Fréttablaðið - 30.03.2008, Blaðsíða 72
Ingveldur fylg-
ist með. Hún
veit að allir með
viti eru að fara
til Afríku þessa
dagana. Fjöl-
miðlar kalla
þetta „Afríku-
veikina“ og hún
hefur heyrt og
lesið að Bjarni
Ármanns,
Jóhannes í Bónus og Kristín Ólafs
séu með hana. Það er bara eitt-
hvað svo fallegt við það að bóka
frí til Malaví. Fyrst var Madonna
þar, nú Kata Júl. Svo getur maður
komið heim með mynd af sér með
afrísku barni i fanginu eða jafnvel
með afrískt barn í fanginu og liðið
svo fallega... innan í sér. Ingveldur
vill fara til Afríku og gera góð-
verk. Hún er búin að stúdera Ang-
elinu á netinu. Sér að það er möst
að mæta í hermannabuxum, hlýra-
bol og derhúfu. Svona „Low Key
Chic“ kalla þeir það. Má ekki
mæta með Marc Jacobs-sólgler-
augun þegar allir eru að svelta.
Svo er þetta dálítið undarlegt, ekk-
ert nema einhver lúxushótel á net-
inu í Malaví hvort eð er. Ekki snef-
ill af hungursneyð og þriðja heims
volæði. Hún bókar sig inn á
„Lodge“ með draumasundlaug og
svo segir í textanum að barinn sé
ávallt „well stocked“ og það megi
horfa á dýr borða gras rétt fyrir
neðan. Fullkomið! Gin og tónik og
antilópur á beit. Hver getur beðið
um meira?
Ingveldur er mætt. Hún er í
áfalli eftir tólf tíma flug og hrylli-
legasta flugvöll sem hún hefur
séð. Það er allt svo ... skrýtið
hérna. Subbulegt. Hana klæjar
alls staðar. Svo eru allir svartir.
En ekki eins og gæjarnir á Wall
Street. Kannski eru það þessar
skelfilegu malaríutöflur en henni
er verulega farið að svima þegar
hún finnur loksins rútu sem á að
fara með hana á áfangastað. Hvað
er eiginlega að þessu fólki? Farar-
tækið er að hruni komið og svo
virðist enginn skilja hana. Hún
kemur ser fyrir við hliðina á konu
með svakalega mikinn höfuðbún-
að og nokkra krakka. Jæja, dæsir
hún, það eru að minnsta kosti ekki
hænur í rútum hérna eins og í
Indlandi. (Sá það á National
Geographic Channel).
Næsti dagur er mun betri. Ing-
veldur „minglar“ við heimamenn,
borðar þriðja heims kássur og
berar nýhvíttaðar tennurnar fram-
an í börnin. Henni er farið að líða
eins og guðmóður þorpsins.
Næsta dag á markaðnum tekst
henni að prútta niður fullt af dýrð-
legum mynstruðum kjólum og afr-
íkufestum. Þetta er algjörlega
málið. Af hverju er þetta lið ekki
að selja þetta heima? Ætti full-
komlega heima í Kisunni. Ingveld-
ur fyllir ferðatösku og ákveður að
halda góðgerðauppboð í Epal fyrir
vinkonurnar þegar hún kemur
heim. Eða kannski á Vox. Batik is
the new black. Eða þannig.
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ferðalög
DESEMBER 2007
UPPÁHALDSBORGIN MÍN
ER... París.
MINNISSTÆÐASTA MÁLTÍÐ-
IN SEM ÉG HEF SNÆTT ER
... Engisprettur á Indlandi.
UPPÁHALDSHÓTELIÐ MITT
ER... Öll þau hótel sem líta
ekki út fyrir að vera hótel.
ÞAÐ BESTA VIÐ AÐ FERÐAST
ER... Að láta koma sér á óvart.
ÞEGAR ÉG ER Á FERÐA-
LAGI ÞÁ SAKNA ÉG...
Einskis.
ÞEGAR ÉG HUGSA UM PAR-
ADÍS ÞÁ HUGSA ÉG UM...
Einhvern stað sem er langt í
burtu frá öllu.
ÉG KEM ALLTAF HEIM
MEÐ... Eitthvað frá öðrum
löndum: mat, krydd, hluti,
og helst bara eithvað eitt
æðislegt sem mig dauð-
langaði í.
FYRSTA FERÐALAGIÐ MITT
VAR TIL... Grænlands.
MIG HEFUR ALLTAF LANG-
AÐ AÐ FARA TIL.... Tókýó
SKEMMTILEGASTI STAÐUR
SEM ÉG HEF NOKKURN
TÍMA HEIMSÓTT ER... Balí.
Á FERÐ OG FLUGI
VERA PÁLSDÓTTIR LJÓSMYNDARI HEFUR FERÐAST VÍTT OG BREITT UM HEIMINN FYRIR HIN ÝMSU VERKEFNI. HÚN HEFUR MEÐAL ANNARS
MYNDAÐ FYRIR BLÖÐ EINS OG ELLE, MADAME FIGARO OG THE FACE. UM ÞESSAR MUNDIR MYNDAR HÚN FYRIR NÝTT LÍF OG HÉLT NÝLEGA
SÝNINGU Á VERKUM SÍNUM Í ÞJÓÐMINJASAFNINU.
UNGFRÚ
INGVELDUR...
Fer til Afríku