Fréttablaðið - 30.03.2008, Page 16
16 30. mars 2008 SUNNUDAGUR
GERA VERÐSAMANBURÐ
Vilji maður spara er
nauðsynlegt að gera
verðsamanburð. Þótt
það kosti tíma og
maður pirri hugsan-
lega afgreiðslufólk
getur það margborgað
sig. Svo má skoða síður
eins og neytandi.is
(leiðarkerfi neytenda),
ns.is (neytendasamtök-
in) og asi.is (verðkann-
anir á vegum ASÍ). Sá
sem okrar minnst á það
svo skilið að við versl-
um við hann.
Velkomin í kreppuna
Fyrir hálfu ári var góðærissólin hátt á lofti og ekkert í spilunum annað en áframhaldandi sæla. Nú skella á okkur hörmungar úr
hverjum fréttatíma, hræðileg tíð er yfirvofandi og ekki er talað um annað en sultarólar sem þarf að herða. Hér eru nokkur ráð til
að gera kreppuna bærilegri þar til næsta góðæri skellur á.
FLYTJA ÚT Á LAND
Margir spyrja sig í umferðarteppunni á Miklubraut og hugsa
kannski í leiðinni um myntkörfulánið eða lánið með vöxtunum sem
verður endurskoðað á næsta ári: Hvern fjárann er ég að gera
hérna? Þetta er fullkomlega eðlileg spurning þegar
fasteignaauglýsingarnar eru skoðaðar. Á Siglufirði býðst sem
dæmi 389 fermetra steinhús á tveimur hæðum á 32 millur og á
Ólafsvík 185 fermetra einbýli á 21 millu. Eina vandamálið er bara
að finna svarið við spurningunni: Hvað á ég að gera á Siglufirði?
Hvað á ég að gera af mér á Ólafsvík?
BLÓÐBANKINN
Hádegisverðurinn er aldrei
ókeypis nema maður láti dæla úr
sér tæplega hálfum lítra af blóði.
Í þakklætisskyni fyrir þetta
smáræði sem þú gefur til bjargar
samborgurum þínum býður
Blóðbankinn upp á ágætis mat;
brauð og álegg, kex og kaffi og
jafnvel súpu. Lúnknir spararar
segja að föstudagarnir séu
gjöfulastir í Blóðbankanum. Það
er enginn að telja ofan í þig svo þú getur borðað þig pakk. Bara verst
að þú mátt ekki gefa blóð oftar en fjórum sinnum á ári og bara
þrisvar ef þú ert kvenkyns.
SMAKK
Á föstudögum bjóða stórar mat-
vöruverslanir oftast upp á ýmiss
konar smakk. Góðlegt sölufólk
stendur við borð og hvetur þig til
að smakka hitt og þetta. Á góðum
degi í Hagkaupum í Smáralind má
til dæmis búast við þremur til
fjórum matarkynningum; forrétti,
aðalrétti og eftirrétti. Sniðugt er
að mæta með alla fjölskylduna og
fara tvo til þrjá hringi þar til allir
eru komnir með magafylli. Í bak-
aríum má svo yfirleitt fá smakk
(best að koma snemma) og bankar
bjóða oft upp á ókeypis kaffi og
sælgæti.
IKEA
Ódýrasti veitingastaður landsins er veitingastofa Ikea. Þar má fá
ýmiss konar gúmmelaði á hlægilegu verði miðað við aðra veitingastaði
á Íslandi. Á meðan fjögurra manna fjölskylda getur tæplega farið út
að borða á innan við fimmþúsund kall á „ódýrri“ hamborgarabúllu er
gott til þess að vita að í Ikea má kaupa tvo skammta af sænskum
kjötbollum og tvo barnaskammta af spagettíi ásamt safa fyrir börnin
á – haldið ykkur fast – 1.090 krónur! Í eftirrétt má svo fá sér ís í
brauðformi á 50 kall stykkið.
HJÓL
Ef maður fer hjólandi allra sinna ferða er ekki óraunhæft að áætla að
maður spari heila milljón á ári. Samkvæmt Félagi íslenskra bifreiða-
eigenda kostaði rekstur ódýrasta bíls miðað við 15.000 km akstur á
ári rúmlega 700.000 krónur í fyrra, en miðað við bens-
ínverð í dag mun þessi tala hækka umtalsvert á
þessu ári. Sé maður
síhjólandi er líka óþarfi
að borga fyrir aðra lík-
amsrækt svo
þar bætist
duglega við
sparnaðar-
reikning-
inn.
BÓKASÖFNIN
Í kreppunni koma bókasöfnin
sterkt inn því til hvers að eiga
bækur sem maður les hvort
sem er bara einu sinni ef maður
getur fengið þær lánaðar? Eins
margar og maður kemst yfir
fyrir 1.300 kall á ári. Í bóka-
söfnum er líka hægt að komast
á netið, 200 kall fyrir hvern
klukkutíma og 1.300 kall fyrir
tíu tíma í bókasöfnum í Reykj
avík.
VATNIÐ
Einn af stærstu kostum Íslands
er hreina vatnið sem hér vellur
úr hverjum krana. Í langflest-
um öðrum löndum þarf að
borga stórfé fyrir flöskuvatn
en hér er það því sem næst
ókeypis. Svo höfum við heita
vatnið og íslensku sundlaug-
arnar eru ódýr munaður.
Erlendis þyrfti að borga stórfé
fyrir að komast í svipaða
heilsulind og til dæmis Árbæj-
arlaugin er. Því er um að gera
að nota það sem nothæft er á
skerinu hrjóstruga: svolgra í
sig vatn og mara í heitum potti.
Hvort tveggja er bráðhollt.
SJÓNVARPSUPPTÖKUR
Verið vakandi fyrir sjónvarpsupptökum. Þar má komast í ókeypis
snarl og jafnvel bjór ef maður er heppinn. Þessa dagana eru þættirn-
ir Bandið hans Bubba og Svalbarði í gangi. Ókeypis matur, drykkur
og skemmtun. Er hægt að biðja um meira í kreppunni?
TILRAUNADÝR FYRIR NEMA
Það er rándýrt að vera með hár.
Sjampó, hárnæring og endalausar
ferðir á stofuna. Hagstæðast er því
auðvitað að snoða sig reglulega.
Mörgum hrýs hugur við
tilhugsuninni um nakinn koll og því
má benda á iðnskólana. Sætti
maður sig við að vera tilraunadýr
fyrir nema er hægt að spara fúlgur.
Iðnskólinn í Hafnarfirði klippir
fólk ókeypis, en borga þarf þúsund
kall fyrir permanent og litun.
Iðnskólinn í Reykjavík vinnur í
hári fyrir brotabrot af almennu
verði. Hringið í hárgreiðslu-
deildirnar og pantið tíma.
Tannlæknaferðir kosta sitt, en nemar í tannlæknadeild Háskólans
gera sama gagn og rándýrir tannlæknar. Skoðun og myndataka kostar
2.500 krónur hjá nemunum, en þurfi að gera meira kostar það aðeins
þrjátíu prósent af almennum taxta. Kennari er með nemum við
aðgerðina og grípur inn í áður en í óefni fer. Sjúklingurinn verður þó að
sætta sig við að vera mun lengur í stólnum en vanalega. Upppantað er
fram á haust hjá tannlæknanemunum en í ágúst geta áhugasamir pantað
fyrir næsta vetur.
Nemar í Nuddskólanum þurfa líka sjálfboðaliða til að æfa sig á og í
gegnum heimasíðu Nuddskólans má komast í hið vinsæla nemanudd.
Heilsunudd hjá nema kostar 2.500 krónur sem er miklu ódýrara en
almennt gjald.
BETRA DJOBB
Fín leið til að komast í gegnum
kreppuna er að finna sér
almennilegt djobb, eitthvað sem
gefur þér miklu meira í aðra
hönd en vinnan sem þú ert í
núna. Eitt besta djobb landsins
er nú laust til umsóknar, For-
sætisráðuneytið óskar eftir
framboðum til forsetakjörs.
Þetta er algjört dúndurdjobb:
Hátt í tvær millur á mánuði til
æviloka, ókeypis húsnæði og
bíll í að minnsta kosti fjögur ár,
ferðalög og endalaus veisluhöld
– er hægt að biðja um meira?
Það eina sem þú þarft að gera er
að vera „sameiningartákn þjóð-
arinnar“ og „öryggisventill“
gagnvart Alþingi. Svo
þarftu að tala nán-
ast þindarlaust um
hina mörgu frá-
bæru kosti
Íslands. Með
öll þessi
hlunnindi í
vasanum
ætti það
nú að vera
lítið mál.