Fréttablaðið - 30.03.2008, Side 37
KÓPAVOGSBÆR
Sumarstörf
Kópavogsbær auglýsir
eftirfarandi sumarstörf
laus til umsóknar:
Áhaldahús
• Flokkstjórar og verkafólk í garðyrkju-
störf, grasslátt og almenn verkamanna-
störf. Æskilegt er að flokkstjórar hafi
reynslu í verkstjórn og / eða garðyrkju-
störfum.
Nánari upplýsingar gefur María Vera
Gísladóttir, mariavg@kopavogur.is, sími
570 – 1660.
Gæsluvellir
• Afleysingafólk í 81% starf. Æskilegt er
að umsækjendur hafi reynslu og áhuga
á að starfa með börnum. Umsækjendur
skulu vera 18 ára eða eldri.
Nánari upplýsingar gefur Emilía Júlíusdóttir,
emilia@kopavogur.is, sími 570 – 1400.
Íþróttavellir
• Flokkstjórar og verkafólk í almenna
hirðingu og gæslustörf. Umsækjendur
skulu vera fæddir 1990 eða fyrr.
Nánari upplýsingar gefur Ómar Stefánsson,
kopvollur@kopavogur.is, sími 863 – 5913.
Leikjanámskeið
• Leiðbeinendur sem hafa umsjón
með leikja- og siglinganámskeiðum.
Umsækjendur þurfa að hafa reynslu og
áhuga á starfi með börnum og skulu vera
21 árs eða eldri.
Aðstoðarfólk til aðstoðar leiðbeinend-
um. Umsækjendur þurfa að hafa reynslu
og áhuga á að starfa með börnum.
Umsækjendur skulu vera 18 ára eða eldri.
Nánari upplýsingar gefur Arna Margrét
Erlingsdóttir, arname@kopavogur.is, sími
570 – 1600.
Skólagarðar
• Leiðbeinendur (garðstjórar) sem hafa
umsjón með skólagörðum. Æskilegt er
að umsækjendur hafi reynslu og áhuga á
ræktun og að starfa með börnum og skulu
vera 21 árs eða eldri.
Aðstoðarfólk til aðstoðar leiðbeinendum.
Umsækjendur þurfa að hafa áhuga á að
starfa með börnum. Umsækjendur skulu
vera 18 ára eða eldri.
Nánari upplýsingar gefur Sigurður
Ólafsson, sigurdurgo@kopavogur.is, sími
570 – 1550.
Sundlaugar
• Afleysingafólk. Góð sundkunnátta áskilin.
Umsækjendur skulu vera 20 ára eða eldri.
Nánari upplýsingar gefa Guðmundur
Harðarson (Sundlaugin Versalir), gud-
mundurh@kopavogur.is, sími 570 – 0480
og Pétur Birgisson (Sundlaug Kópavogs),
peturbi@kopavogur.is, sími 570 – 0470.
Vinnuskóli
• Leiðbeinendur (flokkstjórar) sem vinna
með og stjórna vinnuflokkum unglinga.
Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu
í verkstjórn og að starfa með unglingum.
Umsækjendur skulu vera 21 árs eða eldri.
Yfirleiðbeinendur sem hafa umsjón með
mörgum vinnuflokkum og ákveðnum
verkefnum. Umsækjendur þurfa að hafa
reynslu í verkstjórn og skulu vera 21 árs
eða eldri.
Nánari upplýsingar gefur Sigurður Ólafsson,
sigurdurgo@kopavogur.is, sími 570 – 1550.
Eingöngu er hægt að sækja
um sumarstörf á heimasíðu
Kópavogsbæjar
www.kopavogur.is
frá 26. mars.
Umsóknarfrestur er til
13. apríl 2008.
www.kopavogur.is
www.marelfoodsystems.com
Innheimtufulltrúi
Marel óskar að ráða innheimtufulltrúa. Um er að ræða starf í fjármáladeild þar sem
meginstarfssvið felst í innheimtu innlendra og erlendra krafna. Starfið krefst góðrar hæfni í
samskiptum, nákvæmni og sjálfstæðra vinnubragða.
Starfssvið:
• innheimta innlendra og erlendra krafna
• dagleg samskipti við viðskiptavini, sölumenn og umboðsaðila um heim allan
• samskipti við innheimtufyrirtæki
• yfirsýn bankaábyrgða
• eftirfylgni með samningum
• bókanir, afstemmingar og gerð reikningsyfirlita
• önnur tilfallandi verkefni s.s. afleysingar fyrir aðalgjaldkera
Menntunar- og hæfniskröfur:
• góð reynsla af innheimtu eða sambærilegum störfum er skilyrði
• góð bókhaldskunnátta er skilyrði
• góð kunnátta í bókhaldskerfi, s.s. Axapta eða sambærilegu er kostur
• góð enskukunnátta er skilyrði, önnur tungumálakunnátta er kostur
• reynsla af erlendum viðskiptasamskiptum er kostur
Frekari upplýsingar um starf innheimtufulltrúa veitir Snorri H. Þorkelsson, fjármálastjóri, snorri@marel.is
í síma 563-8445.
Sækja skal um störfin á heimasíðu Marel, www.marel.is. Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl 2008.
Fullum trúnaði er heitið gagnvart umsækjendum.
Marel ehf er dótturfélag Marel Food Systems hf sem er
alþjóðlegt hátæknifyrirtæki í fararbroddi í þróun og
framleiðslu tækja, hugbúnaðar og lausna fyrir matvælaiðnað.
Hjá Marel Food Systems starfa yfir 2100 starfsmenn í 5
heimsálfum, þar af um 370 manns hjá Marel ehf á Íslandi.
Velferðasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag
sem borgin er. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar,
4 11 11 11 færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Miðgarður, Þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness
óskar eftir að ráða áhugasamt fólk eldra en 18 ára til að
starfa við liðveislu fyrir fatlaða, bæði börn og fullorðna í
Grafarvogi.
Markmið stuðningsþjónustunnar er að veita félagslegan
stuðning til þátttöku í samfélaginu og stuðla að aukinni
félagsfærni.
Helstu verkefni:
• Að veita persónulegan stuðning til þess að njóta menningar
og félagslífs.
• Að veita aðstoð til að taka þátt í íþrótta- og tómstundastarfi .
Hæfniskröfur:
• Umsækjendur þurfa að búa yfi r hæfni í mannlegum
samskiptum og geta starfað sjálfstætt.
Við bjóðum upp á:
• Fjölbreytt störf
• Sveigjanlegan vinnutíma sem er tilvalin með námi
• Fræðslu og leiðsögn í starfi
Um er að ræða störf unnin í tímavinnu með sveigjanlegum
vinnutíma 16 - 30 klst. í mánuði. Vinnutími er aðallega á
eftirmiðdögum og um helgar.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og
Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Magnúsdóttir, félagsráðgjafi
í síma 411-1400.
Umsóknum skal skilað í Þjónustumiðstöðina Miðgarð,
Langarima 21 eða á netfangið margret.magnusd@reykjavik.is
fyrir 7. apríl 2008
Vilt þú taka að þér spennandi hlutastarf í stuðningsþjónustu
hjá Miðgarði þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjal
Stuðningsfjölskyldur óskast
Miðgarður, Þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness
óskar eftir að ráða áhugasamar fjölskyldur sem eru
tilbúnar til að taka börn reglubundið til helgardvalar á
heimili sín eina til tvær helgar í mánuði eða eftir nánara
samkomulagi.
Markmið stuðningsfjölskyldu er að styðja við uppeldi og
aðbúnað barna. Stuðningsfjölskyldur taka á móti barni eða
börnum til sólarhringsvistunar á heimili sínu með það að
markmiði að styðja foreldra í forsjáhlutverki, veita þeim hvíld
og/eða styrkja stuðningsnet viðkomandi barns eftir því sem
við á.
Reynslan hefur sýnt að stuðningsfjölskyldur vinna öfl ugt
forvarnarstarf til að tryggja og viðhalda festu og öryggi í lífi
þeirra barna sem hjá þeim dvelja.
Æskileg búseta er Reykjavík og nágrannasveitarfélög.
Greitt er samkvæmt verktakasamningi.
Nánari upplýsingar veitir: Margrét Magnúsdóttir í síma
411-1400, netfang: margret.magnusd@reykjavik.is
Umsóknum skal skilað til Miðgarðs, þjónustumiðstöðvar
Grafarvogs og Kjalarness, Langarima 21, 112. Reykjavík eða
á ofangreint netfang fyrir 7. apríl nk.
Pípulagningamenn
Pípulagningamenn og menn vanir pípulögnum
óskast til starfa.
Alhliða pípulagnir sf
Upplýsingar í símum 693 2603 (Úlfar) og 693 2604 (Steinþór)