Fréttablaðið - 30.03.2008, Side 78

Fréttablaðið - 30.03.2008, Side 78
22 30. mars 2008 SUNNUDAGUR sport@frettabladid.is Flosrún Vaka Jóhannesdóttir og félagar í íslenska kvennalandsliðinu í íshokkí unnu alla fimm leiki sína í 4. deild heimsmeistarakeppninnar og tryggði sér sæti í 3. deildinni með glæsilegum hætti. „Þetta er búið að ganga frábærlega og það er allt búið að ganga upp hjá okkur og allt er bara æði,“ sagði Flosrún. „Erfiðasti leikurinn var þó á móti Nýja- Sjálandi í gær,“ sagði Flosrún þrátt fyrir að íslenska liðið hafi unnið hann 5-1. „Þetta var besti leikurinn okkar í mótinu og þær voru alveg miður sín og vissu ekkert hvað þær áttu að gera. Okkar lið hefur breyst mest frá því í fyrra og mér finnst eiginlega enginn vera búinn að ná framförum nema við,“ segir Flosrún í léttum tón. Hún er ánægð með þjálfarann sinn. „Við komum hingað í fyrra með Söruh Smiley sem þjálfara og hún er aftur með okkur núna. Það er mikið henni að þakka hvað við erum búnar að ná miklum framförum. Við erum með æðislegan þjálfara. Sem betur fer hlustuðum við allar á hana og skilaboðin fóru inn í hausinn okkur öllum. Hún var reyndar svolítið hissa á því að allt myndi ganga upp því hún breytti varnarleiknum í hverjum leik,“ segir Flosrún sem skoraði sex mörk og gaf fimm stoðsendingar í leikjunum fimm. „Ég held að ég hafi aldrei átt betri leik en á móti Nýja-Sjálandi. Ég er búin að vera í Danmörku í tvö ár og við erum búnar að vinna Danmerkurmeistaratitilinn bæði árin sem hefur líka verið frábært. Ég er búin að læra mjög mikið á því að spila í Danmörku en ég sakna samt alltaf gamla liðsins,“ segir Flosrún sem lék með Birninum áður en hún fór út til Danmerkur þar sem hún spilar með Herlevs ishockey Piger. „Ég var oft spurð úti hvernig ég héldi að þetta færi hjá okkur og ég svaraði alltaf að það væri aðalmálið hvernig stelpurnar eru að æfa heima. Þær hafa tekið framförum og það eru allir í liðinu að leggja mikið í púkkið og við erum komnar með mjög gott lið,“ segir Flosrún sem hefur þegar sett markmið um framhaldið. „Við ætlum okkur að halda Íslandi í 3. deildinni en það tekur okkur örugglega nokkur ár í viðbót að komast í næstu deild fyrir ofan,“ segir Flosrún en danska landsliðið er í 2. deild. FLOSRÚN VAKA JÓHANNESDÓTTIR, LANDSLIÐSKONA Í ÍSHOKKÍ: ÁTTI ÞÁTT Í 11 ÍSLENSKUM MÖRKUM Búin læra mjög mikið á því að spila í Danmörku Hvernig fer úrslitaeinvígið? Gréta María Grétarsdóttir, Fjölni 3-2 fyrir Keflavík Hafrún Hálfdánardóttir, Hamri 3-2 fyrir Keflavík Kristrún Sigurjónsdóttir, Haukum 3-1 fyrir Keflavík Signý Hermannsdóttir, Val 3-1 fyrir Keflavík Hver má ekki klikka hjá Keflavík? Gréta María: Kesha Watson Hafrún: Kesha Watson, Margrét Kara Sturludóttir, Birna Valgarðsdóttir Kristrún: Kesha Watson Signý: Í Keflavík verða Kaninn og Pálína mikilvægastar. Kaninn stjórnar sókninni og Pálina rífur upp vörnina. Hver má ekki klikka hjá KR? Gréta María: Candace Futrell Hafrún: Candace Futrell, Hildur Sigurðardóttir og Sigrún Ámundadóttir Kristrún: Candace Futrell má ekki klikka hjá KR og Hildur og Sigrún þurfa að skila sínu svo KR eigi möguleika. Signý: Í KR er Hildur mikilvægust og ef hún á góðan dag þá vinnur KR. Að sjálfsögðu þarf Kaninn líka að skila sínu. Hver slær í gegn í einvíginu? Gréta María: Margrét Kara Sturludóttir, Keflavík Hafrún: Hildur Sigurðardóttir, KR Kristrún: Pálína Gunnlaugsdóttir, Keflavík eða Sigrún Ámundadóttir, KR Signý: Margrét Kara Sturludóttir HVERJU SPÁ ÞÆR? KÖRFUBOLTI Lokaúrslit kvenna hefjast í dag þegar Keflavík tekur á móti KR í Toyota-höllinni í Keflavík. Keflavíkur-liðið hefur unnið ellefu síðustu leiki sína í deild og úrslitakeppni og hefur jafnframt unnið alla fjórtán heimaleiki sína í öllum keppnum í vetur. Þetta er aðeins í annað skiptið í sögunni sem nýliðar í deildinni komast svona langt í úrslitakeppninni en Breiðablik fór alla leið og vann Íslandsmeistaratitilinn á sínu fyrsta árið 1995. Breiðablik vann einmitt þáverandi deildarmeistara Keflavíkur 3-0 í lokaúrslitunum. Bæði lið hafa innan sinna raða leikmenn sem hafa orðið Íslandsmeistarar með Haukum undanfarin tvö ár. Tveir þeirra voru í byrjunarliði Hauka þegar liðið tryggði sér titilinn síðasta vor, Pálína Gunnlaugsdóttir hjá Keflavík og Sigrún Sjöfn Ámundadóttir hjá KR. Auk Sigrúnar spilar Guðrún Ósk Ámundadóttir með KR en hún var líka með systur sinni í Haukum. Sex leikmenn í liði Keflavíkur hafa þurft að sætta sig við silfrið undanfarin tvö ár. Þetta eru þær Birna Valgarðsdóttir, Rannveig Randversdóttir, Halldóra Andrés- dóttir, Hrönn Þorgrímsdóttir, Margrét Kara Sturludóttir og Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir. Þær tvær síðastnefndu eiga enn eftir að vinna stóran titil með Keflavík síðan þær komu þangað frá Njarðvík fyrir að verða þremur tímabilum síðan. Hildur Sigurðardóttir kemur sjóðheit úr frábæru einvígi gegn Grindavík en henni hefur gengið illa gegn Keflavík í vetur. Pálína Gunnlaugsdóttir hefur nefnilega með góðri hjálp félaga sinna haft gott tak á Hildi Sigurðardóttur í fjórum leikjum liðanna í vetur. Hildur hefur aðeins nýtt 17,7 prósent skota sinna og skorað 7,3 stig að meðaltali gegn Keflavík. Í síðasta leik klikkaði hún á 14 af 17 skotum og tapaði að auki 9 boltum. KR-liðið mátti lítið við því og tapaði leiknum með 31 stigi. Kesha Watson var stórkostleg í einvíginu á móti Haukum og sýndi að þar fer leikmaður sem ætlar ekki að kveðja Ísland í annað sinn án Íslandsmeistaratitils. Watson var með 27,3 stig, 10 stoðsendingar og 6,7 fráköst að meðaltali í leik auk þess að hitta úr 14 af 25 þriggja stiga skotum sínum sem gerir ótrúlega 56 prósenta nýtingu. Hún nýtti einnig 24 af 26 vítum sínum (92,3 prósent). Watson var „aðeins“ með 22,8 stig í leik, 24 prósenta þriggja stiga skotnýtingu og 72,7 prósenta vítanýtingu gegn KR í vetur sem er lægra en gegn öðrum liðum en hún er mikill liðsmaður og þarf ekki að skora til þess að reynast andstæðingum sínum skeinuhætt. Fréttablaðið fékk fjóra leikmenn sem hafa spilað í vetur til þess að spá fyrir um úrslitaeinvígið. Þetta eru þær Gréta María Grétarsdóttir, spilandi þjálfari Fjölnis, Hafrún Hálfdánardóttir, leikmaður Hamars, Kristrún Sigurjónsdóttir, fyrirliði Hauka, og Signý Hermannsdóttir, leikmaður Vals. Gréta María hefur tvisvar orðið Íslandsmeistari með KR. „Það verður athyglisvert að sjá hvort Pálínu takist að stöðva Hildi þar sem Hildur var að spila rosalega vel á móti Grindavík og lykill fyrir Keflavík að stöðva hana. Keflavík þarf einnig að leggja áherslu á frákastabaráttuna en Sigrún og Helga hafa verið góðar í fráköstunum fyrir KR,“ segir Gréta. „Ég reikna með að útlendingarnir eigi eftir að vega upp á móti hvor öðrum. Tel þó að útlendingurinn hjá Keflavík skipti þær meira máli þar sem framlag hennar til liðsins er mikið þó svo að hún skori ekki alltaf mest,“ segir Gréta sem vill sjá meira frá tveimur leikmönnum í Keflavíkurliðinu. „Hjá Keflavík er mikilvægt að þær Margrét og Ingibjörg nái sér á strik en mér finnst þær eiga talsvert inni. Spái því að Margrét nái sér á strik og komi mest á óvart,” segir Gréta sem spáir eins og hinar þrjár Keflavík sigri í einvíginu. Leikurinn hefst klukkan 16.00 í Toyota-höllinni í Keflavík í dag. Það lið sem hefur unnið fyrsta leikinn í lokaúrslitum í sögu úrslitakeppni kvenna hefur orðið Íslandsmeistari í þrettán af fimmtán skiptum þar af undanfarin fimm ár. ooj@frettabladid.is Stöðvar KR sigurgöngu Keflavíkur? Fyrsti leikur úrslitaeinvígis Iceland Express-deildar kvenna fer fram í Keflavík klukkan 16 í dag. Nýliðar KR heimsækja þá deildarmeistara Keflavíkur sem eru ósigraðir í fjórtán leikjum á heimavelli í vetur. SPENNANDI EINVÍGI Pálína Gunnlaugsdóttir, hjá Keflavík (til vinstri) hefur haldið Hildi Sigurðardóttur niðri í leikjum liðanna í vetur. Nú er að sjá hvort Hildur breytir því en hún var frábær gegn Grindavík. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL OG VILHELM KÖRFUBOLTI Valsmenn geta tryggt sér sæti í Iceland Express-deild karla í kvöld þegar þeir taka á móti FSu í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvígi úrslitakeppni 1. deildar karla. Valsmenn eru 1-0 yfir eftir 89-83 sigur í framlengdum fyrsta leik sem fram fór á Iðu á Selfossi. Robert Hodgson átti stórleik í fyrsta leiknum eftir að hafa látið lítið fyrir sér fara í einvíginu á móti Ármanni/Þrótti. Hodgson skoraði aðeins fimm stig í tveimur leikjum undanúrslitaeinvígisins en var með 19 stig, 6 fráköst, 4 stoðsendingar og 4 stolna bolta í sigrinum á FSu. Hann hitti meðal annars úr 5 af 7 þriggja stiga skotum sínum. Hodgson og lið hans eru enn ósigruð í úrslitakeppni 1. deildar karla því fyrir tveimur árum þá fór hann upp með Þór Þorlákshöfn sem vann þá alla fjóra leiki sína, þar á meðal 2-0 sigur á FSu í undanúrslitunum. Valur var í sömu stöðu í fyrra, vann þá nauman sigur í fyrsta leik en tapaði síðan næstu tveimur fyrir Stjörnunni sem fór upp. Ólíkt því þá eiga Valsmenn annan leikinn á heimavelli sínum. FSu hefur aldrei spilað í úrvalsdeild og liðið er komið nær því en nokkurn tímann áður eftir að hafa dottið út úr undanúrslitum tvö síðustu ár. Liðið var komið 11 stigum yfir á tímabili í fyrsta leiknum og fékk mörg gullin færi til þess að klára leikinn í venjulegum leiktíma. Það tókst ekki og nú þurfa þeir að vinna í kvöld til þess að tryggja sér oddaleik í Iðu. Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19.15 og er í Vodafone-hölllinni að Hlíðarenda. Það má búast við Robert Hodgson og lærisveinar hans eru einum sigri frá úrvalsdeildarsæti: Valsliðið getur farið upp í kvöld 7-0 Robert Hodgson hefur unnið alla leiki sína í úrslitakeppni 1. deildar karla. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR > Mikið í boði fyrir mann leiksins Körfuknattleikssambandið og stuðningsaðili deildarinnar Iceland Express bjóða upp á enn eina nýjung í tengslum við úrslitakeppnina þegar Keflavík tekur á móti KR í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvígi sínu um Íslandsmeistaratitilinn í dag. Eins og áður geta áhorfendur tryggt sér ferð með því að hitta úr Borgarskotinu milli leikhluta en nú fær einnig besti maður leiksins, valinn af sérstakri dómnefnd, ferð að launum með Iceland Express til eins af fjölmörgum áfangastöðum þeirra. Boltinn er hjá okkur Nánar á expressferdir.is eða í síma 5 900 100 Innifalið: Flug m/sköttum og öðrum greiðslum, gisting á hóteli m/morgunverði og miði á leik. Tottenham – M’boro: Flug m/sköttum og öðrum greiðslum og miði á leik. 18.–20. apríl West Ham – Derby 57.900 kr. Verð á mann í tvíbýli 2.–5. maí Barcelona – Valencia 79.900 kr. Verð á mann í tvíbýli 2.–4. maí Liverpool – Man. City 89.900 kr. Verð á mann í tvíbýli F í t o n / S Í A 11.–13. apríl Tottenham – M’boro 35.900 kr. Verð á mann Tilboð!Flug ogmiði á leikinn

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.