Fréttablaðið - 30.03.2008, Page 20
ÞAÐ HEITASTA Í ...
HÓTELUM, VEITINGASTÖÐUM, GRÆJUM, BÚÐUM, MÖRKUÐUM OG FERÐANÝJUNGUMMIÐBAUGUR
NÝTT
4 FERÐALÖG
E
kkert barn ætti
að sækja
Stokkhólm heim
án þess að koma
við á Junibacken á eyjunni
Djurgården í hjarta
borgarinnar. Þessi vina-
legi skemmtigarður,
nefndur eftir heimili
Maddittar og Betu, sem
reyndar heitir Sólbakki á
íslensku, er að mestu leyti
innandyra og því hægt að
kíkja í heimsókn á hvaða
árstíma sem er. Þar er að
finna allskyns skemmti-
legheit eins og lestarferð í
gegnum öll helstu ævintýri
Astrid Lindgren þar sem
hægt er að sjá allar helstu
hetjur bókanna: Ronju ræningadóttur,
Emil í Kattholti, Kalla á þakinu,
Bræðurna Ljónshjarta og marga fleiri.
Svo geta kátir krakkar leikið sér í
húsinu hennar Línu á meðan foreldrar slaka á og
fá sér heimabakaðar eplakökur og kaffibolla.
www.junibacken.se
Hverjum þykir ekki vænt um hina skrítnu,
krúttlegu og súrrealísku múmínálfa sem voru
skapaðir af hinni finnsku Tove Jansson en hægt er að heimsækja þá í
Múmínheim eða muumimaailma eins og hann heitir á finnsku.
Múmínálfarnir búa á eyjunni Naantali sem er um 16 kílómetra frá Turku
og 180 kílómetra frá Helsinki. Þar er nóg um að vera og meðal annars
hægt að heimsækja hús múmínsnáða, fara í sund í fallegu stöðuvatni,
heimsækja tjaldið hans Snúðs, skreppa í leikhús eða gæða sér á gómsætu
veitingunum hennar múminmömmu. www.muumimaailma.fi.
UPPÁHALDSÆVINTÝRI ALLRA
Heimur Astrid Lindgren og dalur Múmínálfana fyrir unga sem aldna
NORRÆNA HEFUR FERÐIR
Norræna er ferðamöguleiki sem
Íslendingar hafa lengi nýtt sér
en vill stundum gleymast í allri
ferðalagaflórunni. Fyrsta ferð Norrænu
til Íslands hófst nú í gærdag þegar siglt var
frá Danmörku. Norræna verður á Seyðisfirði
alla þriðjudaga til 10. júní en eftir það verður
hún þar á fimmtudögum til 28. ágúst. Eftir það
færast ferðirnar aftur á þriðjudaga. Farþegum
Smyril Line bjóðast sérstök vortilboð en það
er ódýrast að sigla nú og fram í miðjan maí
og eru þá jafnframt í gildi sérstök tilboð fyrir
húsbíla, hjólhýsi og slík farartæki. Ferjan er
búin klefum af ýmsum stærðum og gerðum og
auk þess eru glæsileg þjónustusvæði þar að
finna, svo sem verslanir, leiksvæði, sundlaug og
líkamsrækt með gufu. Um að gera að prófa smá
víkingasiglingu um norrænu höfin blá enda ættu
siglingar að vera okkur í blóð bornar.
Nánari upplýsingar um tilboð og annað er að
fá hjá Austfari í síma 472-1111 og Smyril Line í
síma 570-8600.
EKKI
MISSA AF
ÞESSU
Góðar ferðatöskur eru bráðnauðsynlegar í
ferðalagið og þá verður maður að hafa í huga
hvert er verið að fara. Best er að fara með harðar
töskur til Bandaríkjanna, nettar og praktískar
töskur í helgarferðina sem hægt er að koma fyrir
í farþegarýminu og svo þarf maður jú eina
rúmgóða fyrir langferðina sem hægt er að fylla
því það er aldrei að vita hvað maður rekst á og
vill hafa í farteskinu heim aftur. Í Kisunni fást
afskaplega svalar og liprar ferðatöskur frá þýska
gæðamerkinu Rimowa. Þær eru fáanlegar í
ýmsum stærðum og gerðum, annaðhvort úr
fisléttu áli eða úr einskonar plast- og
gúmmíblöndu sem er
afskaplega sterk en samt
sveigjanleg. Kisan,
Laugavegi 7.
Í FARTESKINU
Berlín 5.4. - 15.6.
FIMMTA BERLÍNSKA BIENNALE
FYRIR NÚTÍMALIST.
Sýningarstjórar eru Adam Szymczyk og Elena Filipovic.
Kunst-Werke
New York 20.4.-30.6.
TAKE YOUR TIME - ÓLAFUR ELÍASSON
Yfirlitssýning á verkum Ólafs með innsetningu,
ljósmyndum og skúlptúrum. Museum of Modern Art.
París 15.4.-15.6.
JAN FABRE - ENGILL UMBREYTINGANNA
Sýning á verkum hins belgíska listamanns ( f. 1958)
og innsetningu þar sem hann hefur komið fyrir verkum
listamanna eins og Hieronymus Bosch, Peter Paul
Rubens ofl.
BÓKAÐU
NÚNA
Norræna er alltaf að bæta
þjónustuna um borð og nú nýlega var
þar tekinn í notkun bíósalur. LISTSÝNINGAR Í APRÍL
Astrid Lindgren