Fréttablaðið - 30.03.2008, Page 65
FERÐALÖG 37
Oak Island Resort and Spa er á fallegum slóðum í um
45 mínútna akstursfjarlægð frá Halifax. Á hótelinu er fjölmargt
í boði fyrir þá sem leita eftir hvíld, hressingu og nýrri upplifun,
„spa“, dekurmeðferð og slökun, bátsferðir, kayakferðir og
margt fleira. Í nágrenni Oak Island er ýmislegt að sjá og má
nefna t.d. Lunenburg, Mahone Bay og Peggy's Cove.
Nauðsynlegt er að hafa bíl til umráða. Hertz býður þeim, sem
bóka bíl í flokkunum „compact“ til „full size“ á þessu tímabili,
uppfærslu í næsta bílaflokk fyrir ofan þann sem greitt er fyrir.
+ Nánari upplýsingar á www.icelandair.is/tilbodsferdir
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
4
17
49
3
/0
8
NJÓTIÐ LÍFSINS
Í NOVA SCOTIA
OAK ISLAND RESORT AND SPA
VERÐ FRÁ 62.000 KR. Á MANN
Í TVÍBÝLI Í ÞRJÁR NÆTUR
Ferðatímabil 21. apríl - 31. des.
H
vern dreymir ekki um
sumarfrí í anda bóka
Astrid Lindgren, þar
sem hægt er að slaka á
og sleikja sólskinið, dýfa tásunum
fram af bryggjunni og elda góðan
mat með fjölskyldunni. Eystra-
saltseyjarnar mætti kalla Mið-
jarðarhafseyjar norðursins og
bjóða upp á skemmtilega og
frumlega möguleika.
Sól: Ef þig þyrstir í sólskin er
besti kosturinn hinar sænsku
Gotlands- eða Álandseyjar. Á
Gotlandi getur þú skoðað
sögufrægar kirkjur og rústir eða
mætt á miðaldahátíð sem haldin
er fyrstu vikuna í ágúst.
Skemmtilegasti strandstaðurinn
er Tofta, rétt sunnan við Visby. Þú
kemst til Gotlands með ferju frá
Malmö. Hægt er að keyra til
Álandseyja á brú en þær eru
frægar fyrir um 400 vindmyllur
sem þar eru.
Slökun: Fljúgðu til Stokkhólms
en austan við borgina er að finna
ótalmargar gróðursælar ævin-
týraeyjar. Sumar eru byggðar,
eins og til dæmis Namdo þar sem
sveitasælan ríkir, eða Moja þar
sem er að finna ótal lítil fiskiþorp.
Aðrar eyjar eru pínulitlar og það
er til dæmis hægt að leigja heila
eyju með einu húsi á. Andrúmsloft
þessara eyja er skemmtilega
gamaldags og þar ríkir tímalaus
ró og friður.
Til að vera ein í heiminum:
hvers vegna ekki að heimsækja
finnsku Álandseyjarnar sem liggja
í Botníuflóanum en þangað er
hægt að komast með ferju frá
Helsinki eða Stokkhólmi yfir á
aðaleyjuna, sem einnig heitir
Áland. Á þessum ótalmörgu eyjum
ferðast heimamenn um á
reiðhjólum og upplagt að skoða
hina fallegu náttúru á löngum
hjólaleiðum. Flest sumarhúsin
eru bjálkakofar með sánu og um
að gera að henda sér svo út í sjóinn
að finnskum sið að sánu lokinni.
www.visitaland.com
EYJALÍF Í EYSTRASALTI
AÐ leigja sumarhús á Eystrasaltseyjunum er uppskrift að draumafríi
Skandinavísk dásemd Lítil eyja í sænska skerjagarðinum
Friður og ró Bátar í Botníuflóa
9