Fréttablaðið - 30.03.2008, Blaðsíða 77
SUNNUDAGUR 30. mars 2008 21
Frammistaða Britney Spears sem gestaleik-
kona í þáttunum How I Met Your Mother
virðist ætla að verða til þess að blása nýju lífi í
feril söngkonunnar. Á dögunum spurðist út að
henni hefði verið boðið aðalhlutverk Blanche
DuBois í leikriti Tennessee Williams, Spor-
vagninum Girnd, á West End í London, og nú
greinir National Enquirer frá því að henni
verði mögulega boðinn eigin sjónvarpsþáttur.
Yfirmenn á CBS-sjónvarpsstöðinni, sem
framleiðir How I Met Your Mother, fannst
Spears svo góð í hlutverki sínu að þeir velta
því nú fyrir sér að hafa söngkonuna í aðalhlut-
verki í nýjum sjónvarpsþætti. Fyrst vilja þeir
að hún snúi aftur sem móttökudaman í How I
Met Your Mother. „Britney stóð sig frábærlega
sem sæta, fyndna móttökudaman. Það voru
engir áhorfendur á staðnum, manni leið vel á
tökustaðnum og það gerði það að verkum að
hún átti ekki í neinum vandræðum með að
einbeita sér,“ segir heimildarmaður á CBS.
Spears í sjónvarpið
Kevin Federline segist alltaf ætla
að vera til staðar fyrir
fyrrverandi eiginkonu sína
Britney Spears. Federline, sem
hefur fullt forræði yfir börnunum
þeirra tveimur, segir að Britney
verði honum ávallt mikilvæg
enda er hún móðir barnanna hans.
„Mér mun alltaf þykja vænt um
móður barnanna minna og ég verð
alltaf til staðar fyrir þau. Ég trúi
því að með þeirri jákvæðu orku
sem ég miðla af mér fái ég ennþá
meiri orku til baka. Sambandið
við börnin mín og fjölskyldu mun
endast alla mína ævi og það finnst
mér mikilvægast í lífinu,“ sagði
Federline.
Til staðar
fyrir Britney
KEVIN FEDERLINE Rapparinn Federline
ætlar alltaf að vera til staðar fyrir Britney
Spears.
Óvíst er hvort skemmtistaðurinn
Tunglið verður opnaður næst-
komandi laugardag eins og
fyrirhugað var. Eftir að lokahátíð
Gauks á Stöng var haldin á
dögunum hafa breytingar staðið
yfir vegna nýja staðarins og verða
þær í fullum gangi næstu daga.
„Við komumst að því hversu langt
við komumst um helgina. Við
sjáum til á mánudag eða þriðju-
dag,“ segir Kiddi Bigfoot, eigandi
Tunglsins.
Mikil tímamót urðu í íslensku
skemmtanalífi þegar Gauknum var
lokað um síðustu helgi því hann
hefur verið rekinn í 25 ár án þess
að láta bilbug á sér finna. Nýi
staðurinn, Tunglið, mun einblína á
klúbbastemningu með stóru
dansgólfi og öflugum græjum. - fb
Tafir hjá
Tunglinu
KIDDI BIGFOOT Óvíst er hvort Tunglið
verði opnað um næstu helgi eins og
fyrirhugað var. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Robbie Williams langar að gera
matreiðsluþætti. Söngvarinn
hefur að undanförnu fengið
kennslu í matreiðslu í einkatímum,
og langar að sýna heiminum
hæfileika sína í eldhúsinu, bæði
með sjónvarpsþáttum og mat-
reiðslubók. Vinir hans eru þó ekki
alveg sannfærðir um að elda-
mennska Robbies eigi upp á pall-
borðið hjá öllum. „Vandamálið er
að Robbie borðar ekki beinlínis
heilsusamlegasta mat í heimi.
Hver þarf kennslu í að elda ham-
borgara og franskar? Það er nokk-
urn veginn það eina sem hann
hefur áhuga á,“ segir vinur söngv-
arans í viðtali við breska blaðið
The Sun.
Þetta eru þó ekki einu merkin
um nýfundinn áhuga Robbies á
matreiðslu því nýverið fréttist að
hann og vinur hans, leikarinn Max
Beesley, myndu taka þátt í sér-
stakri útgáfu af þættinum „Rams-
ay’s Kitchen Nightmares“, þar
sem hinn harðorði kokkur Gordon
Ramsay er í aðalhlutverki. Félag-
arnir myndu þá vinna á veitinga-
stað sem á í vök að verjast og
reyna að snúa rekstrinum til hins
betra, með leiðsögn Ramsays. „Ég
er mikill áhugamaður um mat, svo
ég hefði ekkert á móti einu af
bræðisköstum Gordons,“ sagði
Beesley nýverið.
Robbie vill kenna matreiðslu
BLÆS LÍFI Í FERILINN
Frammistaða Britney Spears
í þættinum How I Met Your
Mother virðist vera að blása
nýju lífi í feril hennar, en
nú berast fregnir af því að
henni verði boðinn eigin
sjónvarsþáttur á CBS.
ELDAVÉLIN LOKKAR Robbie Williams
ku hafa fengið mikinn áhuga á því að
gera eigin matreiðsluþætti og gefa út
matreiðslubók, eftir að hafa fengið
einkatíma í eldamennsku.