Fréttablaðið - 30.03.2008, Síða 53
Hefur þú áhuga á að vinna hjá kraftmiklu þjónustufyrirtæki í örum vexti? Vegna stóraukinna umsvifa getur
Öryggismiðstöðin bætt við sig öflugum liðsmönnum í spennandi og fjölbreytileg störf.
Öryggisráðgjafar fyrir heimili
Starfið felst í ráðgjöf og sölu til einstaklinga og heimila á vörum og þjónustu Öryggismiðstöðvarinnar. Um er að
ræða sölu í gegnum síma, móttöku viðskiptavina á staðnum og með heimsóknum til viðskiptavina. Vinnutími
getur verið sveigjanlegur að einhverju leyti. Mjög góð vinnuaðstaða er í boði og góðir tekjumöguleikar fyrir
árangursdrifna sölumenn.
Hæfniskröfur
• Reynsla af sölustörfum
• Vilji til að ná árangri
• Frumkvæði, stundvísi, þjónustulund og vinnugleði
• Kostur ef viðkomandi hefur þekkingu á öryggismarkaðnum
Öryggisráðgjafar fyrir fyrirtæki
Starfið felst í ráðgjöf og sölu til fyrirtækja á vörum og þjónustu Öryggismiðstöðvarinnar. Um er að ræða sölu í
gegnum síma, móttöku viðskiptavina á staðnum og með heimsóknum til viðskiptavina. Vinnutími getur verið
sveigjanlegur að einhverju leyti. Mjög góð vinnuaðstaða er í boði og góðir tekjumöguleikar fyrir árangursdrifna
sölumenn.
Hæfniskröfur
• Víðtæk reynsla af sölumennsku til fyrirtækja
• Öll menntun sem nýst getur í starfinu telst kostur
• Vilji til að ná árangri
• Frumkvæði, stundvísi, rík þjónustulund og vinnugleði
• Kostur ef viðkomandi hefur þekkingu á öryggismarkaðnum
Öryggismiðstöðin býður upp á góða vinnuaðstöðu og mjög samkeppnishæf laun fyrir öfluga starfsmenn.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Daði Þór Veigarsson, sviðsstjóri sölusviðs, í síma 530 2400.
Ertu að leita að vel launuðu
sölustarfi?
T
B
W
A
\
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
\
S
ÍA
-9
0
8
0
4
2
0
Skriflegar umsóknir skal senda í pósti merktar:
Atvinnuumsókn – sölusvið, Öryggismiðstöðin, Borgartúni 31, 105 Reykjavík.
Einnig má senda umsóknir í tölvupósti, atvinna@oryggi.is.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar. Vakin er athygli á því
að allir starfsmenn Öryggismiðstöðvarinnar þurfa að skila inn hreinu sakavottorði.
www.oryggi.is
Öryggismiðstöðin er kraftmikið og framsækið
þjónustufyrirtæki þar sem frumkvæði og fram-
sýni starfsmanna er mikils metin.
Hjá fyrirtækinu starfar samhentur hópur sem
hefur það að meginmarkmiði að veita viðskipta-
vinum ávallt úrvalsþjónustu.
Mikil áhersla er lögð á að auka þekkingu starfs-
manna, m.a. með reglubundinni þjálfun og nám-
skeiðum, og gefa þeim kost á að vaxa í starfi.
Öryggismiðstöðin hefur þannig á að skipa einvala
liði með mikla faglega þekkingu á öryggismálum.
Fyrirtækið leggur ríka áherslu á að skapa
starfsmönnum gott vinnuumhverfi og taka vel á
móti nýjum starfsmönnum.
Hjá Öryggismiðstöðinni starfa um 130 manns.
Suðurhraun 1 | 210 Garðabæ | Sími: 59 50 300 | Fax: 59 50 310 | isafold@isafold.is | www.isafold.is
Ísafoldarprentsmiðja er elsta prentsmiðja landsins, stofnuð 1877. Í dag starfa 80 starfsmenn hjá fyrirtækinu.
Miklar fjárfestingar í vélum, tækjum og öðrum búnaði hafa átt sér stað síðustu misserin og er prentsmiðjan
flutt í nýtt 7000m2 húsnæði. Hjá Ísafoldarprentsmiðju er unnið að mjög fjölbreyttum verkefnum, bæði á sviði
rúlluprentunar og arkaprentunar. Hjá okkur er m.a. Fréttablaðið prentað, ásamt fjölda annarra verkefna.
Við hjá Ísafoldarprentsmiðju leggjum áherslu á góðan starfsanda, mikla þjónustulipurð og skemmtilegan vinnustað.
Ísafoldarprentsmiðju
vantar fleira fólk í hópinn.
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um störfin.
Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 008.
Prentráðgjafi
Starfsvið
• Starfið felst í sölu og þjónustu við
viðskiptavini fyrirtækisins.
• Tilboðsgerð.
• Vinnuseðlagerð
• Reikningagerð.
Hæfniskröfur
• Reynsla úr prentgeiranum eða af sölu
og þjónustustörfum æskileg, en þó ekki
skilyrði.
• Tölvufærni.
• Þjónustulund nauðsynleg.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Gunnar Haraldsson sölu og markaðsstjóri
í síma 664 0317 og 595 0317 eða á
gunnarh@isafold.is
Prentara
Leitum að prenturum bæði á arkavélar
og rúlluvélar.
Nánari upplýsingar veita Halldór Jakobsson
verkstjóri í prentsal í síma: 664 0302,
halldor@isafold.is og Kjartan Kjartansson
prentsmiðjustjóri í síma: 664 0315.
Pökkun
Leitum að starfsfólki í pökkun á Fréttablaðinu.
Kvöld- og næturvinna.
Íslenskukunnátta nauðsynleg.
Nánari upplýsingar veitir Kjartan Kjartansson
prentsmiðjustjóri í síma: 664 0315.