hækkun
KREFST HÆKKUNAR Viðræðunefnd Starfsgreinasambandsins gerir kröfu um verulega
hækkun á launatöxtum ófaglærðs fólks hjá ríkinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR
KJÖRKASSINN