Fréttablaðið - 30.03.2008, Síða 80

Fréttablaðið - 30.03.2008, Síða 80
24 30. mars 2008 SUNNUDAGUR KÖRFUBOLTI Snæfell gerði sér lítið fyrir og sigraði Njarðvík örugg- lega, 84-71, í fyrsta leik liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppni Iceland Express-deildarinnar í Njarðvík í gær. Aðeins fyrsti leikhluti var jafn. Þá skiptust liðin á að leiða 10 sinnum og allt benti til jafns og spennandi leiks. Damon Bailey skoraði sjö fyrstu stig Njarðvíkur og bar sóknarleik liðsins uppi í fyrri hálfleik. Bailey skoraði þá 21 stig og hirti 9 fráköst en aðrir leik- menn liðsins voru hreinlega ekki með. Snæfell náði því að byggja upp gott forskot og breyta stöð- unni úr 25-26 í lok fyrsta leikhluta í 37-44 í hálfleik. Snæfell náði fljótt níu stiga forskoti í þriðja leikhluta en tveir 7-0 sprettir hjá Njarðvík minnk- uðu muninn í þrjú stig áður en Snæfell skoraði fjögur síðustu stig fjórðungsins, 54-61. Snæfell hóf fjórða leikhluta eins og liðið endaði þann þriðja og komst 12 stigum yfir, 54-66. Því forskoti náði Njarðvík aldrei að ógna og sigraði Snæfell örugg- lega með þrettán stiga mun, 84- 71. Njarðvík vann leik liðanna í deildarkeppninni í Njarðvík með sömu tölum. Frákastarinn mikli Hlynur Bæringsson hjá Snæfelli var ánægður með sigurinn en sagði sitt lið geta leikið mun betur. „Fínn sigur en alls ekki fullkom- inn leikur hjá okkur. Við getum leikið mikið betur. Í síðari hálfleik náðum við að bæta fyrir lekann frá því í fyrri hálfleik eins og með Bailey,“ Bailey skoraði aðeins átta stig og hirti ekki nema eitt frákast í síðari hálfleik og munaði um minna hjá Njarðvík. „Við náðum að halda öðrum leikmönnum þeirra niðri þrátt fyrir að varnarleikur okkar var ekki eins og hann best getur orðið. Það er margt hægt að bæta hjá okkur sem er jákvætt. Við erum hörkugóðir en getum líka verið daprir. Þegar við skjótum of snemma erum við hundlélegir en þegar við látum boltann ganga og látum lið spila vörn á okkar kerfi getum við brotið flest lið niður,“ sagði Hlynur í leikslok áður en hann haltraði til búnings- herbergja. -gmi Snæfellingar eru komnir í 1-0 í 8 liða úrslitum eftir þrettán stiga sigur á Njarðvíkingum í Ljónagryfjunni: Lokuðu á Damon Bailey í síðari hálfleik STIGAHÆSTIR Justin Shouse hjá Snæfelli skorar hér án þess að Damon Bailey í Njarðvík komi vörn- um við. VÍKURFRÉTTIR/JÓN BJÖRN KÖRFUBOLTI ÍR-ingar byrjuðu úrslitakeppnina í ár alveg eins og í fyrra, með því að vinna KR-inga á þeirra eigin heimavelli. ÍR vann níu stiga sigur í DHL-höllinni, 76- 85, eftir að hafa verið yfir allan tímann, leitt með 11 stigum í hálf- leik, 37-48, og komist mest 14 stigum yfir í fyrri hálfleik. KR-ingar skoruðu sjö fyrstu stig seinni hálfleiks og komu mun- inum niður í tvö stig en ÍR-ingar héldu út og geta því komist í undanúrslitin með sigri á sínum heimavelli í Seljaskóla á morgun. Í fyrra dugði það ekki ÍR að vinna fyrsta leikinn og nú er að sjá hvort Breiðhyltingar hafi lært af reynslunni. Hreggviður Magnússon átti góðan leik fyrir ÍR í gær. „Ástæð- an fyrir því að við fögnuðum þess- um sigri ekki meira er að við vitum að við erum töluvert betri en þetta lið og við klárum seríuna á mánudaginn það er ekkert flókn- ara en það. Við erum yfir allan tímann í þessum leik og vinnum öruggt,“ sagði Hreggviður. „Það er búinn að vera hrikalegur stíg- andi í þessu ÍR-liði eftir áramót, það er keppnisandi í liðinu og við viljum ná árangri,“ sagði Hregg- viður sem endaði leikinn með 13 stig, 6 fráköst og 6 stoðsendingar. Jón Arnar Ingvarsson, þjálfari ÍR, var ekkert að æsa sig of mikið yfir sigrinum. „Þetta var góður sigur og við spiluðum nokkuð vel. Það var góð einbeiting og góð bar- átta í liðinu og þeir hlutir sem við ætluðum að gera gengu nokkuð vel upp,“ sagði Jón Arnar. „Við fórum flatt á þessu í fyrra, unnum þá hérna en vorum síðan ekki klárir í leik tvö. Þeir jörðuðu okkur þá og við ætlum ekki að láta það gerast aftur,“ sagði Jón Arnar. Benedikt Guðmundsson er enn á ný kominn með liðið sitt upp að vegg í úrslitakeppni en það gerð- ist í öllum umferðum þegar liðið vann titilinn í fyrra. „Maður var að vonast til að við myndum brjóta þá hefð að KR tapi fyrsta leik í úrslitakeppni og taka þetta frá byrjun en við lendum strax tíu stigum undir og erum að elta allan leikinn. Þegar við erum að gera þessi áhlaup þá kemur alltaf eitt- hvað, slæm ákvörðun, tapaður bolti, dómur eða eitthvað. Við náðum því aldrei að nýta þessi tækifæri sem við fengum,“ sagði Benedikt eftir leik. „Við ætluðum okkur kannski of mikið til þess byrja með og vorum að byrja með of miklum látum. Þetta er allt of gott lið til þess að fara að pakka því saman í byrjun. Við þurfum að vera rólegri og þá kemur þetta. Við þurfum líka að brosa meira og hafa gaman af þessu. ÍR-ungar eru í bullandi séns núna og þeir eru í bílstjórasætinu,“ segir Benedikt en hvað þarf að breytast fyrir næsta leik. „Við þurfum að fá smá hugar- farsbreytingu en það væri ekki heldur verra ef vítin okkar færu að detta. Við vorum að sækja á þá og koma þeim í villuvandræði en við vorum bara ekki að fá nægi- lega mikið af stigum út úr því. Við þurfum hjálp núna og fólk má ekki vera jákvætt þegar vel gengur en síðan neikvætt þegar illa gengur. Þetta er bara rétt að byrja og við eigum hálft liðið inni fyrir næsta leik og ég er ekki í vafa um að það springa allir út í Seljaskóla á mánudaginn,“ sagði Benedikt að lokum. Nate Brown lék mjög vel fyrir ÍR eins og Hreggviður og þá voru þeir Sveinbjörn Claessen og Tahirou Sani mjög traustir og alveg eins og í sigrinum í fyrra þá setti Steinar Arason niður stórar körfur og skoraði meðal annars fimm stig á síðustu tveimur mínútunum. Joshua Helm byrjaði á bekkn- um en kom sterkur inn með 22 stig og 13 fráköst og Avi Fogel var með 17 stig en liðið þarf að fá meira frá mönnum eins og Jeremiah Sola, Brynjari Björnssyni og Helga Má Magnússyni en þeir tveir síðast- nefndu voru með aðeins fjögur stig saman og klikkuðu á 11 af 12 skotum sínum. Fannar Ólafsson og Skarphéðinn Ingason börðust en það vantaði miklu meiri anda í restina af liðinu. ooj@frettabladid.is Við erum töluvert betri en þeir Hreggviður Magnússon og félagar í ÍR unnu sannfærandi sigur á Íslandsmeisturum KR á þeirra eigin heimavelli í gær og fá því tækifæri til að slá út meistarana í Seljaskólanum á morgun. ÖFLUGUR Hreggviður Magnússon lék vel með ÍR í gær en hér er hann að fara fram- hjá KR-ingnum Fannari Ólafssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HANDBOLTI Það urðu óvænt úrslit í Safamýrinni í gær þegar botnlið ÍBV vann fimm marka sigur á Fram, 29-34 en Fram er í 2. sæti deildarinnar með 24 stigum meira en ÍBV. Þetta var fyrstu útisigur Eyjamann í vetur en liðið er eftir hann átta stigum á eftir Akureyri sem er í síðasta örugga sætinu í deildinni. Eyjamenn voru mun ákveðnari frá upphafi leiks, komust í 4-8, 7-14 og voru sjö mörkum yfir í hálfleik, 12-19. Eyjamenn gáfu ekkert eftir í seinni hálfleik og komust mest tíu mörkum yfir. Ferenc Antal Buday, þjálfari Fram, fékk að líta rauða spjaldið í seinni hálfleik fyrir að mótmæla því að Eyjam- aður hafi aðeins fengið tvær mínútur fyrir gróft brot á Jóhanni Gunnari Einarssyni. Það var að sjá á þessum leik að Framarar trúa greinilega ekki lengur að þeir geti náð Haukum að stigum en eftir þennan leik hafa Haukar sex stiga forskot og eiga að auki leik inni. - óój N1-deild karla í handbolta: Óvæntur sigur Eyjamanna ELLEFU MÖRK Eyjamaðurinn Sergiv Trotsenko var markahæstur á vellinum. FRÉTTABLAÐIÐ/CC Iceland Express deild karla 8 liða úrslit, fyrsti leikur KR-ÍR 76-85 (37-48) Stig KR: Joshua Helm 22 (13 frák.), Andrew Fogel 17, Jeremiah Sola 11 (11 frák., 4 stoðs.), Fannar Ólafsson 10, Pálmi F. Sigurgeirsson 6 (6 stoðs.), Skarphéðinn F. Ingason 6 (3 stolnir), Brynjar Þór Björnsson 3, Helgi Már Magnússon 1. Stig ÍR: Tahirou Sani 18, Nate Brown 17, Steinar Arason 16, Hreggviður Magnússon 13, Sveinbjörn Claessen 12, Eiríkur S. Önundarson 5, Ómar Sævarsson 2, Ólafur J. Sigurðsson 2. Njarðvík – Snæfell 71-84 (37-44) Stig Njarðvíkur: Damon Bailey 29, Jóhann Árni Ólafsson 14, Guðmundur Jónsson 13, Brenton Birmingham 6, Sverrir Þór Sverrisson 4, Hörður Axel Vilhjálmsson 3, Egill Jónasson 2. stig Snæfells:Justin Shouse 20, Slobodan Subasic 19, Ingvaldur Hafsteinsson 13, Jón Ólafur Jónsson 8, Sigurður Þorvaldsson 8, Hlynur Bæringsson 7, Anders Katholm 5, Atli Hreinsson 4. N1-deild karla í handbolta Fram-ÍBV 29-34 (12-19) Mörk Fram: Rúnar Kárason 7, Andri Berg Haralds- son 5, Halldór Jóhann Sigfússon 4, Haraldur Þorvarðarson 3, Hjörtur Hinriksson 2, Guðjón Finnur Drengsson 2, Stefán Baldvin Stefánsson 2, Jóhann Gunnar Einarsson 2, Filip Kliszczyk 2. Mörk ÍBV: Sergiy Trotsenko 11, Sigurður Bragason 8, Zilvinas Grieze 7, Leifur Jóhannesson 3, Sindri Haraldsson 2, Nikolaj Kulikov 2. Æfingamót á Portúgal Ísland-Portúgal 28-33 (16-19) Mörk Íslands: Stella Sigurðardóttir 6, Dagný Skúladóttir 6, Rut Jónsdóttir 5, Þórey Rósa Stefánsdóttir 3, Sólveig Lára Kjærnested 3, Rakel Dögg Bragadóttir 2, Anna Úrsúla Guðmunds dóttir 2, Sigurbjörg Jóhannsdóttir 1.Berglind Íris Hansdóttir varði 15 skot. Lengjubikar karla í fótbolta KS/Leiftur-Fram 0-2 0-1 Auðun Helgason (65.), 0-2 Jón Þorgrímur Stefánsson (75.). ÍA-KA 2-1 1-0 Vjekoslav Svadumovic (18.), 2-0 Svadumovic (65.), 2-1 Orri Gústafsson (81.) Fjarðabyggð-Fylkir 2-3 Andri Hjörvar Albertsson, Grétar Örn Ómarsson - Allan Dyring, David Hannah, sjálfsmark. Selfoss-Valur 2-4 Sævar Þór Gíslason (víti), Boban Jovic - Dennis Bo Mortensen 2, Albert Brynjar Ingason, sjálfsmark. Víkingur Ó.-Grindavík 1-3 Miroslav Pilipovic - Jósef Kristinn Jósefsson, Andri Steinn Birgisson, Jóhann Helgason ÚRSLITIN Í GÆR HANDBOLTI Íslenska kvennalands- liðið tapaði með fimm mörkum, 33-28, fyrir heimamönnum í Portú- gal á æfingamótinu í gær. Íslenska liðið hefur þar með tapað öllum leikjum sínum í ferðinni en bæði Kína og Brasilía, sem unnu íslenska liðið, tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum á mótinu í gær. Íslensku stelpurnar byrjuðu betur, voru 4-2, 6-3 og 8-5 yfir en eftir að Portúgal komst yfir í fyrsta sinn, 9-10, missti íslenska liðið dampinn. „Við erum að stjórna leiknum í byrjun en lendum síðan í því að fá margar brottvísanir á stuttum tíma og lendum í framhaldinu á því í eltingarleik sem er mjög erfitt á móti þessu liði,” sagði Júlíus Jónasson, landsliðsþjálfari. „Við erum að gera alltof mikið af sendingarfeilum í leiknum, hluti af þeim gerist í sókninni en hinn hlutinn gerist þegar við erum á leiðinni upp í hraðaupphlaup og slíkir tapaðir boltar eru bara alltof dýrir. Þá fáum við á okkur mark beint í bakið og þar liggur aðalorsökin fyrir þessi tapi,” saðgi Júlíus. „Það er mikilvægt fyrir alla að fá sigur í síðasta leiknum á móti Tyrkj- um. þrátt fyrir að við höfum verið að tapa þessum leikjum þá erum við að spila á móti mjög sterkum liðum og erum því að fá mikið út úr þessu móti. Allar þessar þjóð- ir eru að spila framliggj- andi vörn sem gerist ekki á hverjum degi í kvennaboltanum,” segir Júlíus sem segir margt jákvætt í gangi hjá liðinu þratt fyrir óhagstæð úrslit. Júlíus var sérstaklega ánægður með frammistöðu þeirra Stellu Sigurðardóttur og Rutar Jónsdótt- ur sem voru að skila saman 11 mörkum úr skyttustöðunum en báðar verða þær átján ára á þessu ári. „Stella hefur fengið að spila mikið og hún er að koma mjög vel út og Rut átti líka mjög góðan leik og þá sérstaklega í fyrri hálfleik,” sagði Júlíus. Síðasti leikur liðsins er gegn Tyrklandi í dag og hefst hann klukkan 13 að íslenskum tíma. - óój Kvennalandsliðið í handbolta tapaði sínum þriðja leik í röð á æfingamótinu í Portúgal í gær. Mikilvægt fyrir alla að fá sigur í dag STÓÐ SIG VEL Rut Jónsdóttir lék vel gegn Portúgal í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.